Alþýðublaðið - 08.03.1995, Síða 2

Alþýðublaðið - 08.03.1995, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 1995 MÍYDUBU9ID 20884. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566 Útgefandi Alprent Ritstjórar Hrafn Jökulsson SiguröurTómas Björgvinsson Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín Umbrot Gagarín hf. Prentun Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 625566 Fax 629244 Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Vinsældir og valdníðsla Ný skoðanakönnun Gallup á fylgi flokkanna leiðir margt athyglis- vert í Ijós. Fylgishrun Þjóðvaka og Kvennaiista heldur áfram en Al- þýðuflokkurinn er kominn á góða siglingu eftir erfiðan vetur. Alþýðu- bandalagið hefur nú innan við 15% fylgi sem getur engan veginn ver- ið í samræmi við væntingar á þeim bæ, ekki síst eftir að óháði söfnuð- urinn svonefndi gekk til liðs við flokkinn. Þá dalar Framsóknarflokk- urinn talsvert og er nú fráleitt óskoraður forystuflokkur stjómarand- stöðunnar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur á hinn bóginn sjaldan mælst hærra, en hafa ber í huga að flokkurinn fær jafnan meira í könn- unum en kosningum. Fylgishmn Þjóðvaka á sér einfaldar skýringar. Almenningur hefur áttað sig á að þar er um að ræða pólitískar flóttamannabúðir þarsem tjaldað er til einnar nætur. Þjóðvaki hefur ekkert nýtt fram að færa í stjómmálaumræðunni en skreytir sig með lánsijöðrum úr ýmsum átt- um. Olýðræðisleg vinnubrögð og valdamiðstýring örlítillar klíku hafa þegar vakið illdeilur og sárindi í nokkmm kjördæmum. Þegar mið er tekið af valdníðslunni sem viðgengst innan Þjóðvaka er erfitt að sjá að flokkurinn verði samstarfshæfur í ríkisstjóm. Þessvegna færi auðvit- að best á því að Þjóðvaki lofaði kjósendum ekki því einu að fara ekki í ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokknum - heldur að fara alls ekki í rík- isstjóm. Tími Kvennalistans er liðinn. Það er athyglisvert að hið pólitíska banamein Kvennalistans er einmitt flokksræði og valdníðsla af því tagi sem nú þrífst innan Þjóðvaka. Kvennalistinn og Þjóðvaki eiga líka sameiginlegt að hafa enga stefnu í brýnustu úrlausnarefnum stjómmálanna. Báðir flokkar hafa aðallega gert út á óánægju kjós- enda: þeir reyna að elta almenningsálitið fremur en að hugsa um hag almennings. Fylgisaukning Alþýðuflokksins á sér einkum rætur í tvennu. Flokk- urinn hefur náð árangrí á erfíðum tímum síðustu ára og ber nú fram skýra og vel útfærða stefnu í öllum málaflokkum. I kosningunum í apríl verður tekist á um stefnu Alþýðuflokksins, sama hvort borið er niður í Evrópumálum, sjávarútvegi, landbúnaði eða velferðarmálum. Alþýðuflokkurinn er óumdeilanlega sá flokkur sem allt fmmkvæði hefur í íslenskum stjómmálum. Flokkurinn mun njóta góðs af því í baráttu við stefnuleysi og miðjumoð. „Stærsta kosningamálið“ Viðtal Alþýðublaðsins í gær við Halldór Hermannsson á fsafirði vakti mikla athygli. Þar sagði hann meðal annars: „Ég lýsti yfir ein- dregnum stuðningi við Alþýðuflokkinn og Sighvat Björgvinsson á fundi sem hér var haldinn. Þetta er eini flokkurinn sem leggur áherslu á Evrópumálin sem er stærsta kosningamálið. Ég læt ekki kúga mig til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem neitar því að málið sé á dagskrá.“ Afstaða annarra en Alþýðuflokksins til Evrópumálanna er bæði ábyrgðarlaus og lítt hugsuð. Formaður Framsóknarflokksins þorir ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu - af því hann er sann- færður um að við náum ekki nógu góðum samningi. Það er ekki stórt hjartað í maddömu Framsókn, og sannarlega ber þessi afstaða ekki vott um pólitíska dirfsku eða framtíðarsýn. Formaður Sjálfstæðis- flokksins heldur því til streitu að málið sé ekki á dagskrá, þótt helm- ingur kjósenda flokksins vilji sækja um aðild. Alþýðubandalagsmenn ætla að leiða íslendinga á vit austurlenskrar hagstjómar, þrátt fyrir að lýðræðisríki Evrópu séu langmikilvægustu viðskiptalönd fslands. Þjóðvaki talar tungum tveim: I stefnuskrá er aðild að ESB ekki útilok- uð en í útvarpsþætti á sunnudag sagði Mörður Ámason, 3. maður á lista flokksins í Reykjavík, að ekki kæmi til greina að sækja um aðild til að kanna hvernig samningum er unnt að ná. Alþýðuflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur skýra stefnu í Evr- ópumálunum: Flokkurinn vill láta á það reyna með aðildammsókn hvemig samningum er hægt að ná við Evrópusambandið. ísland á samleið með Evrópulöndunum: hræðsluáróður í aðra vem í senn hjá- kátlegur og ábyrgðarlaus. Eftirþankar Jóhönnu Vinir mínir framsóknarmenn urðu fyrstir til að nota slagorðið sem síðan varð sígilt: Allt er betra en íhaldið. Ég veit ekki hver er höfundar þessar- ar ágætu staðhæfingar, en hún kom fyrst fram um eða uppúr 1930, þegar Hermann og Eysteinn frændi voru Einsog gengur Hrafn Jökulsson skrifar að rísa til metorða undir handarjaðri Hriflu-Jónasar. Það var í anda þessa slagorðs sem framsóknarmenn mynduðu ríkisstjóm með Alþýðu- flokknum 1934. Sú ríkisstjóm var kölluð stjórn hinna vinnandi stétta og verkaskiptingin var í reynd einföld: Framsókn fékk að byggja héraðs- skóla og sundlaugar en Alþýðu- flokkurinn réði að öðm leyti. Þetta var góð stjóm. Eysteinn sagði mér að stjóm hinna vinnandi stétta hefði verið eftirlætisríkisstjórnin hans. Og sat hann nú í þeim mörgum. Auðvitað hafa framsóknarmenn unnið margoft í ríkisstjóm með Sjálfstæðisflokki. Þessir flokkar hafa líka í æ ríkari mæli orðið two of a kitid, munurinn kannski álíka mikill og á Landsbanka og íslandsbanka. Af einhveijum ástæðum hefur þetta tvennt jafnan farið saman: Stöðnun í íslensku mannlífi og samstjóm Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. En þrátt fyrir margvíslegar hægri- villur, þá slær nú hjartað alltaf vinstramegin í maddömu Framsókn. Sú fróma maddama hefur lengi fóstr- að með sér þann draum að verða hið stóra mótvægi við íhaldið, og unir því aldrei vel að vera meðreiðar- dama stóra flokksins í ríkisstjóm. Þessvegna fá framsóknarmenn stundum forsætisráðherraembætti í samstjóm með Sjálfstæðisflokki, og fórna glaðir öllum ráðuneytum sem máli skipta í staðinn. Þá er þeim líkt farið og flugunni sem tyllti sér á bak fílsins og sagði: Hott, hott, hér ræð ég! Ef Framsókn og Sjálfstæðisflokk- ur mynda stjóm eftir kosningar (einsog ýmsa sómamenn framsóknar dreymir um í leyndum síns hjarta) þá fær Halldór Asgrímsson áreiðan- lega embætti forsætisráðherra. Og þá geta framsóknarmenn talið sér trú um að þeir stjómi landinu. Það væri nú aldeilis gaman fyrir þá - en aftur- ámóti efamál að sú ánægja yrði öllu víðtækari. Ránsfengurinn En nú er Jóhanna Sigurðardóttir búin að stela gamla slagorðinu frá Framsókn: og það er reyndar ekki eini ránsfengurinn í þeim kynlega samsetningi sem kallaður er stefnu- skrá Þjóðvaka. Jóhanna brá sér sem- sagt norður til Akureyrar um helg- ina. Norðangolan í Eyjaftrði hefur einatt fyllt menn skáldlegri andagift og eldmóði, og þar datt Jóhanna nið- \ „Nú er það að vísu svo, að þótt þeir Davíð og Jón Baldvin hafi skotist til Viðeyjar eina síðdegisstund fyrir fjórum árum og ákveðið að stjórna landinu í fjögur ár, þá verðskuldar Jóhanna Sigurðardóttir sannarlega að vera kölluð guðmóðir núverandi ríkisstjórnar.“ ur á það snjallræði að tilkynna þjóð- inni að ekki kæmi til greina að mynda stjóm með Sjálfstæðis- flokknum. Allt er betra en íhaldið. Nú er það að vísu svo, að þótt þeir Davíð og Jón Baldvin haft skotist til Viðeyjar eina síðdegisstund fyrir Ijórum ámm og ákveðið að stjóma landinu í fjögur ár, þá verðskuldar Jóhanna Sigurðardóttir sannarlega að vera kölluð guðmóðir núverandi ríkisstjómar. Það var nefnilega, einsog ýmsir muna kannski, ekki eintóm kátína í þingflokki Alþýðuflokksins yfir því sem Jón Baldvin var að bardúsa í Viðey. Þrír þingmenn greiddu at- kvæði gegn stjómarsamvinnu við Sjálfstæðisflokkinn. Jóhanna Sig- urðardóttir var ekki í þeim hópi. Henni var hinsvegar í lófa lagið að kæfa stjómina í fæðingu: hún var þá varaformaður flokksins og hafði gegnt ráðherraembætti í fjögur ár. Og hún var búin að kenna alþýðu- flokksmönnum þá lexíu að þegar hún stappaði niður fæti, þá var nú vissara að hlýða. En Jóhanna hafði einfaldlega ekk- ert á móti bölvuðu ekkisens íhaldinu fyrir fjómm ámm. Hinsvegar var al- kunn staðreynd að henni lynti alls ekki við Ólaf Ragnar Grímsson og gat ekki hugsað sér að vinna með honum í ríkisstjóm. Man ég okkar fyrri fund... En hvað gerðist? Var Davíð Odds- son svona fúll og leiðinlegur við Jó- hönnu í ríkisstjóminni? Er það að fenginni reynslu sem hún afneitar samstarfi við flokk Davíðs? Öðm nær. Jóhanna Sigurðardóttir lét til skamms tíma ekkert tækifæri ónotað að hrósa Davíð og samvinnu- lipurð sjálfstæðismanna. Hún lofaði hann Dabba sinn seint og snemma, og var ævinlega á henni að skilja að hann væri nú öllu viðræðubetri um lfftð og tilvemna en hinn skelftlegi formaður Alþýðuflokksins. Eitt dæmi. Þegar Jóhanna Sigurð- ardóttir bauð sig fram til formanns í Alþýðuflokknum í fyrra lét hún margvísleg merk ummæli falla í blaðaviðtölum. Hún sagði ekki bara að hún ætlaði ekki að kljúfa Alþýðu- flokkinn þótt hún lyti í duftið. Hún sagði lfka að hún myndi fráleitt sprengja stjómina ef hún sigraði Jón Baldvin í formannskjörinu. Um þetta sagði hún í viðtali við DV, 7. júní í fyrra: „Við Davíð Oddsson höfum átt ágætt samstarf og ég fæ ekki séð að það þurfi að verða breyting á þótt ég verði formaður flokksins. Það er ágætt trúnaðarsamband á milli mín og Davíðs Oddssonar, sem er afar mikilvægt hjá forystumönnum flokka sem em saman í ríkisstjóm." Óneitanlega hjartnæm ræða. En áhugamenn um pólitfskt til- hugalíf hljóta að spytja: Hvað hefur gerst millum Jóhönnu og Davíðs síð- an í sumar? Hvað varð um hið „ágæta samstarf‘? Hver urðu örlög „trúnaðarsambandsins"? Meðan við bíðum eftir svömm heilagrar Jó- hönnu getum við haft yfir vísu Vatnsenda-Rósu: Man ég okkar fyrri fitnd forn þó ástin réni; nú er eins og hundur hund hitti á tóugreni. Dagatal 8. mars Atburðir dagsins 1700 Tugir fiskibáta fómst í ofviðri við Islandsstrendur. Alls dmkknuðu 136 menn. 1843 Alþingi endurreist með tilskipun konungs eftir að hafa legið niðri í ríflega fjóra áratugi. 1983 Staðfest lög um að Ó, guð vors lands sé þjóðsöngur Islendinga og eign íslensku þjóðarinnar. 1989 Kín- veijar setja herlög í Tíbet í kjölfar of- sókna þeirra á hendur stuðnings- mönnum Dalai Lama. Afmælisbörn dagsins Páll Ólafsson skáld, 1827. Otto Hahn þýskur eðlisfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi, 1879. James Dean bandarískur leikari og ein helsta goðsögn kynslóðar sinnar, 1931. Lynn Seymour ballettdans- mær, 1939. Annálsbrot dagsins Sama árs um veturinn kom sú fregn af Vestfjörðum úr Barðastrandar- sýslu, að tík ein hefði gotið hvolpi, svörtum eður gráum, með langri rófu og fullri sjón. Þriggja nátta skyldi hann sokkið hafa niður í jörðina, sást ei meir nema holan þar eftir, sem niður fór. Húnvetnskur annáll, 1774. Orð dagsins Vonin styrkir veikan þrótt, vonir kvíða hrindir, vonir hveija vökunótt, vonaljósin kyndir. Páll Ólafsson, afmælisbam dagsins. Málsháttur dagsins Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin. Úr Grettis sögu. Hlutskipti dagsins En það má segja um Stefán ekki ósvipað og dr Helgi Péturss hefur sagt um Þorstein Erlingsson, að það var ekki hans sök, þótt honurn dapr- aðist flugið, - það vom íslensk örlög sem ollu því, eða réttara sagt íslensk örbirgð. Halldór Laxness um Stefán skáld frá Hvítadal. Lokaorð dagsins Mér heíur aldrei liðið betur! Hinstu orð leikarans Douglas Fairbanks, 1883-1939. Skák dagsins Skákmenn dagsins em ekki víðfræg- ir: Capape og Martin. Þeir tefldu eigi að síður skemmtilega skák í Madrid fyrir tveimur ámm. Capape hefur hvítt og á leik. Riddari hans er í uppnámi á c3 en hvítur sér enga ástæðu til að forða honum heldur hefur tafarlausa og árangursríka sókn. Liðsafli svarts verður að mestu leyti áhorfandi að endalokunum og fær ekkert að gert. Hvað leikur hvít- ur? a t> c o e i g n s fP m n M i n ! i n 1 i B $áfí ÍÉ A 'jfc m ÍVtk'l í . n i HP,- 9R •;V L ' -! * 91 S5 íA & M Ifg w 1 ii s ö 1 0 b c d e I g h 1. Hxl7! Kxf7 Engu skárra var að drepa á c3. Þá hefði hvítur leikið Dg4. 2. Dg4 Rf8 3. Hfl+ Bf6 4. Hxf6+! Ke7 5. Bxf8+ Kxf6 6. Dxg6+ Martin gafst upp enda mát yfirvofandi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.