Alþýðublaðið - 23.11.1995, Page 18
18
ALÞYÐUBLAÐIÐ
HELGIN 23.-26. NÓVEMBER 1995
Það má gera sér margt til dundurs, eins og Jónas Sen komst að á daglegu ráfi sínu um Internetið.
Á netinu er nefnilega að finna ýmisskonar ráðleggingar um allt á milli himins og jarðar - eins og til dæmis
hvað hægt er að gera skemmtilegt þegar maður er í lyftu með ókunnugu fólki
50 „sniðugir hlutir“
sem þú getur gert til
að lyfta þér upp í lyftu
Nú þegar nóttin er farin að lengjast og skammdegisþunglyndið
að gera vart við sig er alveg lífsnauðsynlegt að finna sér eitthvað
skemmtilegt að gera. Galiinn er bara sá að maður er búinn
að prófa allt sem hér er boðið upp á. Það er gaman að djamma um
helgar, en ekki alltaf - því miður. Það er ágætt að fara
í bíó ef verið er að sýna eitthvað almenriiilegt, en slíkt gerist
alltof sjaldan. Sjónvarpið er yfirleitt hundleiðinlegt,
og hver hefur virkilega ánægju af að horfa á vídeó nema
í tíunda hvert skipti? Hvað er þá hægt að taka sér fyrir hendur?
Jú, ýmislegt. Eins og til dæmis að fara í lyftu,
helst þar sem margir eru. í stutta stund
er lyftan afmarkað svæði; hún er lokað rými
þar sem allir verða að þola alla í
óbærilegri nálægð. Þessi nálægð getur
þó verið spennandi.
Prófaðu bara eitthvað af þessum
ráðum hér fyrir neðan
og sjáðu hvað gerist..
IHermdu eftir kappakstursbíl
í hvert skipti sem einhver kemur
inn í lyftuna. Hermdu svo eftir
sírenum þegar einhver
fer út úr henni.
2Snýttu þér og sýndu hinum
í lyftunni
vasaklútinn.
3Grettu þig um leið
og þú lemur þig í höfuðið.
- Muldraðu svo:
„Æ, þegiði þama öll. ÞEGIÐI!“
4Reyndu að selja
einhveijum smákökur
í lyftunni.
5Vaggaðu þér
í takt við lyftuna.
Láttu þig svo rekast
í vegginn og hnígðu í gólfið.
/^Rakaðu þig.
70pnaðu rifu á skjalatöskuna
þína eða handtösku,
kíktu þar inn og hvíslaðu
nægilega hátt til að hinir heyri:
„Ertu með nóg
loft þama inni?“
10'
^Hallaðu þér upp að
næsta manni eða konu
og hvíslaðu: „Bókasafnslöggan
er á leiðinni!"
nHeilsaðu öllum innilega
með handabandi sem
koma inn í lyftuna. Biddu þá um að
kalla þig ,,Aömírál“.
1 ^Klóraðu þér viðstöðulaust
X Zj og hóstaðu ofsalega á meðan.
Geiflaðu svo vömnum og láttu sem að
þú sért að umbreytast í apa.
13
Gerðu jógaæfingar.
14
Starðu á einhvem í lyftunni,
glottu fáránlega og segðu svo
hátt: „Ég er í nýjum skóm!“
15
Dreifðu áróðursbæklingum
frá Vottum Jehóva.
16
17
8!
► Stattu þögul(l) og
hreyfmgarlaus í homi
lyftunnar með andlitið upp að vegg.
Segðu hinum farþegunum
að þú þorir að veðja
að þú komir heilli krónu
fyrir inn í nefið á þér.
9Þegar lyftan er að nema staðar
á hæðinni þar sem þú ætlar út,
taktu þá æðiskast og reyndu af
alefli að opna dymar með höndunum.
Vertu svo vandræðalegur
á svipinn þegar dymar
opnast af sjálfu sér.
20
Syngdu: „Sigga litla systir mín“ á
meðan þú ýtir stjómlaust á takkana.
21
Æptu: „í fallhlífamar!" í hvert skipti
sem lyftan fer niður á við.
O ^ Vertu með kælitösku þar sem stendur
stómm stöfum: „Mannshöfuð."
O Starðu á einhvem í lyftunni
í smá stund og segðu síðan:
„Þú er einn af ÞEIM!“ Færðu þig svo eins
langt frá viðkomandi og þú getur.
O A Þegar lyftan fer upp, taktu
ZJ~T upp blokkflautu og spilaðu
sálminn: „Ástarfaðir himinhæða".
25
Ropaðu og segðu síðan:
Ahhh ... þetta var gott!“
O /CStundaðu búktal með
4U leikbrúðu og spurðu
farþegana í „gegnum“ brúðuna hvort
þú megir ýta á takkana
fyrir þá.
Mjálnraðu af og til.
Geltu svo illilega og leiktu
kött sem verið er að
murka líftóruna úr.
r~7Æddu inn í lyftuna rennandi
Zj / blaut(ur) í baðslopp og með
handklæði um höfuðið. Hristu höfuðið
og muldraðu eitthvað um það að
eiginkonur/eiginmenn þurfi alltaf að
koma á versta tíma.
28
Reyndu að fá hitt fólkið til
að syngja með þér „Meistari
Jakob“ í keðjusöng.
29
1 Q Grettu þig og muldraðu í
X O hálfum hljóðum: „Ah, mér er
svo mál, mér er svo mál!“ Styndu svo,
líttu vandræðalega í kringum þig
og segðu: „Ups!“
1 QSýndu hinum farþegunum
JL y sár sem þú hefur fengið og
spurðu þá hvort þeir haldi að það sé nokkuð
byijað að grafa í því.
Þegar þögn ríkir í lyftunni, líttu þá í
kringum þig og spurðu einhvem:
(Var þetta bíp-tækið þitt?“
30
Segðu: „Ding!“
á hverri hæð.
32
Q 1 Syngdu hástöfum.
J X Berðu þér svo á bijóst
og líktu eftir þokulúðri.
Segðu: „Hvemig ætli þessi takki
virki?“ og ýttu á rauða hnappinn.
O O . Komdu með hlustunarpípu.
»4 J Hlustaðu veggi lyftunnar.
O A Teiknaðu ferhyming með krít
J i á lyftugólfið. Tilkynntu hinum að
innan hans sé „þitt svæði".
35
Komdu
með stól.
O /TFáðu þér bita af samloku og segðu
J svo við einhvem í lyftunni: „Vittu sá
kva é e me í muium a me?“
Oy Blástu sápukúlur.
O QSegðu með djöfullegri röddu: „Grrr!
J O Betri líkama! Ég verð að finna mér
betri líkama!"
Q QVertu með teppi og haltu dauðahaldi í
A það. Breiddu það svo yfir höfuð þitt
þegar hinir horfa á þig.
A /AHermdu eftir sprengju í hvert
sinn sem einhver ýtir á takka.
A 1 Vertu með sólgleraugu sem
X á stendur: „Röntgengleraugu,"
horfðu svo stíft á fójkið í lyftunni og glottu
dónalega. Blístraðu.
A ^ Starðu á þumalputtann á þér
i Áj og segðu: „Svei mér þá ... hann
er að stækka."
A O Ef einhver kemur óvart við þig,
T" J láttu sem þér bregði ofboðslega
og öskraðu af öllum lífs og sálarkröftum:
„Snertu mig ekki! Snertu mig ekki!“
44
Komdu með vatnsbyssu og sprautaðu
á skó hinna í lyftunni.
A ^Burstaðu ósýnilegar pöddur
Hr af handleggjum þínum
og gargaðu: „Ógeð! Ógeð! Takið þessi
ógeð af mér!“
A /THIæðu geðveikislega í nokkrar
T" V/ sekúndur. Stoppaðu svo
skyndilega og horfðu á hitt fólkið í lyftunni
eins og það sé eitthvað skrýtið.
47
Taktu upp tússpenna og teiknaðu
skrípamyndir af hinum farþegunum
á lyftuveggina.
A QÞegar lyftan fer upp, hoppaðu
i O þá eins hátt og þú getur.
Lentu svo með miklum dynk. Endurtaktu
þetta nokkrum sinnum og öskraðu:
,JSIiður! Fjandinn hafi það,
ég sagði NIÐUR!"
49
Skjóttu upp kryppu í einu hominu
og urraðu ógnandi á þá sem
koma inn í lyftuna.
^ /AFitjaðu upp á nefið og þefaðu
J U út í loftið nokkmm sinnum.
Lyktaðu svo varlega af manneskjunni
sem stendur næst þér.
Grettu þig síðan og færðu þig eins
langt ffá og þú getur. ■