Alþýðublaðið - 04.10.1994, Side 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. október 1994
/LI'ÍMflllll
Fjárhagur REYKJAVÍKURBORGAR er bágborinn eftir síðasta kjörtímabil íhaldsins. í árslok 1990
var peningaleg staða borgarsjóðs jákvæð um 1.264 milljónir en nú er staöan orðin slæm:
Versnaði um 8,2 milljarða
- Halli á rekstri borgarsjóðs 2,5 milljarðar á þessu ári
Þróun heildarskulda borgarsjóðs að meðaltali á hvern íbúa miðað við stöðu íárslok á verðlagi í
lok júní 1994.
falli af skatttekjum miðað við stöðu í lok hvers árs (áœtluð út-
koma 1994 og 1995).
RÆÐUTÍMI og RÆÐUFJÖLDI á síðasta Alþingi var
mjög misjafn eftir þingmönnum:
Steingrímur
Jóhann sló alla
út í málgleði
- í öðru sæti er FRIÐRIK SOPHUSSON og í þriðja
SVAVAR GESTSSON. Þrír málglöðustu þingmenn
Alþýðubandalagsins töluðu 17 klukkustundum lengur
en allur þingflokkur Kvennalistans
Peningaleg staða borgar-
sjóðs Reykjavikur hef-
ur versnað um 8.2
milljarða króna frá árslokum
1990 þegar hún var jákvæð
um ! .264 milljónir. Nú er hún
hins vegar neikvæð um 6,9
milljarða og er áætlað að hún
eigi eftir að versna um að
minnsta kosti 660 milljónir til
ársloka 1994. Samkvæmt spá
unt útkomu þessa árs verður
2,5 milljarða króna halli á
rekstri borgarsjóðs og skulda-
staðan 12 milljarðar í árslok.
Þetta kemur fram í skýrslu
um úttekt á íjárhagsstöðu
Reykjavíkurborgar sem lögð
var fram á föstudaginn. End-
urskoðun Sigurðar Stefáns-
sonar Itf. var falið að gera
þessa úttekt og jafnframt að
vinna að tillögum urn breytta
meðferð Ijármála borgarsjóðs
og stofnana hans eftir því sem
ástæða þætti til. Úttektin nær
til borgarsjóðs og borgarfyrir-
tækja.
Auk þeirra upplýsinga sem
að framan greinir um stöðu
borgarsjóðs kemur fram að frá
árinu 1990 hefur skuldastaða
borgarsjóðs aukist frá því að
vera um 45% af skatttekjum í
um 105% í júnflok 1994, þeg-
ar miðað er við heildaráætlun
yfirstandandi árs.
Þegar litið er á samstæðu-
efnahagsreikning Reykjavík-
urborgar sést sama þróun.
Vegna versnandi stöðu borg-
arsjóðs á liðnum árum hefur
peningaleg staða Reykjavíkur-
borgar í heild versnað. Skuldir
umfram peningalegar eignir
eru orðnar nær þrír milljarðar
króna 30. júní 1994. f árslok>
1990 var staðan aftur á móti
jákvæð um liðlega þrjá millj-
arða króna á núverandi verð-
lagi. Þannig hefur heildarstaða
versnað um tæpa sex milljarða
króna á liðnu kjörtímabili.
Skýringin á versnandi stöðu
borgarsjóðs er einkum sú, að
kostnaður við rekstur og fram-
kvæmdir hefur verið langt
umfram skatttekjur. Afleið-
ingin er minna svigrúm til
framkvæmda í nánustu fram-
tíð vegna aukinnar greiðslu-
byrði og kostnaðar við rekstur
málaflokka, sem hefur aukist
hraðar en skatttekjur á síðustu
árum.
Rekstrarútgjöld hafa aukist
svo, að þau taka til sín allar
tekjur borgarinnar og rúmlega
það. Fé til framkvæmda er því
ekkert nema lánsfé. Allar
framkvæmdir borgarinnar á
þessu ári eru fjármagnaðar
með lánsfé.
Rekstur og framkvæmdir
umfram skatttekjur hafa eink-
um verið kostaðar af lánsfé,
sem í meginatriðum má
greina í þrennt, skuldir við
banka, skuldir við eigin fyrir-
tæki og langtímaskuldir. Frá
1990 til ársloka 1993 hafa
skuldir við eigin fyrirtæki nær
fjórfaldast og langtímaskuldir
hafa aukist um 180%. Skuldir
við banka hafa verið nær
óbreyttar á tímabilinu.
Athyglisvert er að skoða
hvernig greiðslubyrði lána
sem hlutfall af skatttekjum
hefur breyst á liðnum árum.
Þannig var heildargreiðslu-
byrði langtímaskulda sem
hlutfall af skatttekjum ársins
aðeins 0,32% árið 1991. Áætl-
uð útkoma 1994 er 2,73%, en
stefnir í 10,12% á næsta ári,
miðað við áætlaðar skatttekjur
1995. Skatttekjur á hvem íbúa
hafa rýmað á undanfömum
ámm. Árið 1990 voru þær
107 þúsund krónur og þá var
ráðstafað sjö þúsundum króna
umfram skatttekjur á íbúa. 1
fyrra vom skatttekjur á íbúa
98 þúsund krónur en 28 þús-
undum var ráðstafað umfram
skatttekjur á hvem borgarbú-
ar. Fé sem eytt er umfram
skattpeninga hefur þannig
fjórl'aldast á fjómm árum, úr
sjö þúsundum í 28 þúsund á
mann. Sé litið á sömu tölur
sem hlutfall af skatttekjum
hvers árs, verður staðan mun
verri. Þá kemur í ljós, að árið
1990 var 5,5% ráðstafað um-
fram skatttekjur, en 1993 var
þetta hlutfall orðið 31,6% og
hafði því nær sexfaldast á
fjómm árum. Mjög hefur
gengið á veltufé borgarsjóðs.
Hin mikla lækkun hreins
veltufjár á tímabilinu, sem
nemur 1.679 milljónum
króna, skýrist að mestu leyti
af útgjöldum borg-
arsjóðs umfram
skatttekjur. í árs-
byrjun 1993 var
hreint veltufé
borgarsjóðs nei-
kvætt um 500
milljónir króna, á
verðlagi í lok júní
1994.1 árshluta-
reikningum er
hreint veltufé
borgarsjóðs nei-
kvætt um 3,3
milljarða króna. Á
einu og hálfu ári
hefur hreint veltu-
fé borgarsjóðs því
rýrnað um 2,8
milljarða.
I skýrslunni
kemur fram að
staða fyrirtækja og
stofnana Reykja-
víkurborgar, að
undanskildum
bílastæðasjóði og
lífeyrissjóði, hefur
almennt verið góð
á undanförnum ár-
um. Flest borgar-
fyrirtæki hafa
trausta eiginfjár-
stöðu og góða
greiðslustöðu.
Steingrímur Jóhann Sig-
fússon er sá þingntaður
sem oftast tók til máls á
síðasta þingi og hann á líka
lengstan samanlagðan ræðutíma
þingmanna. Kemst enginn þing-
maður með tæmar þar sem
Steingrímur hefur hælana í þess-
um efnum. Hann tók 344 sinn-
um til máls og talaði samtals í 41
klukkustund og 24 mínútur.
Sá þingmaður sem á næst
lengstan ræðutíma er flokks-
bróðir hans, Svavar Gestsson.
Félagi Svavar talaði þó „aðeins“
í 25 klukkustundir og níu mínút-
ur samanlagt og tók 309 sinnum
til máls í pontu. Málgleði Al-
þýðubandalagsmanna er raunar
áberandi því þriðja lengsta ræðu-
tíma á Jóhann Ársælsson eða
samanlagt 24 klukkustundir og
hann fór 288 sinnum í ræðustól.
Þessir þrír málglöðustu þing-
menn sem allir eru úr Alþýðu-
bandalaginu töluðu samtals í 90
klukkustundir og 33 mínútur. Til
samanburðar má geta þess að
fimm manna þingflokkur
Kvennalistans talaði samtals í 73
klukkustundir og 31 mínútu.
Bendir þetta til þess að fullyrð-
ingar um að konur séu málugri
en karlar eigi ekki við rök að
styðjast. Alla vega ekki þegar
Steingrímur Jóhann Sigfússon er
annars vegar.
í fjórða sætiyfir langorða
þingmenn er Olafur Þ. Þórðar-
son Framsóknarflokki með 22
klukkustundir og 23 mínútur. í
fjórða sæti kemur loks kona sem
er Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir Kvennalista sem talaði í
20 klukkustundir og ljórar mín-
útur. Eftirtaldir þingmenn eiga
samanlagaðan ræðutíma milli 16
og 20 klukkustundir: Friðrik
Sophusson, Kristín Ástgeirs-
dóttir, Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, Olafur Ragnar
Grímsson, Hjörleifur Gutt-
ormsson og Anna Olafsdóttir
Björnsson.
Sem fyrr segir tók Steingrímur
Jóhann Sigfússon oftast til máls
eða 344 sinnum. Næst oftast tal-
aði Friðrik Sophusson eða 323
sinnum og Svavar Gestsson er í
þriðja sæti en hann tók 309 sinn-
um til máls. Aðrir þingmenn
náðu ekki 300 skipta markinu.
Af ráðhemum ríkisstjórnarinn-
ar talaði Friðrik Sophusson oft-
ast og lengst eða 323 sinnum í
samtals 19 klukkustundir og 14
mínútur. Össur Skarphéðins-
son tók hins vegar sjaldnast til
máls eða 103 sinnum og talaði
samtals í liðlega sjö klukku-
stundir. Sighvatur Björgvins-
son talaði styst ráðherranna eða í
samtals sex klukkustundir og 40
mínútur en hann fór 117 sinnum
í pontu.
Af einstökum þingmönnum,
fyrir utan varaþingmenn, hélt
Salóme Þorkelsdóttir fæstar
ræður eða aðeins fjórar og tók sá
ræðuflutningur liðlega 15 mínút-
ur.
Síðastliðinn vetur voru fluttar
samtals 7.461 ræða auk andsvara
og tók sá flutningur liðlega 580
klukkustundir. Meðalræða tók
4:40 mínútur. Ólafur Ragnar
Grímsson tók langoftast til máls
um fundarstjórn og fleira eða 63
sinnum og talaði í liðlega tvær
og hálfa klukkustund.
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1980-2.fl. 25.10.94 - 25.10.95 kr. 284.388,70
1981-2.fl. 15.10.94 - 15.10.95 kr. 172.170,20
1982-2.fl. 01.10.94 - 01.10.95 kr. 121.042,20
1987-2.fl.A 6 ár 10.10.94 - 10.10.95 kr. 31.865,20
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. september 1994
SEÐLABANKIÍSLANDS
Alþýðublaðsmynd
Vinningstölur
laugardaginn:
1. okt. 1994
VINNINGAR
5 af 5
a
+4af 5
a
4 af 5
m
3 af 5
FJOLDI
VINNINGA
197
5.904
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
8.671.835
100.703
6.172
480
Aðaltölur:
0®
(l8)(25)(33
BÓNUSTALA:
13
Heildarupphaeð þessa viku:
kr. 13.426.560
UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451