Alþýðublaðið - 20.12.1994, Page 10
10
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1994
Bókadómur
Veglegt og
eigulegt rit
Guðjón Friðriksson.
Saga Reykjavíkur 1870-1940.
Bærinn vaknar. Síðari hluti.
Iðunn 1994.
Fyrir þremur árum kom út fyrsta
bindið af Sögu Reykjavíkur eftir
Guðjón Friðriksson sagnfræðing.
Bókin hlaut afar góðar viðtökur og
hlaut meðal annars íslensku bók-
menntaverðlaunin. Annað bindi,
sem Guðjón skrifar um sögu Reykja-
vfkur frá 1870- 1940,
er ekki síðra en hið
fyrra þó ekki sé bókin
tilnefnd til bókmennta-
verðlauna núna.
inngangi sínum að
Birgir
Hermannsson
skrifar
fyrra bindinu sagði Guðjón meðal
annars: „Það var haft að leiðarljósi
við þessa söguritun að hún mætti
vera við alþýðuhæfi án þess þó að
slegið sé af fræðileg-
um kröfum.“ Hann
kallaði söguna einn-
ig „hvunndagssögu"
þar sem dregin er
upp mynd af bæjar-
lífinu en ekki rakin saga ákveðinna
stofnana.
Guðjóni hefur tekist
ætlunarverk sitt einstak-
lega vel. Bækurnar eru
báðar lipurlega skrifað-
ar, vel unnar og spanna
vítt svið mannlífsins.
Ríkulegar myndskreyt-
ingar gefa bókunum afar
skemmtilegt yfirbragð.
Textinn er mun minni en
VISA
BMM—
VISA ISLAND
Álfabakka 16,109 Reykjavík, sími 567 1700
RAÐGREIÐSLUR
TIL 24 MÁNAÐA
RAÐGREIÐSLUR VISA hafa reynst afar örugg
og vinsæl leiö til greiðsludreifingar
vegna kaupa á dýrari munum,
svo sem húsbúnaði, heimilistækjum,
innréttingum og jafnvel bifreiðum.
Með RAÐGREIÐSLUM VISA getur þú
jafnað út greiðslubyrði þinni á þægilegan
og ódýran hátt á allt að 24 mánuði
eftir því sem þú hefur þörf fyrir
... og söluaðili samþykkir.
$ INNKA UPA TRYGGING
og framlengdur ábyrgðartími
búnaðar og tækja.
Láttu RAÐGREIÐSLUR VISA
létta þér róðurinn...
OG OSKIN RÆTIST!
ætla mætti af stærð bók-
anna, bæði vegna mynd-
anna sem taka hálfu og
heilu síðumar og ekki síð-
ur vegna hönnunar bók-
anna; miklum spássíum
sem oft og tíðum era not-
aðar undir athugasemdir,
myndir og myndatexta.
Enginn ætti því að láta
stærð bókanna hræða sig
frá því að leggja til atlögu
við Sögu Reykjavíkur.
Eflaust mun mörgum
farið eins og mér að byrja
að skoða myndimar og
lesa myndatextana og
búta úr sögunni hér og
þar. Bókin skiptist í nítján
kafla um afmörkuð við-
fangsefni og er hver kafli
sjálfstæð eining þannig að
ekki þarf að lesa bókina
frá byrjun til enda, heldur
er hægt að grípa inn í bók-
ina eftir áhugasviði hverju
sinni. Bókin er 450 blað-
síður með ítarlegri tilvís-
ana- og heimildaskrá auk
nafnaskrá, atriðisorða-
skrá, myndaskrá og skrá
yfir félög, fyrirtæki, staði
og stofnanir. Auðvelt er
þessvegna að fletta upp á
því sem Iesandinn hefur
áhuga á.
Bókin hefst í þeim
þrengingum sem fylgdu
fyrri heimsstyrjöldinni og
hvemig ríki og bær
reyndu að bregðast við.
Næst er spænska veikin,
inngangur að fróðlegum
kafla um heilbrigðismál
og tilraunum til að bæta
hreinlæti í bænum. Ut-
gerð og fiskvinnsla fá
sinn kafla, enda var
Reykjavík stærsti útgerð-
arstaður landsins á þess-
um árum. Deilur um
virkjanir, og sú bylting
sem rafmagnið olli jafnt í
hversdagslegu liti og fyrir
iðnaðinn, fær ítarlega um-
fjöllun. Verslunarstéttin
fær einnig sinn kafla.
Stjómmál, stéttaátök og
starfsemi verkalýðsfélaga
fá sína umfjöllun og þar
kannski ekki margt nýtt
að finna. Öðru máli gegn-
ir um viðfangsefni sem
lítið hefur verið fjallað
urn hingað til í sögubók-
um fyrir almenning eða
kennslubókum. Hér nýtur
hvundagssagan sín best.
I þessu efni má nefna
skipulagsmál, þróun
byggðar og húsnæðismál,
meðal annars um bygg-
ingarstíl. Eins og við er að
búast tók það Islendinga
nokkum tíma að tileinka
sér hugsunarhátt borgar-
búa og skipuleggja
byggðina, í stað þess að
róta henni upp á tilvilj-
anakenndan hátt. Borgir
era manngert umhverfi og
hentar hefðbundin at-
burðasaga ekkert sérstak-
lega vel til að lýsa þróun-
inni. Myndirnar eru
ómissandi hluti af þessari
sögu og gera frásögn
Reykjavík var litin
hornauga, jafnvel af
Reykvíkingum sjálf-
um. Innst inni voru
þeir sveitamenn og
dreymdi um sveit-
ina. Reykjavík var
eiginlega ill nauð-
syn. Hin afar veg-
lega Saga Reykjavík-
ur er ef til vill tákn
um þessa breyt-
ingu. Við getum nú
litið til baka og sagt
sögu borgarinnar í
fullri sátt við þá
þróun sem orðið
hefur.
Guðjóns skýrari en ella væri mögu-
leiki.
Íþróttalíf bæjarins, löggæsla og
innreið bílamenningar fá hvert sinn
kaflann, en menningar- og skemmt-
analíf fær tvo kafla, sem segir þó
nokkra sögu um mat höfundar á því
sem máli skiptir að segja frá. A
þennan hátt er dregin upp skemmti-
leg mynd af bæjarlífinu í sinni fjöl-
breytilegustu mynd. Kaffthús og
veitingastaðir voru auðvitað stór-
kostleg framfaraskref í sögu þjóðar
sem alla sína tíð hafði búið í fá-
breyttu landbúnaðarsamfélagi. Eins
og gefur að skilja óttuðust margir
borgarmenninguna og hætturnar
sem henni fylgdu fyrir íslenskt þjóð-
emi - og jafnvel framtíð kynstofns-
ins! Atök Reykjavíkur og lands-
byggðar voru mikil og gerir Guðjón
þeim góð skil.
Þessi togstreita í menningu Islend-
inga er auðvitað enn til staðar.
Reykjavík var litin homauga, jafnvel
af Reykvíkingum sjálfum. Innst inni
vora þeir sveitamenn og dreymdi um
sveitina. Reykjavík var eiginlega ill
nauðsyn. Hin afar veglega Saga
Reykjavíkur er ef til vill tákn um
þessa breytingu. Við getum nú litið
til baka og sagt sögu borgarinnar í
fullri sátt við þá þróun sem orðið hef-
ur. Fyrstu kynslððir borgarbama, en
ekki innflytjenda eða barna þeirra,
eru nú að vaxa úr grasi.
Saga Reykjavíkur 1870-1940, síð-
ari hluti er afar veglegt og eigulegt
rit. Guðjóni tekst furðu vel að sam-
ræma fræðilegar kröfur og að vera
við alþýðuhæfi, en þetta er alls ekki
auðvelt. Það eina sem ef til vill er
ekki við alþýðuhæfl er verðið á bók-
inni, kr. 14.801. Bókina er þó hægt
að kaupa með afborgunum sem
flestir ættu að ráða við. Hitt er víst að
Saga Reykjavfkur er góð fjárfesting
og höfðingleg gjöf.
Höfundur er stjórnmálafræðingur og
aðstoðarmaður umhverfisráðherra