Alþýðublaðið - 23.11.1995, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐHD
HELGIN 23.-26. NÓVEMBER 1995
s k o d a n
MMDUBIMD
21024. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiöjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Áskriftarverö kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Sjálfstæðismenn í felum
Það er full ástæða til að auglýsa eftir þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins sem virðast týndir og tröllum gefnir. Ekkert hefur til
þeirra spurst síðan í kosningabaráttunni en þá var'sannarlega ekki
hægt að þverfóta fyrir yfírlýsingaglöðum frambjóðendum flokks-
ins. Vera kann að það eigi nokkum þátt í þögn sjálfstæðismanna
að óbrúanlegt hyldýpi er milli yfirlýsinga þeirra í vor og aðgerða
- eða aðgerðaleysis - ríkisstjómarinnar.
Hvemig réttlæta þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vilja
kalla sig fijálslynda, útfærsluna á GATT-samningnum? ísland er
eina landið í heiminum sem notar samning um meira frelsi í
milliríkjaviðskiptum til að auka höft og hækka tollmúra. Aftur-
haldsöflum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks var gefinn laus
taumur - en eftir sitja neytendur með sárt enni.
Nýgerður búvömsamningur er líka til marks um að ekki á að
hrófla við handónýtu landbúnaðarkerfi. Milljörðum er sóað án
þess að raunveruleg tilraun sé gerð til þess að aðlaga landbúnað-
inn að nútímanum. Bændum er áfram haldið í kæfandi faðmlagi
ofvemdar og íslenskir neytendur sitja uppi með dýrustu landbún-
aðarvömr Evrópu. Hvar em nú hinir skeleggu talsmenn frjálsrar
samkeppni? Hvar em frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins sem
geipuðu um það fyrir kosningar að flokkur þeirra setti málefni
neytenda í öndvegi?
Hlutskipti sjálfstæðismanna er nöturlegt: Þeir em tjóðraðir á
bás í framsóknarfjósinu og verður ekki hleypt út fyrren þeir þurfa
að standa kjósendum reikningsskil. Þangað til hafa þeir Höllu-
staða-guðspjallið eitt til sáluhjálpar.
Þorsteinn Pálsson er dýr
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra er með verkdaufari
mönnum, en stundum er engu líkara en hann vinni að því hörðum
höndum að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar sem dýrasti ráðherra
íslands fyrr og síðar. Hann virðist ekki eiga sér göfugri hugsjón
en að ganga erinda LÍÚ: það er engin tilviljun að sjómenn tala
jafnan um ráðherrann sem sendil Kristjáns Ragnarssonar. Þannig
hefur Þorsteinn þumbast gegn öllum breytingum á úreltu og
ranglátu kvótakerfi sem fært hefur auðlindir hafsins á fárra hend-
ur. Sendisveinn sægreifanna reyndi á sínum tíma að banna veiðar
íslendinga í Smugunni. Hefði Þorsteinn fengið að ráða hefðu ís-
lendingar þarmeð verið sviptir verðmætum sem árlega jafhgilda
ávinningi af heilu álveri.
í deilum okkar við Norðmenn undanfarin misseri hefur Þor-
steinn aldrei átt frumkvæði að stefnumótun fyrir hönd Islendinga.
Linkind, undanlátssemi og áhugaleysi ráðherrans veldur því að
Norðmenn gerast sífellt bíræfnari. íslendingar eiga skýlausan rétt
til veiða í Norðurhöfum ekkert síður en hinir norsku frændur
okkar. Norðmenn hafa hinsvegar sýnt vaxandi hroka í samskipt-
um við íslendinga; þeir ganga vitaskuld á lagið og reka flótta
Þorsteins Pálssonar. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfí fyrir íslend-
inga. Það skilja flestir aðrir en Þorsteinn Pálsson.
Þorsteini Pálssyni tókst næstum að klúðra Smuguveiðunum.
Nú virðist hann albúinn að semja af sér fyrir hönd íslendinga
gagnvart Norðmönnum. Niðurstaðan er einföld: íslendingar hafa
ekki efni á Þorsteini Pálssyni. ■
„/ usedto
Á hvaða tímum erum við eiginlega?
Bítlarnir og Stones keppa um efsta
sætið á vinsældalistanum og allt logar
af illdeilum um efni á rás eitt Ríkisút-
varpsins sem varðar Pál ísólfsson og
Jón Leifs - og Halldór Laxness sem
situr í sæmd sinni í hárri elli að loknu
því æviverki að orða snilldarvel
hverja einustu hugsun sem leitar á ís-
lendinga.
Og anakrónisminn er þvílíkur að
það virðist meira að segja enn ekki
vera útrætt um Hrafn Gunnlaugsson,
jafnvel þótt um hann ríki þjóðarsátt.
Áhangendur hans halda því að vísu
stundum fram að hann sé umdeildur.
Um mikla listamenn ríki engin logn-
molla og þar sé nú ærlegt regn og
ferskur andvari og hressilegir vindar
enda næðingssamt á hinum listræna
tindi. Og svo framvegis. Þetta er fjarri
sanni.
Vikupiltar |
EGuðmundur
^ A d
Enginn listamaður - nema ef væri
Halldór Laxness - er jafn óumdeildur
á íslandi og Hrafn Gunnlaugsson - öll
þjóðin er á móti honum. Og gildir þá
einu hvort um er að ræða fólk sem
starfar í listum eða annan almenning.
Það skiptir engu hvar borið er niður:
bændur, sjómenn. múrarar, prestar,
sjúkraliðar, hagyrðingar, hannyrða-
konur eða rukkarar, vinstri menn og
hægri menn, ungir og aldnir, leikir
sem lærðir, til sjávar og sveita, í blíðu
og stríðu: allir hafa hom í síðu Hrafns,
nema hugsanlega nokkrir gamlir
skólabræður og fólk sem hefur á hon-
um valdaást. Þjóðin sýnir algjöran
samhug í mati sínu á listrænum hæfi-
leikum Hrafns Gunnlaugssonar.
Þess vegna er svolítið freistandi að
taka upp hanskann fyrir hann því
vissulega má stundum hafa nokkra
ánægju af því að vera ósammála þess-
ari skringilegu þjóð sem flykkist í ís-
búðir í hríðarbyljum, er óð í fáránleg-
ustu nýjungar en tryllist þegar síma-
skránni er breytt, er á móti EES af því
hún vill standa vörð urn kvöldvinnu
bama og svefnleysi langferðabflstjóra,
fyllist Þórðargleði yfir pínlegum uppá-
komum og hlustar hugfangin á menn
eins og Einar S. Jónsson og Snorra
Óskarsson.
En hvemig sem maður leitar liggur
enginn hanski eftir þennan mann sem
vert sé að taka upp. Kvikmyndir hans
em eins og þær séu gerðar af einhveij-
um sem „hefur sálarlíf tólf ára
manns“, með bjánalegum persónum
og endalausum brennum og sögu-
þræði sem hlykkjast ekki áfram heldur
lafir. Með góðum vilja er hægt að
segja að Hrafn Gunnlaugsson hafí inn-
leitt ropann í íslenska kvikmyndalist.
Opinber störf hans hafa einkennst af
óvenju blygðunarlausri valdasöfnun
og hugmyndum sem hafa það eitt til
að bera að vera fáránlegar.
I ævisögu Hrafns sem reyndar er
prýðisvel skráð og gerð af Áma Þórar-
inssyni er að finna mjög athyglisverð-
an myndatexta sem segir f rauninni
allt sem segja þarf um störf Hrafns að
live for action "
Hta ai.il.K
IEnginn listamaður - nema ef væri Halldór
Laxness - er jafn óumdeildur á íslandi og Hrafn
Gunnlaugsson - öll þjóðin er á móti honum.
listum. Fremst í bókinni er mynd af
sveininum ungum að velta um koll
kubbaröð sem einhver hefur staflað
vandlega upp handa honum. Og undir
er þessi texti sem nokkurs konar
mottó: „Remember me? I used to live
for action... segja Leonard Cohen
o.fU‘
Og fleiri? Og aðrir öllu frekar, því
þetta er ekki það sem Cohen segir eins
og þeir vita sem handgengnir em hans
músík. I söngnum góða sem boðar
væntanleg yfirráð yfir Manhattan fyrst
og Berlín svo segir hann: „Remember
me? I used to live for music..
Sem sé: þama talar maður sem hef-
ur lifað fyrir tónlistina, lifað fyrir list
sína og heldur áfram: „Remember
me? I brought your groceries in...“
Sem sé: kom færandi hendi með nær-
inguna, þjónaði öðrum. Þetta er al-
geng hugmynd meðal listamanna, að
þeir séu þjónar fólksins; kannski er
þetta sjálfsréttlæting hinna sjálfhverfu,
ég veit það ekki, að minnsta kosti er
það þessi tegund af auðmýkt sem knýr
alla góða listamenn áfram.
Þessi hugsun er Hrafni tjarlæg. Og
því misminnir hann um Ijóðlínur. Co-
hens. Tónlistinni sem listamaðurinn
Cohen yrkir um hefur athafnamaður-
inn Hrafn breytt í aksjón, um leið og
hann þarf að bera listamanninn fyrir
eigin ranghugmyndum, hér fljótum
vér eplin. Og aksjónin felst í að velta
um koll kubbum, brjóta niður en
byggja ekkert í staðinn. Störf Hrafns
að listum snúast nefnilega aldrei um
listræna sköpun heldur gauragang, há-
vaða, sjónarspil, moldviðri - aksjón.
Hann er athyglislistamaður, vinnur
með athygli, heimtar athygli hvað sem
það kostar eins og hvimleiður tólf ára
maður. Hvemig nær hann henni? Ekki
með listrænum tilraunum sínum og
hvemig þá? Með aksjón. Með því að
ráðast á það sem öllum er kært: hann
spillir fuglavarpi til að prómótera
mynd; hann veður í Geysi til að bjarga
þeim dauðans vandræðum sem mynd-
in Okkar á milli var. Og nú hefur hon-
um meira að segja tekist að búa til
leiðindi úr þeirri indælu þjóðaríþrótt
að herma eftir Halldóri Laxness, súpa
hveljur og fara með fagurlega orðaða
fyndni. Hann fer í útvarpið - og álveg
áreiðanlega án þess að bókmenntarit-
stjóri þar ráði nokkru um - og lætur
dynja á vesalings hlustendum svoköll-
uð gamanmál sem hinir strákamir hafa
eflaust skríkt yfir í partíum og snúast
þegar öllu er á botninn hvolft um að
hann hafi þekkt Halldór Laxness og
ekkju Picassos - hér fljótum vér eplin.
Þegar amast er við þessu fer hann að
tala um Atómstöðina svo að á mann
leitar sá grunur að þarna séu hægri
menn loks að rétta hlut Ólafs Thors.
Reyndar var það e.kki Einar Olgeirs-
son sem mest talaði um að Ölafur væri
Óli fígúra eins og Hrafn þrástagast á í
útvarpinu heldur frændi okkar Guð-
rúnar Pétursdóttur, Kristján Alberts-
son. Og hafði sennilega alveg rétt fyrir
sér í því að sú persónusköpun Hall-
dórs náði engri átt og er síst til eftir-
breytni.
Verk Halldórs Laxness em þjóðar-
gersemi, en auðvitað ekki hafin yfir
gagnrýni. H;mn stýrði hvössum penna
og særði marga á sinni tíð, sást ekki
allfaf fyrir og skjátlaðist alvarlega um
eðli sovétkerfisins. Hann er sífellt um-
hugsunarefm, ráðgála, andlegur faðir
sem fyrr eða síðar verður risið gegn
og síðan sæst við, eins og gengur. En
partísnakk Hrafns Gunnlaugssonar þar
sem honum tekst á undraverðan hátt
að gera Halldór ófyndinn og búa til
ffáleita mynd af Auði Laxness er ekki
innlegg í að gagnrýna Halldór Lax-
ness. Þetta er ekki einu sinni smásaga:
þetta er aksjón. Að búa til smásögu er
að þykjast ljúga en að vera að segja
satt, en Hrafn lýgur en þykist segja
satt. Hins vegar skulum við ekki gera
meira úr þessu en efni standa til. Hann
veltir engu öðm um koll en sínum eig-
in leikfangakubbum.
En hann uppskar sent sagt athygli.
Og ágætasta fólk er meira að segja að
biðja útvarpið um að endurtaka þenn-
an óbærilega léttleika. Gaman fyrir
hann. Ég held hins vegar að nú sé þörf
á þjóðarátaki um að leiða Hrafn
Gunnlaugsson hjá sér. ■
a g a t a 1 1 2 3. nóvember
Atburðir dagsins
1838 Kirkjugarðurinn við Suð-
urgötu í Reykjavík, Hólavalla-
garður, var vfgður og fyrsta
greftrunin fór frani. 1852
Fyrstu póstkassar heims eru
teknir f nolkun í Bretlandi.
1947 Kvikmyndaleikarinn
dáði, Tyróne Power, kom til ís-
iands. 1988 Súmokappinn Chi-
onofuji vinnur 50. sigur sinn í
röð. 1990 fslenska alfrœði-
orðabákin kom út hjá Emi og
Örlygi. í bókinni eru 37 þúsund
uppflettiorð.
Afmælisbörn dagsins
Arni Magnússon 1663, pró-
l'essor og handritasafnari.
William ílonney 1859, Billy
the Kid, bandar/skur byssu-
maður og útlagi. Boris KarlofT
1887, breskur hryllingsmynda-
leikari. Michacl Gough 1917,
breskur leikari.
Annálsbrot dagsins
Féll maður með systur sinni á
Suðurnesjum. Maðurinn hét
Rustikus, hún Alleif, og hafði
hún heimuglega barn alið og
grafið í einni tópt. Þau bæði
réttuð. Eyrarannáll 1636.
Málsháttur dagsins
Heit er lánardrottins ást.
Húsvörður dagsins
Zsa Zsa Gabor er sérfræðingur
í húsvörslu. Eftir hvem hjóna-
skilnað heldur hún húsinu.
Henny Youngman, bandarískur
. skemmtikraftur.
Stjörnur dagsins
Við emm öll í ræsinu, en sum
okkar horfa upp til stjamanna.
Oscar Wilde.
Orð dagsins
Líf er nauðsyn. lál þig hvetja,
Likst ei gauði, berstu djarft.
Vert ei sauður, heldur hetja,
Hntg ei dauður fyr en þarft!
Longfellow, Matthías Jochumsson
íslenskaði.
Skák dagsins
Tafllok dagsins ent lauflétt að
vanda. Bandaríski stórmeistar-
inn Shamkovich hefur hvítt og
á leik gegn Ervin. Svarti kóng-
urinn er mjög með böggum
hildar og hefur kallað flesta
liðsmenn sína til varnar. Það
dugar ékki til, vígreifur
Shamkovich lætur nú skothríða
dynja á Ervin.
Hvítur mátar í þrcmur leikj•
um.
1. Dxh6+! Bxh6 2. Hxh6+
Kg7 3. Rf5 Mát. Stílhreint.