Alþýðublaðið - 12.06.1996, Page 8
4t
Alla daga
Frá Stykkishólmi
kl. 10.00 og 16.30
Frá Brjánslæk
kl. 13.00 og 19.30
Bókiö bíla með
fyrirvara í síma
438 1120 og
MHÐUBLMÐ
4?
Alla daga
Frá Stykkishólmi
kl. 10.00 og 16.30
Frá Brjánslæk
kl. 13.00 og 19.30
Bókiö bíla meö
fyrirvara í síma
438 1120 og
Miðvikudagur 12. júní 1996
85. tölublað - 77. árgangur
Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk
■ Ungur íslendingur ætlar að fremja lífshættulegttöfrabragð
17. júní. Jakob Bjarnar Grétarsson hlustaði dolfallinn á hann
segja af töfraheimum
Það er dýrt að
vera töframaður
- segir Pétur Pókus sem ætlar að losa sig úr spenni-
treyju háttyfir jörðu.
„Ég er töframaðurinn Pétur Pó-
kus,“ sagði ungur maður sem datt
óvænt inná ritstjóm Alþýðublaðsins
í gær. 17. júní nálgast og unnendur
stórbrotinna töfrabragða eiga von á
glaðningi. f anda Houdinis ætlar
Pétur Pókus að losa sig úr spenni-
treyju hangandi á löppunum á aðal-
sviðinu í Lækjargötu.
„Sko,“ útskýrir Pétur Pókus.
„Þetta atriði er hugsað þannig að ég
er settur í spennitreyju, reirður vel
eins og lög gera ráð fyrir og svo er
ég hífður upp í loftið. Ég veit ekki í
hvað mikla hæð. Það fer eftir svið-
inu. Ég vildi fá krana og fara ein-
hverja 10 metra uppí loftið en það
reyndist ekki hægt. Svo berst ég
fram og aftur og reyni að losa mig.“
Það er enginn annar en töframað-
ur töframannanna, Houdini heitinn,
sem er höfundur þessa atriðis að
losa sig úr spennitreyju. Pétur Pó-
kus segir það lífshættulegt. „Nú
þegar hafa þrír menn látist við að
reyna það og margir slasað sig.
Þetta verður hugsanlega mitt síðasta
atriði," segir töframaðurinn ungi og
það fer hrollur um blaðamann Al-
þýðublaðsins.
/ hremmingum með
Steini Ármanni
Töframaðurinn er ekki nema 22
ára og heitir réttu nafni Pétur Gísli
Finnbjömsson en Pétur Pókus er að
sjálfsögðu ólíkt galdralegra. Barn-
ungur fékk Pétur áhuga á töfra-
brögðum og þar réði mestu móður-
bróðir hans sem lék þann leik að
öngla smápeningum úr eyra frænda
síns. Síðar fór Pétur Pókus til Lond-
on til að gerast lærlingur hjá Alan
Alan sem var heimsfrægur á árun-
um 1950-60 og var þá kallaður
Houdini númer 2. „Alveg magnaður
náungi,“ segir Pétur Pókus um læri-
meistara sinn. „Hann hefur meðal
annars þjálfað menn á borð við
David Copperfield sem er einn
fremsti töframaður heims nú um
stundir.“
Alan Alan kenndi Pétri bragðið
sem hann ætlar að leika 17. júní en
sjálfur hefur Pétur verið að leiða
innfædda í heim töfranna. Alþýðu-
blaðið hefur spumir af því að Pétur
hafi meðal annars þjálfað Óskar
Jónasson kvikmyndaleikstjóra fyrir
hlutverk sem hann leikur í Djöfla-
eyjunni. „Ja, ég er náttúrulega svo
ungur að ég ætti ekki að vera að
kenna. En ég var svona að hjálpa
honum með ákveðin atriði.
Pétur ætlaði að sýna spennitreyju-
atriðið fyrr en hann lenti í bílslysi
sem tafði hann verulega. „Við vor-
um á Laugarvatni að skemmta, ég
og Steinn Ármann grínari, í
Menntaskólanum þar og erum á
leiðinni í bæinn í vondu veðri. Það
var algjör blinda. Þetta var 23.
febrúar. Við erum á 60 kílómetra
hraða í mesta lagi. Svo ætlum við
að fara að taka beygju en það tekst
ekki betur en svo að jeppinn hans
Pétur Pókus æfir spennutreyjuat-
riðið í Gym '80.
Steins veltur og við förum einn og
hálfan hring. I fyrstu héldum við að
enginn væri slasaður og allt í góðu
nema bíllinn - hann var vel slasað-
ur. En daginn eftir vakna ég með of-
salega verki í öllum líkamanum og
fer uppá slysavarðstofu. Það kemur
í ljós að hægri hönd mín er mjög
máttlítil og það hefur seinkað mér.
Það stóð til að ég gerði þetta atriði í
Dagsljósi en það varð ekkert úr
því.“ Áðspurður telur Pétur Pókus
Stein Ármann í sjálfu sér ekki
slæman bílstjóra. „Þetta var ekki
síður mér að kenna,“ segir hann og
ber fremur blak að bflstjórahæfileik-
um hafnfirska leikarans en hitt.
Ruddalegi töframadurinn
Að sögn Péturs Pókusar þá er það
hart að vera töframaður á Islandi.
Markaðurinn sé lítill og sífellt þurfi
að brydda uppá nýjungum. „En
þetta er mjög skemmtilegt. Maður
kynnist fullt af frægu og góðu fólki.
Ja, eða frægu innan gæsalappa.
Frægðin er afstæð á Islandi."
Ekki hjálpar það uppá sakimar að
mikil vinna fer í það að æfa töfra-
brögðin og öll hjálpartæki eru dýr.
„Það er dýrt að vera töframaður.
Það háir mér,“ segir Pétur Pókus.
„Ég er að leita mér að styrktaraðila.
Það er ekki mikla peninga uppúr því
að hafa að skemmta á þessum litla
markaði. Þó eru ýmis teikn á lofti.
Það er uppgangur í töfrabransanum.
Það á alveg að vera hægt að galdra
á fslandi eins og annars staðar.“
Að undanförnu hefur hálfgert
grínæði ríkt á íslandi það virðist
hafa tekið við af söngleikjafárinu.
Það er eins og að ef einhver fær
hugmynd sem gengur upp feti allir í
sömu fótspor. Pétur Pókus segir að
ýmsir möguleikar séu að opnast fyr-
ir töframenn á íslandi og að töfra-
brögð tengist til dæmis gríni á
margvíslegan máta. „Töframenn eru
oft með grín í sínum atriðum og
geta verið mjög fyndnir. Sjálfur hef
ég tekið þann pól í hæðina að vera
alvarlegur, jafnvel ruddalegur og
það hefur gefíst vel. Það hefur mik-
ið grín komið út úr því.“
Það er ýmislegt á döfinni hjá
Pétri Pókusi og hann er að æfa ný-
stárlegt atriði sem ekki er tímabært
að greina frá. En blaðamaður Al-
þýðublaðsins getur fullyrt að það
verður spennandi. Áður en Pétur
yfirgaf skrifstofuna var hann beðinn
um að sýna nokkur brögð og það
stóð ekki á því. Smámynt og sígar-
ettur hurfu og birtust síðan á ólík-
legustu stöðum. „Jújú, en ég æfi
mig stundum á vinum mínum,“ seg-
ir Pétur Pókus þegar hann er spurð-
ur hvort það sé ekki mikið um að
það sé kvabbað í honum með að
sýna brögð. „En það er eins og ein-
hver sagði: Við grínararnir og töfra-
mennirnir fáum einhverja ágenga
karla í hausinn sem endalaust vilja
segja okkur brandara og sýna töfra-
brögð meðan poppararnir sitja að
glæsikvenndunum."
Og blaðamaður Alþýðublaðsins,
sem var kominn á fremstu nöf með
að sýna Pétri ákveðinn spilagaldur
sem hann kann næstum því, er
ánægður með að hafa látið að ógert.
■ Námskeið fyrir söngvara
og söngnemendur
Gerrit Schuil
leiðbeinir
Dagana 18. til 29. júní heldur hol-
lenski tónlistarmaðurinn Gerrit Schuil
námskeið fyrir söngvara og söngnem-
endur í Gerðubergi.
Gerrit Schuil er hollenskur píanóleik-
ari, hljómsveitar- og óperustjóri sem bú-
ið hefur hér á landi undanfarin ár. Hann
hefur um árabil þjálfað og leikið undir
með virtum söngvurum víða um heim.
Meðal þeirra sem hann hefur starfað
með eru Hans Hotter, Birgit Nilson, Joan
Sutherland, Elísabet Schvarzkopf, Anton
Dermota og Elly Amerling. Síðan Gerrit
settist að á íslandi hefur hann starfað
með fjölmörgum íslenskum söngvurum.
Gerrit hefur komið fram víða um
heim, leikið með þekktum söngvurum
og stjómað virtum hljómsveitum meðal
annars Hollensku útvarpshljómsveitinni.
Síðan Gerrit flutti til fslands hefur hann
tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi,
hann hefur stjómað Sinfóníuhljómsveit
íslands og Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands auk þess að taka þátt í leikhúsupp-
færslum og koma fram með ýmsum ís-
lenskum tónlistarmönnum.
Á námskeiðinu verður boðið upp á
leiðsögn í ópemsöng, ljóðasöng og ora-
toríum. Unnið verður frá kl. 10.30 til
kl. 17.30, gert er ráð fýrir að hver nem-
andi fái sem svarar minnst fjórum einka-
tímum og fylgist með þjálfun annarra
þátttakenda.
■ Breyting á fram-
kvæmdastjórn ISAL
Christian
Roth hættir
Dr. Christian Roth, sem verið hefur
forstjóri ISAL - íslenska álfélagsins hf.
- frá 1988 lætur af því starfi að eigin ósk
í lok desember 1996. Frá 1. janúar 1997
tekur Rannveig Rist við sem forstjóri IS-
AL. Rannveig, sem er verkfræðingur og
með viðskiptafræðimenntun (MBA),
hefur starfað hjá ISAL frá árinu 1990 og
er nú deildarstjóri yfir steypuskála fyrir-
tækisins. Staðgengill forstjóra verður
áfram Einar Guðmundsson, rekstrar-
stjóri.
■ Landsbankinn
Landsbankinn
ver sparifjár-
eigendur
Auglýsing Landsbanka íslands í
Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag
þar sem bankinn kynnti að hann myndi
taka forystu um að veija hagsmuni spari-
fjáreigenda vegna álagningar skatts á
sparifé hefur vakið verðskuldaða athygli.
Hún hefur þó einnig að því er virðist
valdið misskilningi hjá einhverjum.
Þannig telur þingmaður úr skattlagning-
arnefndinni að Landsbankinn hyggist
greiða skattinn fyrir sparifjáreigendur
með styrk frá ríkinu. Þetta er rangt.
Bankinn fékk engan styrk en hinsvegar
heimild til endumýjunar hluta víkjandi
láns sem hann hefur verið að greiða nið-
ur. Þetta er óskylt styrkveitingu og er
ekki leið til að greiða niður sparifjárskatt.
Fram kom að Landsbankinn geti ekki
breytt vöxtum með handafli. Það stendur
ekki til. Ljóst er að skattlagning sparifjár
er aðgerð sem hefur áhrif til hækkunar
markaðsvaxta í landinu. Það kont marg-
sinnis fram í þinginu og þjóðfélaginu
þegar fjármagnstekjuskattur var til um-
ræðu. Landsbankinn stendur vörð um
hagsmuni sparifjáreigenda. Varðandi
lága ávöxtun bankanna á almennum
sparisjóðsbókum er þess að geta að þær
em fyrst og fremst til þess fallnar að nota
sem veltufjárreikninga enda önnur inn-
lánsform með hærri ávöxtun í boði varð-
andi allan annan sparnað. Kemur þvt
nokkuð á óvart að fyrrverandi andstæð-
ingur skattlagningar á sparifé, sem nú
stóð að tillögunum um skattlagninguna,
skuli með þessum hætti tala gegn hags-
munum spttriljáreigenda.
Afmælisfagnaður
Reykj avíkurlistans
Afmælisfagnaður Reykjavíkurlistans
verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 13.06 '96
en þann dag fyrir tveimur árum síðan tók
Reykjarvíkurlistinn við stjórnartaumunum í Reykjavík.
Húsið opnar klukkan 20.00
Ókeypis aðgangur.
Dagskrá:
- Kynnar kvöldsins verða þau Tómas R. Einarsson og Linda Blöndal.
- Ávarp borgarstjóra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
-Ávarp, Skúli Helgason.
- Strengjakvartett, nemendur úrTónlistarskóla Reykjavíkurflytja
strengjakvartett eftir Kolbein Einarsson.
- Margrét Sigurðardóttir söngkona syngur nokkur lög.
- Nemendur úr Listdansskóla íslands dansa ballett eftir David Greenall
við Bolero Ravels.
- Ávarp, Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur.
- Hljómsveitin SOMA leikur nokkur lög.
Við, sem fögnuðum sigrmum fyrir tveimur árum,
fögnum nú þessum áfanga saman.
Sjáumst!