Alþýðublaðið - 24.03.1995, Side 10
B10
FRAMTÍÐIN
MARS 1995
Stefna ungra jafnaðarmanna
er stefna nýrrar kynslóðar!
„Ungir jafnaðarmenn viðurkenna ekki
að áhrif einstakiingsins einskorðist við
hlutverk neytandans sem velur með því
að kaupa og selja. Né heldur viðurkenn-
um við að réttur hans sé einungis sá að
reyna að hafa áhrif á ákvarðanir sem
eru að lokum teknar af öðrum. Því töl-
um við um vald einstaklingsins yfir
sjálfum sér, um sjálfsvald."
viðmiðunarreglur sem gilda
til lengri tíma svo forðast
megi ómarkviss og tilviljana-
kennd vinnubrögð við útdeil-
ingu fjármagns. Taka þarf til-
lit til fjölda námsmanna og
eðli kennslunnar við mótun
slíkra reglna.
■ Rekstur skóla skal vera á
eins lágu stjómsýslustigi og
frekast er unnt. Sveitarfélög
og jafnvel smærri einingar
eiga að sjá um forskóla og
grunnskóla. Smæð sveitarfé-
laga veldur því að ríkið verður
að hafa umsjón með frarn-
halds- og háskólum fyrst um
sinn. Sveitarfélög eða ríki
geta falið einkaaðilum eða
samtökum rekstur skóla í um-
virkt og einfalt skattkerfi sem aflar
hinu opinbera tekna og stuðlar að
réttlátari tekjuskiptingu. Virðisauka-
skattur er heppilegur sem aðaltekju-
jöfnunarleið hins opinbera. Virðis-
aukaskatt skal innheimta af allri sölu
á vöm og þjónustu í einu þrepi und-
anþágulaust. Starfsemi sem spillir
umhverfinu á að borga sérstakan
umhverfisskatt.
Líta verður á lífskjör kynslóðanna
í samhengi. Núlifandi kynslóðir hafa
engan rétt til að ofnýta auðlindir
þjóðarinnar né til að lifa um efni
fram með því að skuldsetja ófædd
böm sín. Ungir jafnaðarmenn vilja
að stjómvöldum verði bannað að
reka ríkissjóð með halla.“
Ungir jafnaðarmenn héldu í gær-
dag blaðamannafund í Bíóborginni í
Reykjavík þar sem þeir kynntu mál-
efnastarf sitt og störf í kosningabar-
áttunni. Aðalefni fundarins var sýn-
ing á fjómm tölvuhönnuðum stutt-
myndum (Sjálfsvald, Lífskjör,
Menntun og Evrópa) sem Baldur
Stefánsson framkvæmdastjóri Sam-
bands ungra jafnaðarmanna og Sig-
urður Olafsson hjá hugbúnaðarfyr-
irtækinu Oz gerðu í sameiningu.
Myndimar verða sýndar á undan
kvikmyndum í öllum bíóhúsum í
Reykjavík, Keflavík, Vestmannaeyj-
um, á Akureyri, Akranesi og loks í
sjónvarpi. Á fundinum kom fram að
starf ungra jafnaðarmanna undanfar-
in fimm ár hefur tekið algjömm
stakkaskiptum og nú er svo komið
að tvöhundruð manna hreyfing sem
áður einskorðaðist við fámenna
klíkufundi telur nú hátt á annað þús-
und ungmenna. Fyrir utan stutt-
myndinnir gangast ungir jafnaðar-
menn fyrir öflugu starfi í kosninga-
baráttunni. Þar á meðal má telja út-
varpsauglýsingar, bæklinga, fundi,
ýmsar uppákomur, skipulagðar sím-
hringingar til ungra kjósenda, mark-
hópabréfasendingar og strandhögg í
stórmörkuðum. Helstu stefnumál
Sambands ungra jafnaðarmanna fara
hér á eftir:
„Ungir jafnaðarmenn vilja að
strax eftir kosningar verði sótt um
aðild að Evrópusambandinu svo að
samningaviðræður geti hafist. I þeim
verði það okkar skilyrði að við höf-
um sjálf vald yfir þeim auðlindum
sem við byggjum afkomu okkar á.
Yfirgnæfandi líkur eru á að hægt
væri að ná þessu fram í aðildarvið-
ræðum. Til að gulltryggja yfirráð
þjóðarinnar yfir auðlindum hafsins
er rétt að festa sameign þjóðarinnar
yfir henni í stjómarskrá.
Við þekkjum hin efnahagslegu
rök fyrir því að innganga í Evrópu-
sambandið er æskileg. Matvælaverð
íslenskra heimila myndi lækka um-
talsvert. Við fengjum tollfrjálsan að-
gang að mikilvægustu mörkuðum
okkar fyrir allar íslenskar afurðir og
sá stöðugleiki sem fylgir aðild að
Evrópusambandinu yrði ómetanleg-
ur hvati fyrir erlenda fjárfestingu
hérlendis. Afleiðing inngöngu yrði
því bættur hagur neytenda, Ijöl-
breyttara atvinnulíf og minna at-
vinnuleysi.
Mikilvægast er þó að full aðild er
eina leiðin til að hafa teljandi áhrif á
það sem fram fer í Evrópusamband-
inu. Landfræðileg lega okkar og
menningar- og efnahagsleg tengsl
við Evrópusambandsríki krefjast
þess að við tökum virkan þátt í sam-
starfi Evrópuþjóða. Við sættum okk-
ur ekki við að vera skipað á vara-
mannabekk.
Það er stór ákvörðun að segja já
við spumingunni um aðildarum-
sókn. Enn afdrifaríkari ákvörðun er
„Við þekkjum hin efnahagslegu rök fyrir
því að innganga í Evrópusambandið er
æskileg. Matvælaverð íslenskra heimila
myndi lækka umtalsvert. Við fengjum toll-
frjálsan aðgang að mikilvægustu mörkuð-
um okkar fyrir allar íslenskar afurðir og sá
stöðugleiki sem fylgir aðild að Evrópusam-
bandinu yrði ómetanlegur hvati fyrir er-
lenda fjárfestingu hérlendis. Afleiðing inn-
göngu yrði því bættur hagur neytenda, fjöl-
breyttara atvinnulíf og minna atvinnuleysi.
Mikilvægast er þó að full aðild er eina leið-
in til að hafa teljandi áhrif á það sem fram
fer í Evrópusambandinu."
að segja: „kannski seinna." Ferill-
inn frá ákvörðun um aðildarum-
sókn fram að inngöngu er langur
og tímafrekur, við verðum því að
vera framsýn og sækja um aðild
nú meðan tækifæri gefst.
Ungir jafnaðarmenn viður-
kenna ekki að áhrif einstaklingsins
einskorðist við hlutverk neytand-
ans sem velur með því að kaupa
og selja. Né heldur viðurkennum
við að réttur hans sé einungis sá að
reyna að hafa áhrif á ákvarðanir
sem eru að lokum teknar af öðr-
um. Því tölum við um vald ein-
staklingsins yfir sjálfum sér, um
sjálfsvald.
Það að þurfa sífellt að gera
kröfu á hendur einhvers annars um
það sem stendur mönnum næst
firrir þá vitundinni um samfélags-
lega ábyrgð allra einstaklinga. Vit-
undinni um að við byggjum fyrst
og fremst samfélag manna, sem
eiga að heita frjálsir. Þetta samfé-
lag fijálsra manna verður að snú-
ast um það að einstaklingar sýni
frumkvæði, taki sig saman og geri
út samfélagsleg málefni á lýðræð-
islegan hátt í sínum hópi.
Allar ákvarðanir skulu teknar á
lægsta mögulega stjómsýslustigi.
Hvort heldur það er einstaklingur-
inn sjálfur, tveir eða fleiri. Með
þessu er ekki átt við að ríkisvaldið
sé óþarft. Þvert á móti. Hins vegar
hefur starfssvið hins opinbera,
sem oft er ranglega talið hinn eini
vettvangur sameiginlegra ákvarð-
ana, orðið alltof umfangsmikið
með tímanum.
Með sjálfsvaldi er átt við að
borgarinn fái réttindi sín á ný og
geti haft vald yfir eigin lífi í sam-
ráði við aðra. Þetta er spuming um
valddreifingu. Beint lýðræði verður
að koma í stað fulltrúalýðræðis sem
frekast er unnt. Þannig og einungis
þannig má tryggja bein áhrif einstak-
lingsins á velferðina.
Menntun eykur þroska og þekk-
ingu og gerir einstaklinginn hæfari
til að taka þátt í lýðræðisþjóðfélagi,
þar sem hann hefur bæði réttindi og
skyldur. Allir eiga að hafa sama rétt
til þátttöku í samfélaginu. Mennta-
stefna má því ekki mismuna fólki,
boði sínu, svo framarlega sem
þeir fullnægi þeim menntunar- og
ábyrgðarkröfum sem löggjafinn
setur og að ekki verði innheimt
sérstök skólagjöld til rekstrar.
■ Skólinn verður að taka mið af
umhverfinu og atvinnulífinu. At-
vinnulífið verður líka að taka tillit
til fólksins og nýta mannauðinn
sem allra best.
■ Námsleiðir í verk- og starfs-
menntun þurfa að vera sveigjan-
legar. Hafist verði handa við að
fjölga námsleiðum í samvinnu við
verkalýðshreyfinguna og atvinnu-
rekendur.
■ Gefa þarf nemendum fram-
haldsskóla og á háskólastigi kost
á að stunda sumamám með það
að markmiði að flýta námi sínu.
■ Núgildandi lög um Lánasjóð
íslenskra námsmanna fullnægja
ekki kröfunni um jafnrétti til
menntunar. Helstu gallar laganna
eru eftirágreiðslur lána og of hátt
tekjuviðmið endurgreiðslna.
■ Skilgreina þarf hlutverk nem-
endafélaga innan skólakerfisins
betur og upplýsa nemendur um
þann rétt sem þeir eiga að hafa
innan þess. Aldrei má gleymast
að skólinn er ekki fyrir kennara,
foreldra, né stjórnmálamenn.
Hann er fyrir nemendur. Því er
bráðnauðsynlegt að vald nem-
enda á stjómun og skipulagi skóla
verði aukið til mikilla muna.
■ Markmið íslenskra stjómmála-
manna á að vera að bæta og jafna
lífskjör fólksins í landinu. Laun
em allt of lág. Ástæðan er fyrst og
fremst landlægt óhagræði í flest-
um atvinnugreinum sem hefur
orðið til þess að tekjur þjóðarinn-
ar af hverri vinnustund em með
því allra lægsta í Evrópu.
Við breytum þessu ekki með hefð-
bundnum prósentuhækkunum sem
gagnast þeim einum sem hæst hafa
launin. Launabætur eiga að miðast
við ákveðna krónutölu sem stig-
minnkar með hækkandi tekjum.
Samhliða þarf að fella launavísitölu
út úr lánskjaravísitölu.
Nauðsynlegt er að ffelsa íslenskt
atvinnulíf undan oki miðstýringar.
Markaðsvæða þarf landbúnaðarkerf-
ið og tryggja þarf samkeppnisstöðu
iðnaðar. Innheimta skal veiðigjald
sem er hvort tveggja hagkvæmnis-
og réttlætismál.
Homsteinn jafnaðarstefnunnar er
að jafna kjör þegnanna. Eitt af mikil-
vægari tækjum til að ná fram þessum
jöfnuði er skattkerfið. Því leggja
Ungir jafnaðarmenn áherslu á skil-
-Svipmynd frá kosningastjórnarfundi Sambands ungra jafnaðarmanna
í Hafnarfirði fyrir stuttu. A-mynd: E.ÓI.
hvorki eftir efnahag, búsetu, kyni né
uppruna. Öllum skal því gefinn kost-
ur á fyrsta flokks menntun.
Aðeins með því að setja menntun,
vísindi og rannsóknir í öndvegi geta
íslendingar tryggt vænlega efna-
hagsþróun í framtíðinni. Nú virðist
sem við séum að komast út úr
lengstu efnahagslægð í sögu lýð-
veldisins en batinn er hægfara og
blikur em á lofti um hvort hann verði
viðvarandi. Því er nauðsynlegt að
taka á óhagræði í framleiðslunni, svo
sem í landbúnaði og sjávarútvegi og
efla helstu auðlind okkar, fólkið í
landinu.
■ Þjóðfélagið á að bera kostnað af
menntakerfinu þar sem menntun
stuðlar að bættum hag alls samfé-
lagsins. Ekki skulu innheimt skóla-
gjöld sem fyrr eða síðar leiða
af sér misrétti til náms.
■ Auka þarf framlög til
menntamála á öllum stigum.
Við höfum einfaldlega ekki
efni á að svelta menntun og
mannvit.
■ Fjárffamlög til mennta-
stofnana skal miða við fastar
Kvarg er undurgóð mjólkurafurð sem er ekki eins og
skyr og ekki eins og jógúrt - en^eitthvað einstaklega
ljúffengt þar á milli. Margir íslendingar þekkja Kvargið
erlendis frá en þessi eftirsótta mjólkurafurð er upprunn-
in í Mið- og Austur-Evrópu. Mikið hefur verið lagt í
þróun Kvargsins hér á landi og hefur sérstök áhersla
verið lögð á bragðgæðin og rétta þykkt og áferð. Við
erum afar stolt af útkomunni: Kvargið er meiriháttar
gott á bragðið og leynir sér ekki að það er unnið úr
íslensku úrvals hráefni.
Kvarg er til með jarðarberjum, bláberjum og blönd-
uðum ávöxtum og er kjörið á morgnana, í hádeginu
og sem eftirréttur.
- ógleymanlega gott
MJÓLKURBUFLÓAMANNA