Alþýðublaðið - 17.09.1996, Síða 1
■ Vikublaðið dæmt í fjársektir fyrir grófar og ærumeiðandi móðganir og aðdróttanir
í garð látins manns, hann meðal annars sagður vanhæfur í starfi og sóðalegur
slæmu innræti
Lýsir
- segir Guðmundur Oddsson
einn stefnenda. Páll Vilhjálms-
son: „Dómurinn ekki hliðhollur
ritfrelsinu."
„Um þennan dóm er það að segja
að hann ber þess vitni að íslensk lög-
fræði er aðeins kennd í Háskóla Is-
lands og einhverra hluta vegna hefur
upplýsingin farið framhjá lagadeild-
inni. Hvergi annars staðar í okkar
heimshluta eða á okkar menningar-
svæði yrði dæmt á þennan veg,“ segir
Páll Vilhjálmsson ritstjóri Vikublaðs-
ins í samtali við Alþýðublaðið.
■ Afhverju eru
svona margir að
skrifa fyrir leikhús
Þetta er
grimmt
listform
-segir Hallgrímur H.
Helgason leikskáld
Athygli hefur vakið hversu
mörg ný íslensk verk eru á
verkefnaskrá leikhúsanna í vet-
ur. Borgarleikhúsiö er stærst í
sniðum hvað þetta varðar með
tíu íslensk verk á verkefna-
skránni en Þjóðleikhúsið er
með fimm íslensk verk á sinni
könnu sem er svipað og verið
hefur hin síðustu ár. Það eru þó
Iitlu leikhúsin sem vinna
stærsta afrekið. Nýstofnað
Hafnarleikhús fer af stað með
verk eftir Megas og Kaffileik-
húsið heldur áfram að kynna
nýja íslenska leikritahöfunda
auk þess sem Loftkastalinn
sýnir nýtt leikrit eftir Þorvald
Þorsteinsson svo fátt eitt sé
nefnt. Það er auðvitað gleðiefni
að aukning sé í frumflutningi
íslenskra leikverka en þó eru
deildar meiningar um hversu
mikill menningarauki er af því.
„Þetta er grimmt Iistform,“
segir Hallgrímur H. Helgason
en nýtt leikverk eftir hann
verður frumsýnt á þessu leik-
ári. Jón Viðar Jónsson segir í
samtali við blaðið: „Sú stefna
Borgarleikhússins að hrúga
upp íslenskum verkum á þessu
ári lítur ekki vel út. Sum þeirra
íslensku verka sem hafa verið
sviðsett hjá leikhúsunum á
undanförnum árum hafa tæp-
ast verið flutningshæf og mér
finnst engin ástæða fyrir leik-
húsin að kosta uppá slíka
hluti.“
Hallgrímur Helgason,
dramatúrg hjá Borgarleikhús-
inu segir einungis brot af þeim
verkum sem leikhúsinu berist
rati á fjalirnar.
Sjá úttekt á blaðsíðu 5.
Nýverið féll dómur í Héraðsdómi
þar sem Páll Vilhjálmsson ritstjóri
Vikublaðsins er dæmdur til að greiða
stefnendum, Rósu Ingibjörgu, Berg-
vini, Hrafni, Svanbjörgu, Leu og Guð-
mundi Oddsbörnum 150 þúsund í
málskostnað og 80 þúsund til að birta
dómsniðurstöðu. Um er að ræða skrif í
dálk sem bar yfirskriftina „Dásamlegt
líf ‘ og 27. janúar er fjallað um skóla-
stjóra sem kallaður er Oddur og þykir
sannað fyrir dómi að fyrirmyndin sé
Oddur heitinn Siguijónsson skólastjóri
Víghólaskóla í Kópavogi. Samkvæmt
framburði stefnda þykir einnig sýnt
fram á tengsl Ingólfs V. Gíslasonar
sem var í ritnefnd skólablaðs Víghóla-
skóla á sínum tíma og hefur jafnframt
skrifað af og til í Vikublaðið.
í dómsorði segir meðal annars: „í
greininni er vikið, með ósmekklegum
hætti að vaxtarlagi skólastjórans og
honum, lýst þannig að hann hafi verið
alveg hnöttóttur og gjörsamlega ófær
um að lyfta fæti frá jörðu. Samkæmt
framburði Guðmundar var faðir hans
meðalmaður á hæð og feitlaginn. [...]
Fallast ber á að flest ummælin sem
krafist er ómerkingar á séu óviður-
kvæmileg í skilningi 1. mgr. 241. gr. í
þeirn felast bæði ærumeiðandi móðg-
anir og aðdróttanir í garð hins látna
manns um vanhæfi í starfi, sóðaskap,
85,9 prósent telja að forsetinn
muni standa sig vel í embætti.
Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinn-
ar telur að Ólafur Ragnar Grímsson
muni standa sig vel í embætti forseta
íslands. Þetta kemur fram f nýrri
skoðanakönnun Gallups.
Spurt var: Telur þú að nýkjörinn
forseti, Ólafur Ragnar Grímsson,
muni standa sig vel eða illa í emb-
persónuleikabresti og valdníðslu
gagnvart nemendum." Kristjana Jóns-
dóttir héraðsdómari kvað upp dóminn.
„Lögjafa- og dómapraxísinn virðist
vera þannig að ritfrelsi er þröngt
stakkur skorinn," segir Páll. Hann seg-
ir jafnframt að þetta hafi verið paród-
ía, skrifuð í kennaraverkfallinu, í 1.
persónu. Páll var tiltölulega nýtekinn
við sem ritstjóri Vikublaðsins þegar
pistillinn birtist en forveri hans var
Hildur Jónsdóttir. „Ég tók við pistlin-
um og gaf mér það að þetta væri tilbú-
in persóna en ekki að þetta væri for-
nafn einstaklings sem hefði gegnt
skólastjórastöðu í Kópavogi. Mín
skólaganga var í Keflavík og ég gat
enga hugmynd haft um Odd skóla-
stjóra í Kópavogi." Páll segist ekki
hafa birt pistilinn hefði hann vitað að
þama væri stuðst svo eindregið við til-
tekna persónu. „Dálkurinn var hugs-
aður til skemmtunar en ekki til að
meiða persónu. Stefnendum var mjög
umhugað um að fá nafn höfundar en
höfðu þó skilning á því að ég gat ekki
gefið nafn hans upp,“ segir Páll. Hann
segir jafnframt að þetta sé í annað
skipti sem Vikublaðinu er stefnt en
fyrri stefnandi var Hrafn Gunnlaugs-
son. „Ég hef aldrei verið dæmdur fyrr
þannig að þetta eru mikil tímamót fýr-
ir mig,“ segir Páll og að engin mál séu
ætti? 85,9 prósent sögðust áh'ta að Ól-
afur Ragnar muni standa sig vel, 7,7
prósent að hann muni standa sig illa
og 6,4 höfðu ekki skoðun.
I könnuninni kom ennfremur í ljós,
að því eldra sem fólk er því hærra
hlutfall telur að hann ntuni standa sig
vel í embætti. Þannig telja 76 prósent
þeitra sem eru yngri en 25 ára að Ól-
afur Ragnar muni standa sig vel en
rúmlega 93 prósent þeirra sem eru 55
á hendur blaðinu önnur. Þetta tiltekna
mál fór ekki fyrir siðanefnd blaða-
manna áður en það fór fyrir dómstóla.
Páll ætlar ekki að áfría málinu til
Hæstaréttar. „Þó að mér finnist dóm-
urinn ekki hliðhollur ritfrelsinu ætla
ég ekki að fara lengra með málið.“
„Ritfrelsi?" spyr Guðmundur Odds-
son í samtali við Alþýðublaðið.
„Greinin var ógeðsleg og varla lýsing
á manni. Ég er ánægður með dóminn
sem segir að löngu látnir menn eigi að
geta verið í friði fyrir illa þenkjandi
gömlum nemendum sínum. Að menn
eigi ekki við það að búa að vera rakk-
aðir niður 11 árum eftir andlát sitt af
einhveijum sem einhverra hluta vegna
voru reiðir sem ungir menn í skóla.
Þetta er sigur fyrir það að menn geti
ekki vaðið fram á ritvöllinn í því skyni
að rakka menn niður sem ekki geta
borið hönd fyrir höfuð sér.“
Guðmundur segist ekkert hress með
að þurfa að standa í málarekstri af
þessu tagi, að hann hafi ýmsum öðr-
um hnöppum að hneppa, en þetta
kenni mönnum að það eru takmörk
fyrir öllu. „Þetta á ekkert skylt við rit-
frelsi heldur á þetta skylt við drullu-
sokkshátt og slæmt innræti þess sem
skrifar og það er miklu alvarlegra
mál.“
ára eða eldri. Einsog við er að búast
er afstaða nianna í stjómmálaflokkun-
um nokkuð mismunandi í þessu ntáli.
Á milli 90 og 98 prósent alþýðu-
flokks-, framsóknar- og alþýðubanda-
lagsmanna telja að Olafur Ragnar
muni standa sig vel, en 77 prósent
sjálfstæðismanna og um 70 prósent
kvennalistakjósenda. Þess ber að geta
að lítið er að marka hlutfall kjósenda
Kvennalistans vegna fámennis.
■ Gamlir Bylgjuboltar og ís-
lenska óperan í samstarfi
Mjög spennandi
- segir Soffía Karlsdóttir hjá
óperunni
. „Þetta er mjög spennandi," segir Soff-
ía Karlsdóttir hjá Islensku ópemnni um
næsta verkefni sem verður þar á fjölun-
um. Það heitir Masterclass með Maríu
Callas. „Masterclass er það kallað þegar
kennari er með söngtíma á sviði með
áhorfendum. Svo tekur meistarinn einn
og einn nemanda uppá svið til með-
höndlunar."
Masterclass með Maríu Callas er sam-
starfsverkefni Óperunnar og þeirra
Bjama Þórs Haukssonar og Sigurðar
Hlöðverssonar sem betur eru þekktir
sem útvarpsstjörnurnar Siggi Hlö og
Bjarni Þór á Bylgjunni. „Sú sýning er
ekki ópera heldur fremur leikrit með
söngvum," segir Soffía. „Við leggjum til
húsnæði, hönnuði, sýningarstjóra og
einnig eru fjármálin á okkar herðum.
Þeir sjá um annað.“
Síðastliðið laugadagskvöld var troð-
fullt á Galdra-Lofti. Nú em aðeins tvær
sýningar eftir, dagana 21. og 28. októ-
ber, og sýnt þykir að færri komast að en
vilja. Bæði er það vegna þess að Siggi
Hlö og Bjami Þór þurfa að komast að
sem og að stjarna sýningarinnar, Berg-
þór Pálsson stundar nú nám í London.
Soffía vill vekja athygli á því að sýning-
in næsta laugardag hefst klukkan 21:00
og er það vegna anna Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar sem mun spila á Isafirði
þcnnan sama dag og korna svo að segja
beint úr Fokkernum í gryfju fslensku
ópemnnar.
■ Morgunblaðið neitar að birta
grein þarsem afstaða blaðsins
ergagnrýnd
„Vandlætingar-
fullir ritstjórar
sem sjá ekki
kjarna málsins"
- segir Sigurður Þór Guðjóns-
son rithöfundur.
„Þingmenn og ráðherrar verða að axla
ábyrgð á gjörðum sínum sem stjórn-
málamenn og manneskjur. Ef þeir stuðla
að tiltekinni óhamingju bama, sem er
langt út fyrir það sem þeir munu nokk-
um tima geta ímyndað sér, á þjóðin svo
sannarlega að sýna þeim í tvo heimana.
Veröld bamakláms og kynferðisofbeldis
er feikna grimm og hörð. Bömunum er
alls engin miskunn sýnd. Það kcmur
engin mamma eða pabbi til hjálpar á síð-
ustu stundu. Það koma bara seinheppnir
embættismenn sem gaspra vitleysu. Og
vandlætingarfullir ritstjórar sem sjá ekki
kjama málsins, angist og sálameyð bam-
anna, fyrir þóttafullri pólitískri smá-
munasemi," segir Sigurður Þór Guðjóns-
son rithöfundur í mjög athyglisverðri
grein í Alþýðublaðinu í dag. Hann fjallar
um forystugrein Morgunblaðsins á dög-
unum þarsem Bolli Valgarðsson var
gagnrýndur harðlega fyrir grein sem
hann skrifaði í Alþýðublaðið um nýlega
lagasemingu um bamaklám.
Sigurður Þór sendi Morgunblaðinu
grein sína, en ritstjórar þess neituðu að
birta hana í blaði sínu.
Sjá blaðsíðu þrjú
Því eldra sem fólk er, því meiri trú
hefur það á að Ólafur Ragnar
Grímsson standi sig vel i embætti
forseta íslands.
Þingað um myndlistargagnrýni „Ég held að myndlistarmenn hafi aldrei hrakist
af braut vegna gagnrýni. Hins vegar mótar gagnrýni óhjákvæmilega þá umræðu sem ríkir í þjóðfé-
laginu og hefur þar af leiðandi töluverð áhrif á þá sem eru ennþá ómótaðir, það er að segja yngstu
kynslóðina," segir Halldór Björn Runólfsson listfræðingur. Hann er meðal þátttakenda á alþjóðlegri
ráðstefnu um myndlsitargagnrýni sem haldin verður í Norræna húsinu næstkomandi fimmtudag
og föstudag. Viðtal við Halldór Björn er á bls. 7.
■ Skoðanakönnun Gallups
Rífandi lukka með Ólaf Ragnar