Alþýðublaðið - 23.11.1995, Qupperneq 19
HELGIN 23.-26. NÓVEMBER 1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
19
Einsog gengur
Hrafn Jökulsson
skrifar
Umsagnir
Sæmundar
Guðvinssonar
um bækur
Hinn 17. júní síðastliðinn ávarpaði Davíð
Oddsson forsætisráðherra þjóðina af Austurvelli.
Ræða Davíðs markaði pólitísk tímamót: hann
reyndist hafa komið sér upp hvorki meira né
minna en heilli skoðun á tilteknu máli. Þarmeð
fjölgaði stefnumálum hins pólitíska oddvita þjóð-
arinnar um allan helming. Áður hafði hann sagt
okkur frá því hjartans máli sínu að fækka beri
þingmönnum: 1 skugga Jóns Sigurðssonar afneit-
aði forsætisráðherra afdráttarlaust mögulegri að-
ild íslands að Evrópusambandinu.
Davíð Oddsson lét eiginlega í veðri vaka að
hann hefði umboð frá sjálfum Jóni forseta mál-
inu. Á forsætisráðherra var að skilja að nú, 150
árurn eftir að alþingi var endurreist, ætti dálítill
hópur manna (Alþýðuflokkurinn) þann draum
stærstan að selja íullveldi landsins og sjálfstæði
þjóðarinnar alla leið til Brussel. Á slíkri ögur-
stundu er harla gott að Island eigi einn mann.
Ætli Davíð Oddsson hafi einhvemtíma lesið
sögu sjálfstæðisbaráttunnar, umfram kannski
námsbækur Hriflu- Jónasar? Ég er ekki viss. Ætli
Davíð viti hveijir voru gmnntónar í sigursinfóníu
Jóns Sigurðssonar? Tæpast, ef marka rná sögu-
skýringar hans. Ætli Davíð láti sig dreyma um
öðlast svipaðan sess í námsbókum næstu aldar og
Jón Sigurðsson hefur nú? Alveg áreiðanlega.
Mun honum takast það? Alveg áreiðanlega ekki.
Jón Sigurðsson var uppi á 19. öld en hugsaði
einsog 20. aldar stjómmálamaður. Davíð Odds-
son er uppi á 20. öld en hugsar einsog 19. aldar
stjómmálamaður.
Tökum dæmi. Um hvað snerist barátta Jóns
Sigurðssonar? Hann vildi að alþingi fengi fullt
löggjafarvald með konungi. hann vildi að fjár-
hagur Danmerkur og Islands yrði aðskilinn, hann
vildi innlenda stjóm, hann vildi óheft verslunar-
frelsi við aðrar þjóðir.
Ef einhver nennir að þræla sér í gegnurn öll
skrif Jóns Sigurðssonar þá ætti hann að reyna að
finna eina aukatekna setningu þarsem sjálfstæðis-
hetjan krefst fullkomins sjálfstæðis og fullveldis
íslands. Sá hinn sarni ntun fara í geitarhús að leita
ullar.
Jón Sigurðsson skildi það sem Davíð Oddsson
skilur ekki: að velmegun þjóðarinnar, farsæld og
framfarir em undir því komin að við eigum sem
mest viðskipti við aðrar þjóðir. Davíð Oddsson,
sem í sumar hefur látið möppudýr sín iðja við að
hækka tollamúra, sem afneitar Evrópusamvinnu,
sem óttast ekkert meira en aðrar þjóðir - þessi
Davíð Oddsson ætti að lesa sér til í skrifum Jóns
forseta. Þangað til hann finnur sér tfma getum við
gefið honum smjörþefinn. Hér höfum við afstöðu
Jóns forseta til frelsis og viðskipta:
„Þú heldur að einhver svelgi okkur. Látum þá
alla svelgja okkur í þeiin skilningi, að þeir eigi
við okkur kaup og viðskipti. Frelsið er ekki í því
að lifa einn sér, og eiga ekki viðskipti við neinn.
Frelsið kemur að vísu mest hjá manni sjálfum, en
ekkert frelsi sem snertir mannfélagið, kemurfram
nema í viðskiptum, og þau eru því nauðsynleg til
frelsis
Jón Sigurðsson var nefnilega ekki rómantískur
angurgapi, einsog svo margir af þjóðemissinnum
Jón Sigurðsson var uppi á 19. öld en hugsaði einsog 20. aldar
stjórnmálamaður. Davíð Oddsson er uppi á 20. öld en hugsar
einsog 19. aldar stjórnmálamaður.
síðustu aldar. Hann var raunsær stjómmálamaður.
Hann óttaðist ekki útlönd. Hann leit ekki svo á að
„sjálfstæði" þjóðarinnar væri best borgið með því
að reisa múr umhverfis landið. Hann hafði ekki
asklok fyrir himinn.
Davíð Oddsson er pólitískur heimalningur sem
óttast veröldina fyrir utan túnfótinn. Hann lítur
svo á, að frelsið sé ,j því að lifa einn sér“.
Nei, Davíð Oddsson á ekkert sameiginlegt með
Jóni Sigurðssyni. Vilji hann hinsvegar finna sér
sálufélaga frá síðustu öld - þá væri honum nær að
halla sér uppað Trampe sáluga greifa. Þar fyndi
Davíð Oddsson mann sem var álíka mikið á móti
samtímanum og hann er sjálfur. ■
Ingólfur Margeírsson:
María
- konan bak vid godsögnina
Vaka-Helgafell 1995
Vissulega hefur líf Maríu oft verið
fullt af hamingju og gleði en engin
er rós án þyrna og það er langt í frá
að María hafi alltaf átt sjö dagana
sæla. Þær myndir sem birtast okkur í
bókinni eru sumar dökkar, fullar af
sársauka og angist. Fyrsta áfallið
kom snemma á ævinni þegar María
komst að því að hún var kjörbarn.
Hún heldur ung út í heim Ijós-
myndafyrirsætunnar og á þar mikilli
velgengni að fagna. Þetta er mikil og
ströng vinna og margs konar freist-
ingar bíða á næsta horni. Ingólfur
Margeirsson hefur einstakt lag á að
magna áhrif frásagnar Maríu hve-
nær sem færi gefst. Litla þorpið
Deauville við Signuflóa var athvarf
Maríu frá brjálæði tískuheimsins í
París. Þangað fór hún „til að finna
sterkan storminn í fangið á auðri
ströndinni, horfa á dökk skýin æða
um trylltan himininn og villtar öld-
urnar hamrandi ströndina meðan
máninn slokknaði og kviknaði á
víxl." Þetta er eins og að horfa á at-
riði í kvikmynd þar sem tónlist er
notuð til auka þau hughrif sem verið
er að lýsa.
Sigurður A. Magnússon:
Irlandsdagar
Fjölvi 1995
Að loknum inngangi er sérstakur
kafli um land og sögu þar sem saga
þjóðarinnar er rakin á skilmerkilegan
hátt. Því næst kemur langur kafli um
Dyflinn þar sem ýmis sögulegur
fróðleikur er fyrirferðarmikill í bland
við lýsingar á hinum ýmsu hverfum
borgarinnar og könnunarferðum
höfundar um stræti og torg. Síðan
er lagt upp í ferðina um írland og
víða komið við. Frásögn Sigurðar er
lifandi og vel skrifuð eins og hans er
von og vísa. Sagan drýpur af hverju
þorpi og frásagnir af löngu liðnum
átökum og atburðum ásamt lýsing-
um á sögulegum minjum eru fyrir-
ferðarmiklar. Irlandsdagar er afar
fróðleg og á köflum skemmtileg
lesning. Sigurður A. Magnússon
hefur gott auga fyrir umhverfinu og
lýsingar hans á landi og þjóð bera
vott um einlægan áhuga hans fyrir
viðfangsefninu. Það hefur ekki í ann-
an tíma verið gefin út á íslensku jafn
ítarleg og vönduð bók um írland.
Bókin er kærkomin öllum þeim sem
vilja kynna sér Eyjuna grænu og
gagnast vel þeim er hyggja á ír-
landsferð.
Alþýðublaðið - umtalaðasta blað í heimi miðað við fólksfjölda!
mningaráskrift - aðeins 750
ublaðið leggur áherslu á umræðu um pólitík,
• Alþýðublaðið leggur áherslu á umræðu um pólitík,
menningu og málefni líðandi stundar. Alþýðublaðið hef-
ur á að skipa hárbeittum og bráðskemmtilegum stílistum
sem láta sér ekkert mannlegt óviðkomandi. • Við bjóð-
um nú kynningaráskrift að blaðinu fyrir aðeins 750 krón-
ur á mánuði. • Vertu með á nótunum og lestu greinar
Hallgríms Helgasonar, Kolbrúnar Bergþórsdóttur,
Halldórs Björns Runólfssonar, Arnórs Benónýsson-
ar, Jónasar Sen, Sæmundar Guðvinssonar, Guð-
mundar Andra Thorssonar og Hrafns Jökulssonar.
• Hafðu samband í síma 652 5566, sendu símbréf í 652
9244 eða sendu svarséðilinn til Alþýðublaðsins, Hverf-
isgötu 8- 10, 101 Reykjavík.
Alþýðublaðið
- ekki bara ^
fyrir krata!
krónur á mánuði
i--------------------------------------------1
! Nafn
j -------------------------------------------
' Heimilisfang____
| Staður
I ———
! Póstnúmer
! Kennitala
i ---—----------------------;----------------
> Ég óska eftir að greiða með □ gíróseðli □ greiðslukorti
I
! númer:
Gildirtil: