Alþýðublaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 1
Viö Páll erum
ekkert sér-
staklega líkir
- segir Stefán Guð-
mundsson og útilokar
ekki framboð gegn Páli
Péturssyni.
„Á þessari stundu er best að segja
sem minnst, ég á eftir að ræða við
mitt stuðningsfólk fyrir norðan,"
sagði Stefán Guðmundsson, alþing-
ismaður Framsóknarflokksins á
Norðurlandi vestra, aðspurður um
hvort hann hygðist sækja að Páli Pét-
urssyni, alþingismanni, í prófkjöri
Framsóknar fyrir norðan. Páll Pét-
ursson skipar nú fyrsta sæti flokks-
ins, en Stefán annað sætið.
„Ég fer norður strax og
ég er kominn í jólafrí og
þá mun ég skoða hvemig
landið liggur.“ Stefán
sagði að hann væri ekki
búinn að taka ákvörðun
um hvort hann sæktist
eftir fyrsta sætinu, fyrst
þyrfti hann að kanna hugi
fólks í kjördæminu. „Eg
segi þér satt og rétt um
það að ég er ekki búinn
að taka um þetta ákvörð-
un. Þegar ákvörðunin
liggur fyrir mun ég ekki
leyna henni.“ Stefán
bjóst við að ákvörðun
hans lægi fyrir milli jóla
og nýárs. Alþýðublaðið
spurði Stefán hvort fyrir
lægi einhver ágreiningur
þeirra flokksbræðra, hans
og Páls og svaraði hann
því til að það hlyti hver
maður að sjá, að hann og
Páll Pétursson væm ekk-
ert sérstaklega ltkir.
Bpksalar ánægðir með síðustu daga:
Omar Ragnarsson á
toppnum á Suðurlandi
Bóksala hefur verið allnokkur und-
anfarna daga og svo virðist sem marg-
ar titlar séu að seljast jafnt og þctt.
Auður Einarsdóttir, bóksölustjóri
Hagkaups í Kringlunni, sagði að und-
anfarna daga hefði bóksala verið ágæt
í Hagkaup, jafnvel þó svo að miðað
væri við sölusprengjuna um daginn.
Þá var fullt út úr dyrum þrjá daga í
röð, enda verðið á bókunum 25 til 30%
lægri en annarsstaðar. Auður kvaðst
ekki vita til þess að það stæði til að
lækka verðið aftur fyrir jól. Ingibjörg
Guðmundsdóttir, umsjónarmaður rit-
fangadeildar Kaupfélags Arnesinga,
segir allt líta út fyrir ágætis bóksölu í
ár. Hún sagðist rétt í þcssu hafa verið
að skoða heildarútskrift á sölunni og í
gær þá vantaði söluhæstu bókina,
„Fólk og fimindi,“eftir Omar Ragn-
arsson, ekki nema tíu bækur í að slá út
söluhæstu bókina frá því í fyrra.
„Sniglaveisla“ Ólafs Jóhanns Ólafs-
sonar, fylgir svo fast í kjölfarið, en á
þessum tveimur söluhæstu bókum
munar einungis tíu eintökum. Annars
sagði Ingibjörg að mjög jöfn sala væri
í um 150 titlum þetta árið, þó hinar
söluhæstu skæra sig úr. Kaupfélag Ar-
nesinga var með umtalsverðan afslátt
á bókum í tvo
daga fyrir
rúmri viku og
sagði Ingibjörg
að salan hefði
haldið sér
þctta líka
ágætlcga cftir
það. Ingibjörg
átti heldur
Ómar: Er á toppn- tkki von á bví
um á Suðurlandi. að vcrðið >rði
lækkað aftur
fyrir jól. Erling Erlingsson, aðstoðar-
verslunarstjóri Máls og menningar á
Laugavegi, hafði nóg að gera þegar Al-
þýðublaðið hafði samband við hann
um fímmleytið í gær. Salan hefði tekið
kipp, enda sagði Erling að ef það seld-
ust ekki bækur á þessari stundu þá
seldust þær aldrei. Aðspurður um
hvaða bækur scldust bcst sagði hann
að margir titlar seldust jafnt og þétt.
Jólaskap Emilíönu Torrini „Hæ, þetta er Emil-
íana! Varst þú að reyna hringja í mig? Strákarnir í rútunni sögðu víst að
ég væri sofandi. Við vorum að koma frá Akureyri þar sem við spiluðum
um helgina. Hvað segirðu? IMei, ég vissi ekki að Diddú og Bubbi væru einu
íslensku flytjendurnir fyrir ofan okkur hjá Skífunni og að við værum efst
hjá Japis. Frábært. Nú verðum við enn stoltari yfir því, að hafa gert þetta
sjálf með því taka lán fyrir plötunni og allt það. Jú, þetta hefur allt gerst
ofsalega hratt. Mér líður eiginlega stundum einsog ég sé inní steypubíl á
kafi i steypumixinu. Nei, nei, vinir mínir koma ekkert öðruvísi fram við
mig, en ég verð stundum fyrir smá áreitni á böllunum. Svo eru stundum
einhverjir ógeðslegir pervertar að hringja í mig heim á nóttunni. En þetta
er rosaiega skemmtilegt og við öll í hljómsveitinni deilum þessu. Reynum
bara að leiða lætin hjá okkur og einbeita okkur að tónlistinni. Annars skil
ég ekki afhverju ég fæ mesta athyglina og flestar myndirnar. Höskuldur
(höfuðpaur Spoon) er alveg jafngott myndefni og ég - ef ekki betra. En
við erum ósköp róleg hljómsveit; ekkert i því að rústa hótelherbergi og
þannig. En þetta hefur verið erfitt hjá mér vegna skólans; þeir eru mjög
stífir í skólanum á mætingarkvótanum og poppið nýtur ekki skilnings. A-
mynd: E.ÓI.
Stjórnendur fýrirtækja athugið!
Lœsing símtœkja, númer í rninni faxtœkja og val til útlanda
1. janúar 1995 verður 00 fyrir val til útlanda tekið í
notkun. Samhliða verður áfram hægt að nota 90 fyrir
val til útlanda til 1. apríl 1995.
Fyrirtæki og aðrir notendur með eigin búnað til að læsa
fyrir dýrari símtöl, þurfa að láta gera nauðsynlegar
breytingar vegna nýju númeranna. Fyrirtæki með læs-
ingu á vali til útlanda þurfa að láta gera breytingar
vegna 00. Bent er á þjónustuaðila símakerfa og innan-
hússtöðva til að láta framkvæma þessar breytingar.
svæði geta nú auglýst ný sjö stafa símanúmer í stað þess að
auglýsa eldri númer ásamt svæðisnúmeri (91).
Þegar hringt er frá útlöndum til höfuðborgarsvæðisins á að
velja sjö stafa númerið strax á eftir landsnúmerinu 354.
Vinsamlegast athugið að sjö stafa númer utan
höfuðborgarsvæðis hafa ekki verið tekin í notkun.
Það verður gert 3. júni 1995 og breytast þá einnig
númer fyrir farsíma, boðtæki og Símatorg.
Stefán: Skoðar málin
jólafríinu fyrir norðan.
Sjö stafa símanúmerin voru tekin í notkun á höfuð-
borgarsvæðinu 1. desember síðastliðinn. Hinsvegar
verður hægt að nota gömlu númerin samhliða þeim
nýju fram til 3. júní 1995. Símnotendur eru hvattir til að
nota nýju númerin. Einnig er sérstaklega bent á að
breyta númerum í minni faxtækja áður en eldri núm-
erum verður vísað til símsvara. Fyrirtæki á höfuðborgar-
Á símstöðvum er hægt að fá bækling með upplýs-
ingum um númerabreytingarnar.
mundu!
' sso
stafa
simanumer
PÓSTUR OG SÍMI
- segir Sigurður T. Sigurðsson formaður Hlífar um meirihlutann í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
„Ég spurði hver væri stefna núver-
andi meirihluta bæjarstjórnar í at-
vinnumálum og hvað hann hefði gert
til að auka varanlegan kvóta í bæn-
um. Svar Magnúsar Gunnarssonar
formanns bæjarráðs var að bærinn
tæki vel á móti fyrirtækjum sem
kynnu að koma til bæjarins og það
hefur verið samþykkt bæjarábyrgð
til kaupa á Rússafiski. Hann er svo
gæfulegur að hann gerir ekki einu
sinni greinarmun á Rússafiski og
varanlegum kvóta,“ sagði Sigurður
T. Sigurðsson formaður Verka-
mannafélagsins Hlífar í Hafnarfírði í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Hinn nýi meirihluti í bæjarstjórn
er harðlega gagnrýndur fyrir áhuga-
leysi og úrræðaleysi í atvinnumálum
í ályktun sem samþykkt var á fundi í
Hlíf fyrir skömmu. Sigurður formað-
ur segir að það þurfí að rífa meiri-
hlutann upp á rassinum og fá hann ti)
að gera eitthvað í atvinnumálunum
því þeir gerðu ekkert til að bæta
ástandið til frambúðar.
„Það hlálega er að þrátt fyrir þessi
svör Magnúsar Gunnarssonar um að
bærinn taki vel á móti fyrirtækjum
þá er staðreyndin önnur. 1 júlí fékk
ný steypustöð úthlutað lóð þar sem
ætlunin var að fara í framkvæmdir
og síðan rekstur. I september fékk
stöðin leyfi til að hefja framkvæmdir
en fyrir nokkrum dögum var ekki
búið að leggja þangað heitt eða kalt
vatn, það var ekki búið að leggja raf-
magn, ekkert frárennsli og ekki einu
sinni búið að leggja veg að ióðinni.
Lóðin var alls ekki úthlutunarhæf.
Hvaða skilning leggja menn íJtað að
taka vel á móti fyrirtækjum? Ég bara
spyr,“ sagði Sigurður.
Hann sagði gagnrýni sína beinast
jafnt að Alþýðubandalaginu sem
Sjálfstæðisflokknum í bæjarstjóm.
Meirihiutinn hefði lítið sem ekkert
gert til að auka atvinnu í bænum og
raunar tafið fyrir framgangi mála
eins og dæmið með steypustöðina
sýndi. Rússafiskur komi ekki í stað-
inn fyrir kvóta sem sjálfstæðismenn
hefðu gefið burtu úr bænum á sínum
tíma. Það þyrfti að fá varanlegan
kvóta en meirihlutinn í engu sinnt
því máli.
Sigurður: Meirihluti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar gerir ekkert í at-
vinnumálunum.
Þeir gera ekkert
í atvinnumálunum