Alþýðublaðið - 25.01.1995, Page 1
Framboðsraunir Alþýðubandalagsins
Erfídleikar og sársauki
vid frambod í Reykjavík
- segir Steingrímur J. Sigfússon, en telur fréttir Alþýðublaðsins af átökum mnan flokksins í Reykjavík og
víðar samtsem áður fjarstæðukenndar.
„Ég tel þetta ekki svaravert. Þetta
er fréttaflutningur sem er kominn út
fyrir þau mörk, ef Iréttaflutning
skyldi kalla. Ég sé ekki ástæðu til að
taka þátt í þessuni spuna ykkar Al-
þýðublaðsmanna og fjarstæðu-
kenndum málflutningi af málum Al-
þýðubandalagsins," sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, þingmaður
varaformaður Alþýðubandalagsins, í
samtali við Alþýðubluðið í gær.
Steingrímur var spurður álits á
þeint ummælum Stefaníu Þor-
grínisdóttur, sem situr í stjóm Sósí-
alistafélags Reykjavíkur, að framboð
Ögmundar Jónassonar og Bryn-
dísar Hlöðversdóttur væri til að
bjóða skiptimynt í ríkisstjóm Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðisflokks
að loknum kosningum. Sleingrímur
var þeirrar skoðunar að fréttir Al-
þýðublaðsins af málefnum Alþýðu-
bandalagsins, þar sem nafngreindir
flokksmenn hafa hver á fætur öðmm
lýst ágreiningi og óeiningu innan
flokksins, væm gamlar fréttir sem
ekki væri mark takandi á.
„Það urðu hér sárindi og það er
ljóst. Þið hafið greinilega náð í flesta
þá nafngreindu einstaklinga sem
maður hefur aðallega vitað af í því
sambandi. Þetta er ekki ný frétt held-
ur sama gamla þriggja, fjögurra,
fimm, sex vikna gamla fréttin í raun
og vem um það,“ sagði Steingrímur.
Og ekki gaf hann mikið fyrir stað-
festar fréttir Alþýðublaðsins af il-
lindum innan Alþýðubandalagsins á
Austurlandi vegna framboðsmála:
„Ég spurðist fyrir um það hjá þeim
mönnum sem best þekkja til þar
hversu stór þessi hópur væri þar sem
væri í óánægju. Mér var þá sagt að
þetta væm tveir til tjórir einstakling-
ar, þar af einn sem hefði verið búinn
að ákveða að hverfa yfir til Jóhönnu.
Þar er því mikið spunnið úr litlum
lopa.“
Siá viðtal við Símsrím
.1. Sk’fússoii á baksíðu.
Myndir Stefáns frá Möðrudal á Kjarvalsstaði
Listasafni Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum var í gærkvöldi færð höfðingleg gjöf: 14 olíumyndir og 6 vatnslita-
myndir eftir meistara Stefán Jónsson frá Möðrudal. Það var Jón Aðalsteinn Stefánsson, sonur Stefáns sem gaf
myndirnar, en Egili Eðvarðsson sá um að afhenda þær Guðrúnu Jónsdóttur, formanni menningarmálanefndar
Reykjavíkur, fyrir hönd fjölskyldunnar. A-mynd: E.ÓI.
Eggert Haukdal
Listinn er senn
tilbúinn
„Þetta framboð kemur innan
skamms. Það hefur ekki verið
ástæða til að birta framboðið ennþá
en nú fer það að koma,“ sagði Egg-
ert Haukdal alþingismaður í gær
við Alþýðublaðið um sérframboð
hans á Suðurlandi.
Eggert vildi ekki ræða framboðið
nánar að svo stöddu eða upplýsa
hverjir munu skipa framboðslistann
með honum. Fregnir herma að menn
úr öllum sýslum kjördæmisins muni
verða á lista Eggerts. Ymsir hafa ver-
ið þar nefndir til sögunnar en engin
nöfn fengist staðfest.
Samkvæmt heintildum Alþýðu-
blaðsins er talið líklegt að Eggert fái
drjúgan stuðning meðal fyrrum kjós-
enda bæði Framsóknar og Sjálfstæð-
isflokks, einkum í sveitunum. Þann-
Eggert Haukdal: Nú fer það að
koma.
ig er nú enginn bóndi í efstu sætum
Framsóknar á Suðurlandi, og hefur
það aldrei gerst áður eftir að núver-
andi kjördæmakerfi var sett á lagg-
imar.
Jólaskuldir
lands-
mannahjá
VISAum 7
milljarðar
Nú fara jólareikningar
greiðslukortafyrirtækja að
berast viðtakcnduin. Hjá
VISA námu kortaviðskipti
hér innanlands á jólatímabil-
inu, sem telst frá miðjum nóv-
ember til jafnlengdar í janú-
ar. rúnium sjö inilljörðum
króna. Það er bækkun um 375
milljónir frá árinu á undan.
Svonefnd ,jólauppsveifla“,
sem eru aukin viðskipti miðað
við sambærilegt tímabil þar á
undan, nam 820 milljónum.
Áður hafði gætt snemmbú-
innar jólauppsveiflu erlendis
upp á hálfan milljarð.
Samkvæmt upplýsingum
VISA var heildarviðskipta-
velta fyrirtækisins 44,2 millj-
arðar króna í fyrra og jókst
um 1,5 miiljarða frá árinu áð-
ur. Þá er Debetkortavelta ekki
ineðtalin.
Bréfaskriftir Davíðs Oddssonar og bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins í Hafnarfirði
Forsætisráðherra mun
skipa seturáðherra
Bréf alþýðuflokksmanna byggt á misskilningi, segir forsætisráðherra.
„Davíð vanhæfur til að fjalla um málið,“ segir Tryggvi Harðarson
„Mér finnst skipta sköpum hvem
forsætisráðherra lætur í málið. Ef
hann skipareinhvern úr innsta valda-
kjarna Sjálfstæðisflokksins, þá ntun-
um við illa una því,“ sagði Tryggvi
Harðarson, bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði, í samtali við
Alþýðublaðið vegna bréfs sem hon-
um og öðrum bæjarfulltrúum flokks-
ins barst í gær frá Davíð Oddssyni
forsætisráðherra.
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins
sendu Davíð á föstudaginn bréf þar-
sem því var mótmælt að Davíð skip-
aði seturáðherra til að úrskurða í
kærumálum Hafnfirðinga, í kjölfar
þess að Rannveig Guðmundsdóttir
sagði sig frá málinu. Alþýðuflokks-
menn í Hafnarfirði telja að Davíð sé
óhæfur til að aðhafast í málinu, þar-
sem hann hafi persónulega beitt sér
mjög bakvið tjöldin í Hafnarfirði.
Aðdragandi málsins er sá að fé-
lagsmálaráðuneytinu bárust tvær
kærur frá Hafnarfirði. Annarsvegar
fóm bæjarfulltrúar Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks fram á að rann-
sökuð yrðu viðskipti fyrmrn meiri-
hluta Alþýðullokks við fyrirtæki Jó-
hanns G. Bergþórssonar, Hag-
virki-Klett, og hinsvegar báðu al-
þýðuflokksmenn um rannsókn sem
næði til allra viðskipta Hafnarljarð-
arbæjar og fyrirtækja Jóhanns. I síð-
amefndu kæmnni felst því meðal
annars að rannsökuð verði viðskipti
núverandi meirihluta og Jóhanns G.
Bergþórssonar.
Rannveig Guðmundsdóttir félags-
málaráðherra sagði sig frá málinu,
og þarmeð lenti boltinn hjá forsætis-
ráðherra. Það varð síðan tilefni bréfs
bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins þar-
sem þeir sögðu hann ekkert st'ður
óhæfan en Rannveigu til að lara með
málið.
I svari sínu í gær segir Davíð að
bréf alþýðuflokksmanna í Hafnar-
firði sé „í grundvallaratriðum á mis-
skilningi byggt.“ Ennfremur segir í
bréfinu: „Forsætisráðherra ber því að
lögum að beita sér fyrir setningu ráð-
hetra til að fara með það kæmmál,
sem félagsmálaráðherra hefur sagt
sig frá af vanhæfisástæðum.“
Tryggvi Harðarson ítrekaði að
Davíð og aðrir ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins væm vanhæfir til að koma
nálægt ntálinu. Hann sagði að al-
þýðuflokksmenn í Hafnarfirði
myndu hinsvegar ekki setja sig upp á
móti því að seturáðherra yrði skipað-
ur sem sannanlega ætti engra hags-
Tryggvi: Munum illa una því að
Davíð skipi einhvern úr innsta
valdakjarna Sjálfstæðisflokksins.
muna að gæta, til dæmis embættis-
maður úr dómskerfinu.
Alþýðublaðið í dag
Jafnaðar-
menn
þurfa að
læra rífast
„Fyrst og fremst þurfum við jafn-
aðarmenn að læra að vera ósammála
og rífast, án þess að hlaupa í fjöl-
miðla eða kljúfa flokkinn. Til þess
að geta orðið fjöldahreyfing gengur
skotgrafahemaðurinn einfaldlega
ekki upp. Auðvitað hljótum við að
vera ósammála um mörg mál. Við
verðum hins vegar að fara hafa vit á
því að rífast og skammast fyrir lukt-
um dyrum. Ná þannig sameiginlegri
niðurstöðu og standa saman út á við
sem sterk og öflug heild."
Siá ..Annaðhvort er maður
krati eða íhald“. viðtal við
Gest G. Gestsson á blaðsíðu 5.
77/ hamingju
með ritstjóra-
starfið!
„Við, sem vinnum á öðru litlu
blaði, óskum hérmeð Páli til ham-
ingju með ritstjórastarfið; og jafn-
framt þær veglegu breytingar sem
strax urðu á Vikublaðinu hans. Þær
breytingar eru svo athyglisverðar að
áhugamenn um fjölmiðla ættu ekki
að láta Vikublaðið framhjá sér fara.
Hinn nýi ritstjóri hefur nefnilega
bryddað uppá þeirri nýbreytni birta
gamanmál og spaug á útsíðum, - og
kalla það fréttir."
Siá .Af persómileeum
ástœðum“. Einsoe eeneur eftir
Hrafn Jökulsson á blaðstðu 2.
Vestmannaeyingar
selja síld
Agóðinn til
Súðavíkur
Fyrirtæki og einstaklingar í
Vestmannaeyjum, með Vest-
mannaeyjabæ í broddi fylkingar,
hafa staðið að pökkun á mariner-
aðri sfld í legi sem seld verður t
verslunum Hagkaups á höfuðborg-
arsvæðinu á föstudag og laugar-
dag. Öll innkoma rennur óskipt til
Rauða krossins til styrktar þeint
sem eiga um sárt að binda vegna
náttúruhamfaranna í Súðavík.
Hugmyndina að þessu framtaki á
Hörður Adolfsson bryti en sfldar-
pakkningunum verður dreift í
verslanir Hagkaups af félögunt í
Björgunarfélagi Vestmannaeyja.
Hver 400 gramma pakkning kostar
267 krónur eða sama og einn pakki
af sígarettum. Allt hráefni var gef-
ið af fyrirtækjum og einstaklingum
í Eyjunt og Vinnslustöðin hf. sá
um pökkun.