Alþýðublaðið - 20.12.1994, Blaðsíða 12
MÞYBUBIMD
Þriðjudagur 20. desember 1994
193.tölublað - 75. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Dræm þátttaka í
skoðanakönnun
Kvennalistans
Aðeins 100 til 150 tóku þátt í könnuninni.
Farið með niðurstöðurnar eins og hernað-
arleyndarmál.
Niðurstöður skoðanakönnunar
Kvennalistans um hverjir skuli skipa
efsta sæti listans fyrir Alþingiskosn-
ingamar næsta vor lágu fyrir í gær,
en farið er með þær eins og hemað-
arleyndarmál í herbúðum listans.
Niðurstöðumar vom ekki bindandi
vegna þess, að innan við 60%
skráðra Kvennalistakvenna í borg-
inni tóku þátt í könnuninni. Uppstill-
ingamefnd hefur þvf óbundnar hend-
ur um að koma með tillögu um það á
félagsfundi hveijar munu skipa list-
ann.
Nefndin hefur verið boðuð á fund
í dag og mun þar fara yfir stöðuna,
en enn hefur ekki verið rætt formlega
við þær konur sem gáfu kost á sér í
skoðanakönnun þessari um útkom-
una. Uppstillingamefnd hefur einnig
um það fijálsar hendur hvort hún
greinir félagsfundi, eða yfirleitt
nokkmm, frá niðurstöðum könnun-
arinnar.
Kristín Jónsdóttir, sem á sæti í
uppstillingamefndinni, sagði við Al-
þýðublaðið að búast mætti við því að
félagsfúndur yrði ekki kallaður sam-
an fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót.
Sá félagsfundur mun svo að endingu
taka um það ákvörðun hvemig list-
inn verður skipaður.
Heyrst hefur að ungar konur hafi
komið vel út úr skoðanakönnuninni
og mun það væntanlega styrkja bar-
áttu þeirra lyrir ömggu þingsæti,
þrátt fyrir að kjörið sé á engan hátt
bindandi.
Eins og Alþýðublaðið hefur áður
greint frá, þá er hugur í ungum kon-
um í Kvennalistanum að ná sætum
ofarlega á lista og gaf Þómnn Svein-
Kristín: Erfir efsta
sætið frá Ingibjörgu
Sólrúnu.
Elín: Talið að hún
verði efstu konum nú
skeinuhætt.
Þórunn: Stefnir að ör-
uggu þingsæti. Tekst
sú ætlan?
bjamardóttir, framkvæmdastjóri
Kvennalistans, það upp að hún
stefndi á öruggt þingsæti. Þar mun
hún hitta fyrir báðar núverandi þing-
menn listans. Fleiri konur stefna hátt
og má þar nefna Elínu G. Olafsdótt-
ur, fyrrnm borgarfulltrúa listans og
töldu viðmælendur blaðsins fyrir
rúmri viku, að hugsanlega gæti hún
orðið núverandi þingmanni, Guð-
rúnu Halldórsdóttur skeinuhætt.
Hins vegar áttu flestir von á því að
Kristínu Ástgeirsdóttur yrði ekki
skákað og að hún myndi ótvírætt
erfa efsta sætið frá Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur, sem tók við starfi
borgarstjóra Reykjavíkur síðastliðið
vor.
Um 300 konur munu vera flokks-
bundnar í Kvennalistanum í Reykja-
vík. Ljóst þykir að fremur fámennur
hópur kom að þessari skoðanakönn-
un, eða eitthvað á milli 100 til 150
konur.
Haiidór vill
mynda stiórn
með Davíð
- segir Svavar Gestsson alþingismaður. Hann tel-
ur að forysta Framsóknarflokksins muni nota
framboð Jóhönnu sem afsökun fyrir að fara í
stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
„Eftir að Jóhanna Sigurðardóttir
ákvað að bjóða fram aukast líkumar
á því að til að mynda vinstri stjóm
þurfi marga flokka. Framsóknar-
flokkurinn hljóp frá slíku samninga-
borði vorið 1983. Ég tel að í rauninni
hafi Jóhanna aukið líkumar á því að
Davfð hafi völdin áfram því það
Ijölgar afsökunum Framsóknar til að
fara í stjórn með Sjálfstæðisflokkn-
um,“ sagði Svavar Gestsson alþing-
ismaður í samtali við blaðið.
Svavar telur að forysta Framsókn-
arflokksins sé að undirbúa myndun
stjómar með Sjálfstæðisflokknum
eftir kosningar. Hann nefnir ýmis
merki til stuðnings þeirri skoðun:
„Það hafa verið vissar áherslur
síðustu mánuðina hjá Framsókn sem
em bersýnilega til hægri. Ég nefni í
fyrsta lagi yfirlýsingar sem frarh hafa
komið frá formanni flokksins um
breytingar á vinnulöggjöfinni. í öðm
lagi nefni ég hvemig þeir hafa sett
upp sín mál við afgreiðslu íjárlaga til
þessa. I þriðja lagi er svo þetta fram-
boð Jóhönnu eins og ég nefndi.
Framsóknarflokkurinn telur það
verða erfitt að mynda margra flokka
Einstæður bókaflokkur
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
30 sígild rit og einu betur !
Fást í helstu bókaverslunum. Verð flestra rita aðeins kr. 1.927,- Sendum einnig í póstkröfu.
stjóm og hún verði illa starfhæf. Það
er greinilegt að Davíð er farinn að
spila á þetta,“ sagði Svavar.
Hann var spurður hvort hann teldi
Halldór fúsari til samstarfs við Sjálf-
stæðisflokkinn en Steingrímur Her-
mannsson var. Svavar svaraði því til
að bersýnilega væm áherslur Hall-
dórs öðm visi en Steingríms. En er
það ekki svo að fyrir nokkmm miss-
emm vom taldar líkur á samstjóm
Alþýðubandalags og Sjálfstæðis-
flokks að loknum kosningum?
„Það vom fyrst og fremst almenn-
ar vangaveltur en engar efnislegar
líkur sem menn gátu leitt að því. Það
er hins vegar hægt að leiða ýmisleg
efnisleg rök að þessu með Framsókn
og Sjálfstæðisflokkinn. Hitt er bara
það sem flýgur í vindinum og enginn
innistæða fyrir.“
Svavar var spurður hvort það
kæmi til greina að Alþýðubandalag-
ið færi í stjóm með Sjálfstæðis-
flokknum.
„Alþýðubandalagið og forverar
þess hafa tekið þátt í ríkisstjóm með
Sjálfstæðisflokknum. En aðalatriðið
er auðvitað hvort pólitíkin sé þannig
að á því séu líkur. Eg held
að það sé ekki hægt að
segja að svo sé eins og sak-
ir standa. Okkar jöfnunar-
áherslur em miklu róttækari
en við reiknum með að
Sjálfstæðisflokkurinn þoli,“
sagði Svavar Gestsson.
Hann sagðist vera viss
um að fjöldi framsóknar-
manna hefði engan áhuga á
að flokkurinn færi í stjóm
með Sjálfstæðisflokknum
þótt forysta flokksins væri
þess fýsandi.
ö” ;
■ ^
-N
f
Mannger&ir
Htll ti: \'S3x(í
& /o\.
SrEPHEN W. HAWKING
Saga tímans
tofmiextxrtium
is / & & 'fr <
• x yuíwifxí'. nöunvMvrmtAötatk
SAUUEL johnsoh
Vandræðaskáld
(ý
V ív'
/giTX /y
j
Aáof
IARD6KHt.tr
UAHC<J$ YdUWS ClCErtO MARCÚS TðUlVC CfCtRO FHlPnBICH MIETZSCHÉ
Handan
Um vlnáttuna Um elllno góðs og ills
3 iplpSl 0 @
ItlÞ ilUKZKA BðXKlRNTAItlAG nis*ijiii.2X)fáOkMw«*i*ióiÁii
mm L-:;Á';
□ ARISTÓTELES: Um skáldskaparlistina
□ NOAM CHOMSKY: Mál og mannshugur
□ MARCUS TULLIUS CICERO: Um vináttuna
□ MARCÚS TÚLLÍUS CÍCERÓ: Um ellina
□ FRANK FRASER DARLING: Óbyggð og allsnægtir
□ RENÉ DESCARTES: Orðræða um aðferð
□ ALBERT EINSTEIN: Afstæðiskenningin
□ ERASMUS FRÁ ROTTERDAM: Lof heimskunnar
□ GOTTLOB FREGE: Undirstöður reikningslistarinnar
□ SIGMUND FREUD: Um sálgreiningu
□ KARL VON FRISCH: Berabý
□ JOHN KENNETH GALBRAITH: Iðnríki okkar daga
□ GODFREY HAROLD HARDY: Málsvörn stærðfræðings
□ STEPHEN W. HAWKING: Saga tímans (ný útg. 1993)
□ DAVID HUME: Rannsókn á skilningsgáfunni
□ DAVID HUME: Samræður um trúarbrögðin (UPPSELD)
□ SAMUEL JOHNSON: Vandræðaskáld
□ JOHNLOCKE: Ritgerð um ríkisvald
□ FRIEDRICH NIETZSCE: Handan góðs og ills
□ GEORGE ORWELL: Dýrabær
□ PLATON: Ríkið (tvö bindi kr. 5.990,-)
□ PLATÓN: Gorgías (ný útgáfa 1991)
□ PLATÓN: Menón
□ PLATÓN: Síðustu dagar Sókratesar
□ CHARLES PERCY SNOW: Valdstjórn og vísindi
□ HUGH TREVOR ROPER: Galdrafárið í Evrópu
□ VOLTAIRE: Birtíngur (UPPSELD)
□ MAX WEBER: Mennt og máttur
□ ÞEÓFRASTOS: Manngerðir
□ ÞORLEIFUR HALLDORSSON: Lof lyginnar
HIÐISLENSKA BOKMENNTAFELAG fS'
SIÐUMULA 21-108 REYKJAVIK- SIMI 588 90 60 • FAX 567 90 95
Ráðherr-
ar á rök-
stólum
Utanríkisráðherrar Rúss-
lands og íslands, þeir Andrei
Kozyrev og Jón Baldvin
Hannibalsson, náðu um það
samkomulagi í gær að efna
til viðræðna sérfræðinga
landanna um sjávarútvegs-
mál um miðjan janúar í
Murmansk. Eftir þær við-
ræður var ákveðið að koma á
þríhliða viðræðum um
smuguveiðar með þátttöku
Norðmanna.
Ráðherrarnir hittust í
Moskvu og undirrituðu sam-
eiginlega yfirlýsingu um
grundvallarreglur í sam-
skiptum landanna, þar sem
meðal annars er ákvcðið að
setja á laggimar nefnd til að
greiða fyrir samstarfi fyrir-
tækja og einstaklinga á við-
skiptasviðinu.
Ráðherrarnir ræddu vítt
og breitt um viðskiptasam-
starf ríkjanna og þá sérstak-
lega ný tækifærí til örvunar
viðskipta á sviði sjávarútvcgs
og jarðvarma. Þeir ræddu
cinnig tiltekna þætti alþjóða-
mála, sérstaklcga samruna-
ferílinn í Evrópu, samstarfið
innan Atlantshafssamvinnu-
ráðsins, „Samstarf í þágu
friðar,“ samstarf Rússa og
Bandaríkjamanna og Rússa
ogNATO.