Alþýðublaðið - 04.10.1994, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MENNING
Þriöjudagur 4. október 1994
UTBOÐ
Póst- og símahús á Flúðum
Póst- og símamálastofnun óskar eftir tilboðum í bygg-
ingu og fullnaðarfrágang á póst- og símahúsi á Flúðum.
Húsið er 129 mz og 401 m3.
Útboðsgögn verða afhent frá þriðjudeginum 4. október á
skrifstofu fasteignadeildar Pósts og síma, Pósthússtræti
5, 3. hæð, 101 Reykjavík, og á skrifstofu stöðvarstjóra
Pósts og síma á Selfossi, gegn 20.000,- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á fasteignadeild Pósts og síma þann
25. október kl. 14.00.
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk í störf í neðangreinda leikskóla:
Funaborg v/Funafold, s. 879160
Holtaborg v/Sólheima, s. 31440
Nóaborg v/Stangarholt, s. 629595
Steinahlíð v/Suðurlandsbraut, s. 33280
Suðurborg v/Suðurhóla, s. 73023
í 50% starf e.h.:
Sæborg v/Starhaga, s. 623664
Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Leikskólar Reykjavíkurborgar eru reyklausir vinnustaðir.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verk-
ið „Ölkelduhálssvæði, vegur og borplan".
Verkið felst í að leggja 3,8 km vinnuveg af Hellisheiði að
fyrirhuguðu borstæði Hitaveitu Reykjavíkur á Ölkeldu-
hálssvæði og byggja þar upp borplan.
Helstu magntölur eru:
Jöfnun undir burðarlag: 25.000 m2
Burðarlag: 16.000 m3
Verkinu skal lokið 25. nóvember 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 12.
október 1994, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Nýtt starfsár STYRKTARFÉLAGS ÍSLENSKU ÓPERUNNAR hefst
fomnlega annað kvöld í Óperunni:
Ingveldur Yr syngur
á fyrstu tónleikunum
Fyrstu tónleikarnir á nýju
starfsári Styrktarfélags
íslensku óperunnar
verða haldnir annað kvöld, 5.
október, klukkan 20:30 í ís-
lensku óperunni. Þar koma
fram Ingveldur Yr Jónsdóttir
messósópran og Kristinn Örn
Kristinsson píanóleikari. Á
efnisskránni verða íslensk
sönglög, ljóð eftir Manuel de
Falla, aríur úr óperum eftir Ri-
chard Strauss, Rossini og
Bizet auk ýmissa erlendra laga
meðal annars úr þekktum söng-
leikjum. Ingveldur Ýr stundaði
framhaldsnám við Tónlistar-
skólann í Vínarborg og Man-
hattan School of Music í New
York. Hún hefur haldið ljóða-
tónleika bæði hér á landi og er-
lendis, meðal annars í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi
og Islensku óperunni. Ingveld-
ur Ýr hefur tekið þátt í mörgum
óperuuppfærslum í Mið- Evr-
ópu, til að mynda í Rakaranum
frá Sevilla, Brúðkaupi Fígarós,
La Scala di seta og í eins
manns óperunni Ms. Donni-
thorne 's Maggot. Síðastliðinn
vetur þreytti Ingveldur Ýr
frumraun sína á íslensku óperu-
INGVELDUR ÝR JÓNSDÓTTIRmessósópran synguráJyrstu tónleikum Styrktarfélags íslensku
óperunnar á itýju starfsári. Þarna má sjá Ingveldi Yr bera hœst í hlutverki sínu í Valdi örlaganna.
sviði í Évgení Ónegín. A eftir
hafa fylgt hlutverk í Niflunga-
hringnum og nú síðast í óperu
Þjóðleikhússins Á valdi örlag-
anna þar sem hún hefur slegið
eftirminnilega í gegn. Kristinn
Öm Kristinsson hefur numið
píanóleik á Islandi og í Banda-
ríkjunum. Hann hefur starfað
við tónlistarkennslu frá árinu
1982 og gegnir nú skólastjóra-
stöðu hjá Tónlistarskóla ís-
lenska Suzukisambandsins, auk
þess að kenna við Tónlistar-
skólann í Reykjavík.
^^amband alþýðuflokkskvenna:
I Kvöldverðarfundur
| haldinn á fimmtudag
I
I
I
I
I
Fyrsti fundur Sambands alþýðuflokkskvenna
á þessum vetri verður haldinn á
veitingahúsinu Lækjarbrekku,
II. hæð, fimmtudaginn
6. otkóber, klukkan 19:00 til 21:00.
Kvöldverðarfundur þessi er opinn öllum
alþýðuflokkskonum og meginefni dagskrár
kvöldsins er umræða um stjórnmálaástandið.
Fjölmennum!
- Stjórnin.
Vesturbyggð
Byggingafulltrúi
Staða byggingafulltrúa í Vesturbyggð er laus til umsókn-
ar.
Um er að ræða mjög áhugavert og krefjandi starf í nýju
sameinuðu sveitarfélagi á sunnanverðum Vestfjörðum.
Gerð er krafa um tæknimenntun samkvæmt bygginga-
lögum.
Umsóknarfrestur er til 12. október 1994.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 94-
1221.
Bæjarstjóri.
Svartur blettur á
siðmenntuðu
þjóðfélagi
Nú gefst landsmönnum
tækifæri til að sjá
leikþáttinn Þá mun
enginn skuggi vera til eftir
Björgu Gísladóttur og Kol-
brúnu Ernu Pétursdóttur.
Leikþátturinn var sýndur á
Nordisk Forum í ágúst síð-
astliðnum og fékk þar mjög
góðar viðtökur. Það eru
Menningar- og frœðslu-
samband alþýðu og Stíga-
mót sem standa að sýning-
unni ásamt höfundunum.
Leikstjóri er Hlín Agnars-
dóttir og sá hún jafnframt
um leikmynd og búninga
ásamt höfundum.
Leikþátturinn tekur um 30
mínútur í flutningi og ætlun-
in að sýna hann á vinnustöð-
um og hjá félagasamtökum á
höfuðborgarsvæðinu. Enn-
fremur er fyrirhugað að fara
með hann í leikferðir út á
landsbyggðina. Að sögn að-
standenda hentar leikþáttur-
inn vel til sýningar í kaffi-
eða matartímum eða í lok
vinnudags á vinnustöðum og
á fundum hjá félagasamtök-
um.
Leikþátturinn Ijallar um
sifjaspell og afleiðingar þess
á áhrifamikinn og eftirminni-
legan hátt. Hann gefur áhorf-
endum kost á að auka skiln-
ing sinn á þessu viðkvæma
málefni, sem er eitt best
varðveitta leyndarmálið í
samfélagi okkar og svartur
blettur á siðmenntuðu þjóð-
félagi.
Eina persóna leikþáttarins
er kona sem gerir upp fortíð
sína við óvenjulegar aðstæð-
ur, rifjar upp atburði úr æsku
og lýsir áhrifum jæiirar
hræðilegu reynslu sem hún
upplifði. Konuna leikur Kol-
bnin Ema Pétursdóttir.
Það er von aðstandenda að
takast niegi að auka umræðu
um sifjaspell og orsakir þess
og afleiðingar, því fræðsla
og upplýst umræða er grund-
völlur þess, að forða megi
börnum og unglingum frá
lífsreynslu veldur þeim
óbætanlegu tjóni. Aðstand-
endur vilja þó geta þess að
sýningin er ekki við hæfi
bama.
Áhugasömum er bent á að
Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu sér um sölu á
leikþættinum og em allar
nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu MFA í sfrna 91-
814233.