Alþýðublaðið - 12.06.1996, Side 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚNÍ1996
m e n n i n g
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti
Auglýsing
um kjörskrá vegna kjörs
forseta íslands.
Kjörskrár vegna kjörs forseta íslands sem fram á að fara
laugardaginn 29. júní 1996 skulu lagðar fram eigi síðar
en miðvikudaginn 19. júní 1996.
Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða
á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sér-
staklega. Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrif-
stofutíma til kjördags.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er
bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli
er vakin á því að sveitarstjórn getur nú allt fram á kjör-
dag gert viðeigandi leiðréttingar á kjörskrá, ef við á.
Jafnframt hefur sérstök meðferð kjörskrármála fyrir
dómi verið felld úr gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 11. júní 1996.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 105 REYKJAVÍK SÍMI 563 2340 MYNDSENDIR 562 3219
Hugmyndasamkeppni
um skipulag á
Grafarholti
Reykjavíkurborg efnir til hugmyndasamkeppni um
skipulag íbúðarbyggðar á Grafarholti í samstarfi við
Arkitektafélag íslands.
Rétttil þátttöku hafa allir íslenskir ríkisborgarar.
Veitt verða verðlaun að fjárhæð kr. 3,25 millj. og til inn-
kaupa 500 þús.
Gert er ráð fyrir því, að höfundar tillagna, sem dóm-
nefnd velur í 1. 2. og 3. sæti, eigi þess kost að útfæra
nánar afmarkaðan hluta samkeppnissvæðisins á þeim
forsendum og hugmyndum, sem höfundur verðlaunatil-
lögunnar í 1. sæti byggir á.
Ennfremur getur Borgarskipulag/skipuiagsnefnd falið
einstökum öðrum keppendum lokaútfærslu minni af-
markaðra reita á samkeppnissvæðinu. Borgarskipulag
hefur heildarumsjón með áframhaldandi skipulagsvinnu
í hverfinu öllu í samráði við höfund þeirrar tillögu, sem
hlýtur 1. verðlaun.
Keppnislýsing verður látin í té endurgjaldslaust á skrif-
stofu Arkitektafélags íslands á milli kl. 8:00 og 12:00
virka daga frá og með miðvikudegi 12. júní 1996.
Önnur gögn verða afhent á sama stað gegn skilatrygg-
ingu að upphæð kr. 5.000.- Skiladagur er föstudagur
15. nóvember 1996.
Áætlað er að dómnefnd Ijúki störfum í desember 1996.
Reiknistofa bankanna
Óskar eftir að ráða sérfræðing (kerfisforritara) í tækni-
svið reiknistofunnar.
I starfinu felst uppsetning og viðhald tölvustjórnkerfa,
einkum gagnagrunna, og mun framhaldsmenntun og
þjálfun fara fram bæði hérlendis og erlendis.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólapróf í tölvunar-
fræði eða verkfræði og umtalsverða reynslu af tölvu-
vinnu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SÍB og bank-
anna.
Umsóknarfrestur er til 18. júní nk.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmda-
stjóri tæknisviðs RB.
Umsóknir berist á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást
hjá Reiknistofu bankanna, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Sími 569 8877.
t
Eiginmaður minn og faðir
Bogi Ingjaldur Guðmundsson
fyrrverandi verkstjóri
Lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur
10. júní.
Fyrir hönd aðstandenda,
Petrína Margrét Magnúsdóttir
Sigríður Bogadóttir.
■ Stanley Kubrick er einn virtasti kvikmyndaleikstjóri þessarar
aldar. Örn Arnarson rekurferil hins dáða leikstjóra
Snillingurinn
Kubrick
Stanley Kubrick er án efa
einn merkasti listamaður
samtímans. Hinir einstæðu
hæfileikar hans hafa unnið
honum sess meðal frægustu
leikstjóra heims eins og
Bergmans, Eisensteins og
Welles. Verk hans hafa verið
lofuð og löstuð af gagnrýn-
endum og því má fullyrða
að honum hafi aldrei tekist
að gera mynd sem hafí ekki
verið umdeild. Hann hefur
verið gróskumikill listamað-
ur í miðli sem annars stjóm-
ast af endurtekningum og
hugmyndaleysi.
Kubrick fæddist í New York árið
1928. Foreldrar hans voru vel mennt-
að millistéttarfólk. Faðir hans kynnti
hann fyrir ljósmyndun þegar hann var
þrettán ára og Kubrick var haldinn
ljósmyndaástríðu upp frá því.
Kubrick gekk ekki vel í skóla,
meðal annars vegna þess hve mikill
tími fór í áhugamál hans tvö, ljós-
myndun og taflmennsku. Eftir að hafa
lokið grunnskólaprófi vann hann sem
ljósmyndari hjá Look tímaritinu. Hann
þótti sýna mikla hæfni í því starfi og
var fljótt sendur út af örkinni til fjar-
lægra heimshoma. Frítíma sínum, sem
var víst talsverður, eyddi Kubrick í
bíógláp og taflmennsku. Hann tefldi
mikið í Marshall og Manhattan skák-
klúbbnum þar sem margir af bestu
skákmönnum Bandaríkjanna vöndu
komur sínar og einnig á Washington
torgi þar sem menn tefla upp á pen-
inga.
Fyrstu sporin í kvikmynda-
heiminum
Eftir að hafa starfað fram á síðari
hluta fimmta áratugarins sem ljós-
myndari hjá Look tímaritinu hóf Ku-
brick að gera ódýrar heimildarmyndir
fyrir March of Time fréttastofuna. Ár-
ið 1953 ákvað Kubrick að láta slag
standa og hóf gerð sinnar íyrstu leiknu
myndar. Hann fékk fé að láni hjá vin-
um og vandamönnum og lét félaga
sinn, ljóðskáld í Greenwich Village,
skrifa handritið. Útkoman var kvik-
myndin Fear and Desire. Öll stóru
kvikmyndaverin höfnuðu henni en at-
hafnamaðurinn og listunnandinn Josef
Burstyn sýndi hana í einu kvikmynda-
húsa sinna í New York. Þótt hún hafi
fengið dræma aðsókn vakti hún tölu-
verða athygli gagnrýnenda þar í borg.
Þetta hvatti Kubrick til að hefja gerð
annarrar kvikmyndar Killers Kiss.
Hún var gerð árið 1954 og sýnd 1955.
Kvikmyndin var fjármögnuð með
sama hætti og Fear and Desire og ör-
lög hennar voru lík, fáir sáu hana en
gagnrýnendur lofuðu Kubrick og
sögðu myndir hans bera vott um að
þar væri mikill hæfileikamaður á ferð.
Næsta mynd Kubricks var glæpa-
myndin The Killing (1956). The Kil-
ling var bam síns tíma, undir áhrifum
svonefndra film noir mynda. Svart-
hvítar mannverur, klæddar í jakkaföt
og dragtir, umvafnar tóbaksreyk með
pírð augu og stutt hnyttin tilsvör við
hvert tækifæri. The Killing var í alla
staði vel heppnuð, hún hafði allt það
sem Kubriclc átti eftir að vera þekktur
fyrir, snilldarlega myndatöku, gálga-
húmor og ofbeldi.
Fyrsta meistaraverkið
Ári eftir að The Killing kom fyrir
sjónir almennings gerði Kubrick sitt
fyrsta meistaraverk, Paths of Glory.
Sú mynd gerði honum jafnt undir
höfði og helstu snillingum kvik-
myndabransans.
Paths of Glory gerist í herbúðum
Frakka í fýrri heimsstyrjöldinni. Yfir-
menn hersins ákveða að gera áhlaup á
það sem virðist vera óvinnandi vígi
Þjóðvetja. Þeir bjóða ungum og metn-
aðarfullum hershöfðingja að stýra
árásinni og lofa honum stöðuhækkun
heþpnast hún. Árásin er að sjálfsögðu
algjörlega misheppnuð og mannfall
mikið. I bræðiskasti skipar hershöfð-
inginn að efnt verði til réttarhalda þar
sem óbreyttir hermenn skuli sóttir til
saka vegna heigulsháttar. Ofursti að
nafni Dex, leikinn af Kirk Douglas,
tekur að sér að verja hina ákærðu
menn. Hann ver mennina af mikilli
fæmi en það breytir ekki því sem var
ákveðið fyrirfram. Mennirnir eru
dæmdir til dauða til þess eins að hylja
yfir mistök æðstu stjómenda.
Á ferli sínum hefur Kubrick sýnt
stríði mikinn áhuga. Myndir eins og
Dr. Strangelove, Full Metal Jack, og
að vissu leyti Barry Lyndon, bera vott
um það. En óhætt er að fullyrða að
honum hefur aldrei tekist eins og vel
og í Paths of Glory að varpa ljósi á þá
brenglun og vitfirringu sem em ævin-
lega fylgifiskar stríðsbrölts.
Vegur Kubricks óx til muna eftir
gerð Paths of Glory. Áhrifamenn í
Hollywood fóm að hafa augastað á
honum. Hann var fenginn til að ljúka
því þrekvirki að leikstýra Spartacus
eftir að Anthony Mann var rekinn eftir
aðeins einnar viku störf.
Kubrick stóð nú með pálmann í
höndunum, hann var orðinn virtur
leikstjóri. En hann vildi forðast þau
örlög að verða einskonar „hired gun“
fyrir Hollywood, það er að segja koma
inn og leikstýra kvikmyndum þar sem
hann hafði á engan hátt komið nálægt
frumvinnslu, líkt og hann gerði í
Spartacus. Hann vildi gera kvikmynd
sem myndi tryggja honum vinsældir
og íjárhagslegt sjálfstæði til að kvik-
mynda það sem hann vildi. Og það
varð til þess að árið 1961 hóf hann að
kvikmynda metsölubók Vladimars
Nabokovs, Lolita. Bókin sem fjallar
um kynferðislegt samband fullorðins
manns við tíu ára stúlku var afar um-
deild í Bandaríkjunum. Þótt hún fengi
metsölu og gríðarlegt lof gagnrýnenda
fordæmdu margir vammlausir Banda-
ríkjamenn bókina.
Kubrick vissi að það yrði ekki auð-