Alþýðublaðið - 21.05.1996, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996
s k o ð a n
MÞYÐU6U9ID
21113. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Kosningabarátta
í kyrrþey
Nú stendur yfir einhver dauflegasta kosningabarátta sem sögur
fara af á íslandi. Reyndar er varla hægt að tala um baráttu, slíkur
er doðinn og áhugaleysið. A þessu eru tvær skýringar. I fyrsta
lagi er embætti forseta íslands orðið í hugum fólks valdalaust
tildurstarf sem einkum snýst um veislustjóm og garðrækt, og í
öðm lagi er ekki vottur af spennu í kosningabaráttunni einsog
staðan er nú - slíkir em hinir óvæntu yfirburðir Ólafs Ragnars
Grímssonar. Ef fram heldur sem horfir siglir hann lygnan sjó frá
Seltjamamesi yfir á Álftanes. Hinir frambjóðendumir þrír em
ekki öfundsverðir. í síðustu skoðanakönnun mældist fylgi þeirra
frá innan við þremur prósentum og upp í rúmlega sex prósent.
Enganveginn kemur á óvart þótt einn eða fleiri heltist úr lestinni
ef niðurstöður kannana verða áfram á svipuðum nótum.
Það er mikið umhugsunarefni að nær engin umræða hefur farið
fram um eðli forsetaembættisins: Enginn frambjóðandi hefur lýst
á skilmerkilegan hátt hvemig hann ætlar að nota og móta emb-
ættið. Hin hugmyndalega umræða er ekki hafin og ýmislegt
bendir til að það sé sumum frambjóðendum mjög að skapi að
halda henni í algem lágmarki. I þessu sambandi vekur nýtilkomið
skoðanaleysi Ólafs Ragnars Grímssonar auðvitaö'mesta athygli.
Hann hefur á undraskömmum tíma tileinkað sér þá leiðinlegu
listgrein að segja ekki nokkum skapaðan hlut sem gæti mögulega
vakið umræður eða deilur. Ólafur er með öllu óþekkjanlegur sem
hinn stillti og yfírvegaði landsfaðir. Allt fas hans bendir til þess
að þar fari maður sem verið hefur forseti í að minnsta kosti tíu ár,
en ekki vígamóður orðhákur sem til skamms tíma var óvinsælasti
stjómmálamaður landsins.
í Alþýðublaðinu síðastliðinn fimmtudag var rætt við fólk úr
öllum áttum um kosningabaráttuna, og vom viðmælendur blaðs-
ins á einu máli um að hún væri dauf og innihaldslaus. Þómnn
Sveinbjamardóttir stjómmálafræðingur og varaþingmaður gagn-
rýndi fjölmiðla fýrir linkind og kvað þá hantéra frambjóðenduma
öðmvísi en annað fólk. Það er meira en sannleikskom í þessari
staðhæfíngu: fréttamenn setja upp silkihanska þegar þeir fjalla
um kosningabaráttuna, og forðast í lengstu lög óþægilegar eða
erfiðar spumingar. Þá segir Þómnn: „Auðvitað á að ræða um for-
setaframboðið af fullri virðingu. Hinsvegar þarf að spyija mjög
skýrra spuminga um embættið og það hvað þetta fólk vill gera á
Bessastöðum og hvað það hafi gert fyrir þjóð sína. Hversvegna
það sé verðugt til að verða forseti íslands. Mér finnst hafa vantað
uppá það hjá sumum frambjóðendum, að þeir skýri það öðmvísi
en svo að þeir séu frambærilegir og valdi starfanum.“ Vilhjálmur
Þorsteinsson kerfisfræðingur tók í svipaðan streng, og lýsti
áhyggjum yfir því að kosningabaráttan snerist mestanpart um
skrautfjaðrahlutverk forsetans. Hann varpar því fram að forseta-
kosningar séu fágætt tækifæri fyrir þjóðina til að sýna hvert hug-
ur hennar stefnir hvað varðar almenna framtíðarsýn um þróun
þjóðfélagsins. Vilhjálmur tilgreinir nokkrar spumingar sem þjóð-
in gæti lagt fyrir sjálfa sig - og frambjóðenduma auðvitað - við
þetta tækifæri: „Vill þjóðin einangmnarhyggju eða vill hún al-
þjóðahyggju? Vúl hún hafa menninguna í sóttkví eða í suðupotti
alþjóðlegra strauma? Hversu langt á ísland að ganga í því að hafa
frumkvæði í mannréttindamálum og stuðningi við sjálfstæðisbar-
áttu undirokaðra þjóða. Um þessi gmndvallaratriði heyrist ekki
múkk.“
Það er tímabært að fá umræðu af viti í kosningabaráttuna.
Frambjóðendumir eiga að þora að hafa sjálfstæðar skoðanir - og
þeir eiga að segja þjóðinni nákvæmlega hvað þeir vilja og vilja
ekki. Þeir sem ætla að þegja sig gegnum kjör æðsta embættis-
manns þjóðarinnar eiga einfaldlega ekkert erindi á Bessastaði. ■
Höfum viö gengið til góðs?
Lengi hefur blundað í mér erindi
sem Kristín Ástgeirsdóttir þingkona
Kvennalista flutti á fundi hjá Félagi
frjálslyndra jafnaðarmanna fyrir
nokkrum misserum. Það eftirminni-
legasta £ erindinu var ekki aðalefni
þess, heldur sú skoðun eða tilgáta
Kristínar, að streita og h'fsgæðakapp-
hlaup nútímans væru síðri kostur en
rólegheit og sveitarómantík fortíðar.
Sérstaklega var hún að fjalla um kon-
ur í þessu samhengi, eins og kannski
endranær. Svipuð sjónarmið má finna
víða, og margir taka sér í munn mál-
tækið „heimur versnandi fer.“ En er
það svo? Þetta er auðvitað grundvall-
arspuming í mannlffinu og ekki síst í
stjómmálum, sem full ástæða er til að
velta fyrir sér.
Háborðið
Vilhjálmur
gHgg'Bj Þorsteinsson
skrifar
Um tilgátu Kristínar er það að
segja, að málið er ekki svo einfalt, að
streita hafi komið í stað streituleysis
og lffsgæðakapphlaup í stáð nægju-
semi. Það má til dæmis fullyrða að
sjúkdómar hafi verið margfalt meiri
streituvaldar á árum áður en nú. Fátt
er ömurlegra en að horfa á eftir bami í
gröfina, og það þurftu foreldrar að
upplifa, oft vegna sjúkdóma sem í dag
em auðlæknanlegir. Þá hefur skortur á
umburðarlyndi verið mörgum streitu-
valdur; fólk sem ekki rúmaðist innan
ramma samfélagsins vegna ástæðna
allt frá samkynhneigð til geðveiki
mátti líða fyrir það, og ábyggilega
ekki áfallalaust fyrir viðkomandi. At-
vinna var ótrygg, réttindi verkafólks
nánast engin og almannatryggingar
sáralitlar miðað við það sem nú þekk-
ist. Loks hefúr það ekki verið ánægju-
efni hjá fátækum foreldrum að eiga
ekki mjólk eða aðrar nauðsynjar fyrir
Svarið við spurningunni í fyrirsögn greinar-
innar er að mínu mati já, við höfum gengið til
góðs götuna fram eftir veg, og engin ástæða
til að afneita því. En það er ekki þar með sagt
að það séu ekki næg verkefni framundan.
bömin sín, en fátækt hefur þrátt fyrir
upphrópanir ábyrgðarlausra stjórn-
málamanna aldrei verið minni í ís-
landssögunni en hin síðari ár.
Sumir segja að jákvæð þróun hafi
fyrst og fremst orðið í hvers kyns
heimsins prjáli, efnislegum gæðum,
en ekki í hinu innra, því sem máli
skipti um lífshamingjuna. Bent er á fé-
lagsleg vandamál, vegalaus böm, eit-
urlyf og glæpi. Margt af því kann að
vera rétt, en fleira þarf að taka með í
reikninginn. I fyrsta lagi eru komin
fram-í dagsljósið ýmis'fyrifbæri sgrp
áður voru -annaðhvort lítið sem ekkert
rædd eða ekki viðurkennd. Þar má
nefna sifjaspell og ofbeldi á heimilum.
Telja má ömggt að hvort tveggja hafi
alltaf fyrirfundist og jafnvel í meira
mæli en nú, þegar umræðan og þekk-
ingin hefur aukist. í öðru lagi hefur
greiningu og meðferð á margs konar
félagslegum aðstæðum fleygt fr,am.
Sem dæmi um hugtök sem nú eru til
og.ágætlega skilgreind má nefna full-
orðin böm alkóhólista (FBA), einelti
og ofvirkni. í mínu ungdæmi, og er ég
þó ekki sérlega gamall, var það bara
ein af staðreyndum lífsins að 2-3 í
hveijum árgangi vom teknir fyrir og á
þá var opinbert veiðileyfi. I dag er 8
ára sonur minn í sama skóla og ég var,
en hann og bekkurinn eru nákvæm-
lega meðvituð um einelti, hvað það sé
og að það sé ljótt. Allir eru á varð-
bergi, bæði böm, kennarar og foreldr-
ar, og ég veit ekki betur, en að fljótt
og vel sé tekið á því, ef einkenni ein-
eltis gera vart við sig. Og ofvirkni hét
bara krórnsk óþægð eða að púki hefði
sest að í baminu.
í þriðja lagi sýna tölur að glæpa-
tíðni hefur ekki aukist og jafnvel held-
ur minnkað. Sá sem heldur að morð
og árásir séu seinni tíma uppfinning
hefur lítið flett sögubókum. Svo ekki
sé minnst á nauðganimar sem aldrei
vom kærðar hér áður og fyrr.
Eins og sjá má af ofangreindu á ég
erfitt með að taka undir hjá þeim sem
tala í sama anda og Kristín Ástgeirs-
dóttir gerði á fundinum forðum. Sú af-
staða kann að minna talsvert á Al-
túngu, sem hafði bjartsýni mikla að
leiðarljósi og taldi að heimur vor væri
sá besti allra heima. Auðvitað er það
ekki svo. Nútíma vestrænt velferðar-
samfélag hefur létt mörgum áhyggjum
af fólki, en aðrar hafa komið íistaðinn.
fjinar hjöðú:b'reytíngaf,:seri):éfu orðn-
-ar að kiisju, .valda þvLað. fólk. þarf allt-
af að vera á tánum og sífellt að læra til
að haldast í hringiðu atvinnulífsins. I
dag mætast kröfur tveggja ólíkra kyn-
slóða með braki og brestum. Eldri
kynslóðin leggur upp úr „myndarleg-
um húsmæðrurri* sem baka kökur og
ryklausum heimilum með stássstof-
um. Hin yngri telur eftirsóknarvert að
ná árangri í námi og starfi auk þess að
hafa tíma fyrir fjölskylduna, en eins
og gefur að skilja, verðúr lítill tími
fyrir kökubakstur og afþufrkún. Mæli-
stikumar era ólíkar og það veldur tog-
streitu. Loks er það þrátt fyrir allt
þannig, að ungar fjölskyldur með
meðaltekjur eiga í dag erfiðara en fyrir
til dæmis tíu árum að vinna sig upp úr
skuldum. Þar koma til of háir jaðar-
skattar - en þetta er einmitt dæmi um
það, hvernig tæknilegar leikreglur
samfélagsins geta haft áhrif á „and-
leg“ lífsgæði fólks, bæði barna og
fullorðinna.
Svarið við spumingunni í fýrirsögn
greinarinnar er að mínu mati já, við
höfum gengið til góðs götuna fram
eftir veg, og engin ástæða til að af-
neita því. En það er ekki þar með sagt
að það séu ekki næg verkefni fram-
undan.__________________________________
Höfundur er kerfisfræðingur og ritari FFJ.
Atburðir dagsins
1927 Charles Lindbergh flýgur
yfir Atlantshafið, fyrstur
manna. 1975 Leiðtogar Baa-
der-Meinhof samtakanna
dregnir fyrir dóm í Stuttgart.
1979 íslenskir bifreiðaeigendur
þeyttu flautur bifreiða sinna í
tvær minútur til að mótmæla
miklum hækkunum á bensíni.
1983 Ásmundarsafn við Sigtún
formlega opnað. 1990 Vitfirrt-
ur Israelskur hermaður myrðir
sjö Palestínumenn. 1991 Rajiv
Gandhi fyrrum forsætisráð-
herra Indlands myrtur.
Afmælisbörn dagsins
Albrecht Diirer 1471, þýskur
listmálari. Alexander Pope
1688, enskt skáld. Sigfús Ey-
mundsson 1837, bóksali.
Andrei Sakharov 1921, rúss-
neskur baráttumaður fyrir
mannréttindum.
Annálsbrot dagsins
Svipul veðrátta frá jólum og
jarðbönn allviða. Illhugi Hóla-
ráðsmaður andaðist bráðlega.
Draugagangur í Auðbrekku.
Sýktist Halldór lögmaður.
Komu íslenskir fangar úr Tyr-
keríinu. Þá strauk ein hvirfil-
roka af himni í sjóinn á Suður-
nesjum, hvar af sjórinn val!
sem hver. Um morguninn eptir
tapaðist þar tólfæringur.
Vatnsfjarðarannáll yngri 1637.
Einstigi dagsins
Vanfarið er hið hárfína einstigi
ástar og grimmdar.
Svava Jakobsdóttir, Gunnlaöar
saga.
Málsháttur dagsins
Sjálfir verða rosknir menn að
ráða sér.
Orð dagsins
Það er sorg mín og hamingja
að hjartsláttur lífsins
heldurfyrir mér vöku.
Einar Bragi.
Skák dagsins
Bent Larsen var einn af sterk-
ustu skákmönnum heims á sín-
um tíma og vann marga glæsta
sigra. Heldur hefur danska
meistaranum daprast flugið
með árunum, en hann hefur
fráleitt gefið tafiið uppá bátinn.
Skoðum óvenjulega stöðu frá
skák Larsens og Ný-Sjálend-
ingsins Chandlers. Larsen hef-
ur hvítt og á leik, og einsog sjá
má standa öll spjót á svarla
kónginum.
Svartur mátar í tveimur leikj-
um.
1. Rf4+! Kxg4 2. Bf3 Skák og
mát!