Alþýðublaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 1
18fóruávegum
ÞRÓUNAR-
FÉLAGS
REYKJAVÍKUR
til Parísaraðskoða
borgarskipulag:
Enginn
Eiffel-
tumá
Lækjar-
torgið!
jr
Isíðasta mánuði fór 18
manna hópur utan til
Frakklands til að kynna sér
franskar borgir og borgar-
skipulag á vegum Þróunar-
félags Reykjavíkur. Þar var
um að ræða átta stjórnar-
menn félagsins, eiginkonur
sumra þeirra og fulitrúa
meðal annars frá Verslunar-
ráði íslands, Sambandi ís-
lenskra viðskiptabanka og
forsætisráðuneytinu.
Pétur Sveinbjarnarson,
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að ferðalagið hefði
verið greitt af viðkomandi
persónum, en ekki Þróunar-
félaginu, enda hefði það
ekkert bolmagn til þess.
Sögusagnir höfðu borist þess
efnis að félagið hefði greitt
allan kostnað við ferðalagið.
„Þetta var puð frá morgni
til kvölds hjá hópnum, margt
og merkilegt bar fyrir augu
okkar“, sagði Pétur og hafn-
aði því að í kjölfarið kæmi
Eiffeltum á Lækjartorgið!
„Við skoðuðum að sjálf-
sögðu ýmislegt í París, en
fórum ekki síður til að skoða
tvær útborgir og kynntum
okkur skipulag þeirra og
lærðum mikið af því“, sagði
Pétur. Þá sagði Pétur að hóp-
urinn hefði varið einum degi
með Bimi Ólafs, arkitekt,
sem gerir það gott í Frakk-
landi og hefur meðal annars
hannað tjóra miðbæjar-
kjarna. Hefðu kynnin við
hann verið afar lærdómsrík.
Pétur sagðist hafa furðað
sig á því hversu ófeimnir
Frakkar eru að rífa heilu
borgarhverfm. Þarna hafi
mátt sjá 100 hektara svæði
rifið í París til að rýma fyrir
nýjum húsum. Greinilega
væri hugsunarháttur þar í
landi annar en hér, og sagði
Pétur greinilegt að í þessurn
efnutn værum við tíu ámm á
eftir öðrum þjóðum.
Yfirlýsing ÞINGFLOKKS Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands:
Frumvaip um starf
st íómmá laflokka
Þingflokkur Alþýðu-
flokksins - Jafnaðar-
mannaflokks íslands -
hefur samþykkt að skipa starfs-
hóp er hafi það verkefni að
undirbúa á vegum þingflokks-
ins fmmvarp til laga um starf-
semi stjómmálaflokka sem
þingflokkurinn mun beita sér
fyrir að nái fram að ganga á Al-
þingi. Endurskoðaðir reikning-
ar um fjárhag Alþýðuflokksins
verða biitir með reglubundnum
hætti og gerðir aðgengilegir
öllum almenningi. Endurskoð-
aðir reikningar fyrir síðast liðin
tvö ár verða birtir 1. desember
næst komandi.
Þetta kemur meðal annars
fram í yfirlýsingu frá þing-
flokki Alþýðuflokksins sem
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins,
kynnti síðastliðinn föstudag. í
yfirlýsingunni segir að Guð-
mundur Arni Stefánsson fé-
lagsmálaráðherra hafi með
skriflegri greinargerð sinni orð-
ið við kröfum innan flokks og
utan um að gera hreint fyrir sín-
um dymm. Hann hafi á undan-
förnum árum staðið í fylkingar-
brjósti jafnaðarmanna í Hafnar-
firði og undir hans forystu hafi
flokkurinn eflst að trausti og
fylgi. Sú linnulausa og um
margt ósanngjama gagnrýni
sem tjölmiðlar hafi haldið uppi
á embættisfærslu Guðmundar
Áma Stefánssonar hafi hins
vegar varpað skugga á störf
hans og skaðað Alþýðuflokk-
inn og grafið undan trausti
margra á störfum flokksins í
ríkisstjóm.
í yfirlýsingu þingflokksins
segir að stjómmálamenn beri
hver og einn siðferðilega
ábyrgð verka sinna og, öfugt
við embættismenn, hljóti þeir
að standa og falla með verkum
sínum, sem þeir leggja með
reglulegu millibili undir dóm
kjósenda. Ætla megi af yfirlýs-
ingum og fréttum að stjórnar-
andstæðingar á Alþingi taki
skýringar og svör félagsmála-
ráðherra ekki sem góð og gild.
Flest bendi til þess að pólitískir
andstæðingar Alþýðuflokksins
reyni að notfæra sér þessi mál í
pólitískum átökum milli flokka.
Þingflokkurinn efast um að
pólitískt hnútukast af því tagi
sé líklegt til að endurvekja
traust almennings á stjórnsýsl-
unni eða leiði yfirleitt til nokk-
uirar niðurstöðu.
Þegar svo er komið sögu er
mikilvægt að hlutlaus aðili,
sem hafinn er yfir flokkadrætti
og nýtur trausts almennings og
þingflokka, taki af öll tvímæli
um álitamál, segir í yfirlýsing-
unni. í því skyni að taka af tví-
mæli um staðreyndir mála og
freista þess að vekja nauðsyn-
legt traust á opinberri stjórn-
sýslu hefur félagsmálaráðherra
ákveðið að fara þess á leit við
ríkisenduj skoðun, sem er sjálf-
stæð stofnun og heyrir undir
Alþingi, að hún taki að sér að
rannsaka framkomna gagnrýni
á störf félagsmálaráðherra og
þau svör, sem hann hefur sett
fram í skýrslu sinni, þannig að
niðurstöður verði óumdeildar.
Vegna framkominnar gagn-
rýni DV hefur utanríkisráðherra
og formaður Alþýðuflokksins
jafnframt ákveðið að rita ríkis-
endurskoðun bréf og fara þess
á leit að ríkisendurskoðun láti
fara fram „stjómsýsluendur-
skoðun“ á starfsemi utanríkis-
ráðuneytisins.
-Sjá umfjöllun
á blaðsíðu 5.
JÓN BALDVIN HANNI-
BALSSON, formaðurAl-
þýðuflokksins, kynnti yfirlýs-
ingu þingflokks jafnaðar-
mahna síðastliðinn föstudag.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Óhapp varö við KÆUNGU FISKS í Grandatogara í siglingu til Bremerhaven:
60-70 lestir voru
dæmdar í gúanó
að óhapp varð nýlega í
siglingu eins Grandatog-
arans til Bremerhaven
að rnilli 60 og 70 tonn aflans
sem siglt var með voru dæmd
til að fara í gúanó. Togarinn
sigldi með tæp 320 tonn til
Þýskalands og virðist sem mis-
tök hafi átt sér stað í kælingu
aflans, sem fór á lágu verði á
fiskmarkaðnum.
Pétur Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri Aflamiðlunar,
sagði í samtali við Alþýðublað-
ið í gær að þama hefðu átt sér
stað leið mistök, sem blessun-
arlega lítið sé af. Stundum fari
lítils háttar magn í gúanó, en
vissulega sé það alvarlegt mál
þegar tugir tonna fara þá leið-
ina.
Heimildarmaður Alþýðu-
blaðsins sagði að þýskir fisk-
markaðir gerðu nú síauknar
kröfur um ferskleika aflans.
Þannig neituðu þeir að taka fisk
sem væri orðinn eldii en 11
daga gamall.
Sama heimild sagði að iðu-
lega væri fiskurinn orðinn 16
daga gamall að hluta og allt
upp í 20 daga.
Ekki kannaðist Pétur Sveiris-
son við að Þjóðverjar gerðu
meiri kröfur til ferskleikans nú
en veiið hefur.
Sagði Pétur að íslensk fiski-
skip sem selja í Þýskalandi séu
þekkt fyrir að falbjóða úrvals
vöru. Hins vegar sagði hann að
útflutningur á ferskum fiökum
til Þýskalands hefði aukist stór-
um að undanfömu og þau fiutt
glæný með flugi til markað-
anna.
íbúðareigendum
forðað fiá ófarnaði
Raunverð íbúða í fjölbýlishúsum stóð í stað á öðrumársfjórð-
ungi þessa árs. Þrátt fyrir andbyr í efnahagsmálum undan-
farin ár hefur raunverð íbúða í fjölbýlishúsum ekki leitað niður
á við. Að vísu hefur það sveiflast nokkuð, meðal annars hækk-
að á þessu ári eftir lækkun í fyrra, en skýr tilhneiging til lækk-
unar hefur ekki komið fram“, segir Þjóðhagsstofnun í Hagvis-
um sem komu út á dögunum.
„Mér sýnist þetta mat Þjóðhagsstofnunar gefa glöggt til
kynna styrk húsbréfakeifisins, sem hefur, samkvæmt þessu
forðað stórkostlegu verðhruni á íbúðum almennings, einkanlega
á þéttbýlissvæðunum, og þannig átt stóran þátt í að forða mikl-
um fjölda íbúðaeigenda frá stórfelldum ófamaði í fjármálum
þeirra“, sagði Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri Húsnæðis-
stofnunar ríkisins, þegar Alþýðublaðið bar þessa umsögn Þjóð-
hagsstofnunar undir hann í gær.
- Sjá umfjöllun á blaðsíðu 3.