Alþýðublaðið - 24.02.1995, Page 10
10
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 24.-26. FEBRÚAR 1995
Með fjölskyldunni. Lúðvík,
Guðfinna og Theodór.
- segir Lúðvík Bergvinsson, 1. maður
á framboðslista Alþýðuflokksins á Suðurlandi,
í hressilegu viðtali við Sœmund Guðvinsson.
„Öll reynsla kemur að góðu gagni
í .stjómmálabaráttunni. A námsámn-
um vann ég alla algenga verka-
mannavinnu og stundaði líka sjó-
mennsku. Ég var mikið í fótboltan-
um og náði því að verða íslands-
meistari með 5. flokki ÍBV. Seinna
komst ég svo í meistaraflokk og
keppnisandi íþróttanna hefur alltaf
fylgt mér og á sinn þátt í að ég vil
vera gerandi í pólitík en ekki bara
áhorfandi. Eftir að ég lauk embættis-
prófi starfaði ég sem fulltrúi hjá
embætti bæjarfógeta og síðan sýslu-
manns í Eyjum. deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu rfkisins og svo
hér hjá umhverfisráðuneytinu. Þetta
er ferillinn í stuttu máli og nú sæki ég
um vinnu hjá kjósendum á Suður-
landi."
Lúðvík Bergvinsson, yfirlög-
fræðingur umhverfisráðuneytisins,
er ekki dæmigerður lögfræðingur
eða embættismaður í útliti og fasi.
„Alþýðuflokkur-
inn hefurallt
frumkvæði í
pólitískri um-
ræðu hér á landi
og auðvitað áttar
fólk sig á því
að þetta er eini
flokkurinn með
einhverja alvöru
framtíðarsýn."
Glaðbeittur og hress ungur maður,
frjálslega klæddur og talar hreint út
um hlutina. Stundum er sagt að Vest-
mannaeyingar þekkist alls staðar úr
fjöldanum vegna þess hve þeir eru
hressir og ákveðnir í framgöngu og
þessi lýsing á vel við Lúðvík. Enda
fer það ekki milli mála að hann er
Vestmannaeyingur í húð og hár því
ég mátti sitja undir löngum fyrirlestri
um ágæti Eyjanna og þá sem þar búa
áður en hið eiginlega viðtal hófst. En
í upphafi var hann að svara þeirri
spurningu hvað hann hefði fengist
við um dagana áður en hann haslaði
sér völl í stjórnmálum með framboði
fyrir Alþýðuflokkinn.
„Ég hef alltaf verið dálítið fyrir
það að breyta til. Það var góður skóli
að starfa við embætti fógeta í Eyjum
undir stjóm Kristjáns Torfasonar
sem síðan varð dómsstjóri Héraðs-
dóms Suðurlands þegar réttarfars-
breytingin varð. Ég hélt áfram við
sýslumannsembættið í Eyjum eftir
að Georg Kr. Lárusson varð sýslu-
maður fram á sumarið 1993. Þá var
hringt í mig frá Rannsóknarlögreglu
nkisins og óskað eftir að ég leysti
Þóri Oddsson af sem deildarstjóri í
þeirri deild sem annast meðal annars
rannsókn alvarlegra ofbeldisverka.
Þórir fór í sérstakt verkefni sem tók
um hálft ár. Mér líkaði vel hjá RLR
og þar er mikið af mjög hæfu starfs-
fólki. En eftir dvölina þar fannst mér
kominn tími til að breyta til og sótti
þá um hér í ráðuneytinu.“
LognmoUan
á ekki vid mig
Hvað gerir yfirlögfræðingur
umhverfisráðuneytisins? Er hann
aðallega í því að lögsækja um-
hverfisböðla?
„Það er hluti af starfinu. En þetta
er mjög ijölbreytt starf. Vinna við
samningu laga sem heyra undir
þennan málaflokk, fara yfir reglu-
gerðir, úrskurða í kærumálum, ráð-
gjöf inn í allar deildir ráðuneytisins
og þannig mætti lengi telja. Þetta er
allt annað en ég hef fengist við áður.
En ég fékk góða reynslu í starfinu
mínu í Eyjum því þar vann ég fyrst
meðal annars sem dómari meðan
fógetaembættið var starfandi og síð-
an fór ég að flytja mál fyrir hönd rík-
issaksóknara þegar sýslumannsemb-
ættið var stofnað."
Hvarflaði ekki að þér eftir laga-
prófið að opna skrifstofu og fara
að praktisera?
„Nei, ég var alltaf ákveðinn í að
reyna að afla mér reynslu hjá ríkinu.
Þetta er svo miklu mun fjölbreyttara
starf sem er til dæmis unnið hér hjá
ráðuneytinu en á lögmannsstofu þar
sem stór hluti starfsins er innheimta
af einhverjum toga. Slík lognmolla á
ekki við mig og starfið hér er góður
undirbúningur undir hvað sem ég tek
mér fyrir hendur í framtíðinni."
Vil fremur vera
gerandi en þolandi
En hvað rekur þig úr starfi sem
þú ert ánægður með f pólitík sem
mörgum finnst einkennast af sí-
felldu þrasi, vanþakklæti, Iöngum
vinnudegi og lágum Iaunum?
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
fyrir pólitík og jafnan haft skoðun á
því sem er að gerast. Kannski hefur
alltaf blundað í mér þessi hugsjón að
það sé hægt að gera eitthvað í málun-
um. Taka þátt í að gera gott þjóðfé-
lag betra. Ég vil frekar vera gerandi
en þolandi í þjóðfélaginu. Þeir sem
eru gerendur í pólitík eru jafnan að
marka þá leið sem þjóðarskútan fer
og mér virðist sem sjónarmið þeirrar
kynslóðar sem ég tilheyri mættu fá
að njóta sín meira í þeirri stefnumót-
un. Þeir sem hafa verið í íþróttum era
veikir fyrir öllum ögrunum. Það
þekki ég á sjálfum mér. Það er
kannski misjafnt af hvaða ástæðum
menn fara út í pólitík og ástæðurnar
eflaust jafn margar og mennimir era
margir. En allir hljóta þeir þó að gera
þetta að meira eða ntinna leyti af
áhuga á að taka þátt í því sem er að
gerast.“
Alþingi þarf ad endur-
spegla ólík vidhorf
Nú ert þú að fara í slag við ýmsa
„Kannski hefur
alltaf blundað
í mér þessi hug-
sjón að það sé
hægt að gera
eitthvað í málun-
um. Taka þátt i
að gera gott
þjóðfélag betra."
þaulreynda stjórnmálamenn í
kjördæminu. Verður þú ekki bara
afgreiddur sem reynslulaus ný-
græðingur sem lítið mark sé tak-
andi á?
„Ég er yngri en hinir, það verður
ekki af mér skafið. En þessir menn
sem eru reyndir í dag byrjuðu ekki
heldur sem menn með reynslu. Ég
hef raunar gert svolítið grín að þessu
viðhorfi og sagt að nái ég inn á þing
séu þar 62 þingmenn til að halda í
hönd mér svo ég geri enga vitleysu.
Annars held ég að sjónarmið þeirrar
kynslóðar sem ég er af geti ekki ann-
að en bætt þá umræðu sem fer fram á
Alþingi. Það era fáir þar sem era í
sporam þess fólks sem þarf að hafa
hvað mest fyrir lífinu. Sjónarmiðum
þeirrar kynslóðar er ekki gert hátt
undir höfði í þinginu sem er miður.
Alþingi þarf að endurspegla sem
flest viðhorf til að þroska þá umræðu
sem þar fer fram.“
Af hverju hallaðist þú að Al-
þýðuflokknum?
„Það era tvær meginástæður fyrir
því. Annars vegar er ég kominn af
kratafólki. Hins vegar er það vegna
þess að mér hefur virst, alla vega
hina síðari ár, að þetta sé flokkurinn
sem geti tekið afstöðu og ákvarðanir
sem byggir á skynsemisgranni.
Flokkurinn er ekki bundinn af hags-
munabandalögum sem hinir flokk-
amir eru bundnir af. Ég hef til dæm-
is spurt sjálfstæðismenn að því hvcr
sé stefna flokks þeirra í sjávarútvegs-
málum, landbúnaðarmálum og Evr-
ópumálum. Þeir segjast ekki vita það
en séu samt sjálfstæðismenn. Ég hef
spurt hvað fái fólk með 70 þúsund
króna mánaðarlaun til að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn. Ég fæ engin svör
önnur en þau að það sé samt sjálf-
stæðisfólk. Mér fínnst vanta ansi
mikið inn í svona röksemdafærslu.
Fyrir skömmu hitti ég einn af fyrr-
verandi borgarfúlltrúum Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík og við fórum
að ræða saman. Hann fór að núa mér
því um nasir að ég værí í röngum
flokki. Ég sagðist ekki hafa verið til-
búinn til þess að gefa mínar skoðanir
uppá bátinn með því að ganga til liðs
við Sjálfstæðisflokkinn. Þá svaraði
hann: „Það skiptir ekki öllu máli.
Það er miklu praktiskara að vera
að fara um borð í sökkvandi skip?
„Sú almenna umræða sem fór
fram um flokkinn á haustmánuðum
um siðferði í íslenskri pólitik var holl
að mínum dómi. Fámennið hér gerir
það að verkum að það er mjög stutt á
milli stjómmálamanna og kjósenda.
Þessi umræða hefur því ekki bara
áhrif innan Alþýðuflokksins heldur
ekki síður innan annarra flokka^ Það
voru bomar sakir á Guðmund Arna
Stefánsson og hann sagði af sér eftir
að hafa gert glögga grein fyrir sínum
málum. Hann skapaði þar með for-
dæmi sem eftir var tekið því hingað
til hafa ráðherrar ekki sagt af sér þótt
á þá hafi verið bomar þyngri sakir en
þær sem Guðmundur Ámi varð fyrir.
Sökkvandi skip, sagðirðu. Flokk-
ur eins og Alþýðuflokkurinn getur
aldrei til lengri tíma mælst með fylgi
uppá nokkur prósent. Alþýðuflokk-
urinn hefur allt framkvæði í póli-
tfskri umræðu hér á landi og auðvit-
að áttar fólk sig á því að þetta er eini
flokkurinn með einhverja alvöra
framtíðarsýn. Þar getum við horft á
stefnu flokksins í landbúnaðarmál-
um, sjávarútvegsmúlum og Evrópu-
málum. Það er sama hvar borið er
niður í stóra málunum. Þar hefur
flokkurinn haft framtíðarsýn og það
hefur sagan staðfest. Ég er ekki viss
um að allir þeir sem tjáðu sig um
EES-samninginn á sínum tfma vilji
að þeim ummælum sé haldið á loft.
Það er hins vegar ljóst að viðhorf Al-
þýðuflokksins falla ekki kramið hjá
sérhagsmunahópum. Stefna Alþýðu-
flokksins stendur fyrir velferð al-
mennings en ekki hagsmunum sér-
hópa.“
Grundvallaratridi ad
auka og bæta menntun
Þú talar um framtíðarsýn.
Hvernig búum við okkur best
undir framtíðina?
Lúðvík
Bergvinsson
Fæddur: 29. apríl 1964.
Foreldrar: Bergvin Oddsson
skipstjóri og María Friðriks-
dóttir.
Menntun:Stúdent frá Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi.
Lagapróf frá Háskóla Islands
1991.
Fjölskylda: í sambúð með
Guðfinnu Jóhönnu Guðmunds-
dóttir sem á soninn Theodór
Gunnar sex ára.
Starf: Yfirlögfræðingur
umhverfisráðuneytisins.
Framtíðaráform: Hefur sótt um
starf hjá kjósendum í Suður-
landskjördæmi sem þingmaður
Alþýðuflokksins.
Áhugamál: Þjóðmál, skák,
bridge, fótbolti og aðrar íþróttir.
sjálfstæðismaður. Flokkurinn skaf-
far svo vel.“ Kannski þarna sé kom-
inn hluti skýringarinnar á því hversu
stór hluti kjósenda fylgir þessum
flokki án þess að flokkurinn fylgi
neinni stefnu.“
Holl umræda um
siðferdi í pólitík
Alþýðuflokkurinn hefur verið
mikið í sviðsljósinu á kjörtímabil-
inu og umræðan oft neikvæð í
garð flokksins. Það hefur verið
deilt um ýmsar ráðstafanir sem
forystumenn flokksins hafa beitl
sér fyrir, ráðherra sagt af sér
vegna gagnrýni á störf hans og
skoðanakannanir sýndu um tíma
fylgishrun. Runnu ekki á þig
tvær grímur og varstu ekki
hræddur um að þú værir