Alþýðublaðið - 04.10.1994, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. október 1994
FLOKKSSTJORNARFUNDUR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Sátt um mátefrii Guðmundar
Flokksstjórnarfundurinn að Hótel Loftleiðum var mjög vel sóttur og er talið að um 140 til 150
manns hafi komið á staðinn.
GUÐMUNDUR ÁRNISTEFÁNSSON, varaformaður Alþýðuflokksins, gerðigrein fyrirsínum
málum og atgangifjölmiðla.
Sátt ríkir nú innan Al-
þýðuflokksins um yfir-
lýsingu og tillögur þing-
flokksins hvað varðar málefni
Guðmundar Arna Stefáns-
sonar félagsmálaráðherra. Á
fimm tíma löngum tlokks-
stjómarfundi á sunnudag, voru
málefni ráðherrans og siðferði í
stjórnmálum rædd í þaula. Nið-
urstaðan var sú að flokksstjóm-
in lýsti fullum stuðning við
skýringar Guðmundar Árna og
þá lausn sem þingflokkur Al-
þýðuflokksins hefur kynnt.
í upphafi fundarins flutti Jón
Baldvin Hannibalsson, for-
maður flokksins, ræðu undir
yfirskriftinni; Stjórnmál og sið-
ferði. Hann fór yfir siðferðis-
legar spumingar í þjóðfélaginu
almennt og minnti á ýmsa
hagsmunaárekstra stjórnmála
og atvinnulífs þar sem Alþýðu-
flokkurinn hefði verið fyrstur
til þess að setja sér ákveðnar
siðareglur um setu manna í
bankaráðum. Hann varpaði
einnig fram þeirri spumingu
hvort ekki væri um hagsmuna-
árekstra að ræða þegar bændur
á Alþingi greiði atkvæði með
styrkjum og greiðslum til þeirra
sjálfra, eins og tíðkast hafi.
Formaðurinn fór einnig yfir
siðareglur og vinnubrögð
blaðamanna og taldi upp mörg
dæmi þess hvernig þeir hafa
misnotað aðstöðu sína. Hann
gerði grein fyrir embættis-
mannaveitingum í utanríkis-
ráðuneytinu og þá palladóma
og rangfærslur sem fjölmiðlar
hafa farið með varðandi hann
og starfsfólk ráðuneytisins.
Guðmundur Ámi Stefánsson
gerði grein fyrir sínum málum
og þeim atgangi tjölmiðla sem
hann hefur orðið fyrir að und-
anfömu, sem hann sagði að ætti
sér enga hliðstæðu í íslenskum
stjómmálum. Að því búnu las
Rannveig Guðmundsdóttir
þingflokksformaður upp tillög-
ur og yfirlýsingu þingflokksins
sem samþykkt var á föstudag.
(★ Sjá nánar hér til hliðar!)
Eftir að framsögumenn
höfðu lokið máli sínu urðu tals-
verðar umræður, þar sem skipt-
ar skoðanir vom á embættis-
færslum Guðmundar Áma og
tillögum þingflokksins.
Margrét Björnsdóttir og tíu
aðrir einstaklingar í flokknum
lögðu fram tillögu þar sem
skorað er á Guðmund Áma að
segja af sér því að „með slíkri
ákvörðun setti Guðmundur
Árni hagsmuni flokksins í önd-
vegi. Það er mat flokksstjórnar
að Guðmundur Ámi styrkti
stöðu sína í íslenskum stjórn-
málum til lengri tíma með því
að axla ábyrgð á þeiiri alburða-
rás sem valdið hefur trúnaðar-
bresti innan Alþýðuflokksins."
Tillagan var undirrituð af Hildi
Kjartansdóttur, Vilhjálmi
Þorsteinssyni, Bolla Runólfi
Valgarðssyni, Ágúst Einars-
syni, Gunnari Inga Gunnars-
syni, Huldu Kristinsdóttur,
Margréti S. Björnsdóttur,
Jónasi Þór Jónassyni, Erni
Þorlákssyni og Rúnari Geir-
mundssyni. Tillagan hlaut ekki
hljómgmnn meðal flokks-
stjórnarmanna og Jón Baldvin
kom því með frávísunanillögu
með þeim rökstuðningi að ekki
væri tímabært að bera slíka til-
lögu upp þar sem málið væri
nú í höndum Ríkisendurskoð-
unar og því væri eðlilegt að
bíða eftir niðurstöðu hennar.
Tillaga Jóns Baldvins var sam-
þykkt með 67 atkvæðum gegn
13.
Flokksstjómarfundurinn að
Hótel Loftleiðum var mjög vel
sóttur og er talið að um 140 til
150 manns hafi komið á stað-
inn. Fundurinn var opinn fjöl-
miðlum og vom umræður mjög
málefnalegar.
s
Alyktun ungra
jafnaðarmanna
Fjölmennur sambandsstjóm-
arfundur Sambands ungra jafn-
aðarmanna samþykkti einróma
svohljóðandi ályktun síðastlið-
inn laugardag:
„Samband ungra jafnaðar-
manna fagnar þeirri niðurstöðu
sem þingflokkur Alþýðuflokks-
ins - Jafnaðarmannaflokks Is-
lands - hefur komist að, varð-
andi siðbót í íslenskum stjóm-
málum.
Samband ungrajafnaðar-
manna hefur lengi verið hlynnt
opnun stjórnkerfisins og að
starfsemi stjórnmálaflokka fari
fram fyrir opnum tjöldum og
þar með taldar fjárreiður flokk-
anna. Ungir jafnaðarmenn
fagna því að Alþýðuflokkurinn
ætlar að fara fyrir öðrum fiokk-
um í opinni stjórnsýslu, sttufa
fyrir opnum tjöldum og biita
reikninga flokksins.
Samband ungrajafnaðar-
manna skorar á aðra stjórn-
málaflokka að gera slíkt hið
sama og leggja þannig spilin á
borðið fyrir landsmenn. Þá telja
ungir jafnaðarmenn eðlilegt að
allir stjómmálaflokkar geri
grein fyrir mannaráðningum
sínum á vegum ráðuneyta,
hvort heldur þar er um fast-
ráðningar eða tímabundnar
verkefnaráðningar að ræða.
Það er brýnt að siðbót á Is-
landi nái til allra sem fara með
opinbera stjómsýslu burtséð frá
flokkum og einstaklingum.
Einungis með því móti má
vænta þess að sú umræða sem
átt hefur sér stað um siðvæð-
ingu í íslenskum stjómmálum
skili einhverjum árangri.“
Þess ber að geta að Sam-
bandsstjórn Sambands ungra
jafnaðarmanna er æðsta vald í
málefnum sambandsins á milli
sambandsþinga.
s
Alyktun
Suðurnesjamanna
Stjórn Sambands Alþýðu-
fiokksfélaga á Suðurnesjum
samþykkti síðastliðinn laugar-
dag eftirfarandi ályktun:
„Stjóm Sambands Alþýðu-
flokksfélaga á Suðurnesjum
lýsir yfir ánægju sinni með
framkomna hugmynd þing-
flokks og ráðherra Alþýðu-
flokksins þess efnis, að fyrrver-
andi og núverandi heilbrigðis-
ráðherra fari þess á leit við Rík-
isendurskoðun að hún kanni til
hlítar þau atriði sem fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra hefur
verið gagnrýndur fyrir ásamt
svömm í framlagðri skýrslu
hans. Að okkar mati verður
þannig faglega og hlutlaust
metið hvort embættisfærsla
hans sé í samræmi við viður-
kenndar stjómsýslureglur og
venjur.
Jafnframt fagnar stjórnin
þeirri ákvörðun ráðherra og
þingflokks að fara þess á leit
við Ríkisendurskoðun að hún
kanni einnig ofan í kjölinn
mannaráðningar og stjómsýslu
utanríkisráðuneytisins.
Það er álit stjómarinnar að
þannig hrekji Álþýðuflokkur-
inn, á einarðlegan og trúverð-
ugan hátt, algjörlega órök-
studdar dylgjur DV frá 16.
september síðastliðnum. Þar er
utanríkisráðherra, í nafnlausri
grein, sakaður um að hafa gert
ráðuneytið illa starfshæft vegna
aðferða hans við mannaráðn-
ingar.
Er það álit stjórnar Sambands
Alþýðufiokksfélaga á Suður-
nesjum að þessi ákvörðun ráð-
herra og þingflokks Alþýðu-
flokksins sé rétt og tímabær í
Ijósi þess sem á undan er geng-
ið.
Alþýðuflokkurinn hefur ekk-
ert að fela og er það lofsvert að
hann skuli fara á undan og gera
opinbera ársreikninga sína
þannig að almenningur í land-
inu geti gert sér grein fyrir á
hvaða hátt hann er rekinn fjár-
hagslega.
Vel væri ef fleiri fylgdu því
fordæmi okkar alþýðuflokks-
manna."
Yfiriýsing frá þingflokki
Alþýöuflokksins
1. Guðmundur Ámi Stefánsson félagsmálaráðherra hefur á undan-
fömum vikum sætt harðri og óvæginni gagnrýni í fjölmiðlum fyrir
embættisfærslu sína sem heilbrigðisráðherra. Síðastliðinn mánudag
lagði félagsmálaráðherra fram skriflega greinargerð, studda fylgiskjöl-
um, þar sem hann svarar þeirri gagnrýni sem að honum hefur berið
beint. Með skýrslu sinni hefur félagsmálaráðherra freistað þess að upp-
lýsa málið í samræmi við réttmætar kröf ur um opna stjómsýslu eftir
undangengna oirahrið. í skýrslunni kemur frani að félagsmálaráðherra
hefur játað á sig mistök í tilteknum málum og beðist velvirðingar á
þeim. Með skýrslunni hefur ráðherrann orðið við kröfum innan tlokks
og utan um að gera hreint fyrir sínum dymm. Það hefur hann gert að
mati þingflokksins.
2. Guðmundur Ámi Stefánsson hefur á undantömum ámm staðið í
fylkingarbijósti jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Undir hans forystu hefur
fiokkurinn eflst að trausti og fylgi. Á seinasta kjörtfmabili treystu kjós-
endur í Hafnarfirði Guðmundi til að leiða hreinan meirihluta Alþýðu-
flokksins í bæjarstjóm og fiokkurinn er eftir seinustu sveitarstjómar-
kosningar öflugasta stjórnniálaafi bæjarins. Það er þvt' ljóst að Guð-
mundur Ámi Stefánsson hefur áunnið sér með fyrri verkum sínum
mikið traust samborgara sinna í Hafnarfirði.
3. En gagnrýni af því tagi sem uppi hefur verið hverfur ekki af sjálfu
sér. Því verður ekki á móti mælt að sú linnulausa og um margt ósann-
gjama gagnrýni sem fjölmiðlar hafa haldið uppi á embættisfærslu Guð-
mundar Áma Stefánssonar hefur ekki aðeins varpað skugga á störf
hans heldur og skaðað Alþýðufiokkinn og grafið undan trausti margra
á störfum fiokksins í ríkisstjóm. Flest bendir til að ríkisstjómin hafi
einnig goldið þessa í dvínandi stuðningi almennings, þrátt fyrir þær
staðreyndir sem fyrir liggja um ótvíræðan árangur stjómarsamstarl'sins
á fjölmörgum sviðum.
4. Þeir menn sem vinna í umboði almennings þurfa iiðm fremur á
því að halda að ekki verði trúnaðarbrestur milli þeina og almennings í
landinu. Stjómmálamenn bera hver og einn siðferðilega ábyrgð verka
sinna og, öt'ugt við embættismenn. hljóta þeir að standa eða falla með
verkum sínum, sem þeir leggja með regiulega millibili undir dóm kjós-
enda. Samkvæmt yfirlýsingum og fréttum í fjölmiðlum má ætla að
stjómarandstæðingar á Alþingi og aðrir taki skýringar og svör félags-
málaráðherra ekki sem góð og gild. Flest bendir því til að pólitískir
andstæðingar Alþýðufiokksins reyni að notfæra sér þessi mál í pólitísk-
um átökum milli flokka. Við leyfum okkur að efast um að pólitískt
hnúlukast af því tagi sé líklegt til að endurvekja traust almennings á
stjómsýslunni í landinu eða að það leiði yfirleitt til nokkurrar niður-
stöðu. Þegar svo er komið sögu er mikilvægt að hlutlaus aðili, sem haf-
inn er yfir flokkadrætti og nýtur trausts almennings og þingflokka, taki
af öll tvímæli um hugsanleg álitamál.
5. í því skyni að taka af tvtmæli um staðreyndir mála og freista þess
að vekja nauðsynlegt traust á opinberri stjómsýslu hefur félagsmála-
ráðherra ákveðið að fara þess á leit við ríkisendurskoðun, sem er sjálf-
stæð stofnun og heyrir undir Alþingi, að hún taki að sér að rannsaka
framkotnna gagnrýni á störf félagsmálaráðherra og þau svör, sem hann
hefur sett fram í skýrslu sinni, þannig að niðurstöður verði óumdeildar.
6. Alþýðuflokkurinn hefur ekkert að fela. Þess vegna hefur þing-
flokkurinn og einstakir þingmenn og ráðherrar orðið sammála um eftir-
farandi ákvarðanir:
1) Fyrrverandi og núverandi heilbrigðisráðherra munu skrifa ríkis-
endurskoðun og óska eftir því að hún kanni til hlítar þau gagnrýnisat-
riði, sem beint hefur verið að fyrrverandi heilbrigðisráðherra og svör-
um hans við þeim, í framlagðri skýrslu, og komist að niðurstöðu um
hvort embættisfærsla hans sé í samræmi við viðurkenndar stjómsýslu-
reglur og venjur.
2) vegna framkominnar gagnrýni DV hefur utanríkisráðherra og for-
maður Alþýðuflokksins jafnframt ákveðið að rita ríkisendurskoðun
bréf og fara þess á leit að ríkisendurskoðun láti fara fram „stjómsýslu-
endurskoðurí' á starfsemi utanríkisráðuneytisins, samkvæmt 9. grein
laga númer 12 frá 1986.
3) Þingflokkurinn hefur samþykkt að setja sjálfum sér almennar
starfsreglur sem þingmenn og aðrir trúnaðarmenn flokksins skulu
halda í heiðri í störfum sínum í umboði þingflokksins. Reglur þessar
munu meðal annars taka til eftirfarandi:
- að þinginenn sitji ekki í stjómum banka, sjóða eða annarra tjár-
málastofnana þar sem teknar ero ákvarðanir um lánveitingareða fjár-
hagslega fyrirgreiðslu af almannafé. - Þar með er fest í sessi starfs-
regla, sem Alþýðuflokkurinn, einn þingflokka, hefur framfylgt um ára-
tugaskeið.
- að við val á einstaklingum til tronaðarstarfa verði þess gætt að farið
verði eftir gildandi og viðurkenndum grondvallarreglum.
- að kveðið verði á um hvernig varast skuli meinta hagsmunaárekstra
að því er varðar embættisfærslur og trúnaðarmanna, sem þiggja uinboð
sitt frá Alþýðuflokknum.
4) Þingfiokkurinn hel'ur samþykkt að skipa starfshóp er hafi það
verkefni að undirbúa á vegum þingflokksins fromvarp til laga um starf-
scini stjómmálaflokka sem þingflokkurinn mun beita scr fyrir að nái
fram að ganga á Alþingi.
5) Þingmenn og ráðherrar Alþýðuflokksins munu kappkosta að
vinna verk sín fyrir opnum tjöldum og sinna eðiilegri upplýsingaskyldu
stjórnvalda í opnu lýðræðisþjóðfélagi.
6) Endurskoðaðir reikningar um íjárhag Alþýðullokksins verði með
reglubundnum hætti birtirog gerðir aðgengilegir öllum almenningi.
Endurskoðaðir reikningar fyrir tvö síðastliðin ár verða birtir I. desem-
ber næstkomandi.
Með þessu ríður Alþýðuflokkurinn á vaðið og setur sér reglur sem
geta orðið öðrom stjómmálaflokkum til eftirbreytni og stuðlað að opn-
ari og eðlilegri umræðu um siðferði í stjómmálum, þar sem staðreyndir
mála liggja ljósar fyrir.
Það er cinlæg von þingmanna Alþýðuflokksins að niðurstaða ríkis-
endurskoðunar og lramangreindar tillögur þingflokksins verði til að
efla tiltrú almennings á heilindi stjórnmálamanna og uaust á stjómar-
framkvæmd.