Alþýðublaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 8
ALPÝÐUBLAÐIÐ ÁgEfefffg3.-2b'.1 NÖVEMBER 1995' Leikarinn, kvennamaðurinn og drykkjumaðurinn Richard Burton hefur alltaf verið í miklu eftirlæti hjá Kolbrúnu Bergþórsdóttur. A dögunum voru 70 ár liðin frá fæðingu hans, og af því tilefni þótti Kolbrúnu við hæfi að minnast hins dáða en fremur ógæfusama leikara Leikarinn sem sólundaði hæfileikum sínum Burton í einu frægasta hlutverki sínu í Njósnaranum sem kom inn úr kuldanum, ásamt Claire Bloome, sem var ein fjölmargra ástkvenna hans. Þetta var stormasamt hjónaband, þar sem ætíð þótti tíðindum sæta ef annað hvort hjónanna var allsgáð. Þau flugust á og sættust á milli. Hann jós í hana gjöf- um og þau þeyttist heims- hluta á milli með sjötíu ferðatöskur, átta gæludýr, einhvern slatta af börnum, þjónum og kennslukonum. Burton lék í slatta af léleg- um kvikmyndum pening- anna einna vegna. Innan um voru góðar kvikmyndir eins og Becket, Njósnarinn sem kom inn úr kuldanutn og <I>Hver er hræddur við Virginu Woolf? en þar fóru hjónin bæði á kostum. Burton rak einnig af sér slyðruorðið, um leið og hann tók mikla listræna áhættu, þegar hann lék Hamlet á sviði í New York en þá hafði hann þá ekki leikið á sviði árum saman. Leikritið gekk lengur í New York en nokk- uð leikrit eftir Shakespeare hafði áður gert. Sýningar urðu 136 og hann lék í átta sýningum á viku. Hinar góðu viðtökur gerðu það að verkum að Burton tók að leiðast. Stundum átti hann til að fara með textann á þýsku. Stundum stældi hann leik John Gielguds eða Laur- ence Oliviers. Stundum mætti hann á svið eft- ir að hafa drukkið eina vodkaflösku - og lék aldrei betur en þá. Hann kunni reyndar heilu Shakespeare leikritin utan að og sömuleiðis sonnettur Shakespeares. Eitt sinn veðjaði hann við Robert Kennedy um það að hann gæti farið með sonnettu númer fimmtán aftur á bak. Burton var draugfullur en fór léttilega með sonnetuna og vann umtalsverða upphæð. Richard Burton sagðist aldrei geta horft á kvikmyndir sínar. „Mér finnst ég ekki vera sérlega góður. Mér leiðist röddin, útlitið, hárið. Líkamsbyggingin er ömurleg. Allt er ömurlegt. Eg hef andstyggð á sjálfum mér.“ Hann dró upp þessa neikvæðu sjálfsmynd þegar hann átti ekki mörg ár ólifuð og stóð orðið á sama um allt. Hann var leikari sem bjó yfir miklum hæfileikum en var margsinnis sakaður um að hafa selt þá fyrir glaum og glys frægðarinnar. Loks lokaðist hann inni í gervi- heimi, fann enga útgönguleið og varð æ drykkfelldari og óhamingjusamari. Þegar hann lést, tæplega sextugur, kvaddi heimurinn framúrskarandi leikara sem um alllangt skeið hafði sólundað hæfileikum sínum. Hann fæddist 10. nóvember 1925 og var skírður Richard Jenkins, sonur bláfátæks námuverkamanns í Wales og tólfti í röð þrett- án systkina. Móðir hans lést af barnsförum þegar hann var tveggja ára. Faðir hans hafði ekki efni á að ala yngstu böm sín upp og Ri- chard var sendur í fóstur til elstu systur sinnar og eiginmanns hennar. í gagnfræðaskóla tókst góður vinskapur með honum og einum kennara hans Philip H. Burton. Richard flutti inn á heimili kennara síns og tók síðar upp eftimafn hans. Richard leit alla tíð á Philip Burton sem annan föður sinn og þeir sem til þekktu sögðu Philip hafa gefið Richard sjálfsímyndina. Hann ýtti undir leiklistaráhuga fóstursonar síns, losaði hann við velska hreiminn og bætti málfar hans og ffamkomu. Fyrstu leiklistarsporin steig Burton með Oxford leikfélaginu og skömmu síðar var hann beðinn um að koma í pmfutöku vegna kvikmyndar. Tilboð fylgdu í kjölfarið og leið- in til frama var skjót. Burton þótti snemma athyglisverðasti leik- ari Breta af yngri kynslóð. Sérstaklegá þótti honum takast vel upp í sviðsleik. John Gi- elgud sagði: ,AHir heiliuðust af honum. Hann þurfti ekki annað en að horfa á leikhúsgestina með stóm bláu augunum sínum og þeir vom sem bergnumdir. Augnaráð hans var ómót- stæðilegt“. Hið sama mátti segja um röddina. Hún var engri lflc, karlmannleg, hljómfögur og hljómmikil. Richard Burton og Elizabeth Taylor á þeim tíma þegar þau stungu af frá mökum sínum til að eiga ástarfundi. Hollywood hafði fest auga á þessum unga manni og tuttugu og sjö ára lék Burton í fyrstu kvikmynd sinni þar My Cousin Racliel sem gerð var eftir sögu Daphne du Maurier, en hún mælti með honum í hlutverkið. Banda- nskir gagnrýnendur kepptust við að hæla hon- um. Fleiri kvikmyndir fylgdu í kjölfarið, en Burton sneri aftur til Bretlands til að leika Hamlet í Old Vic leikhúsinu. „Hver er þessi Old Vic?“ spurði kvikmyndaframleiðandi í Hollywood, sem vildi fá Burton í næstu kvik- mynd sína. „Höfum upp á Vic gamla og tvö- földum launin sem hann býður Burton." Burton vakti mikla athygli fyrir leik sinn í hlutverki Hamlets. Yfirleitt hlaut hann mikið lof fyrir túlkun sína á persónum Shakespear- es, var sagður hafa gert þær kynþokkafullar og gætt textann ástríðufullu raunsæi. Burton sneri frá Shake- speare og Hamlet til að leika í slatta af lélegum myndum í Hollywood. Öðru hvoru brá hann sér til Eng- lands til að leika á sviði og þar hlaut hann yfirleitt fram- úrskarandi dóma. Besti leik- ur hans í kvikmynd á þess- um árum var í Horfðu reiður at um öxl sem Tony Richard- son leikstýrði eftir lcikriti jáU John Osborne. En þar l'yrir ÉH utan var l'átt um fína drætti. I Hann var gagnrýndur fvrir 1 að sclja hæfileika sína tyrir | peninga. Dmboðsmaður 9BH hans orðaði htigsun margra | þcgar hann sagði: „Burton I seldi sig. hann hefði getað I orðið mesti leikari heims." | Gagnrýni í þcssum dúr átti | eftir að aukast næstu árin. H Burton sagði sjálfur: I „Frægðin á vel við mig. I Maður gerist auðvitað leik- I ari til að atla peninga." Leikkonan Laureen Bac- 9 all scm kynntist honum í ;r.ý;-Y Hollywood þótti lítið til I Burtons koma. „Frá upphall I tileinkaði hann sér hegðun- V armynstur Dvlan Thomas," H sagði hún. „Sú hlið hans Acy* sneri einnig að konum. Hann gaf loforð með fasinu einu saman. Eg veit ekki hverjar létu til leiðast og hverjar ekki.“ Sannleikurinn var sá að Burton reyndi við nær allar mótleikkonur sínar, þættu honum þær ekki því ógeðfelldari. Meðal þeirra sem kolféllu fyrir kvennabósanum ómótstæðilega voru leikkonurnar Jean Simmons, Susan Strasberg og Claire Bloom. Hann veðjaði um það við vin sinn að honum tækist að koma Bloom upp í rúm til sín og lagði hálfpott af bjór undir. Hann hafði lítið fyrir því að vinna ástir leikkonunnar, en hún, sem við upphaf kynna þeirra bað vin sinn að vemda sig „fyrir þessum hræðilega manni“, felldi svo mikla ást til hans að hún fékk hvert taugaáfallið á fætur öðm og var mörg ár að ná sér. Burton gat hins vegar dmkkið sinn bjór og fagnað sigri. Leikarinn Fredric March fylgdist af áhuga með kvennamálum Burtons og sagði hann hafa einstakt lag á konum: „Ég held að hann hafi ekki misst af meira en fimm.“ Eiginkona Burtons, Sybil, tók umfangs- miklu framhjáhaldi manns síns af mikilli þol- inmæði, svo og hraustlegri drykkju hans. Hún helgaði líf sitt eiginmanni sínum og sá algjör- lega um hann. Laureen Bacall sagði: „Hann tilbað hana og vissi þvíllk gersemi hún var. Hún stóð sig með prýði. Hún var heilsteypt og hreinskilin manneskja. Gildismat hennar og siðferði var traust. Það sama varð ekki sagt um Richard. Ég held að hún hafi haft jákvæð áhrif á hann, en ekki nægilega mikil, því mið- ur, því hann hegðaði sér æ verr eftir því sem tímar liðu. En hún brást ekki meðan sambúð þeirra entist.“ Snemma á sjöunda áratugnum sló Burton í gegn á Broadway í hlutverki Artúrs kon- ungs í Camelot, en eftir að hafa leikið hlut- verkið í tvö ár, var hann orðinn leiður og sam- þykkti að leika Markús Antoníus í kvikmynd- inni Kleópötru. Frægasta kvikmyndaleikkona heims var ráðin til að leika Kleópötru. Hin stutta og engilfagra hnáta Elizabeth Taylor lýsti fyrsta fundi þeirra við upptöku svo: „Ég hafði haft kynni af honum í um það bil níu ár. Mér var fremur kalt til hans. Ég ætlaði ekki að bætast í kvennasafnið hans. Fyrsta tökudaginn var hann timbraður og berskjald- aður. Hann var skjálfheníur og bað mig að að- stoða sig við og halda undir kaffibollann. Ég heillaðist gjörsamlega. Hann var svo indæll." Til að gera langa og alkunna sögu stutta réðu skötuhjúin engan veginn við ástríður sín- ar. Heimspressan kunni sér ekki kæti, en mak- ar beggja voru skiljanlega miður sín. Parið var hundelt. Blaðaljósmyndarar földu sig í trjám og héngu fram af þakskeggjum í tilraunum til að ná af þeim myndum. „Ég hef haldið við konu áður,“ sagði Burton, „en hvernig í ósköpunum átti ég að vita að hún væri svona fræg? Hún ýtir Krushchev af síðunum." Eftir mikla sálarangist ákvað Burton að fá sér nýjan lífsförunaut. Hin heldur hversdags- lega, en trygga og hugulsama eiginkona hans til tólf ára, var kvödd og kvikmyndastjaman glæsilega tók hennar stað. Eftir að Richard Burton giftist Elizabeth og fékk fastan stað í slúðurdálkum heimsblað- anna sagði hann skilið við raunveruleikann og gekk inn í heim glys og glaums. John Gielgud sagði: „Richard hefði vel getað látið sér lynda að segja skondnar sögur eða lesa upp ljóð á hverfiskránni, en glys og gjálífi kvikmynda- borgarinnar og frægð Elizabethar umluktu hann. Það smitaði hann og hann lærði listina jafnvel og hún, ef ekki betur.“ Burton hjónin voru stöðugt í sviðsljósinu, en þótt blaðaljósmyndarar þreyttust ekki á að mynda þau þótti mörgum lítið til innan- tóms glyslífernis þerira koma. Hjónin náðu einu af toppsætunum á lista Time yfir mestu leiðindaskjóður heims árið 1970. Og þegar þau komu fram í viðtalsþætti hjá David Frost kallaði Daily Mail þá þrenningu „skrípalegt tríó“. Drykkja Burtons eyðilagði hjónaband þeirra Taylors. Þau skildu og giftust aftur og skildu á ný. Stuttu eftir endanlegan skilnað þeirra sagði Burton blaðamanni að drykkjan stafaði af því að hann hefði um tíma verið samkynhneigður. Burton giftist tvisvar eftir skilnaðinn frá Taylor. Lífemið hafði tekið sinn toll og hann var ekki nema svipur hjá sjón. Hann hafði tapað lífsgleðinni. Honum leiddist. Ekkert vakti lengur áhuga hans. Þó gat hann ekki verið einn. Hann varð að vera innan um fólk, en það skipti hann æ minna máli hvaða fólk það var. Hann hafði gaman af að segja sögur, en var ófær um að eiga samræður við aðra. Hann var orðinn fómarlamb eigin frægð- ar og óumræðilega einmana. Hann lést úr heilablóðfalli árið 1985. „Hann sýndi einskisverðum hlutum of mik- inn áhuga á kostnað mannlega þáttarins,“ sagði Laureen Bacall. „Hann batt hugann við glingur, auð og álit. Enginn efast um að pen- ingar auðvelda fólki lífið en annað mál er að selja sálu sína. Það tel ég að hann hafi gert undir það síðasta." ■

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.