Alþýðublaðið - 12.04.1996, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐK)
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996
t ö I v u r
■ Það þótti nýverið mikil frétt þegar heimsmeistarinn í skák, Gary Kasparov, fór um
skeið halloka í einvígi við tölvu. En það eru fráleitt ný tíðindi að vélar sigri menn í
skák: Hrafn Jökulsson segir frá ógnvekjandi skákvél sem kölluð var Tyrkinn og
hrelldi skákmenn um áratugaskeið á 18. og 19. öid; en var síðan afhjúpaður af ekki
minni manni en Edgar Allan Poe
n
Skáktölvan
n
sem lagði
Napóleon keisara
Maðurinn sem smíðaði Tyrkjann var frægur uppfinningamaður við hirð Maríu Teresu keis-
araynju - hann hét Kempelen, og fékkst við ýmislegt nýtilegt um dagana. Hann hannaði til
dæmis dælubúnað sem notaður var í gosbrunnunum við keisarahöllina Schönbrunn, og
hann hafði líka umsjón með neti skipaskurða sem tengdu Búdapest við Miðjarðarhafíð.
Ennfremur var Kempelen brautryðjandi í prentun bóka með upphleyptu letri, sem ætlað var
blindum, þótt sú uppfinning kæmi ekki að fullum notum íyrren sérstakt blindraletur var líka
fundið upp. Hann gerði líka tilraunir með talandi vélar, og þótt árangurinn væri ekki sérlega
merkilegur, þótti hann að minnsta kosti hafa verið á réttri leið - og frumkvöðlar í fjarskipt-
um notuðust síðar við ýmsa þætti úr rannsóknum hans.
En skákvélin Tyrkinn var þó það
sem gerði Kempelen frægan - hon-
um sjálfum til blendinnar ánægju.
Hann var að vísu mjög stoltur af
handleggjum og höndum brúðu sinn-
ar og þeim legum sem gerðu Tyrkj-
anum kleift að hreyfa handleggina
hámákvæmt, grípa taflmenn á skák-
borðinu og færa þá á rétta staði. Sá
útbúnaður Kempelens var síðar not-
aður við þróun í gervilimasmíði og
reyndist afar gagnlegur. Á hinn bóg-
AÐALFUNDUR 1996
Aðalfundur Granda hf. verður haldinn miðvikudaginn 24. apríl 1996, kl. 17:00 í matsal fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík.
DAGSKRÁ
í. Venjuleg aöalfundarstörf. I o
2. Tillaga um breytingu á 3. gr. samþykkta félagsins um heimild til stjórnar til aö hækka hlutafé meö sölu nýrra hluta.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aöalfund. Atkvæöaseölar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Óski hluthafar eftir aö ákveöin mál veröi tekin til meðferöar á aðalfundinum, þarf skrifleg beiöni um þaö aö hafa borist félagsstjórn meö nægilegum fyrirvara, þannig að unnt sé aö taka málið á dagskrá fundarins. Hluthafar, sem ekki geta mætt á fundinn,
inn þótti Kempelen sjálfum heldur
lítið til um sjáifan kassann sem skák-
vélin átti að vera ofan í, og fannst
þetta allt saman of skylt töfrabrögð-
um til að vísindamaður einsog hann
gæti verið stoltur af svona smíði; En í
sannleika sagt var Tyrkinn mikil
dvergasmíð, og hinir mætustu menn
reyndu í marga áratugi að átta sig á
leyndarmáli hans, án árangurs.
Kassinn, eða borðið, sem Tyrkja-
brúðan sat við var um það bil áttatíu
sentimetrar á hæð, einn metri á lengd
og sextíu sentimetrar á breidd. Þar
hefði maður semsagt getað falið sig
innan í, þótt ekki hefði hann átt þægi-
Napóleon mikli. Var sérlega tapsár
og reyndi að svindla á Tyrkjanum.
en hyggjast gefa umboö, þurfa aö gera
það skfiflega.
STJÓRN GRANDA HF.
GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVÍK
lega vist, en áðuren Tyrkinn hóf tafl-
mennsku, sýndi stjómandi hans
áhorfendum inn í kassann og þar var
ekkert að sjá nema tannhjól, svo ekki
virtist fara milli mála að um raun-
verulega skákvél væri að ræða. Fram-
an á kassanum voru þijár hurðir og
niðri var gólf þar að auki löng skúffa,
og þetta var allt saman opnað uppá
gátt og dregið út. Stjómandinn opn-
aði fyrst hurð á vinstri hlið kassans,
og fór svo bakvið hann og opnaði
hurð þar og kveikti á kerti sem áhorf-
endur sáu skína gegnum tannhjólin
og vélabúnaðinn í kassanum. Síðan
var hurðinni aftan á lokað, en skúffan
framan á og hinar vær hurðimar þar
opnaðar líka, og loks opnuð önnur
hurð aftan á og kerti látið skína í
gegn sem fyrr. Að síðustu var klæð-
um flett frá brjósti brúðunnar, svo
enginn freistaðist nú til að halda að
innan í Tyrkjanum sjálfum leyndist
maður.
Allt var þetta svo sannfærandi að
þótt efasemdarmenn kæmu hvað eftir
annað að horfa á Tyrkjann tefla, þá
gátu þeir með engu móti séð að mað-
ur gæti verið í felum innan í kassan-
um, því engin leið var að álykta ann-
að en alltaf sæist beint í gegnum
hann. Og jafnvel þó svo maður væri í
kassanum, hvemig vissi hann þá
hvað væri að gerast uppi á taflborð-
inu, og hvemig hreyfði hann hand-
leggi brúðunnar svona hámákvæmt
að aldrei féll Tyrkjanum peð úr
hendi?
Því hlutu menn að komast að þeirri
niðurstöðu að Tyrkinn væri í raun og
vem skákvél, eða henni væri að
minnsta kosti fjarstýrt á einhvem dul-
arfullan hátt. En í raun og vem var
náttúrlega maður innan í Tyrkjanum.
Ástæðulaust er að lýsa því hér í smá-
atriðum hvemig hann faldi sig í þess-
um þrönga kassa meðan stjómandinn
hélt öllum hurðum opnum fyrir sýn-
ingamar, en þar komu speglar mjög
við sögu, einsog í mörgum töfra-
brögðum nútímans - þegar áhorf-
endur horfa gegnum vélina sáu
þeir í raun aðeins gegnum hluta
hennar.
Tyrkinn siær í gegn
við hirð Maríu Teresu
'Kempelen sýndi Tyrkja sinn
fyrst árið 1769, við hirð Maríu
Teresu og vakti Tyrkinn mikla
lukku - enda tefldi hann ekki
aðeins snilldarlega heldur gat
hann líka svarað spumingum með
því að benda á ákveðna reiti á skák-
borðinu. Næstu fjögur árin varð
Kempelen hvað eftir annað að sýna
Tyrkja sinn, þegar gestir komú til
Vínar, og svo fór að hann varð leiður
á öllu saman, og eyðilagði vélina - til
þess að geta helgað sig merkilegri
viðfangsefnum.
En Tyrkinn lét ekki að sér hæða.
Árið 1781, átta ámm eftir að Kempe-
len eyðilagði vél sína, var honum
skipað af Jósef II keisara, eftirmanni
Maríu Teresu, að búa til nýjan
Tyrkja. Þá var Páll stórhertogi frá
Rússlandi nefnilega í heimsókn í
Vínarborg með konu sinni, en þessi
einkasonur Katrínar miklu varð
seinna keisari yfir Rússlandi nokkra
hríð.
Sem fyrr sló Tyrkinn í gegn og eft-
ir sýninguna fyrir Pál stórhertoga
leyfði Jósef II Kempelen að fara í
sýningarferð um Evrópu með skákvél
sína.
Tyrkinn fór til Lundúna, Parísar,
Amsterdam og Þýskalands, og náði
hvarvetna stórglæsilegum árangri.
Raunar vom það aðeins allra sterk-
ustu skákmeistaramir sem gátu sigr-
ast á Tyrkjanum, svo sem Italinn
Verdoni og Frakkamir Bemard og
Philidor - en sá síðastnefndi var
langsterkasti skákmaður heims um
sína daga og reyndar einn áhrifamesti
skákmeistari allra tíma, því ýmis
hugtök sem allar götur síðan hafa
einkennt skáklistina em frá honum
komin. Það var því varla von að Tyr-
kinn stæðist Philidor snúning, en
flestallir aðrir andstæðingar sóttu
| Ij jjjjjwj
“■ISII
yiilpy í;s-l
‘ íll », ‘ ^
■ ■"
ekki gull í greipar vélarinnar-, svo
orðstír hennar beið ekki-yerulégan
hnekki við að tapa fyrir Philidor.
Reyndar er alls ekki vitað hverja
Kempelen fékk til að hírast innan í
vél sinni og tefla við sýningargesti.
Það hljóta að hafa verið öflugir skák-
meistarar og heldur ömurlegt fyrir þá
að hafa eytt ferli sínum í hnipri innan
í Tyrkjanum, en
Philidor. Hann var öflugasti meist-
ari heims um sína daga og einn af
fáum sem sigraði skákvélina.
sennilega hafa launin þrátt fyrir allt
verið töluvert betri en ef þeir hefði
bara setið á kaffihúsunum með öllum
hinum skákmönnunum.
Tyrkinn teflir viö Napóleon
Eftir þessar sýningarferðir um
helstu borgir Evrópu lét Kempelen
Tyrkja sinn aftur setjast í helgan stein
og sýndi hann sjaldan - en eftir andlát
Kempelens árið 1804 komst Tyrkinn
í eigu manns að nafni Johann Nepot-
uk Maelzel. Maelzel ferðaðist síðan
um Evrópu þvera og endilanga og
sýndi Tyrkjann og hvarvetna þyrptist
fólk að og borgaði stórfé fyrir að fá
að tapa fyrir honum. Meðal þeirra
sem tefldu við Tyrkjann var ekki
minni maður en Napóleon Bonaparte
Frakkakeisari; heimildum ber ekki
saman um hvemig skákin endaði en
flest bendir til að keisarinn hafi lotið í
gras. Sú skák sem stundum er birt í
blöðum og sögð vera skák Tyrkjans
og Napóleons er seinni tíma tilbún-
ingur. Það eina sem er í reynd vitað
um skákkunnáttu hins mikla her-
stjómanda er að hæfileikar hans voru