Alþýðublaðið - 23.05.1996, Side 3
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o d a n i r
Olafur United, Pétur KR og Guðrún City
Vinstrimennirnir sem höfðu litla ást á
stjórnmálamanninum Ólafi Ragnari Gríms-
syni verða auðveldlega áhangendur Ólafs
Ragnars United - þegar hann keppir við
Pétur KR eða Guðrúnu City.
Sumir ágætir vinir mínir í Alþýðu-
bandalaginu fengu flog þegar spurðist
að Jón Baldvin Hannibalsson væri að
bræða með sér hvort hann ætti að
demba sér í forsetaframboð.
Þetta voru hryllileg svik, sögðu
þeir, og var mikið niðri fyrir, og svo
kom ræða um skotgrafir kalda stnðs-
ins. Mér kom þessi algera móðursýki
svolítið á óvart: Með leyfi, var búið að
ganga frá fóstbræðralagi Ólafs Ragn-
ars og Jóns Baldvins? Hvenær var það
gert? Afhveiju var Alþýðublaðið ekki
látið vita?
Einsog gengur |
| Hrafn Jökulsson
^ I skrifar
Nei, kannski hafði ekki verið geng-
ið frá neinu formlega, sögðu vinir
mínir, alþýðubandalagsmennimir. En
Jón Baldvin átti auðvitað að sýna fé-
laga sínum af vinstri værig stjómmál-
anna þann drengskap að leyfa honum
að eiga Bessastaði. Nú áttu vinstri-
menn að taka höndum saman og
koma í veg fyrir að helvítis íhaldið
næði forsetaembættinu.
Hvað bull er þetta? Allt í einu var
Jón Baldvin orðinn vinstrimaður í
hugum alþýðubandalagsmanna. Hve-
nær gerðist það? Hefur hann ekki ver-
ið úthrópaður, seint og snemma, sem
mestur hægrimaður sem uppi hefur
verið á fslandi? Er ekki Alþýðuflokk-
urinn „nýfrjálshyggjuflokkur, hægra
megin við Sjálfstæðisflokkinn"? Mér
hafði lengi skilist á vinum mínum úr
Alþýðubandalaginu að ekkert væri
eins auðvirðilegt og hraksmánarlegt
og að tilheyra „þessum svokallaða Al-
þýðuflokki".
Einkennilegast fannst mér þó að
sumir þeirra sem æstu sig
sem mest útaf hugsanlegu
framboði Jóns Baldvins
voru til skamms tíma alls
ekki í aðdáendaklúbbi Ólafs
Ragnars - reyndar þvert á
móti.
Hvemig stendur á þessu?
Eg held að skýringin sé
ósköp einföld. Afþví for-
setakosningar snúast ekki
um nokkum skapaðan hlut,
þá verður með einhverjum
hætti að hleypa spennu í
þær. Það er gert með því að
breyta þeim í nokkurskonar
fótboltaleik. Vinstrimenn-
irnir sem höfðu litla ást á
stjórnmálamanninum Ólafi
Ragnari Grímssyni verða
auðveldlega áhangendur Ól-
afs Ragnars United - þegar
hann keppir við Pétur KR
eða Guðrúnu City.
Stuðningsmenn Ólafs
Ragnars United brugðust
við af þvílíkri heift af því
þeir óttuðust að sigur þeirra
liðs væri í hættu. En auðvit-
að geta vinstrisinnaðir
menningarvitar ekki viður-
kennt að í hjarta sínu séu þeir fyrst og
fremst pólitískir húliganar - og þess-
vegna var gripið til frasá um „sam-
stöðu vinstrimanna“ og bullað um
„sögulegt tækifæri".
Halda menn virkilega að vinstri-
menn taki uppá því að sameinast þótt
Ólafur Ragnar Gnmsson verði kjörinn
forseti? Hvaða bull er þetta eiginlega?
Mótsögnin felst meðal annars í því
að forsetaembættið er ópólitískt og
náttúrulaust. Ólafur Ragnar verður að
halda áfram að halda kjafti um það
sem máli skiptir: sameining vinstri-
manna mun ekki eiga rætur á Bessa-
stöðum.
Fordæmið? Það væri nær að líta á
fordæmi Reykjavíkurlistans. Þar sam-
einuðust menn þó alltjent á pólitískum
forsendum. Á því á að byggja en ekki
íþróttakappleik um tildurdjobb.
Og meðal annarra orða: Ef „vinstri-
menn“ - og þá alveg sérstaklega al-
þýðubandalagsmenn - eru allt í einu
orðnir svona áhugasamir um að
klekkja á íhaldinu og mynda órofa
samstöðu, hvað gerðist þá á þingi Al-
þýðusambandsins síðdegis í gær?
Það sem gerðist var þetta: Alþýðu-
bandalagsmenn læstu klónum saman
við íhaidið - einu sinni, einu sinni
enn. Krötunum var hótað því, að
drægi ekki þeirra frambjóðandi til for-
seta (ASI!) sig til baka, þá fengi Al-
þýðuflokkurinn ekki svo mikið sem
varaforseta. Alþýðubandalagsmenn
voru albúnir að skipta góssinu með
sjálfstæðismönnum.
En þetta var náttúrlega alvöm póli-
tík: þar er ekkert pláss fyrir tyllidaga-
frasa um órofa samstöðu á vinstri
væng.
Gáum að því, einsog sumir hefðu
sagt. ■
Nýverið hófu stuðnings-
menn Péturs Kr.
Hafstein að keyra sjón-
varpsauglýsingar þar sem
hinir og þessir lýsa aðdá-
un sinni á hinum trausta
forsetaframbjóðenda.
Tónelskir menn hafa tekið
eftir því að undir auglýs-
ingunum er leikið þekkt
stef úr tónverkinu Pétri og
úlfinum. Nú spyrja menn
sig hvort hér sé um tilvilj-
un að ræða eða ekki. Þeir
sem dýpst leita í pæling-
um sínum á kosninga-
áróðri telja engan vafa
leika þar á um - þarna séu
lævís skilaboð á ferðinni.
Einskonar leyndur skæt-
ingur. Við vitum hver Pét-
ur er og þá stendur eftir
spurningin: Hver er úlfur-
inn? Er það ef til vill Ólaf-
ur Ragnar Grímsson?
r
Iframhjáhlaupi má geta
þess að Pétur og úlfur-
inn er eftir rússneska tón-
skáldið Serge Prokofiev.
Honum varð svo mikið um
þegar hann fregnaði and-
lát Stalíns að sjálfur gaf
hann upp öndina sam-
dægurs árið 1953 en Sta-
lín var búinn að kvelja
Prokofiev alla hans tíð...
egar Ijóst var að Jón
Baldvin Hannibals-
son yrði ekki í kjöri til for-
seta íslands brettu fylgis-
menn Guðrúnar Péturs-
dóttur og Péturs Haf-
steins upp ermarnar.
Slagurinn stendur um það
hvort þeirra Guðrúnar eða
Péturs verði áskorandi Ól-
afs Ragnars, en fjöldi
kjósenda mun vísast
flykkja sér um þann fram-
bjóðanda sem líklegastur
er til að veita Ólafi ein-
hverja keppni. Sagt er að í
herbúðum Péturs fagni
menn því mjög að Jón
Baldvin hafi ekki farið
fram og teiji nú víst að
þeir sjálfstæðismenn sem
helst hafi verið þess fýs-
andi að Jón færi fram
muni nú snúa sér til Pét-
urs...
Rithöfundurinn Milan
Kundera var hér á
dögunum í tíu daga heim-
sókn ásamt eiginkonu
sinni. Kundera hefur kom-
ið nokkrum sinnum til ís-
lands og á örugglega eftir
að koma nokkrum sinnum
enn því hann er sagður
kunna sérlega vel við land
og þjóð. Kundera hafði
með sér veglega minja-
gripi frá íslandi því hann
keypti tvö málverk eftir
Kristján Davfðsson...
'FarSide" eftir Gary Larson
Þetta er gaurinn. Annar ofan frá, þessi tólf-feta!
fimm á förnum vegi
Hver er samgönguráðherra? Rétt svar: Halldór Blöndal.
Jóna Svana Jónsdóttir
vegfarandi: Ég fylgist ekkert
með pólitflc, þetta eru allt sömu
rugludallamir.
Helgi Örn Bjarnason nemi:
Hann heitir Halldór Blöndal.
Anna Gunnarsdóttir nemi:
Ég hef ekki hugmynd um það.
Einar Jónsson tónlistar-
maður: Er það ekki Sighvatur
Björgvinsson?
Svava Grétarsdóttir
starfsstúlka: Guð, ég man
það ekki.
JÓN ÓSKAR
v i t i m e n n
Reynt að brenna
skjalasafn Alþingis.
Frétt í DV í gær.
Þótt forstjórar hans
og bróðir hans sitji inni og
höfuðpaurinn sitji sjálfur á
tímasprengju, heldur hinn
ósvífni tækifærissinni áfram
að faðma þjóðarhjartað
í sjónvarpi sínu.
Kjarnyrt forystugrein Jónasar Kristjánsson-
ar í DV var í gær tileinkuð Silvio Berlusconi.
íslendinga vantar
fleiri skip.
Önundur Ásgeirsson vakti athygli á þessari
lítt kunnu staðreynd í DV í gær.
Ekkert bendir til
að ísland eigi að sækja
um aðild að ESB á
næstunni.
Halldór Ásgrímsson í Tímanum í gær.
Ég mun hinsvegar þakka
mínum sæla fyrir að vera ekki
forseti ef ég kem til Ameríku á
ný eftir að hvalveiðar hefjast
aftur. Þar mun ég fremur
þykjast vera Bosníu-Serbi
því ímynd þeirra verður þá
stórum skárri en okkar
Islendinga.
Það var nefnilega það. Lesendabréf „
Elíasar í DV í gær.
Góðærið vandfundið
á atvinnuleysisskrám vinnum-
iðlana þar sem fólki fjölgaði
í apríl.
Tíminn í gær.
Síldarsamningurinn sannar
gildi sitt.
Fyrirsögn leiðara
Moggans í gær.
Boorda hafði rétt til
að bera merkin.
Frétt Morgunblaðsins í gær um sjálfsmorð
Jeremy „Mike" Boorda yfirmanns banda-
ríska sjóhersins. Fjölmiðlar höfðu sakað
hann um að bera heiðursmerki í óleyfi, og
hann stytti sér því aldur.
t a I n a t a I
Kynskipting
þingmanna á
Norðurlöndum
Þingmenn (%)
Karlar Konur
Danmörk 66 34
Finnland 61 39
ísland 75 25
Noregur 61 39
Svíþjóð 59 41
Heimild: Ársskýrsla Skrifstofu
jafnréttismála.