Alþýðublaðið - 20.12.1994, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
HI'YDIIHIíDID
20841. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
SigurðurTómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Leynifélagið
Kvennalistinn
Sú var tíðin að Kvennalistinn var boðberi nýrra tíma í íslensk-
um stjómmálum. í mörgum merkilegum málum var Kvenna-
listinn ísbrjótur sem mddi nýjum hugmyndum farveg í gegnum
stokkfreðið flokkakerfið. Starf listans hefurborið umtalsverðan
árangur síðustu árin, þó ekki hafí konumar vermt mjúku stólana
í stjómarráðinu. En aðrir flokkar hafa tekið „mjúku“ málin
Kvennalistans upp og er skemmst að minnast sveitastjórnar-
kosninganna í vor, þarsem helstu karlrembur landsins yfirbuðu
hver aðra í mýkt og umhyggju fyrir þeim sem minnst mega sín.
Stórkostlegasti sigur í sögu Kvennalistans var kjör Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur sem borgarstjóra í Reykjavík.
Undanfama mánuði hefur Kvennalistinn átt í mikilli tilvistar-
kreppu. ísbijóturinn virðist hafa frosið fastur, ekki vegna erfiðs
færis, heldur hefur hann orðið vélarvana á miðri leið, auk mik-
illa deilna í brúnni um það hvert stefna skuli. Flokkur, sem áð-
ur var róttækur, er nú íhaldssamur. Kvennalistinn virðist vera á
móti öllum breytingum, svona einsog samfélagið sé ein parad-
ís fyrir konur. Fastar í frösunum sínum hafa þingkonur Kvenna-
listans enga skýra leiðsögn fyrir þróun íslensks samfélags,
nema þá helst að vera á móti EES og ESB.
Við brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr forystusveit
listans á þingi hefur hreintrúarlínan náð yfirhöndinni. Evrópu-
málin hafa gengið mjög nærri kviku listans, og er mikil
óánægja meðal margra kvenna, sérstaklega þeirra yngri, með
skort á umræðu og einstrengingshátt í því máli. Það sama gild-
ir um efnahags- og atvinnumálastefnu listans í heild sinni. Á
stundum virðist stefnan hafa verið skrifuð í þingflokksherbergi
Framsóknar eða af Hjörleifí Guttormssyni.
Nýja kreppueinkennið á flokknum em framboðsmálin fyrir
næstu kosningar. Útskiptaregla Kvennalistans er mjög um-
deild, en flokkurinn getur nú hrósað happi yfir því að sæti
helsta fulltrúa íhaldsstefnunnar á Alþingi, Kristínar Einarsdótt-
ur, losnar vegna þessarar reglu. Tvær af þremur þingkonum,
sem kjömar vom í síðustu kosningum í Reykjavík, em því
hættar. Kvennalistinn fékk þannig tækifæri til að endumýja
ímynd sína og stefnumál.
Kvennalistinn virðist á góðri leið með að kæfa þetta tækifæri í
fæðingu. Vinkvennaveldið fer með skoðanakönnun um upp-
röðun á lista einsog mannsmorð. Ætla mætti að Kvennalistinn
hafí tekið Frímúrararegluna sér til fyrirmyndar í þessum efnum.
I leynifélaginu Kvennalistanum fær engin að stunda opna bar-
áttu fyrir þvf að komast á lista, því slíkt er svo ljótt og ókven-
legt. í staðinn ræður mjög þröngur hópur kvenna uppröðuninni,
þarsem gamlar vinkonur kjósa hver aðra, mest eftir trúnaði og
fylgispekt við arf hreyfingarinnar. Ungar konur og frjálslyndar
eiga því vart möguleika. Kvennalistinn er því ekki aðeins Ieyni-
félag, heldur leynifélag innvígðra. Leynifélag þeirra sem eitt
sinn vom róttækar, en em nú fulltrúar íhaldssemi og pukurs í ís-
lenskum stjómmálum.
Rökstólar
Já, vondslega hefur oss veröldin blekkt.
Ekki er nóg með að Ólafur Ragnar sé nú
rígbundinn við stefnu Svavars og Stein-
gríms, eins og hvert annað Ingjaldsfífl -
heldur hafa sjálfstæðismenn gefið upp á
bátinn allar fyrirætlanir um pólitískt
kompaní með þessum lánlausasta föru-
riddara íslenskra stjórnmála.
Ró og næði í Víetnam
Það er til marks um óöldina í Al-
þýðubandalaginu að Olafur Ragnar
Grímsson þurfti að fara alla leið til
Víetnam til að komast í ró og næði.
Þar gat hann um hrið gleymt and-
streymi síðustu vikna, og látið sig
dreyma um hin sælu ástarævintýri
liðins sumars.
I ágúst vissi Olafur Ragnar Gríms-
son ekki betur en hann væri á leið í
stjómarráðið, eftir að hafa verið fjar-
verandi í fjögur löng ár. Staða hans
hina sælu sumartíð var sannarlega
talsvert önnur en nú. Fylgi Alþýðu-
bandalagsins var með mesta móti, en
Alþýðuflokkurinn hinsvegar í þann
veginn að leggjast í gröftna. Stjóm-
arheimilið var satt að segja ekki
mjög kærleiksríkt um þær mundir,
og sterk öfl í Sjálfstæðisflokknum
vildu tjúfa tafarlaust samvinnuna við
Alþýðuflokkinn. Staða Olafs innan
Alþýðubandalagsins var sterk:
Steingrímur Jóhann Jofaði að vera
prúður og stilltur þangað til á næsta
ári, og samþykkti jafnvel að fara um
landið á Brúðubílnum - sem Einar
Karl Haraldsson framkvæmda-
stjóri flokksins útvegaði til þess að
Iosna við Steingrím sem oftast úr
bænum. Það eina sem skyggði á föls-
kvalausa gleði hins Ijóshærða
draums vorsins á Seltjamamesi var
sú staðreynd, að honum var gert,
samkvæmt flokkslögum, að láta af
embætti formanns á næsta ári. Ólaf-
ur Ragnar hafði að vísu útbúið fyrir
löngu, í félagi við báða íylgismenn
sfna innan Alþýðubandalagsins,
áætlun um hvemig hann hyggðist
halda völdum. Aætlunin var einföld
eins og flestar snjallar hugmyndir:
Hann ætlaði að leiða flokk sinn til
sigurs í kosningum í vor, koma hon-
um síðan í ríkisstjóm þar sem hann
sjálfur yrði vitanlega í mikilvægasta
ráðuneyti Alþýðubandalagsins. í
kjölfar þessa áttu síðan alþýðu-
bandalagsmenn að komast að þeirri
niðurstöðu, að vart væri hægt að
hrófla við þeim manni sem á nýjan
leik hafði hafið flokk þeirra til vegs,
virðingar og valda. Ólafur Ragnar
ætlaði einfaldlega að láta breyta lög-
um Alþýðubandalagsins. Hafði ekki
Sesar látið kjósa sig ræðismann ár
eftir ár, þvert ofan í virðulegustu lög-
gjöf heims - og sjálfur Kim II-Sung
var kjörinn leiðtogi lýðs síns til lífs-
tíðar, svo nefnd séu tvö dæmi af full-
komnu handahóft.
Tilhugalíf með Birni
Og jafnframt því sem Ólafi Ragn-
ari gekk allt í haginn heima fyrir
blómstraði rómantíkin millum hans
og hins ólíklega pólitíska elskhuga -
Björns Bjarnasonar. Tilhugalífið
var að vísu einkum reist á sameigin-
legri andúð þeirra á formanni Al-
þýðuflokksins, en tilhugalíf var þetta
eigi að síður og bar ávöxt á fallegu
ágústkvöldi þegar gengið var frá rík-
isstjóm Sjálfstæðisflokks og AI-
þýðubandalags. Það munaði ekki
nema því sem munaði.
En blessuð ríkisstjómin lifði af þá
síáturtíð sem Ólafur Ragnar hafði
undirbúið, og hún lifir ennþá. En
hinsvegar er mjög tekinn að dvína
lífsþróttur hins væntanlega ríkis-
stjómarflokks Ólafs Ragnars Gríms-
sonar - og nú er svo komið að sjálf-
stæðismenn hafa gefið vonbiðilinn
hugumstóra uppá bátinn. Svavar
Gestsson, sem nú er allt í einu orð-
inn helstur forystumaður Alþýðu-
bandalagsins aftur, upplýsti í sjón-
varpi um helgina það sem reyndar
flestir vissu: Að maddama Framsókn
daðrar nú ákaflega við Davíð Odds-
son bakvið tjöldin.
Þetta vom fréttirnar sem Ólafur
Ragnar fékk þegar hann kom frá Ví-
etnam.
Bádir fylgismennirnir
farnir
Ólafur Ragnar stendur nú rúinn
fylgi innan flokksins sem hann lagði
undir sig fyrir sjö árum. Báðir stuðn-
ingsmenn hans sem eftir vom,
Kjartan Valgarðsson og Mörður
Arnason, hafa fært sig yfir á hinar
fengsælu veiðilendur heilagrar Jó-
hönnu. I Birtingu, sem löngum stát-
aði af því að vera næststærsta Al-
þýðubandalagsfélag landsins, er
EINN maður eftir í stjóm! Þetta em
örlög þess félags sem var stofnað til
þess að vera bakhjarl Ólafs Ragnars í
átökum hans við flokkseigendur AI-
þýðubandalagsins. Hinn einmana
stjómarmaður í Birtingu þarf alla-
vega ekki að óttast deilur á fundum.
Það hlakkaði gömin í Ólafi Ragn-
ari þegar Jóhanna sagði skilið við
Alþýðuflokkinn enda „óraði hann
ekki fyrir því sem skeði,“ einsog
Megas orti: Að einu vinir hans, fé-
lagar og vopnabræður skildu hann
eftir á köldum klaka, einmitt þegar
stund hins sæla sigurs var nánast í
sjónmáli. Og nú er Ólafur Ragnar
bandingi Svavars og Steingrfms,
enda má sjá að þeim slöttólfum líkar
líftð. Alþýðubandalagið er aftur orð-
ið eins og í þá gömlu og góðu daga
þegar ekki vom þar uppivöðslusamir
birtingarmenn að krefjast umbóta á
elliærri stefnu flokksins. Ólafur
Ragnar fær þau kaldhæðnislegu
skilaboð frá Svavari og Steingrími,
að honum sé velkomið að færa sig
inn á „miðju Alþýðubandalagsins" -
þar sem þeir félagar halda til, ásamt
Hjörleifi Guttormssyni.
Framlag Þjóðvaka til ís-
lenskra stjórnmála
Já, vondslega hefur oss veröldin
blekkt. Ekki er nóg með að Ólafur
Ragnar sé nú rígbundinn við stefnu
Svavars og Steingríms, eins og hvert
annað Ingjaldsfífl - heldur hafa
sjálfstæðismenn gefið upp á bátinn
allar fyrirætlanir um pólitískt komp-
aní með þessum lánlausasta föm-
riddara íslenskra stjómmála.
Hann má horfa upp á Halldór Ás-
grímsson stíga í vænginn við Björn
Bjarnason og aðrar sjálfstæðishetj-
ur sem láta eins og þeir hafi aldrei
heitið Ólafi Ragnari hlutdeild f hjarta
sínu.
Og Ólafur Ragnar - sem er tals-
vert eldri en tvævetur í pólitík - veit
að maðurinn á bak við hugsanlegt
stjómarsamstarf Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks heitir Jóhanna Sig-
urðardóttir. Var það ekki hún sem
kom og feykti f burtu skýjahöllu Ól-
afs Ragnars og sundraði fylkingum
vinstra megin við miðju? Ójú, svo
mikið veit Ölafur þar sem hann ligg-
ur tjóðraður við kaldan steininn: Að
helsta framlag Þjóðvaka til íslenskra
stjómmála verður að leiða maddömu
Framsókn aftur að hásæti valdsins.
Er nema von að Ólafi hafí fundist
skemmtilegra og friðsælla í Víet-
nam?
Dagatal 20. desember
Atburdir dagsins
1968 Bandariski Nóbelshöfundurinn
John Steinbeck deyr. 1981 Sendi-
herra Póllands í Washington leitar
eftir pólitísku hæli í Bandaríkjunum.
1982 Rússneski pfanóleikarinn Art-
hur Rúbenstein deyr, 92 ára að aldri.
1991 Jeltsín Rússlandsforseti til-
kynnir að Rússar vilji ganga í NA-
TÓ.
Afmælisbörn dagsins
Jón Baldvinsson, formaður Al-
þýðuflokksins og ASÍ 1916-38,
1882. Sir Robert Menzies Ástralsk-
ur stjórnmálamaður og forsætisráð-
herra, 1894. Errol John leikskáld
frá Trinidad, 1924. Jenny Agutter
bresk kvikmyndaleikkona.
Annálsbrot dagsins
Brenndur fyrir galdur á alþingi Þor-
bjöm Sveinsson úr Borgarfirði.
Hengdur í Húnavatnsþingi Bessi Ei-
ríksson fyrir þjófnað. Þá var og
brenndur á alþingi Bjarni Bjamason
úr Isaljarðarsýslu.
Sjávarborgarannáll, 1677.
Málsháttur dagsins
Kvíðinn heftir hálfa framkvæntd.
w
Lokaorð dagsins
Saa skyd!
Hinstu orð Guðmundar rithöfundar Kambans,
sem veginn var af dönskum „frelsisliðum“
þegar Þjóðverjar gáfust upp í Kaupmannahöfn
í maí 1945.
Hetjudáð dagsins
Eigi hafði hann nokkurar sakar til
móts við mig en hitt var satt að eg
mátti eigi við bindast er hann stóð
svo vel til höggsins.
Þorgeir Hávarsson eftir víg sauðamanns; Fóst-
bræðra saga.
Orð dagsins
Sú er dstin heitust,
sem bundin er meinum;
er því bezt,
að unna ekki neinum.
Fomt viðlag.
Skák dagsins
Þegar biskupamir ná að vinna saman
geta þeir sannarlega verið banvænn
dúett. Það fékk Kevorkjan, sem hef-
ur svart, að reyna í bréfskák sem
hann tefldi við Gavrilov 1989-90.
Svörtu mennimir em fremur illa í
sveit settir en hóta að slátra hvíta
peðinu á h4. En Gavrilov hefur sem-
sagt hvítt og á leikinn. Hann setti í
fimmta gfr og spændi upp svörtu
stöðuna. Hvemig?
1. Bg5!! hxg5 Aðrir leikir em
engu betri. 2. hxg5 Rd7 3. Bxf7!
Glæsilegt. Guðsmennimir báðir
gengnir í dauðann og hafa þannig
tryggt sigur hvíts. Kevorkjan gafst
upp. Skákin hefði getað teflst: 3. ...
Kg7 4. f6+ Rxf6 5. gxf6+ Kxf6 6.
Dg6 mát.