Alþýðublaðið - 12.06.1996, Side 1
Miðvikudagur 12. júru' 1996 Stofnað 1919 _____________________85. tölublað - 77. árgangur
■ Ingibjörg Sigmundsdóttir, varaþingmaður Alþýðubandalagsins og einn nánasti
samstarfsmaður Margrétar Frímannsdóttur, skrifaði grein í DV\ gær og réðst harka-
lega á Kristin H. Gunnarsson þingmann, sagði hann hægrimann og kveðst vona að
hann fari til síns heima
Ég hef hvorki heyrt
þetta néséð
- segir Margrét Frímannsdóttir um grein Ingibjargar.
Ingibjörg Sigmundsdóttir: Lét Margréti vita af grein-
inni áður en hún birtist.
Margrét Frímannsdótt- Ingibjörg Sigmunds- Kristinn H. Gunnars-
ir. Efast um að greinin dóttir. Lét Margréti vita son. Fer ekki eftir stefn-
sé eftir Ingibjörgu Sig- áður en greinin birtist. unni og því spurning
mundsdóttur í Hvera-
gerði.
hvort hann er í vitlaus-
um flokki, segir Ingi-
björg.
„Ég hef hvorki heyrt þetta né séð,
og ekki heyrt af því og mér finnst það
satt að segja mjög ólíklegt að þetta sé
Ingibjörg Sigmundsdóttir í Hvera-
gerði,“ sagði Margrét Frímannsdóttir
formaður Alþýðubandalagsins að-
spurð um lesendabréf í DV í gær þar-
sem var ráðist mjög harkalega á Krist-
in H. Gunnarsson þingmann Alþýðu-
bandalagsins. Ingibjörg Sigmunds-
dóttir í Hveragerði, sem skipaði 4.
sæti G-listans í kosningunum í fyrra
og er einn nánasti samheiji Margrétar
og sat nýverið á þingi fyrir hana, stað-
festi hinsvegar við blaðamann að hún
hefði skýrt Margréti frá bréfmu áður-
en það birtist.
Bréf Ingibjargar ber fyrirsögnina
„Athyglissjúkur allaballi", og þar er
Kristinn sagður „dyggur stuðnings-
maður ríkisstjómarinnar við að skerða
kjör launafólks... Þá styður hann
hægri stefnuna einsog hann á kyn til.“
Ingibjörg segir að Rristinn kaupi at-
hygli almennings dýru verði, og lýkur
skrifi sínu á þessa leið: „Ég hef alið í
brjósti von um samfylkingu vinstri
flokkanna. Vonandi verða þeir, sem
ekki eru vinstri menn en kenna sig
samt við þá flokka, þá famir til síns
heima.“
I samtali við Alþýðublaðið í gær
staðfesti Ingibjörg að hún hefði skrif-
að bréfið. Aðspurð hvort hún hefði
haft samráð við Margréti um efni þess
svaraði Ingibjörg orðrétt: „Nei, en ég
lét hana vita af því eftir að það fór.“
Ingibjörg sagði að sér fyndist að
Kristinn hefði vegið ómaklega að
Margréti, sem að hennar mati hefur
staðið sig mjög vel sem formaður
flokksins. Ingibjörg segir að sér haft
ofboðið „árásir“ Kristins á stjómar-
andstöðuna og því hafi hún skrifað
bréfið. „Innan Alþýðubandalagsins er
ákveðin launastefna og ákveðin jafn-
aðarstefna og mér finnst Kristinn ekki
hafa farið eftir henni. Hann fer ekki
eftir stefnu flokksins," sagði Ingi-
björg. Hún sagði ennfremur: „Það er
spurning hvort hann er í vitlausum
flokki eða hvort hann er tilbúinn að
fara eftir steíhu flokksins."
Margrét Frímannsdóttir sagði í gær
að Ingibjörg Sigmundsdóttir væri sá
stjómmálamaður sem hún meti einna
mest. Þá hélt Margrét því ítrekað ffam
í samtalinu að hún vissi ekkert um
bréfið, og véfengdi að það væri eftir
Ingibjörgu Sigmundsdóttur í Hvera-
gerði. Þetta stangast algerlega á við
það sem fram kernur í máli Ingibjarg-
ar. Margrét vildi ekki tjá sig efnislega
um bréfið í DV, en sagði aðspurð að
Kristinn H. Gunnarsson ætti heima í
Alþýðubandalaginu. Hinsvegar væri
ljóst að afstaða hans í ákveðnum mál-
um hefði vakið „einhver viðbrögð"
innan flokksins.
Ekki náðist í Kristin H. Gunnarsson
í gær, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, en
hann er nú á ferð í Tyrklandi.
Frábærir
frambjóð-
endur
„Frambjóðendurnir okkar
eru nefnilega afreksfólk.
Ástþór, Guðrún, Guðrún,
Ólafur og Pétur hafa hvorki
meira né bjargað þjóðinni
frá hyldjúpum leiðindum og
kolgrænni gúrkutíð. Nú
verður aldrei vandræðaleg
þögn í viðræðum fólks;
andlausustu idjót geta orðið
samtalshetjur á kaffihúsum,
hjón sem hafa þagað sam-
an í 25 ár hafa allt í einu eitt-
hvað að tala um, leigubíl-
stjórarnir eru algerlega
óstöðvandi og taka jafnvel
aukavaktirtil að koma skoð-
unum sínum á framfæri."
Sjá grein Hrafns Jökulssonar
á blaðsíðu 2.
íslenskur Houdini. Hér má sjá Pétur Pókus, rúmlega tví-
tugan töframann, æfa svokallað spennutreyjuatriði. Hann
mun sýna það á 77. júní niðrí bæ hengdur uppá fótunum.
Hinn snaggaralegi töframaður segir þetta atriði lífshættu-
legt og nú þegar hafi þrír menn dáið þegar þeir voru að
reyna að losa sig úr spennitreyjunni. sjá viðtai á baksíðu.
■ Ný bók um mannlífið við ísafjarðardjúp
Mikið um vestfirska
karlmennsku á Isafirði
-en lítið um manndóm,
segir Þorsteinn Antons-
son um ísfirðinga.
„Ég hef ekki trú á öðru en að
þetta geti orðið til góðs,“ segir
Þorsteinn Antonsson rithöfundur
og telur ekki að ísfirðingar taki
bókinni illa. Það sem um ræðir er
ný bók eftir hann sem ber heitið
ísafjarðarkver. Höfundur gefur
bókina út sjálfur í samvinnu við Is-
prent á ísafirði.
Þorsteinn og fjölskylda hans
bjuggu í fimm ár á Isafirði og hann
sagði í samtali við Alþýðublaðið
að ísfirðingum ætti ekki að vera
ókunnugt um viðhorf sín en Þor-
steinn skrifaði reglulega pistla í
Vestfirska fréttablaðið.
„Eg álít að það mætti starfa að
uppbyggilegri hætti að bæjarmál-
um heldur en gert var þegar ég bjó
þar. Þar er þjónað mest undir það
að halda í horfi og þar með talið að
halda óbreyttri stöðu útgerðarinnar
í bæjarlffinu,“ segir Þorsteinn.
„Mannlífið kemst einhvern veg-
inn ekki að vegna þess að hugsun-
arhátturinn er svo mikið sá sami
og það fæst engin sveigja í það.
Tímarnir breytast en mennirnir
ekki með.“
Þorsteinn telur breytingar nauð-
synlegar á ísafirði og ætlar að ný-
afstaðnar bæjararstjórnarkosningar
geti orðið til þess. Kverið, sem
fæst í öllum helstu bókaverslunum,
verður boðið Isfirðingum sérstak-
lega og borið í hvert hús til sölu.
Þorsteinn veit ekki til þess að
bókaútgáfa á Isafirði hafi verið
nokkur í áratugi og hér því um
nokkurn viðburð að ræða með til-
liti til ísfirskrar menningar. „Það
vantar frá fornu fari þátt í menn-
inguna vesfirsku,“ segir Þorsteinn,
„virðingu fyrir hugviti og yfirveg-
un. Þeir kunna á tæknina enda virt-
ustu menn á fyrri tíð - galdra-
menn. Mikið er um vestfirska karl-
mennsku á ísafirði en lítið um
manndóm."
■ Tvö ár síðan R-listinn tók við stjórn borgarinnar
Imyndarsmíð R-listans í handaskolum
- segir Birgir Guðmundsson fréttastjóri. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
aukningu skatta og gjalda hafa einkennt feril R-listans.
„Það sem einkennt hefur feril R-
listans við stjórnun borgarinnar þau
tvö ár sem hann hefur haft meirihluta
er aukning skatta og gjalda á einstak-
linga og fyrirtæki. Má þar sem dæmi
nefna holræsagjaldið sem hækkar fast-
eignagjöld á allt íbúðar- og atvinnu-
húsnæði í Reykjavík um hvorki meira
né minna en 26 prósent. Þá hefur ver-
ið lagt sérstakt heilbrigðisgjald á fyrir-
tækin í borginni sem þau munu velta
út í verðlagið. Þá hefur R-listinn aukið
afgjald fyrirtækja borgarinnar til borg-
arsjóðs um mörg hundruð milljónir en
þessu verða þau að mæta með sam-
drætti í framkvæmdum eða hækkun
gjaldskráa," segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, en hann er einn þeirra ein-
staklinga sem Alþýðublaðið bað um
að leggja mat á störf R-Iistans, en um
þessar mundir eru tvö ár síðan hann
tók við stjóm borgarinnar. Vilhjálmur
segist með engu móti geta samfagnað
R- listanum eftir tveggja ára valdatíð
en segist munu fagna eftir næstu kosn-
ingar þegar kjósendur hafi hafnað R-
listanum
Birgir Guðmundsson, fréttastjóri
Tímans, segir að R- listinn sé að stór-
skaða ímynd sína og fylgi með klaufa-
skap og lélegri kynningu á málum sín-
um:
„Það hefur margt farið miður hjá R-
listanum, flest þó tiltölulega smátt í
sniðum en nóg til að stórskemma fyrir
stuðningi við hann. Kannski má segja
að kynningarstarf R- listans og ífnynd-
arsmíð hafi meira og minna farið í
handaskolum með fljótfæmislegum
ákvörðunum," segir Birgir.
Sjá miðopnu.