Alþýðublaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 8
MH9UBUBI!
Föstudagur 3. mars 1995
36. tölublað - 76. árgangur
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna opnuð
Þátttaka í rannsóknum ESB
I dag verður Kynningarmiðstöð
Evrópurannsókna, KER, formlega
opnuð í Reykjavík. Henni er ætlað að
aðstoða fyrirtæki og stofnanir við
þátttöku í rannsóknar- og tækniþró-
unaráætlunum Evrópusambandsins
sem Islendingar hafa nú nánast fullan
aðgang að. Ennfremur mun KER
koma hér á framfæri niðurstöðum úr
evrópskum rannsóknum sem henta
íslensku atvinnulífi. Vincent Para-
jón Collada ráðuneytisstjóri í einu
ráðuneyta ESB, sem fer meðal annars
með málefni á sviði hagnýtingar
rannsókna og tækni innan sambands-
ins, verður viðstaddur opnunina.
Hann mun fjalla um möguleika ís-
lenskra fyrirtækja og stofnana til að
nýta niðurstöður úr rannsóknum sem
stundaðar hafa verið í Evrópu.
Einnig hafa framsögu þeir Sig-
hvatur Björgvinsson iðnaðarráð-
herra, Olafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra og Vilhjálmur Lúð-
víksson framkvæmdastjóri Rann-
sóknarráðs Islands. Þá verður haldin
sýning á þeirri þjónustu sem Kynn-
ingarmiðstöð Evrópurannsókna býð-
ur fýrirtækjum og þeim sem hafa
áhuga á tæknisamstarfi við önnur evr-
ópsk fýrirtæki, stofnanir og háskóla.
Meðal annars verður hægt að leita að
hugsanlegum samstarfsaðilum og
möguleikum sem bjóðast innan áætl-
ana ESB á sviði rannsókna og tækni-
þróunar gegnutn gagnabankann
CORDIS. KER errekin af Rannsókn-
arráði ríkisins með aðstoð Iðntækni-
stofnunar og Rannsóknarþjónustu
Háskólans. Opnunarathöfn KER fer
ffarn á Hótel Loftleiðum kfukkan 15 í
dag og em allir velkomnir.
f
KÓLÓMBÍUKAFFI
Afl)urða ljúffengt hreint Kólonibíukaffi nieð kröftugu og frískandi bragði.
Kaffið er meðalbrennt sem laðar fram hin fínu blæbrigði í bragði [>ess.
Kólombíukaffi var áður í hvítuin uinbúðum.
MEÐALBRENNT
Einstök klanda sex ólíkra kaffitegunda. Milt Santos kaffi frá Brasilíu
er megin uppistaðan. Kólombíukaffi gefur ilminn og frísklegt, kröftugt bragð.
Blandan er loks fullkomnuð með kostakaffi frá Mið-Ameríku
og kjarnmiklu Kenýakaffi.
itr
lii m m
E-BRYGG tscrhlamla
Kaffi sem lagað er í sjálfvirkum kaffikönnum þarf að búa yfir sérstökum
eiginleikum til að útkoman verði eins og best verður á kosið.
Gevalia E-brygg er blandað með sjálfvirkar kaffikönnur í liuga.
Aðeins grófara, bragðniikið og ilinandi.
og Már
M V\\N ELL IIOIISI
Fádæma gott kaffi frá eyjunni Java í Indónesíu. Bragðið er mjúkt,
hefur niikla fyllingu og sérstaklega góðan eftirkeim
sein einkennir Old Java. Kaffi sem ber af.
GEVALIA
-Það er kaííið!
Ásgeir Hannes ekki fram með Inga Birni
Hef lært mína lexíu
„Heldurðu virkilega að
ég sé ekki búinn að læra
mína lexíu? Eg hef ekki
komið nálægt þessu máli
og veit ekkert um það,“
sagði Ásgeir Hannes Ei-
ríksson fyrrverandi al-
þingismaður í spjalli við
Alþýðublaðið. Ásgeir
Hannes var spurður hvort
það væri rétt að hann myndi taka
sæti á framboðslista Inga Björns
Albertssonar ef af framboði verð-
ur. Ásgeir tók því víðs fjarri og
sagði Inga Björn ekki hafa rætt
við sig. Hins vegar kæmi fram í
frétt í DV að Ingi Björn væri að
ræða við Njál Harðarson og „fleiri
útgöngumenn úr Vikivaka - eða
heitir það Þjóðvaki?“
Stærsta
sundmót
landsins
Um næstu helgi - dagana 4.
til 5. mars - verður Unglinga-
mót KR haldið í Sundhöll
Reykjavíkur frá klukkan 09:30
til 13:00 og 15:30 tií 18:00báða
dagana. Hér er um að ræða eitt
stærsta sundmót landsins fyrir
yngri aldursflokka (8 til 17 ára)
og koma keppendur hvaðanæva
af landinu. Keppendur eru um
420 talsins (ríflega 1.300 skrán-
ingar í greinar) og starfsmenn
eru tæplega 50. Sautján keppn-
islið mæta til leiks: Ármann,
Hamar í Hveragerði, HSÞ, ÍBV,
Keflavík, KR, Reynir í Sand-
gerði, Sundfélag Hafnarfjarðar,
Selfoss, Stjaman, UBK,
UMFA, UMFN, UMSB,
UMSS, USVH og Ægir. Keppt
verður í 54 greinum og fimm
aldursflokkum: Hnokkar og tát-
ur (10 ára og yngri), sveinar og
meyjar (11 og 12 ára), drengir
og telpur (13 og 14 ára), piltar
og stúlkur (15 til 17 ára).
Islenskt
kvennakóra-
mót í júní
Fyrirhugað er að halda kóra-
mót íslenskra kvennakóra 23.
til 25. júní næstkomandi. Að
þessu sinni mun Kvennakór
Reykjavíkur sjá um mótið sem
nú verður haldið í annað sinn.
Hið fyrra var í umsjón kvenna-
kórsins Lissýar og var í Ydölum
í Suður-Þingeyjarsýslu. Kóra-
mótinu í júní mun ljúka með
stórtónleikum þar sem allir
kórarnir munu koma fram og
flytja sameiginlega efnisskrá.
Kvennakór Reykjavíkur var
formlega stofnaður vorið 1993
og er því einungis tæpra tveggja
ára. Um 110 konur syngja með
kórnum um þessar mundir og
einnig eru starfræktir innan
hans gospelkór, skemmtikór og
kórskóli. Þeir kvennakórar sem
áhuga hafa á þátttöku í mótinu í
júní eru beðnir um að hafa sam-
band við mótshaldara.
Spænska borgarastríðið og MIR
Heimildakvikmyndin
Grenada, Grenada, Gren-
ada verður sýnd í bíósal
MÍR að Vatnsstíg 10 næst-
komandi sunnudag klukkan
16:00. Kvikmynd þessi, sem
fjallar um borgarastríðið á
Spáni 1936 til 1939, vargerð
árið 1967 undir stjóm hins
kunna sovéska kvikmynda-
gerðarmanns Roman
Karmen. Meðhöfundur
hans var Konstantin Sim-
onov, þekktur stríðsfréttarit-
ari og rithöfundur. Kvikmyndin er
hin fyrsta af nokkrum heimilda-
myndum sem sýndar verða hjá MIR
í marsmánuði; myndum sem allar
fjalla um síðari heimsstyrjöldina, að-
draganda hennar og endalok. Tilefni
sýninganna er vitaskuld 50 ára af-
mæli uppgjafar Þjóðverja fyrir hetj-
um bandamanna í Evrópu. I apríl og
maí verða svo sýndar leiknar kvik-
myndir sem sækja efni sitt til styrj-
aldaráranna. Aðgangur að kvik-
myndasýningum MÍR á sunnudög-
um er jafnan ókeypis.