Alþýðublaðið - 04.10.1994, Qupperneq 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ERLENT
Þriðjudagur 4. október 1994
TRÚMÁL: Aldurinn er farinn að segja til sín hjá JÓHANNESIPÁLIPÁFAII. Þrátt fyrir að Jóhannes Páll sé ef til vill
ekki í bráðri lífshættu vegna aldurs og/eða veikinda þá er það mál manna í Róm að páfadómur hans sé nú að
renna sitt síðasta skeið. Embættismenn í Vatíkaninu sem hitta páfann uppá hvem einasta dag dást að andlegu
þreki hans en... „hann er á síðasta kaflanum “ segir ítalski kardínálinn ACHILLISILVESTRINI:
Páfinn fljúgandi
kyrrsettur í Róm
Jóhannes Páll páfi II.
gengur ekki lengur hnar-
reistur sem fyrr; hann er
farinn að draga fæturna. A
ferðalögum erlendis hefur hann
lagt af þann sið að krjúpa og
kyssa jörðina. Fyrirtveimur
vikum var páfinn staddur í
Króatíu og var svo þrotinn orku
að hann var ófær um að blessa
fötluð böm, en það hefur ávallt
verið hans uppáhalds hlutverk á
ferðalögum.
f síðustu viku gerðist það svo
að læknar Vatíkansins skipuðu
honum að hætta ferðalögum og
dvelja heima við, að minnsta
kosti í bili. Afleiðingar þessara
fyrirmæla voru meðal annars
þær að tregafullur neyddist Jó-
hannes Páll páfi II. að fresta
fyrirhugaðri ferð sinni til
Bandaríkjanna í október. En
þar ætlaði hann að ávarpa þing
Sameinuðu þjóðanna; flytja
það sem átti að verða magn-
þrungin tímamótaræða um fjöl-
skyldumálin.
Elli kerling
segir til sín
Það er greinilegt að Jóhannes
Páll - einn kraftmesti páfinn frá
upphafi - er farinn að láta á sjá:
í apríl síðastliðnum var gerð
skurðaðgerð á mjöð hans og
Jóhannes Páll hefur verið leng-
ur að jafna sig en hann vonaðist
til; Vinstri hönd hans skelfur í
sífellu og hefur það ýtt undir
þrálátan orðróm um að Parkin-
son-veiki eða eitthvað þaðan af
verra hrjái hann.
Hvað sem þessu öllu líður
hafa læknar og talsmenn páfans
hvað eftir annað sagt að páfinn
sé í góðu ásigkomulagi miðað
við 74 ára gamlan mann. Eina
sem hann þurfi sé hvíld fyrir
fætur sína og þreyttan líkamann
og þarmeð tækifæri til að leyfa
mjöðminni almennilega að
jafna sig.
Páfadómurinn að
renna sitt skeið
Þrátt fyrir að Jóhannes Páll
sé ef til vill ekki í bráðri lífs-
hættu vegna aldurs og/eða
veikinda þá er það mál manna í
Róm að páfadómur hans sé nú
að renna sitt síðasta skeið.
„Hann lítur út fyrir að vera
veikur,“ sagði áhyggjufull eig-
inkona ítalsks diplómats eftir
að hafa fylgst með páfanum í
sjónvarpinu. „Þeir segja að
þetta sé krabbamein," hvíslaði
hinn goðsögulegi Mario, bar-
þjónn á Hótel Inghilterra.
Embættismenn í Vatíkaninu
sem hitta páfann uppá hvern
einasta dag dást að andlegu
þreki hans en... „hann er á síð-
asta kaflanum," sagði ítalski
kardínálinn Achilli Silvestrini.
Einstæð saga
langferðalaga
Fjöldi embættismanna í Vat-
íkaninu óttast að páfinn verði
þunglyndur dragist afturbata-
legan um of á langinn. Einung-
is ár er liðið frá því að páfinn
var nægilega hress til að kh'fa
fjöll og ferðast um af- að því
er þá virtist - óendanlegum
krafti. Ekki síðan rómversku
páfamir leiddu heri víða um
lönd hefur páfi lifað jafn öflugu
opinberu lífi.
Frá því að hann var kjörinn
páfi árið 1978 hefur Jóhannes
Páll yfirgefið Vatíkanið í Róm
177 sinnum til að leggjast í
ferðalög. Þar af eru 62 lengri
ferðir. Markmið hans hefur
verið einfalt og ótrúlegt: Jó-
hannes Páll er staðráðinn í að
verða fyrsti páfinn til heim-
sækja hveija einustu þjóð róm-
versk-kaþólskra.
Siðferðislegur
leiðtogi heimsins
„Jóhannes Páll páfi II. er sið-
ferðislegur leiðtogi heimsins,“
segir Raymond Flynn, banda-
ríski sendiherrann í Vatíkaninu.
Það getur svo sem vel verið en
undanfarna mánuði hefur
mörgum af nánustu samstarfs-
mönnum páfans hann rækja
þetta hlutverk sitt af full mikl-
um krafti.
Ef ekki hefði verið fyrir
harðorða viðvörun innanríkis-
ráðherra Vatíkansins þá hefði
páfinn rokið af stað í stórhættu-
lega ferð til Sarajevo fyrir
nokkrum vikum.
„Við sögðum honum, að það
væri eitt að hann hætti lífi sínu
eigin lífi, en að leggja líf ferða-
félaga sinna og þeirra sem hann
ætlaði að hitta, einnig í hættu.
Það væri óverjanlegt,“ sagði
einn embættismaður Vatíkans-
ins.
í stað ferðalagsins til Saraje-
vo ávarpaði páfinn þjóðir
heimsins frá öruggum dvalar-
stað sínum í Vatíkaninu og
hvatti þær til að tryggja frið í
Bosníu og Herzegóvínu. Ávarp
þetta vakti litla athygli fjöl-
miðla.
Þrjóskan bitnar
á Jóhannesi Páli
Páfinn getur engan veginn
talist „auðmjúkur sjúklingur".
Fyrir þrettán árum hristi hann
af sér lífshættuna eftir víðfræga
skotárás öfgamanns.
Hinsvegar er staðan orðin
þannig að hann neitaði algjör-
lega að takmarka starf sitt við
tvær framkomur á dag eftir síð-
ustu skurðaðgerð og
hafði þar aðvaranir
lækna að engu.
Nú bitnar þessi
þrjóska á páfanum
og hann stendur nú
frammi fyrir íjögurra
mánaða neyðarhvfld
og læknar hafa til-
kynnt að páfinn muni
aldrei ná fyrri hress-
leika.
Aldursmerkin eru
greinileg: Hann þarf
stundum að halda
lófum í trekt við eyra
sér til að heyra betur
og hatar ekkert heit-
ara en stafinn sinn;
felur hann gjarnan að
baki sér.
Næsta langferða-
lag páfans er áætlað í
janúar og lítur út fyr-
ir að verða gífurleg
þolraun. Páfa mun
fyrst bera niður í
Manila á Filippseyj-
um þar sem hann
sækir heim æsku-
lýðsþing eitt feikna
mikið og þaðan fer
hann til Fijii-eyja,
Nýju-Gíneu og Ástr-
alíu.
Erfíð og sérstæð
vandamál
Páfar lúta ekki lögmálum
kjörtímabila og langlífir páfar
geta þar með skapað erfið og
afar sérstæð vandamál.
Píus 12. var til að mynda afar
einrænn og fólksfælinn síðustu
æviár sín og var aðgangur að
honum stranglega takmarkaður
af nunnu einni ráðríkri; kjama-
kvendinu Pascalínu Lehnert.
Annar páfi sem skapaði erfið
vandamál var Páll 6., en starf-
semi Vatíkansins Iamaðist nær
gjörsamlega síðustu æviár hans
sökum ástands gamla manns-
ins.
Stjómvöld og embættis-
mannakerfið í Vatflcaninu em
ekki ólík öðmm slíkum, að því
leytinu til að þau hafa tilhneig-
ingu til að fresta ákvörðunum í
mikilvægum málum þegar
óvissa ríkir um næsta yfirmann.
Vatíkanið lifír
í óvissunni
Vatíkanið mun ef til vill
þurfa að lifa með óvissunni um
hvað gerist með Jóhannes Pál
páfa II. því hann hefur gífur-
lega sterkan - allt að því hroka-
fullan - viljastyrk. Páfinn trúir
því staðfastlega, að sitt mikil-
vægasta hlutverk á jörðu sé að
leiða kirkjuna inní þriðja árþús-
undið; það hafi verið ákveðið
af guðlegri forsjón.
Spumingin er hvort páfinn
hefur styrk til að vera mikið
meira fyrir kirkjuna en tákn-
inyndin ein.
mundu!
—I mc
J)
stafa
símanúmer
Tilkynning til allra fýrirtækja!
Þann 3. júní 1995 verða öll almenn símanúmer á landinu sjö stafa. Á
höfuðborgarsvæðinu verða nýju sjö stafa símanúmerin tekin í notkun
1. desember n.k., en jafnframt verður hægt að nota gömlu símanúmerin
jfl samhliða þeim nýju fram til 3. júní 1995.
^ höfuðborgarsvæðinu er breytingin þannig að talan 55 bætist framan
við fimm stafa númer og 5 framan við sex stafa númer. Ekki þarf lengur að
velja svæðisnúmer og þegar hringt er frá útlöndum á að velja sjö stafa númerið
strax á eftir landsnúmerinu 354.
Dœmi um þaö hvemig númer á höfuðborgarsvœðinu breytist:
hringt innan svæðis 26000
hringt frá öðrum svæðum 91 26000
hringtfrá útlöndum 354 1 26000
Fyrirtækjum, sem eru að huga að útgáfu
bréfsefna, bæklinga, fréttabréfa o.þ.h., er
bent á að kynna sér nýútkominn bækling þar
sem gerð er nánari grein fyrir breytingunum.
verður
verður
verður
552 6000
552 6000
354 552 6000
PÓSTUR OG SÍMI
Byggt á Newsweek.