Alþýðublaðið - 31.07.1996, Síða 8
8
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ1996
■ Jakob Bjarnar Grétarsson er
Hafnfirðingur. Og er stoltur af því.
En það er ekki alltaf auðvelt hlut-
skipti. Jakob spásseraði um heima-
bæ sinn og hitti fyrir vini og kunn-
ingja. Þeir veltu |dví fyrir sér hvað
það er sem gerir Hafnfirðing að
Hafnfirðingi?
Synir
Hafnarfjarðar
Vegsemdin kemur að utan og líklega eru Hafnfirðingar
frægastir fyrir það að vera hyldjúpt þenkjandi í pólit-
íkinni. Bæjarmálin eru svo slungin að sjálfur don
Corleone myndi kófsvitna ef hann kæmi þar að.
Þama má finna skýringu þess að helst eru það hafnfirskir kratar
sem gera það gott í landsmálapólitíkinni. í fljótu bragði eru það
bara Matti Matt og sonur hans Ámi sem koma uppí hugann þegar
hafnfírskir þingmenn og ekki-kratar em annars vegar. Hins vegar
má nefna fjölmarga alþýðuflokksmenn: Guðmund Ama Stefáns-
son, bróður hans Gunnlaug Stefánsson, Kjartan Jóhannsson
og... já, og marga fleiri.
Nei, líklega eru Hafnfirðingar frægastir fyrir að verá í
fremstu röð í íþróttum - vom í fremstu röð. Handboltabærinn
Hafnarljörður: Geir Hallsteins, Þorgils Óttar, Kristján. /\ra.. og
allir þeir, Hans Guðmundsson... já. Frjálsíþróttamennimir í
FH bám höfuð og herðar yfír önnur lið á Meistarmóti Islands
á dögunum. Það er gaman einkum núna þegar Ólympíuleik-
amir í Atlanda em - eins og þeir em.
Listamenn blómstra í Hafnarfirði: Rithöfundamir Stefán
Júlíusson og Halli frjálsi halda menningarflagginu hátt á
lofti og málarinn og rannsóknarlögreglumaðurinn Svenni
klessa hefur haldið myndlistarsýningar vítt og breitt um
landið. Og margir fleiri...
Sparisjóðurinn. Sparisjóður Hafnarfjarðar er best rekni
bankinn á landinu undir snöfurmannlegri stjórn Þórs
Gunnarssonar. Sparisjóður Hafnarfjarðar er ríkasti bank-
inn af því að viðskiptavinir hans em svo góðir...
Nei, líklega em Hafnfirðingar frægastir fyrir að vera
fyrstir til að reisa rafstöð til almenningsnota árið 1904 en þá
var Hamarskotslækurinn virkjaður... ég veit það ekki.
Það er fallegt í Hafnarfirði.
Hafnarljörður er sennilega frægastur fýrir að vera frægur
fýrir margt. Samt hefur verið gefíð út veiðileyfi á Hafnfirð-
inga. Það má hlæja að Hafnfirðingum. Hafnaríjarðarbrand-
aramir hvimleiðu, sem em ekki einu sinni fyndnir, virðast
ætla að halda velli hér á landi útí það óendanlega. Það er
sama hvar Hafnfirðingurinn kemur, alltaf finna menn hjá sér
hvöt til að segja honum „nýjasta" Hafnarfjarðarbrandarann.
Það er snúið útúr þjóðsöng Hafnfirðinga og hann hafður í
flimtingum. „Þú hýri Hafnarfjörður, sem horfir móti sól...“
En við Hafnfirðingar látum sem ekkert sé og það sem meira
er - vopnin hafa snúist í höndum óvildarmanna Hafnarfjarð-
ar. Synir Hafnarfjarðar hafa einmitt gert útá grínið og stór-
grætt á öllu saman: Laddi, Siggi Siguijóns, Magnús „bolla“
Ólafsson, Steinn & Davíð og Gunnar Ólafsson. Fyrir nú ut-
an alla þá Hafnfirðinga sem grína í frístundum: Tobbi rauði,
Þorlákur Oddsson, Friðrik Oddsson stýrimaður og Egill Sig-
urgeirs á bensínstöðinni. Grínbærinn Hafnarfjörður. Sá hlær
best sem síðast hlær. Fíflagangurinn blífur.