Alþýðublaðið - 06.02.1996, Page 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRiÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1996
s k i I a b o ö
Laust er tiB
umsóknar starf
yfirmanns á Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur
Samkvæmt lögum um grunnskóla frá 8. mars 1995
munu grunnskólar heyra undir sveitarfélögin frá og
með 1. ágúst 1996.
í Reykjavík verður sett á stofn ný skrifstofa skólamála -
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, sem mun í stórum drátt-
um taka við þeim verkefnum sem til þessa hafa verið
unnin á vegum Fræðslustofu Reykjavíkur annars vegar
og Skólaskrifstofu Reykjavíkur hins vegar. Laust er til
umsóknar starf yfirmanns Fræðslumiðstöðvarinnar.
Helsti verkefni yfirmanns Fræðslumiðstöðvar Reykjavík-
ur:
• Hafa forystu og sýna frumkvæði við uppbyggingu og
skipulagningu nýrrar stofnunar.
• Sjá til þess, í umboði borgarstjórnar, að lögum um
grunnskóla sé framfylgt í borginni.
• Stjórna því- starfi sem fram fer á Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur.
• Hafa umsjón og eftirlit'með rekstri grunnskólanna í
Reykjavík.
• Hafa forgöngu um þróunarstarf í skólum borgarinnar.
• Tryggja að þjónusta við börn, foreldra þeirr,a kennara
og skólastjórnendur sé eins og best verði á kosið.
Kröfur gerðar til umsækjenda:
• Stjórnunarhæfileikar og -reynsla.
• Háskólamenntun, eða önnur sambærileg menntun á
sviði kennslu-, uppeldis-, eða annarra hug- eða félags-
vísinda.
• Þekking, reynsla og áhugi á skólamálum.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hæfni í að setja fram hugmyndir sínar í ræðu og riti.
• Þekking á sviði rekstrar er æskileg.
Yfirmenn: Borgarstjóri og framkvæmdastjóri menning-
ar-, uppeldis- og félagsmála.
Undirmenn: Allt starfsfólk Fræðslumiðstöðvar Reykja-
víkur. Skólastjórnendur í Reykjavík.
Nefndarstörf: Fagnefnd er skólamálaráð og framfylgir
yfirmaður samþykktum þess eftir því sem honum er fal-
ið.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar nk. Æskilegt er að yfir-
maður á Fræðslumiðstöð geti hafi störf sem fyrst. Um-
sóknir sendist framkvæmdastjóra menningar-, og upp-
eldi og félagsmála, skrifstofu borgarstjóra.
Borgarstjórinn f Reykjavík,
4. febrúar 1996.
Rétt er að vekja athygli á að það er stefna
borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar-
og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar,
stofnana hennar og fyrirtækja.
Styrkir til
háskólanáms í Kína
námsárid 1996-97
Stjórnvöld Aiþýðulýðveldisins Kína bjóða fram tvo
styrki handa íslendingum til háskólanáms í Kína.
Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum próf-
skírteina og meðmælum, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 3. mars
nk., á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið, 2. febrúar 1996.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður haldinn
þriðjudaginn 13. febrúar klukkan 20.30 á Kornhlöðuloftinu.
Á dagskrá er stjórnarkosning og venjuleg aðalfundarstörf.
Listi uppstillingarnefndar tif stjórnar liggur frammi á skrif-
stofu Alþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10, viku fyrir aðalfund.
. Stjórnin.
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARMAÐUR A RANNSOKNASTOFU
Glasafrjóvgunardeild
Duglegur og vandvirkur starfsmaður óskast á rann-
sóknastofu glasafrjóvgunardeildar. Um er að ræða fram-
tíðarstarf og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem
fyrst.
Vinnutími er frá 8:00 til 16:00. Starfið felst m.a. í síma-
vörsiu, móttöku sýna, sérhæfðum þvottastörfum og
fleiru. Meðmæli eru æskileg. Umsóknareyðublöð liglgja
frammi á upplýsingum á Landspítala. Laun samkvæmt
kjarasamningum BSRB.
Umsóknarfrestur er til 29. febrúar nk. Nánari upplýsing-
ar veita Júlíus Gísli Hreinsson og Elín Ruth Reed í síma
560- 1176 eða 560-1997 frá kl. 10:00-12:00.
HJUKRUNARFRÆÐINGUR
Geðdeild Landspítalans
Hjúkrunarfræðingur óskast til að taka næturvaktir á geð-
deildum á Landspítalalóð, 2-3 vaktir að meðaltali í viku.
Um er að ræða tímabundna afleysingu í eitt ár vegna
barnsburðarleyfis.
Einnig er óskað eftir hjúkrunarfræðingum á aðrar geð-
deildir Landspítalans. Um er að ræða fjölþætta og
áhugaverða hjúkrun. í boði er einstaklingsbundin starfs-
þjálfun. Starfshlutfall og vaktir eftir samkomulagi.
Barnaheimili er í tengslum við spítalann. Sérstök athygli
er vakin á að nú býðst húsnæði sem tengist 100% starfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Guðnadóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 560-2600.
w Útboð
F.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur, er óskað eftir tilboðum
í 1 kV og 12 kV rafstrengi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 5. mars nk. kl. 14:00.
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í vinnu og efni við dúkalagnir 1996 í ýmsum
fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða seld á kr. 1.000,- á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 20. febrúar nk. kl. 11:00.
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í uppsteypu viðbyggingar við Grandaskóla.
Helstu magntölur:
Steypa 650 m3 Mótafletir 5.000 m2
Járnalögn 50 tonn Holplötur og rifjaplötur 2.500 m2
Verkinu skal lokið 1. júní 1996.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum 6.
febr. nk. á skrifstofu vorri, gegn kr. 15.000,- skilatrygg-
ingu.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 22. febrúar nk. kl. 14:00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 - 121 Reykjavík
Sími 552 58 00 Bréfsími 562 26 16
Samn
„Margrét reynir að
gera Einari Karli óbæri-
legt að starfa,"- segir
miðstjórnarmaður um
samskipti flokksfor-
mannsins við fram-
kvæmdastjórann. Einar
Karl var einn helsti
stuðningsmaður
Margrétar í formanns-
kjörinu.
„Ég held að Margrét sé einfaldlega
að reyna að gera Einari Karli óbæri-
legt að starfa áfram. Það er þá vænt-
anlega liður í samningi sem hún hef-
ur gert við Svavar Gestsson," sagði
áhrifamikill miðstjórnarmaður í Al-
þýðubandalaginu í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Mikil ólga er í Al-
þýðubandalaginu vegna „endur-
skipulagningar og hagræðingar" á
starfsemi flokksins, svo notuð séu
orð Margrétar Frímannsdóttur um
breytingarnar sem nú er verið að
skipuleggja.
Éinar Karl Haraldsson fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins
var einn ötulasti stuðningsmaður
Margrétar í formannsslagnum við
Steingrím J. Sigfússon í fyrra. Mið-
stjórnarmaðurinn sem blaðið ræddi
við sagði að þrátt fyrir sigurinn væri
Margrét mjög einangruð í þing-
flokknum. Hún teldi sig greinilega
knúna til að semja við andstöðuhóp-
inn í flokknum sem alltaf hefði vilj-
að losna við Einar Karl úr fram-
kvæmdastjórastólnum, enda hefur
hann jafnan verið náinn samstarfs-
máður Ólafs Ragnars Grímssonar.
Svavar valdamestur
í flokknum
Annar áhrifamikill alþýðubanda-
lagsmaður sagði að Svavar Gestsson
væri greinilega maðurinn á bakvið
þá skák sem nú er tefld bakvið tjöld-
in. „Svavar er engum líkur í pólit-
ískri taflmennsku. Honum hefur tek-
ist að gera Margréti algerlega háða
sér, og hann er í reynd valdamesti
maður flokksins núna.“
Undanfarið hefur gagnger endur-
skipulagning á flokksstarfinu verið í
undirbúningi.
Alþýðubandalagsmaður sem þekk-
ir til á skrifstofu segir að Birna
Bjarnadóttir, gjaldkeri flokksins, hafi
í æ ríkari mæli tekið yfir fjármála-
lega stjórn af Einari Karli. Þá feli
fjárhagsáætlun Alþýðubandalagsins í
sér að skorið verði verulega niður í
rekstri flokksins en skuldir greiddar
niður.
Furðulegir hlutir að gerast
í Alþýðubandalaginu
„Það eru furðulegir hlutir að gerast
í Alþýðubandalaginu núna,“ sagði
heimildamaður blaðsins. „Margrét er
að halla sér upp að fólkinu sem
studdi hana ekki. Hún er búin að
vera í minnihluta í þingflokknum og
hefur ekki einu sinni fengið stuðning
frá Ólafi Ragnari. Það er ekki langt
síðan fólk í flokknum kallaði hana á
sinn fund, og sagði henni að það
gæti ekki stutt hana áfram ef ekki
gengi hnífurinn milli hennar og
Svavars."
Tekur gjaldkerinn