Alþýðublaðið - 12.06.1996, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ1996
s k o ð a n
MPYOUBLMfi
21125. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 562 5566
Útgefandi Alprent
Ritstjóri Hrafn Jökulsson
Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason
Úmbrot Gagarín hf.
Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 562 5566
Fax 562 9244
Símboði auglýsinga 846 3332
Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
Sægreifar og dauður
bókstafur
Mörg jákvæð teikn eru á lofti um efnahagsbata á íslandi eftir
nokkur mögur ár. Þar vegur þungt að á næsta fiskveiðiári verður
loksins hægt að auka fiskveiðar eftir stöðugan samdrátt. Þorsk-
veiðar munu þannig aukast um 31 þúsund tonn, samkvæmt til-
lögu Hafrannsóknastofnunar, og útlit er fyrir að á næstu árum
verði smámsaman hægt að auka veiðamar til muna. Vegna þess
fiskveiðikerfis sem er við lýði munu stórkostleg verðmæti renna
til kvótaeigenda, þarsem viðbótarafla verður úthlutað hlutfalls-
lega til þeirra sem eiga kvóta fyrir.
Kíló af þorski er nú leigt á 90 krónur og selt á um það bil 560
krónur. Það þýðir að leiguverðmæti viðbótaraflans er tæplega
tvöþúsund og áttahundruð milljónir, söluverðmæti nemur heilum
sautján milljörðum. í haust má því búast við að kvótabraskið
blómstri sem aldrei fyrr. Margir búast við að verð á leigukvóta
lækki nokkuð, en þar verður tæpast um verulegar upphæðir að
ræða. Eftirspum hins ofvaxna íslenska flota er gríðarleg, og því
geta menn tæpast gert sér vonir um að kílóið lækki nema um tíu
krónur í mesta lagi. Verð á varanlegum kvóta mun ekki lækka um
krónu enda nánast ekkert framboð en mikil eftirspum.
Sægreifamir, sem hafa sölsað undir sig kvóta síðustu ár, sjá
fram á mikla gósentíð. Þeir stunda mjög að senda stóm skipin,
sem mestur kvóti er bundinn við, til úthafsveiða en leigja kvótann
hæsta verði. Þannig hefur orðið til stétt leiguliða í íslenskri út-
gerð, sem bera nánast ekkert úr býtum. íslenski bátaflotinn er
ekki svipur hjá sjón núna miðað við það sem var fyrir örfáum ár-
um, og allir vita hvemig stjómvöld hafa í samráði við útgerðarað-
alinn þjarmað kerfisbundið að trillukörlum. Aflaaukningin í haust
mun fyrst og fremst koma hinum fáu og stóm til góða: þeir em að
fá á silfurfati þúsundir milljóna.
Samkvæmt landslögum em fiskimiðin sameign þjóðarinnar.
Það er því miður dauður bókstafur. Ef réttlætinu væri fullnægt og
lögum framfylgt í raun væm vitanlega seld veiðileyfi fyrir afla-
aukningunni, og andvirðið látið renna í sameiginlegan sjóð lands-
manna. Þannig gæti „góðærisstjóm“ Davíðs Oddssonar og Hall-
dórs Asgrímssonar til dæmis komið í veg fyrir sumarlokanir
sjúkrahúsa og stagað upp í ijárlagagatið hans Friðriks.
Forsetaefni og fjármál
Fyrir nokkm birti Alþýðublaðið stórfróðlegt erindi sem Herdís
Þorgeirsdóttir stjómmálafræðingur hélt á fundi Félags stjórn-
málafræðinga og íjallaði um fjármál og kostnað vegna kosninga-
baráttu til forsetaembættisins. Einsog Herdís benti á, em engar
reglur eða lög til um þessi efni, og em íslendingar nánast einir
siðaðra þjóða um þann vafasama heiður. Fmmskógarlögmál virð-
ast gilda við fjáröflun og enginn þarf að standa opinber reiknings-
skil á bókhaldi. Framboð til forseta er ærið kostnaðarsamt, og má
ætla að útgjöld frambjóðendanna fimm verði samtals vel yfir
hundrað milljónir.
Hvaðan koma allir þessir peningar? Þó íslendingar séu vissu-
lega rausnarlegir þegar kemur að góðum málefnum, gengur
áreiðanlega enginn að því gmflandi að það er ekki alþýða manna
sem stendur undir nema broti af kostnaðinum. Vegna þeirrar
þoku sem umlykur fjármál forsetaframbjóðenda - og ekki síður
stjómmálaflokka - verða til alskonar sögur og samsæriskenning-
ar um fyrirtæki sem „kosta“ frambjóðendur einsog hverja aðra
sápuópem eða fótboltaleik í sjónvarpi. Forsetaframbjóðendumir
hafa allir lýst opinberlega yfir því, að löggiltir endurskoðendur
muni fara yfir bókhald framboða þeirra og að reikningar verði
síðan birtir. Það er gott og blessað, en um þessi mál þarf að setja
skýrar leikreglur til að ekki kvikni minnsti vafi um að óhreint
mjöl sé í pokahominu. ■
IFrambjóðendurnir okkar eru nefnilega afreksfólk. Ástþór, Guðrún,
Guðrún, Ólafur og Pétur hafa hvorki meira né bjargað þjóðinni frá
hyldjúpum leiðindum og kolgrænni gúrkutíð.
Fimm á Fagurey
Blessaðir forsetaframbjóðendumir
er sammála um margt. Þeir eru sam-
mála um að fjölskyldan sé homsteinn
samfélagsins, að kjarnorkuvopn og
fíkniefni séu frekar óæskileg, að friður
t' heiminum sé ágætt takmark, að for-
seti íslands sé sameiningartákn þjóð-
arinnar, að forseti eigi að borga skatta,
að guð sé mikill og þarfur félagi. For-
setaframbjóðendumir em líka á einu
máli um að þeir, hver og einn, séu í
mikilli í sókn og þótt á ýmsu gangi í
skoðanakönnunum ætla þeir allir að
spyija að leikslokum.
gengur I
Gott og vel. Allt er þetta virðingar-
vert og sýnir að íslendingar þurfa
engu að kvíða um virðingu forseta-
embættisins. Ég hygg líka að næstum
allir Islendingar séu sammála forseta-
frambjóðendunum í framantöldum
málum. En ég er alveg óvenjulega
sammála þeim um eitt: Allir fram-
bjóðendur vilja nefnilega að áherslum
verði breytt við úthlutun heiðurs-
merkja, og þeir einir fái fálkaorðu sem
unnið hafa afrek af einhverju tagi.
Ríkisrekin möppudýr eiga semsagt
ekki að vera áskrifendur að heiðurs-
merkjum fyrir að mæta í vinnu (og
vera svo aldrei viðlátnir) og eiginkon-
ur þeirra eiga ekki heldur að fá heið-
ursmerki fyrir dugnað við veislumæt-
ingar. Nei, nú er að renna upp sú tíð
að afreksmenn verða metnir að verð-
leikum.
Nú þegar sautján dagar eru þangað
til í ljós kemur hver verður næsti hús-
ráðandi á Bessastöðum og fimmti for-
seti lýðveldisins finnst mér að allir
frambjóðendur eigi að gefa eitt kosn-
ingaloforð til viðbótar: Að fyrsta emb-
ættisverkið verði ekki að hleypa inn
sumrinu eða klambra saman mærðar-
fullri þakkarræðu handa þjóðinni -
heldur að næla orðum í það sómafólk
sem gaf kost á sér sem forseti fslands
en náði ekki kjöri.
Frambjóðendumir okkar em nefhi-
lega afreksfólk. Ástþór, Guðrún, Guð-
rún, Ólafur og Pétur hafa hvorki meira
né bjargað þjóðinni frá hyldjúpum
leiðindum og kolgrænni gúrkutíð. Nú
verður aldrei vandræðaleg þögn í við-
ræðum fólks; andlausustu idjót geta
orðið samtalshetjur á kaffihúsum, hjón
sem hafa þagað saman í 25 ár hafa allt
í einu eitthvað að tala um, leigubíl-
stjóramir em algerlega óstöðvandi og
taka jafnvel aukavaktir til að koma
skoðunum sínum á framfæri.
Um hvað væm íslendingar að tala
ef ekki væm frambjóðendumir okkar
fimm?
Listinn er hrollvekjandi: Evrópu-
keppni í fótbolta, veðrið, deilur við
Norðmenn, veðrið, Listahátíð, veðrið,
sumarlokanir á sjúkrahúsum, veðrið.
Og svo dálítið meira urn veðrið.
Nei, við getum velt fyrir okkur pen-
ingunum hans Ástþórs og því hvort
hann sé hugsjónamaður, geggjaður
hugsjónamaður eða bara geggjaður.
Við getum rætt fram og aftur um hið
dularfulla fyrirtæki hans á Jómfrúreyj-
um, hvort íslenski jólasveinninn hafi
virkilega verið blindfullur í Sarajevo
að gefa múslimabömum jólagjafir frá
Jesú Kristi, hvort Önundur Bjömsson
sé ekki réttur maður á réttum stað sem
fjölmiðlafulltrúi. En svo skulum við
fyrir alla muni gefa honum kredit fyrir
að hefja hina opinberu kosningabar-
áttu uppúr þeim seigdrepandi leiðind-
um sem ella hefðu umlukið okkur í
margar vikur.
Við getum gaumgæft hvort Ólafur
Ragnar Grímsson hafi verið njósnari
KGB, reynt að rifja upp alla stjóm-
málaflokkana sem hann hefur verið í
og örlög þeirra, við getum reynt að
komast að niðurstöðu um hvort Ólafur
trúir á guð eða hvort guð trúir á Ólaf.
Við getum rifjað upp þegar Ólafur
reyndi að skjóta niður Flugleiðir og
sökkva Hafskipum, hvernig hann
skrökvaði áreiðanlega að dómara og
hvernig hann gerði ekki einhvern
Nand Khemka að ræðismanni.
Við getum reynt að útskýra hvemig
Guðrúnu Pétursdóttur tókst að koma
fylgi sínu úr 35 prósentum niður í tíu á
tveimur mánuðum, og fylgst með dag-
legum tilkynningum frá henni um að
núna sé kosningabaráttan að byrja.
Við getum þrefað um hvort Ólafur
Hannibalsson taki sig betur út í ála-
fossúlpu eða Hugo Boss, og kannski
komist að því hvað Þorsteinn Pálsson
hafi eiginlega á móti Guðrúnu Péturs-
dóttur. Ef þetta er ekki nóg þá getum
við sett okfcur fyrir sjónir æfingabúð-
irnar sem hún ætlar að setja upp á
Álftanesi áðuren hún sendir friðarvík-
inga til Nígeríu og Tsjetsjenu að semja
frið í nafhi forseta íslands.
Við getum líka reynt að komast að
því hvort Pétur Kr. Hafstein er bara
leppur Davíðs og Tanna, rifjað upp
blaðagreinina þarsem hann sagði
dómgreindarbrest að hafna Þorsteini
Pálssyni og íhugað hvort hann sé
kannski enn sömu skoðunar. Við get-
um slegið á létta strengi og rifjað upp
brandarann um sjálfvirku hurðirnar
sem opnuðust ekki fyrir Pétri í upphafi
baráttunnar; og haft til marks um áhrif
leiklistarkennarans Baltasars Kormáks
að hann hafi skrúfað svo rækilega frá
útgeislun Péturs að nú opnist jafnvel
hurðir flugvéla í fimmþúsund feta
hæð.
Og ef þetta skyldi nú ekki duga í
kaffitímanum er hægt að beina talinu
að Guðrúnu Agnarsdóttur, og spyrja
hvað hún gerir eiginlega við óafmáan-
legt brosið þegar hún fer að sofa á
kvöldin. Við getum dáðst að þeim
hæfileika hennar að geta ævinlega tal-
að í löngu og vönduðu máli um eitt-
hvað sem okkur hinum er að vísu ekki
alveg ljóst hvað er.
Þetta fólk á alltsaman að fá orður
fyrir afrek í þágu íslensku þjóðarinnar.
Éf ekki væru þessir fórnfúsu fram-
bjóðendur værum við að tala um veðr-
ið - jafnvel nýjustu tilraunir til að
hætta að reykja.
Lengi lifi forsetaframbjóðendur ís-
lands. ■
Atburðir dagsins
1667 Jean-Baptiste Denys, líf-
læknir Lúðvíks XIV, gefur 15
ára gömlum dreng blóð úr kind.
1809 Píus VII páfi bannfærir
Napóleon keisara. 1991 Mela-
völlurinn í Reykjavik vígður.
1913 Fánatakan: Skipherra á
dönsku varðskipi lét taka blá-
hvítan fána af báti í Reykjavík-
urhöfn. Þetta vakti mikinn úlfa-
þyt og mótmæli, og ýtti undir
kröfur um íslenskan fána. 1930
Stríði Paragvæ og Bólivíu lýk-
ur: 100 þúsund féllu. 1974
Sterkasú jarðskjálftinn í tveggja
mánaða skjálftahrinu í Borgar-
firði fannst þennan dag og
mældist 6,3 stig. 1991 Boris
Jeltsín sigrar í fyrstu lýðræðis-
legu kosningum Rússlands.
1991 lbúar Leníngrad sam-
þykkja með 55 prósent atkvæða
gegn 43 að breyta nafni borgar-
innar aftur í St. Pétursborg.
Afmælisbörn dagsins
George Bush 1924, forseti
Bandaríkjanna 1988-92. Anne
Frank 1929, hollensk gyðinga-
stúlka sem lét lífið í útrýming-
arbúðum nasista. Dagbók
hennar var gefin út eftir stríð.
Bylting dagsins
Yður byltingarmenn hefur á
stundum skort réttlætið, ævin-
lega kærleikann. La Mennais.
Annálsbrot dagsins
Einn morgun um lamba-
gangnaleyti fór stúlka sú, er
Helga hét, og átti heima á Hill-
um á Galmarsströnd til fjár, og
kom eigi heim aptur; var leitað
að henni þrisvar af ntörgum
mönnunt og fannst hún ekki.
Vallaannáfl 1719.
Málsháttur dagsins
Sundlar sjálfræðið.
Virðing dagsins
Betra er að deyja virðulega en
lifa skammsamlega.
Flóamannasaga.
Orð dagsins
Sólin heim úr suðri snýr,
sumri lofar hlýju;
ó, cið ég vœri orðinn nýr
og vnni þér að nýju!
Jónas Hallgrímsson, 1807-1845.
Skák dagsins
Til er skemmtileg stef sem
kallað er „stigamát" og tekur
nafn sitt af tröppugangi sem
notaður er við að aflífa kóng
andstæðingsins. Örsjaldan sést
slíkt í kappskákum enda þarf
staðan að vera einstök í meira
lagi. Skák dagsins var tefld í
Kaupmannahöfn árið 1930.
Norman hafði hvítt en lukku-
legur Hansen svart: sá síðar-
nefndi gat nú beitt stigamáti.
m
mt
mtm ■
S ííW/
•
■fiJL S
■t £*'
íbjlbS
Svartur mátar í fjórum leikj-
um.
1. ... Hg3+ 2. Kh2 Hg2+ 3.
Khl Hh2+ 4. Kgl Hhl Mát.