Alþýðublaðið - 24.02.1995, Blaðsíða 3
HELGIN 24.-26. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
Ur fjötrum ofstjórnar
Þegar við lítum til framtíðarinnar,
er það einkum tvennt sem varpar
skugga á. I sjávarplássunum gætir
vaxandi uggs um það að óbreytt
kvótakerfi loki ungum og framtaks-
sömum mönnum
aðgengi að grein-
inni; og að veiði-
heimildir færist
sífellt á æ færri
hendur. Og í
sveitum landsins
eru augu bænda
smám saman að
opnast fyrir þeirri
staðreynd að svo-
kallaðir „vinir bænda“ hafa hneppt
þá í fátæktarfjötra. Þetta er þeim
mun dapurlegra sem aðrar greinar at-
vinnulífsins þokast hægt en ömgg-
lega í fijálsræðisátt, ekki síst fyrir
áhrif EES-samningsins, sem tekur til
flestra þátta þjóðlífsins - nema land-
búnaðar.
Hinn 11. febrúar síðastliðinn
skrifuðu Gunnar Einarsson og Guð-
rún S. Kristjánsdóttir, ábúendur á
Daðastöðum, grein í Morgunblaðið,
sem var beinskeytt ákæra á hendur
bændaforystunni undir heitinu:
„Skipulögð fátækt." Ég tek undir
með þeim. Þar segir: „Ef við horfum
til baka er engin vafi á að við sauð-
fjárbændur stæðum betur í dag ef
meginreglur verslunar og viðskipta
hefðu ráðið skipulagi á sölu. Ef við
horfum til framtíðar með innflutning
og harðnandi samkeppni í huga, get-'
ur það fyrirkomulag sem nú við-
gengst alls ekki gengið."
Bændur mega gjaman hugsa til
þess að Alþýðuflokkurinn hefur
aldrei farið með stjóm landbúnaðar-
mála. Alþýðuflokkurinn er ekki
óvinur bænda; en hann er svarinn
óvinur þess úrelta kerfis, sem leggur
þá í fjötra fátæktarinnar. Um menn
sem eiga þvílíka „vini“ og bændur
má segja, að þeir þarfnist heldur ekki
óvina! Bændur standa nú frammi
fyrir því á næstu ámm að þeir þurfa
að keppa um hylli neytenda á gmnd-
velli gæða og vömverðs. Það geta
þeir ekki gert með báðar hendur
bundnar fyrir aftan bak í fjötrum of-
stjómar. Þess vegna vill Alþýðu-
flokkurinn af-
nema núverandi
kvótakerfi. í stað
framleiðslu-
tengdra styrkja
komi búsetu-
stuðningur, eins
konar lágmarks-
laun, til að
styrkja bændur
fremur en búfén-
að. (ESB-styrkir) Til greina kemur
að tekjur ríkissjóðs í framtíðinni af
innflutningstollum verði nýttir til að
auðvelda bændum að bregða búa,
þeim sem vilja.
Audlindirnar eru sameign
þjódarinnar
Núverandi stjómkerfi fiskveiða
þarfnast gagngerrar endurskoðunar.
Það er mér mikið ánægjuefni að
stjórnarflokkamir hafa nú náð sam-
komulagi um að flytja fmmvarp til
breytinga á stjómskipunarlögum þar
sem sameign þjóðarinnar á fiski-
miðunum er stjómskipulega varin og
fest í sessi.
En meðan núverandi skömmtun-
arkerfi er við lýði er það stærsta rétt-
lætismálið að þeir sem fá ókeypis út-
hlutan heimildum fyrir óveiddum
fiski í sjó, greiði eðlilegt afgjald til
eigenda auðlindarinnar. íslensku
þjóðarinnar. Þetta er ekki skattlagn-
ing á sjávarútveginn því kvótar
ganga nú kaupum og sölum á háu
verði og hluti þeirra fjármuna gengur
út úr greininni. Tekjum af veiði-
leyfagjaldi mætti hins vegar ráðstafa
innan greinarinnar til þess meðal
annars að leysa staðbundinn vanda
sem af kvótakerfinu hlýst.
íslendingar geta ekki mikið lengur
varið það fyrir samvisku sinni að
loka augunum fyrir staðreyndum um
það að veiddum fiski er hent í sjóinn
í stórum stfl. Það verður einfaldlega
að gera það fjárhagslega hagkvæmt
fyrir sjómenn að koma með allan
veiddan fisk að landi. Það er skyn-
samlegri leið en að hóta mönnum
Brimarhólmsvist ef út af ber. Auk
þess verðum við að hlú betur að vist-
vænum veiðum á grunnslóð og
skoða vandlega, hvort ekki sé tíma-
Pallborðið
Jón Baldvin
Hannibalsson
skrifar
Bændur mega
gjarnan hugsa til
þess að Alþýðu-
flokkurinn hefur
aldrei farið með
stjórn landbúnaðar-
mála. Alþýðuflokk-
urinn er ekki óvinur
bænda; en hann er
svarinn óvinur þess
úrelta kerfis, sem
leggur þá í fjötra
fátæktarinnar. Um
menn sem eiga
þvílíka „vini“ og
bændur má segja,
að þeir þarfnist
heldur ekki
óvina!
bært að vísa öflugum vinnsluskipum
af grunnslóðinni.
Höfundur er utanríkisráðherra og
formaður Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands
Speki
dagsins
Alþingismennimir okkar létu
mörg spök orð falla þegar samn-
ingurinn um evrópska efnahags-
svæðið var til umræðu fyrir 2-3 ár-
um. Hvað ætli Steingrími Jóhanni
Sigfússvni. tilvonandi formanni
Alþýðubandalagsins, finnist um
þessi orð sem hann lét útúr sér á
Alþingi I. september 1992:
„Staðreyndin er sú að í
samningnum um evrópskt
efnahagssvæði er fátt
sjálfgefíð til hagsbóta ís-
lenskum sjávarútvegi.“
Við bendum félaga Steingrími að
fletta yfir á blaðsíðu 7 í Alþýðu-
blaðinu í dag. Þar er viðtal við Sig-
hvat Biamason í Vinnslustöðinni í
Eyjum. Fyrirsögnin er:
EES skapar meiri verð-
mæti og fleiri störf.
- Framsýnn maður, Steingrímur
Jóhann.
Ymsum þótti skondið að
lesa í aðalfrétt Sunn-
lenska fréttablaðsins um dag-
inn að hópur alþýðubanda-
lagsmanna hefði skorað á
Margréti Frímannsdóttur
að gefa kost sér til for-
mennsku í Alþýðubandalag-
inu jregar Olafur Ragnar
Grímsson lætur af embætti
síðar á árinu. Vitaskuld var
þetta fyrst og fremst innlegg í
kosningabaráttu Margrétar
vegna þingkosninganna, og
átti að sýna hve mikils og
óskoraðs trausts hún nýtur í
sínum flokki. Það er engu
logið í þeim efnum, enda
Margrét einn af fáum nokk-
um veginn óumdeildum þing-
mönnum Alþýðubandalags-
ins. Það mun hinsvegar ofsagt
að stórir hópar alþýðubanda-
lagsmanna séu nú að róa að
því öllum ámm að Margrét
gerist formaður, enda hafa
menn um annað að hugsa.
Það sagði eiginlega allt sem
segja þurfti, að talsmaður
,Jiópsins“ sem vill Margréti
sem formann var kosninga-
stjóri Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi! Annars telja
kunnugir að Margrét muni
sigla lygnan sjó í kosningun-
um enda þyrfti hún að tapa
gríðarmiklu fylgi til að vera í
einhverri hættu stödd...
Talsverða athygli hefur
vakið hve forystumenn
Sjálfstæðisflokksins em ró-
legir yfir hinum nýju stjóm-
málasamtökum Eggerts
Haukdals. Þannig beitti Dav-
íð Oddsson sér ekkert til að
fá Eggert ofan af sérfram-
boði. Ástæðan er einföld:
Davíð tekur ekki nærri sér
þótt Þorsteinn Pálsson bíði
hnekki í kosningunum. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar manni
í kjördæminu og þarmeð
veikist staða Þorsteins til
muna. Síðast fékk hann að
velja sér ráðherrasæti, enda
var Davíð í mun að græða
sárin síðan í formannsslagn-
um. Nú em hinsvegar fleiri
um hituna ef Sjálfstæðis-
flokkurinn verður áfram í rík-
isstjóm. Vestfirskir sjálfstæð-
ismenn, undir forystu Einars
K. Guðfinnssonar og Einars
Odds Krístjánssonar. munu
þannig krefjast ráðherraem-
bættis til handa Vestfirðing-
um, og þeir em litlir aðdáend-
ur Þorsteins...
Ekki verður annað sagt en
Gunnar Smári EgiLsson
riLstjóri Morgunpóstsins hafi
húmorinn í lagi. í gær skrifaði
hann leiðara í blað sitt, og var
fullur heilagrar (og sjálfsagðr-
ar) vandlæúngar á launamál-
um stjómenda ríkisfyrirtækja.
Fyrirsögn leiðarans, „Fá
borgað eftir þörfum", virðist
hinsvegar hafa verið þráðbein
bókmenntaleg vfsun í Gunnar
Smára sjálfan. Um daginn
vom fréttamenn að grennslast
fyrir um afhveiju blaðamenn
MorgunpósLsins fengju ekki
launin sín greidd. Þá kom
Gunnar Smári af fjöllum í
viðtölum, og sagði að sjálfur
sækti hann sér „laun eftir
þörfum". Það þótti mörgum
vellukkað fyrirkomulag - en
nú er hann að skamma aum-
ingja ríkisbubbana fyrir sams-
konar kjarasamninga...
Hinumegin
"Faraide" eftir Gary Larson.
i i ~-j
i 1 'M it
i
ii m*
„Ég get svarið það uppá tíu fingur, Eggert. Líf mitt tók al-
gjörum stakkaskiptum til hins betra þegar Guðni Þorsteins-
son búfræðingur kynnti mig fyrir tilraunum dr. Margrétar
með Hlaðanlegan búfénað. Þetta er miklu praktískara en
gamla draslið - öll dýrin í básum hlið við hlið - hvílík sóun á
plássi. Eggert, það er lífsnauðyn fyrir okkur bændur að
fylgjast með nútímanum."
Fimnn á fÖFnum vegi Um hvað snúast kosningarnar á Suðurlandi? Spurt á Selfossi.
Björgvin Rúnarsson, smiður;
Ég get ekkert um það sagt. Ég hef
takmarkaðan áhuga á pólitík.
Kristmundur Sigurðsson,
bóndi: Atvinnumálin verða stóra
málið.
Benedikt Sigurðsson, yfirvél-
stjóri í Búrfelli: Atvinnu- og sam-
göngumál.
________ák
Ágúst Eiríksson, garðyrkju-
bóndi; Hvort allt grænmeti verður
innflutt eða ekki.
Jónína Guðjónsdóttir, hú:
móðir: Ég vil ekkert um það segjí
Viti menn
Myndir þú kæra ef Demi
Moore áreitti þig
kynferðislega?
Samviskuspurning Morgunpóstsins
til lesenda sinna í gær.
Þorsteinn Pálsson á að fá hvfld
sem ráðherra fyrir okkur
Sunnlendinga.
Regína Thorarensen fréttaritari.
Morgunpósturinn í gær.
Plöntur muna eftir sjúkdóm-
um sem herjað hafa á þær og
nota reynsluna til að auka
framleiðslu varnarhormóna
næst þegar þær verða fyrir
árás skaðvaldsins, að sögn
bandarískra vísindamanna.
Frétt í Mogganum í gær.
Rótarhreyfingin 90 ára.
Prentviltt fyrirsögn á grein Ólafs Helga
Kjartanssonar í Morgunblaðinu í gær.
Hvenær gerir Ólafur Ragnar
kjarasamning á Neskaupstað?
Fyrirsögn i Morgunpóstinum í gær.
„Leggðu hart að þér við
vinnu, þá verður þú ríkur.“
68% Kínverja sögðu þessa setningu
best lýsandi fyrir lifsviðhorf þeirra í
fyrstu neytendakönnuninni sem Gallup
framkvæmdi i Kína. Aðeins 4% sögðust
fylgja slagorði Maó heitins: „Hugsaðu
aldrei um sjátfan þig, leggðu allt þitt í
þjónustu við samfélagið."
Newsweek í gær.
Fíkniefnin fylgja landanum
í grunnskólana.
Fyrirsögn í DV í gær.
Mér finnst nú skörin færast
upp í bekkinn þegar einhver
sjálfskipuð verkfallsnefnd
kennara er farin að ráðskast
með að banna starfsemi þá
sem fram fer í íþróttasölum
vítt og breitt um borgina.
Lesendabréf í DV í gær.
Veröld ísaks
Ný-sjálenskur vísindamaður að
nafni Ernest Rutherford (fæddur
árið 1871 - dáinn 1937) vann á
Cavendish-rannsóknastofnuninni
við Cambridge-háskóla í Englandi
skömmu fyrir sfðustu aldamót og
„ól upp“ slíkan aragrúa af vísinda-
snillingum að fádæmi verða að
teljast. Tæplega þrítugur að aldri
varð Rutherford síðan fyrstur allra
til að kljúfa atóm og renndi þar með
stoðum undir nýja vísindagrein:
kjarneðlisfræði. Rutherford hafði
þann háttinn á við vinnu sína, að
hann safnaði í kringum sig snjöllum
ungntennum með augljósa hæfileika
í þessa átt. Vinna þessa hóps leiddi á
endanum að tilurð þess, er við
þekkjum í dag sent kjamorku og
kjarnorkusprengjur. Meðal nemenda
Emest Rutherford voru fjórtán
vísindamenn sem síðar hlutu
Nóbelsverðlaun.
Isaac Asimov's Book of Facts