Alþýðublaðið - 12.06.1996, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ1996
m a m ó t
■ Nú eru rétttvö ár síðan Reykjavíkurlistinn tók við stjórn borgarinnar.
Hvað hefur tekist vel á þessum tveimur árum? Hvað hefur farið miður? Þetta eru spurningar sem
Alþýðublaðið lagði fyrir nokkra valinkunna einstaklinga sem láta sig borgarmálin miklu skipta
Birgir Gudmundsson
fréttastjóri Tímans
R-listirm er að
stórskaða ímynd
sína
R-listinn hefur gert marga góða
hluti á tveggja ára ferli sínum. Það
sem mestu munar er að hann hefur
náð að styrkja innviði borgarkerfisins
og borgarrekstursins sem voru famir
að fúna hættulega mikið.
Það allra besta sem R-listinn hefur
gert er að taka fjármálastjóm borgar-
innar föstum tökum og koma höndum
á hana. Þar hafa verið stigin stór skref
fram á við ekki síður en í Kína - óska-
landi Alþýðublaðsins - á einum tíma.
Hvort þennan árangur ber að flokka
sem stórvirki eða sjálfsagðan hlut er
svo aftur erfiðara að dæma um því
ástandið gat eiginlega ekki verið
verra.
Önnur innviðsmál borgarsamfélags-
ins sem tekið hafa stórstígum framför-
um em dagvistar- og skólamál. Gríð-
arleg uppbygging hefur verið á þeim
sviðum og ljóst að verið er að vinna
upp margra ára vanrækslu. Þriðja stór-
málið er holræsaframkvæmdagerðin
og það hugrekki að ganga í að af-
gréiða og klára það mál jafnvel þó það
kostaði óvinsældir með holræsagjald-
ið.
Það hefur margt farið miður hjá R-
listanum, flest þó tiltölulega smátt í
sniðum en nóg til að stórskemma fyrir
stuðningi við hann. Kannski má segja
að kynningarstarf R- listans og ímynd-
arsmfð hafi meira og minna farið í
handaskolum með fljótfæmislegum
ákvörðunum. Holræsagjaldið og röð
ýmissa þjónustugjaldshækkanna ann-
arra hafa greipt skattahækkunarorð-
sporið í enni R-listans án þess að hann
eigi það neitt sérstaklega skilið. Þetta
verður hins vegar hálfu verra vegna
þess að aðhaldssemin og spamaðurinn
sem sífellt er talað um fer fram á sama
tíma og almenningur fær á tilfinning-
una að verið sé að bmðla á öðmm
sviðum, til dæmis með því að henda
milljónatugum og hundruðum í Laug-
ardalsvöllinn. Þá er ásýnd bmðls og
spillingar yfir ráðningum milli- og
toppstjómenda í skipulagsbreytingum
sem ekki hafa verið settar fram á
sannfærandi hátt og almenningur spyr
sig orðið hvort það sé virkilega þannig
að engir hæfir starfskraffar finnist
lengur í borginni nema flokksbundnir
eða kunnir Alþýðubandalagsmenn.
R-listinn er að stórskaða ímynd
sína og fylgi með klaufaskap og lé-
legri kynningu á málum sínum.
Það sem R-Iistinn þarf að gera er
tvennt. f fyrsta lagi að stilla útgjalda-
hækkunum hvers konar í hóf á seinni
hluta kjörtímabilsins og halda sínu
stríki í að styrkja kerfið. I öðm lagi að
fara á námskeið í blómaskreytingum
til að fá hugmynd um hvemig pakka
megi inn góðum pólitískum málum
þannig að þau líti ekki út eins og
bréfasprengja!
Atli Rúnar Halldórsson
fjölmiðlaráögjafi
Minnisvarðar
skipta meira máli
en bókhald
Ingibjörg Sólrún hefur staðið sig vel
sem borgarstjóri. Það finnst mér eigin-
lega standa upp úr. Út á hana náði
Reykjavíkurlistinn völdum og ef hún
verður ekki borgarstjóraefni að tveim-
ur ámm liðnum þarf núverandi meiri-
hluti ekki að bíða eftir kosningaúrslit-
um til að búa sig undir tilvemna á
bekkjum stjómarandstöðunnar í fund-
arsal Ráðhússins á næsta kjörtímabili.
Sólrún er borgarstjóri eins og ég vil
hafa og meira að segja gæti vel komið
til greina að ég færi á kjörstað af því
tilefni - sem ekki gerðist síðast.
Reykjavíkurlistinn skapaði miklar
væntingar í kosningabaráttunni um að
búa til ný störf og fækka atvinnulaus-
um. Háar atvinnuleysistölur núna em
augljóst hættumerki og spurt verður
um efndir. Sama er um málaflokkinn
dagvistir bama. Þar þýðir ekki að
bjóða kjósendum nema stórfelldar
umbætur í ljósi kosningaloforða og
ekki verður annað séð en ýmislegt sé
þar í gangi. Sumt kostar átök, sem er
bara hið besta mál. Pólitíkusar eiga að
taka af skarið og verða að láta yfir sig
ganga þó einhverjir tryllist. Það er
klént að Reykjavíkurlistinn lét pressa
sig til að hætta við að gera Asmundar-
sal að dagvist bama - með fullri virð-
ingu fyrir menningu og listum. Ég á
sjálfur hagsmuna að gæta, með bam á
biðlista í slétt tvö ár!
Meirihlutinn hælir sér af því að
hafa lagað vemlega til í fjármálum
borgarinnar og hafa kannski eitthvað
til síns máls þar. Starfið hefúr þannig
verið meira inn á við en út á við á fyrri
hluta kjörtímabils. Ekki er nema gott
um það að segja að hafa bókhaldið í
lagi, en slíkt skiptir bara litlu sem
engu máli þegar kemur að uppgjörinu
stóra vorið 1998. Minnisvarðar skipta
meira máli í pólitík en bókhald, hvort
sem mönnum líkar nú betur eða verr.
Margrét S. Björnsdóttir
endurmenntunarstjóri Háskólans
Ingibjörg má ekki
týnast inn í fjög-
urra milljarða
króna húsi
Reykjavíkurlistanum hefur augljós-
lega tekist að snúa við þeirri óheilla-
þróun sem var í fjármálum borgarinn-
ar í tíð Sjálfstæðisflokksins þar sem
stórskuldum hafði verið safnað.
Reykjavíkurlistinn hefur tekið mjög
myndarlega á dagvistarmálum, sem
auðvitað var löngu brýnt að koina í
horf. Viðleitni Reykjavíkurlistans til
að opna stjómkerfi borgarinnar er
mjög ánægjuleg. Reglulega eru haldn-
ir opnir nefndarfundir. Einnig hafa
verið haldnir vel undirbúnir málefna-
fundir um menningar- og skipulags-
mál. Borgarstjóri hefur haldið fundi í
hverfum borgarinnar í tengslum við
fjárhagsáætlanagerð.
Reykjavfkurlistinn vann sinn sigur
fyrst og fremst vegna þess að borgar-
búar höfðu trú á Ingibjörgu Sólrúnu
og forystuhæfileikum hennar. Það
sem mér finnst á skorta er að Ingi-
björg sé sýnilegri í almennri umræðu í
þjóðfélaginu. Hún má ekki týnast inni
í því fjögurra milljarða króna húsi sem
hún vinnur í.
Loks langar mig til að benda á að
R-listinn er búinn að afsanna
glundroðakenningu Sjáfstæðisflokks-