Alþýðublaðið - 06.02.1996, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Veiðileyfagjald - ný hagstjórn
Núna er afkoma sjávarútvegsins í
heild einhver sú besta sem menn
muna eftir í seinni tíð. Jafnframt er
þess vænst að á næstu árum náist
enn frekari hagkvæmni veiðanna
með auknum fiskveiðiarði.
Mikill meirihluti þjóðarinnar virð-
ist sammála um að þeir sem fá út-
hlutaða hlutdeild í auðlindinni, sam-
eign þjóðarinnar, eigi að greiða fyrir
þau hlunnindi. Verið er að úthluta
takmörkuðum gæðum og óeðlilegt
þykir að þeir sem þess njóta fái
þannig leyfi til nánast frjálsrar með-
Gestaboð |
Svanfríður
Jónasdóttir
skrifar
ferðar á „sínum" hlut án endurgjalds.
Að því hníga réttlætisrök málsins.
En hvernig ætlar ríkisstjóm Dav-
íðs Oddssonar, sem verndar þessa
sérhagsmuni af hörku, að bregðast
við þeim aðstæðum sem skapast
munu við aukið góðæri í útveginum
og ef til vill hækkandi meðaltalsaf-
komu í sjávarútvegi?
Fjölbreytt atvinnulíf
Meðan sjávarútvegurinn er jafn
stór hluti okkar útflulnings og raun
ber vitni hlýtur staða hans að hafa
sem því nemur áhrif á gengisskrán-
inguna. I gamla daga, þegar vel viðr-
aði í sjávarútveginum, var beðið
þangað til aðrar atvinnugreinar voru
komnar að fóturn fram vegna hækk-
andi raungengis og gengið þá fellt
nteð tilheyrandi afleiðingum í efna-
hagslffinu. Og síðan geisaði verð-
bólgan á rústum atvinnulífsins.
Þannig var „veiðleyfagjaldið" tekið í
þá daga og því veitt út til þjóðarinn-
ar, með háu gengi tímabundið, sem
stuðlaði, á meðan þannig háttaði til,
að lægra vöruverði og betri afkomu
fólks.
En þar sem hinar atvinnugreinam-
ar gátu ekki á slíkum góðæristímum
í sjávarútvegi búið við jafnhátt
gengi, þá koðnuðu þær niður og iðn-
aður náði ekki að þróast með þeint
hætti á Islandi sem menn höfðu von-
að, og þá ekki sú fjölbreytni í at-
vinnulífinu sem menn vom þó sam-
mála um að ein dygði til að undir-
byggja hér traust og góð lífskjör. Og
þessvegna hafa stjórnmálaflokkarnir
ályktað um að jafna yrði starfsskil-
yrði atvinnuveganna.
Veiðileyfagjald eða þröngir
sérhagsmunir
Og þannig álykta þeir enn í dag og
sumir segja orðið upphátt hvernig
þeir ætla að gera það; með því að
taka upp veiðleyfagjald og nota það
til sveiflujöfnunar, að taka fiskveiði-
arðinn þar sem hann myndast en
ekki í gegnum gengisskráningu sem
skekkir samkeppnisstöðu hinna at-
vinnugreinanna. Til hvers var þjóð-
arsátt ef strax og byrjar að rofa til í
sjávarútveginum á að fara inn í sama
gamla farið? Þess vegna hljótum við
að auglýsa eftir stefnu ríkisstjómar-
innar? Ætlar hún að bjóða okkur
uppá gömlu „efnahagsráðstafanirn-
ar“ eða hvað þýðir eftirfarandi kafli í
verkefnaskrá sjávarútvegsráðuneytis-
ins:
„Kannaðir verði möguleikar á að
koma á sveiflujöfnun í sjávarútvegi
er tryggi í senn stöðugleika í grein-
inni og jafnvægi gagnvart öðrum at-
vinnugreinum."
Hversu langt mun ríkisstjóm Dav-
íðs Oddssonar ganga í því að vemda
þrönga sérhagsmuni?
Höfundur er alþingismaður
og varaformaður Þjóðvaka.
Hvernig ætiar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar,
sem verndar sérhagsmunina af hörku, að
bregðast við þeim aðstæðum sem skapast
munu við aukið góðæri í útveginum og ef til
vili hækkandi meðaltalsafkomu í sjávarút-
vegi?
h i n u m e g i n
"FarSide" eftir Gary Larson
Við lesum í Listanum,
snotru menningarblaði
sem gefið er út á Akureyri,
að senn muni nýtt Ijóðskáld
kveða sér hljóðs. Þar er eng-
inn annar en Arthúr Björg-
vin Bollason á ferð, en lítið
hefur farið fyrir honum í fjöl-
miðlum uppá síðkastið.
Fram kemur að Mál og
menning muni innan tíðar
gefa út bók með Ijóðum Art-
húrs og eru birt tvö kvæði
eftir skáldið. Af þeim að
dæma fer „Ijóshærða villi-
dýrið" af stað með miklum
ágætum...
Það er greinilega eftir-
sóknarvert í betra lagi að
verða sýslumaður. Hvorki
meira né minna en 17 um-
sækjendur vilja komast í
embætti sýslumanns á
Sauðárkróki, 16 karlmenn og
ein kona. Annað sem vekur
eftirtekt er að hvorki fleiri né
færri en 6 umsækjendanna
gegna þegar sýslumanns-
embætti annars staðar á
landinu, svo það hlýtur að
teljast ábatavænlegt að
komast á Sauðárkrók. Þetta
eru sýslumennirnir: Bjarni
Stefánsson í Neskaups-
stað, Björn Rögnvaldsson
á Ólafsfirði, Guðgeir Eyj-
ólfsson á Siglufirði, Jónas
Guðmundsson í Bolungar-
vík, Ríkharður Másson á
Hólmavík og Sigurður
Gunnarsson í Vík. Aðrir
umsækjendur eru sýslu-
mannsfulltrúarnir Eyþór
Þorbergsson á Akranesi,
Júlíus Kristinn Magnús-
son á Eskifirði, Ólafur Þór
Hauksson í Hafnarfirði og
Úlfar Lúðvíksson í Reykja-
vík, Hilmar Baldursson,
deildarstjóri á veiðieftirlits-
sviði Fiskistofu, Ólafur
Jónsson, starfsmaður veitu-
stofnana í Reykjavík, Sól-
veig Bachmann Gunnars-
dóttir, deildarstjóri hjá
sýslumanninum í Reykjavík
og lögmennirnir Hjalti
Steinþórsson, Ingimundur
Einarsson, Jón Sigfús
Sigurjónsson og Þorbjörn
Árnason...
Kjörin verður ný stjórn í
Alþýðuflokksfélagi
Reykjavíkurá aðalfundi 13.
febrúar. Þá lætur af störfum
Hlín Daníelsdóttir, sem
verið hefur formaður undan-
farin ár. Uppstillingarnefndi
gerir að tillögu sinni að
Gunnar Ingi Gunnarsson
læknir verði kosinn í stað
hennar, en stingur upp á að
aðrir stjórnarmenn verði Ás-
laug Þórisdóttir, Birgir
Jónsson, Bolli Valgarðs-
son, Bryndis Kristjáns-
dóttir, Erlingur Þorsteins-
son, Helgi Daníelsson,
Hólmfríður Sveinsdóttir,
Jónas Þór og Sigrún
Benediktsdóttir...
Hei Stebbi! Er þetta ekki hesturinn þinn sem strákrassgatið
er að fikta í?
Hvernig finnst þér Halldór Ásgrímsson hafa staðið sig í deilum okkar við Norðmenn?
Sigríður Hermannsdóttir
iðjuþjálfi: Ekki nógu vel.
Jón Thoroddsen: Hann hef-
ur verið of linur við þá.
Sigríður Gunnarsdóttir
skrifstofumaður: Hann gæti
staðið sig betur.
Karl Þorsteinsson bensín-
afgreiðslumaður: Hann hef-
ur ekki staðið sig vel frekar en
aðrir.
Kolbrún Halldórsdóttir
leikstjóri: Hann er svo dapur
að maður veit ekki hvort hon-
um gengur vel eða illa.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Ég hef fengið fimm föx frá
Eyjaflotanum og einum bát í
Reykjavík þar sem koma fram
áskoranir um að bjóða mig
fram til forseta. Ég hef ekki
ákveðið eitt eða neitt en er til-
búinn að skoða þetta.
Árni Marz sjómaöur, aðspurður i Eyjablað-
inu Fréttum hvort hann hyggist bjóða sig
fram sem forseta lýðveldisins.
Þessi umræða er fyrst
og fremst í fjölmiðlum.
Við sem vinnum náið með
Davíð vitum betur.
Nánasti samstarfsmaður Davíðs Oddssonar,
Árni Johnsen að nafni, að svara spurningu
á fundi á Suðurlandi um möguleika á for-
setaframboði forsætisráðherrans. Sunn-
lenska fréttablaðið.
Það getur verið spurning um
nokkra daga eða vikur hvenær _
E-pillan kemur hingað.
Elís Kjartansson lögreglumaður á Selfossi í
viðtali við Sunnlenska fréttablaðið um eitur-
vanda austan fjalls.
Nútíma þrælahald byggist upp
á því að það eru lánastofnanir
og bankarnir sem eiga einstak-
linga og fjöldskyldur þeirra.
Lesendabréf í sunnudagsblaði Moggans.
Ég mun biðja fólkið um að
ganga út svo ekki þurfi að
taka á því. Geri fólkið það
ekki verðum við að bera það
út, það er ekkert sem heitir.
Karl Gauti Hjaltason fulltrúi sýslumanns á
Selfossi, um mál ábúenda að Hvoli I í Ölf-
usi. DV í gær.
Hvar hafa unglingar lært
að berja náungann 10-20 högg
í andlit að tilefnislausu,
sparka síðan í höfuð hans,
kvið og kynfæri - án þess
að á honum sjái?!
Ólafur Ólafsson landlæknir
í DV í gær.
fréttaskot úr fortíð
Það skeði í
Ameríku
Hena Temple, faðir Shirley litlu
Temple, hinnar frægu kvikmynda-
stjömu, fær daglega fjölda af bréfurn
frá konum í Ameríku og víðar að.
Þær skrifa allar, að þeirra heitasta
ósk, sé sú, að eignast annað eins
töfrabam og Shirley Temple, og biðja
herra Temple að gera svo vel og
hjálpa upp á sakimar
Alþýðublaðið
sunnudaginn
23. ágúst 1936