Alþýðublaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
JVIenning
Frumsýniiig á
Sögu ur vestur-
bænum
Þarsem
götuklík-
urnar ráða
ríkjum*
I kvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið á
Stóra sviðinu söngleikinn West Side
Story, Sögu úr vesturbænum. Þessi
heimsfrægi söngleikur, sem þótti
marka tímamót í bandarískri söng-
leikjahefð, er nú í fyrsta sihn sýndur
á íslensku leiksviði.
I vesturbæ New York borgar tak-
ast götuklíkur á um völdin. Hver á
götumar, „sannir“ Ameríkanar eða
innflytjendur frá Púertó Ríkó? Ólg-
andi tiífinningar leita útrásar í slags-
málum og spennu, villtum dansi,
heiftugu hatri - og ást. Mitt í allri
hringiðunni fella ung stúlka og ung-
ur maður af ólíkum uppmna hugi
saman, þvert gegn vilja sinna nán-
ustu. Óspillt ást þeirra má sín þó lítils
gegn valdastríði og blóðhefndum.
Söngleikurinn West Side Story er
byggður á hugmynd bandaríska
danshöfundarins Jerome Robbins,
tónlistin er eftir Leonard Bernstein,
söngtexta gerði Stephen Sondheim
en leiktextann Arthur Laurents.
Söngleikurinn var fmmsýndur í New
York 1957. 'Þýðandi verksins er
Karl Agúst Úlfsson, danshöfundur
og dansstjómandi Ken Oldfield,
tónlistar- og hljómsveitarstjóri er Jó-
hann G. Jóhhnnsson og
hljóðstjóri Sveinn Kjart-
ansson. Lýsing er í hönd-
um Björns Bergstein*
Guðmundssonar,*" leik-
mynd hannaði Finnui
Arnar Arnarson og bún
inga María Ólafsdóttir
Aðstoðarleikstjóri e:
Randver Þorláksson et
leikstjórar em Karl Agús
Úlfsson og Kenn Oldfield
Leikendur em á fjórð;
tug, söngvarar, dansarar oj
leikarar. með hlutverk elsk
endanna ungu, Tóný oj
Maríu, fara Marta G. Hall
dórsdóttir og Felix Bergs
son, til skiptis við Valgerð
G. Guðnadóttur og Garðar Thór
Cortes. Foringjar götuhópanna em
þeir Baltasar Kormákur og Hilmir
Snær Guðnason, kæmstur jteirra
em Sigrún Waage og Astrós
Gunnarsdóttir.
Fjölbreytt TMM
Leikli'st, skáldskapur og tónlist
í gær fengu lesendur Alþýðublaðs-
ins dálítið sýnishorn úr hinni «tór-
fróðlegu grein Einars Ólafssonar
um Dag Sigurðarson sem birtíst í
nýju Tímariti Máls og menningar.
En það kénnir fleiri grasa í nýju
TMM. Skáldskapur og greinar um
bókmenntir em að vanda uppistaðan
í tímaritinu en einnig er öðmm list-
greinum, svosem leiklist og tónlist,
helgað þar nokkurfc rúm. Þýðing'
Steinunnar Sigurðardóttur á ljóði
eftir Nóbelsskáldið Derek Walcott
opnar tímaritið en af öðmm skáld-
skap má nefna ljóð eftir Diddu,
Þorra Jóhannsson, Aðalheiði Sig-
urbjörnsdóttur og Kristínu
Ómarsdóttur. Af bókmenntagrein-
um má nefna grein Péturs Gunn-
arssonar sem nefnist „Samhengis-
leysið’í íslenskum bóímenntum“ og
grein Sigurðar A. Magnússonar
um írska skáldjöfurinn . James
Joyce. Leiklistin skigar óvenju veg-
legan sess í TMM að þessu sinni.
Arni Ibsen skrifar grein um stöðu
leiklistarinnar, Ólína Þorvarðar-
dóttir veltir*fyrri sér nffnninu um
Galdra-Loft í gegnum tíðina og ÓI-
afur Sveinsson birtir eifliáttung sem
nefnist „Stolt“. Loks má nefna grein
eftir skáldságnahöfundinn Miian
Kundera um tékkneska tónskáldið
Leos Janacek. TMM kemur út fjór-
um sinnum á ári og kostar ársáskrift
3300 krónur.
Pétur Gunnarsson veltir fyrir sér
samhengisleysi ísienskra bók-
mennta.
Borgarleikhúsið
Dökku fiðrildin taka flugið
Á laugardaginn fmm-
sýnir Leikfélag Reykja-
víkur nýtt finnskt leikrit,
gert eftir sögu Leenu
Lander sem út kom hjá
Forlaginu nú í vikunni.
Leikritið Heimur dökku
fiðrildanna var nýlega
fmmsýnt í Finnlandi við
mjög góðar undirtektir.
Það ljallar um ástir,
framhjáhald, afbrýði, morð. Juhani
Juhansson er ungur fjármálamaður
sem vinnur hjá byggingafyrirtæki og
á von um stöðuhækkun. Hann hugs-
ar til æskuáranna, um tildrög þess að
þeir bræður vom teknir frá foreldr-
um sínum, og kemst síðan að æ
meiru um fortíð föður síns sem var
efnavísindamaður en aðgerðir hans
ollu undarlegum atburðum, til dæm-
is vegna mengunar. Þetta er leikrit
um leyndarmál liðins tíma. í sárri
endurminningu blandast saman
spenningur og ógn, ást og hatur, mis-
kunnarleysi þess sterka og hjálpar-
leysi fómarlambsins. Leikgerðin er
unnin af Páli Baldvin Baldvinssyni
en þýðandi er Hjörtur Pálsson.
HYLJODPI
Leikstjóm er í höndun
Eija-Elina Bergholm
Margir leikarar koma fram
sýningunni: Ari Matthías
son, Benedikt Erlingsson
Eyjólfur Kári Friðþjófs
son, Guðmundur Ölafs
son, Hanna María Karls
dóttir, Jón Hjartarson
Jakob Þór Einarsson
Margrét Viihjálmsdóttii
Magnús Jónsson, Sigrúi
Edda Björnsdóttir, Sig
urður Karlsson, Stefái
Sturla Sigurjónssor
Steinunn Olafsdóttii
Theodór Júlíusson o;
Þröstur Leó Gunnarsson
Samískur leikhúss-
galdur á Akureyri
Fjöldi atriða á norrænu
menningarhátíðinni Sól-
stöfum er fluttur á Akureyri
og ber þar hæst sýningu
samíska þjóðleikhússins
Beaivvás Sámi Teáhter á
leikritinu Þótt hundrað
þursar.... Verk þetta - sem
aðeins verður sett upp á Ak-
ureyri - gefur á að líta og
heyra í íþróttaskemmunni á
Akureyri næstkomandi
laugardag, 4. mars, klukkan
20:30. í sýningunni er rakin
hin magnaða saga samískr-
ar menningar í gegnum ald-
irnar og allar þær hættur
sem henni hefur staðið ógn
af. Nokkrar rætur hefur Beaivvás Sámi Teáhter til Íslands því leik-
hússtjóri þess er íslendingurinn Haukur Gunnarsson sem nú
ferðast til landsins að kynna okkur samískan leikhússgaldur i
gegnum leik, söng, dans, slagverksspil og látbragð. Enginn þarf
að óttast tungumálaerfiðleika því sýningin er sérstaklega unnin
fyrir þá sem ekki gerðu heimadæmin sín t samísku í barna-
skóla...
949.000
kr. á götuna
Gerðu samanburð
Ódýrasti bíllinn í sínum flokki
3ja dyra HYUNDAI ACCENT VW G0LF T0Y0TA C0R0LLA NISSAN SUNNY
RÚMTAK VÉLAR 1341 CC 1391 CC 1331 CC 1397 CC
HESTÖFL 84 60 90 89
LENGD/mm 4103 4020 4095 3975
BREIDD/mm 1620 1695 1685 1690
HJÓLHAF/mm 2400 2475 2465 2430
ÞYNGD 960 1075 1020 995
VERÐ 949.000 1.149.000 1.199.000 1.059.000
84 hestöfl með
beinni innspýtingu, vökvastýri,
vönduðum hljómflutningstækjum
og fjölda annarra þæginda
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 12 00 • BEINN SÍMI: 553 12 36
Hafiö samband við sölumenn okkar
eða umboðsmenn um land allt