Alþýðublaðið - 22.07.1994, Page 4
Föstudagur 22. júlí 1994
KOPAVOGUR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Guðmundur Oddsson skrifar:
Jón Baldvin tekur af skarið
varðandi Evrópusambandið
Hin pólitíska umræða
sem ávallt er í gangi
hefur nú í sumar og þá
einkum síðasta mánuð tengst
Alþýðuflokknum. Fyrir rúmum
mánuði hélt flokkurinn flokks-
þing og þar fór fram uppgjör
milli formannsins og fyrrver-
andi varaformanns. Þetta þóttu
mikil pólitísk tíðindi þótt ýmsir
telji að uppgjörinu sé hvergi
nærri lokið.
Það nýjasta af þessum mál-
um er, að nú fer fyrrverandi
varaformaður Alþýðuflokksins
um landið til að kanna hug
kjósenda til sín. Samkvæmt
fréttum virðist henni vel og
kurteislega tekið, sem að sönnu
er ekki nema eðlilegt, því við
Islendingar erum jú kurteist
fólk og höfðingjar heim að
sækja. Vonandi kemur minn
gamli varaformaður hress og
endumærður heim úr þessari
landsreisu sinni.
Innganga í
Evrópusambandið
er á dagskrá
Fyrir tæpum hálfum mánuði
tók formaður Alþýðuflokksins,
Jón Baldvin Hannibalsson við
formennsku í EFTA og sem
slíkur hefur hann sett fram
ýmsar hugmyndir um framtíð-
arstöðu þeirra samtaka og ekki
síður hefur Jón Baldvin varað
mjög við því, að við íslending-
ar einangrumst í samfélagi Evr-
ópu þjóða. Jón Baldvin, sem
öðmm fremur, hefur haft fmm-
„Davíð Oddsson og Bjöm
Bjamason.. .eru gjörsamlega heiBum
horfiiir.. .Það er með ólíkindum
aumingjalegt að hafa það eitt tO
þessara mála að leggja, að það sé
ekki einu sinni á dagskrá að
sækja um aöild.‘
kvæði í þeim samningum sem
við höfum gert við Evrópu
þjóðir, samanber samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið,
hefur nú tekið afdráttarlaust af
skarið um að við eigum að
sækja um aðild að Evrópusam-
bandið, til að kanna hverra
kosta við eigum þar á bæ.
Þetta er af flestum stjóm-
málamönnum, utan Alþýðu-
flokksins, talin drottinssvik. Nú
ljúka þeir flestir upp einum
munni um að samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið dugi
okkur fullkomlega í næstu
framtíð og því sé innganga í
Evrópusambandið ekki einu
sinni á dagskrá.
Auðvitað er öllum enn í
fersku minni, hvemig allir
stjómmálaflokkar landsins
greiddu atkvæði þegar
EES-samningurinn var af-
greiddur á Alþingi. Á þeim
langa tíma sem samningurinn
var til umræðu í þinginu höfðu
allir flokkamir skipt um skoðun
í málinu, nema Alþýðuflokkur-
inn sem alltaf studdi samning-
inn heilshugar, og Kvennalist-
inn sem ávallt var á móti þótt
núverandi borgarstjóri í
Reykjavík sæi að sér við loka-
afgreiðslu og sæti hjá.
Hringlandaháttur
Sjálfstæðisflokks
og Alþýðubandalags
Tveir flokkar hafa þó skorið
sig mjög úr í þessu máli fyrir
hringlandahátt, en það em Al-
þýðubandalag og Sjálfstæðis-
flokkur. Á meðan Álþýðu-
bandalagið var í ríkisstjórn
fram í apríl 1991 studdi flokk-
urinn Evrópska efnahagssvæð-
ið, en eftir að flokkurinn fór í
stjórnarandstöðu gieiddi hann í
heilu lagi atkvæði gegn samn-
ingnum.
Á sama hátt hringsnérist
Sjálfstæðisflokkurinn, því á
meðan flokkurinn var í stjórn-
arandstöðu var hann andvígur
EES, en eftir kosningamar
1991 og flokkurinn var kominn
í ríkisstjóm með Alþýðu-
flokknum, þá studdi Sjálfstæð-
isflokkurinn að mestu EES.
Framsóknarflokkurinn var að
sjálfsögðu líkur sjálfum sér og
hafði skoðanir út og suður.
Hann studdi EES á meðan
hann var í ríkisstjóm, en þegar
flokkurinn var kominn í stjóm-
arandstöðu, þá var helmingur
þingflokksins andvígur EES,
en hinn helmingurinn sat hjá.
Hver var svo niðurstaða
þessa máls? Stefna Alþýðu-
flokksins sigraði og
EES-samningurinn var sam-
þykktur á Alþingi. Nú þegar
formaður Alþýðuflokksins hef-
ur lýst þeirri skoðun sinni, að
við Islendingar eigum að láta
reyna á hverra kosta við eigum
innan Evrópusambandsins með
því einu að sækja um aðild, þá
ætlar hér allt vitlaust að verða á
meðal stjómmálaforingja ann-
arra flokka. Hvað gengur þess-
um mönnum eiginlega til?
Hafa þeir ekki sjálfir viður-
kennt að forsjá Jóns Baldvins
og Alþýðuflokksins hafi
reynst okkur íslendingum
best í Evrópumálunum?
Hvað em til dæmis for-
menn Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks að
reyna að gera sig gildandi
í þessum málum? Hafa
þeir ekki báðir snúist eins
og vindhanar í málinu?
Nú vilja þeir Ólafur
Ragnar og Davíð Odds-
son halda í EES-samn-
inginn eins og hundar á
roði. Nú er þessi samn-
ingur sá besti sem öllu á
að bjarga. Er ekki orðið
tímabært að þessir stjóm-
málaforingjar hætti að
gera sig að athlægi í Evr-
ópumálunum og láti þau í
ömggar hendur Jóns
Baldvins?
Það er með ólíkindum aum-
ingjalegt að hafa það eitt til
þessara mála að leggja, að það
sé ekki einu sinni á dagskrá að
sækja um aðild. Það er einfald-
lega bannorð í hugum þeirra
Davíðs Oddssonar og Bjöms
Bjamasonar. Þá hefur Þorsteinn
Pálsson lýst sinni skoðun, og
ekki er hún stórmannlegri, en
Þorsteinn telur að sú skoðun
Jóns Baldvins, að við eigum að
sækja um aðild að ESB, sé
skaðleg þessu ríkisstjómarsam-
starfi. Ef svo er, þá er þetta rík-
isstjómarsamstarf einskis virði.
Vilhjálmur Egilsson er eini
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
sem hefur þorað að taka undir
með formanni Alþýðuflokks-
ins.
Við eigum að skoða
málið ekki seinna
en strax
Öll sú umræða sem nauðsyn-
leg er vegna þessa máls verður
að fara í gang sem allra fyrst.
Almenningur hér á landi hefur
tekið mjög ákveðið undir þær
hugmyndir Jóns Baldvins, að
sjálfsagt sé að leita eftir því
hverra kosta við eigum, ef við
viljum og ætlum að ganga í
Evrópusambandið. Skoðana-
kannanir hafa sýnt, að mikill
meirihluti þjóðarinnar vill
halda nánu sambandi við Evr-
ópu og þess vegna eigum við
að skoða þessi mál ekki seinna
en strax.
Urtölur og ótti þeirra Davíðs
Oddssonar, Bjöms Bjamason-
ar, Þorsteins Pálssonar, Hall-
dórs Ásgrímssonar, Ólafs
Ragnars Grímssonar, Kristínar
Einarsdótmr og allra þeirra
huglitlu pólitíkusa sem engu
þora og ekkert vilja, má hér
ekki ráð för. Þau ættu hins veg-
ar að viðurkenna þá staðreynd í
snatri, að þau hafa ekki þá pól-
itísku framsýni sem nauðsynleg
er íslenskri þjóð í þessum mála-
flokki, og hlíta þess í stað ör-
uggri forsjá formanns Alþýðu-
flokksins, Jóns Baldvins
Hannibalssonar, því þá mun
okkur vel famast.
Höfundur er bæjarfulltrúi
og skólastjóri.
Davíð og Björn
Bjarna eru heillum
horfnir
Sjálfstæðisflokkurinn er
gjörsamlega stefnulaus í
Evrópumálunum. Manni
sýnist sem helstu tals-
menn flokksins telji sem
Evrópumálin séu ekki
einu sinni á dagskrá hér á
landi. Þannig tala þeir
Davíð Oddsson og Bjöm
Bjamason. Þeir tveir em
svo gjörsamlega heillum
horfnir, að þeir em með
ónot og fúkyrði út í utan-
ríkisráðherra, sem hefur
einn íslenskra flokksfor-
ingja haft þann kjark að
lýsa sinni skoðun.
WBBB
'egná þeirra orða sem Jó-
hanna Sigurðardóttir
sendi mér hér á dögun-
um í Alþýðublaðinu, þar sem
hún sagði að ég „hefði aidrei
skilið konur í pólitík og þess
vegna hel’ði Alþýðuflokkurinn
ekki fengið fleiri atkvæði í síð-
ustu sveitarstjórnarkosningum í
Kópavogi", þá fínnst mér rétt og
skylt að taka fram eftirfarandi:
Alþýðuflokkurinn fékk um
16% atkvæða í síðustu kosning-
um í Kópavogi. Þau úrslit voru
að sönnu hvergi nærri nógu góð.
Ég hef nú verið 5 sinnum efstur
á lista flokksins í Kópavogi og
þetta er næstlélegasta útkoman
sem flokkurinn
undir minni
koma flokksins var hins vegar
1986, en þá fengum við 24,5%.
Nú hefur Jóhanna verið svip-
aðan tíma í framboði, en að vísu
í Reykjavík og aldrei í efsta sæti.
Þrátt fyrir þá staðreynd, að sjálf
Jóhanna Sigurðardóttir hafi ver-
ið í framboði í Reykjavík, þá
hefur Alþýðuflokkurinn aldrei
fengið betri útkomu í kosning-
um í Reykjavík heldur en við
höfum fengið á sama tíma í
Kópavogi.
Varla getur það verið vegna
þess að Jóhanna Sigurðardóttir
skilur ckki konur, eða hvað? Ef
minn skilningur á konum í pólit-
ík er enginn, já hvað má þá segja
um þinn skilning, Jóhanna?
G.O.
LOTT#
Vinningstölur ,
miðvikudagínn:| 20. júlí 1994
j VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
|| 6 af 6 0 96.940.000
B1 5 af 6 iLáö+bónus 1 588.709
|0 53,6 4 115.639
U 4 af 6 366 2.010
frs 3 af 6 ICfl+bónus 1.434 220
Aðaltölur:
5^(24) (25!
37) (40) (43
BONUSTÖLUR
flO)ri7)Í28)
Heildarupphaeð þessa vlku:
99.042.405
á ísl.:
2.102.405
UPPLYSINGAR, SIMSVARI 91- 68 fS 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Vinningur i er þrefaldur næst!
f