Alþýðublaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 m e n n i n c ■ Alþjóðleg ráðstefna um myndlistargagnrýni Lega landsins er stærsta vandamálið - segir Halldór Björn Run- ólfsson listfræðingur um stöðu íslands í myndlist og myndlistarumfjöllun. Alþjóðleg ráðstefna um myndlistar- gagnrýni verður haldin í Reykjavík dagana 19.-21. september. Meðal þekktra þátttakenda eru svissneski listfræðingurinn og gagnrýnandinn Paolo Bianchi og Annalie Pohlen for- stöðumaður Kunstverein í Bonn. A þinginu verður sjónum beint að stöðu listgagnrýni í dag og helstu þreifing- um innan hennar. Einnig verður fjall- að um stöðu jaðarsvæða í myndlist og myndlistarumíjöllun. Meðal þátttakenda á ráðstefnunni er Halldór Bjöm Runólfsson listfræðing- ur og Alþýðublaðið leitaði svara hjá honum við spumingum er teknar verða til umfjöllunar á ráðstefnunni. „Staða íslands í myndlist- og myndlistammljöllun er að sumu leyti Ég held að myndlistarmenn hafi aldrei hrakist af braut vegna gagnrýni. Hins vegar mótar gagnrýni óhjá- kvæmilega þá umræðu sem ríkir í þjóðfélaginu, segir Halldór Björn sem tekur þátt í alþjóðlegri ráðstefnu hér á landi um myndlistar- gagnrýni. mjög góð, en að öðm leyti nokkuð vandræðaleg," segir Halldór Bjöm. „Við emm vökul gagnvart erlendum straumum og staðráðin í að varðveita eigin sérkenni í myndlistinni. Lega landsins er hins vegar stórt vandamál. Kostnaðurinn við að flytja verk hing- að er óheyrilegur og mun ætíð hefta möguleika okkar á að fá hingað vem- legt magn af góðum erlendum sýning- um. Þetta takmarkar möguleikana á því að Islendingar geti verið eins vak- andi fyrir erlendum straumum í mynd- list og þeir eru til dæmis varðandi bókmenntir og tónlist.“ Að hve miklu leyti móta fjölmiðlar stíl og innihald þess sem gagnrýnend- urskrifa? „Staða okkar er að ákveðnu leyti veik hér hvað varðar sérhæft upplýs- ingastreymi. Myndlistarmenn eiga ekkert fagtímarit. Þetta gerir það að verkum að fjölmiðlar, til dæmis dag- blöð, hafa miklu meiri áhrif á mómn myndlistar en dæmi em um nokkur staðar úti í heimi. Að sumu leyti getur það verið gott því almenningur getur þá betur fylgst með. En óneitanlega eram við eftirbátar þjóða þar sem list- tímarit em mörg, góð og flytja ferskar og upplýsandi fréttir þar sem kafað er djúpt.“ Hvaða áhrifhefur myndlistargagn- rýnin á myndlistina sjálfa? „Hún hefúr ekki bein áhrif, heldur óbein. Eg held að myndlistarmenn hafi aldrei hrakist af braut vegna gagnrýni. Hins vegar mótar gagnrýni óhjákvæmilega þá umræðu sem ríkir í þjóðfélaginu og hefur þar af leiðandi töluverð áhrif á þá sem em ennþá ómótaðir, það er að segja yngstu kyn- slóðina." Allir á öllum í Borgarleikhúsi Verkefni; Ef væri ég gullfiskur Höfundur: Árni Ibsen Leikhljóð: Baldur Már Arngrímsson Lýsing: Elfar Bjarnason Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson Leikstjórn: Pétur Einarsson Sýningarstaður: Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhúsið - Stóra sviðið. Þá er leikár stóru atvinnuleikhús- anna hafið og að þessu sinni eru ís- lensk verk mjög áberandi á verkefna- skrá þeirra. Reyndar svo mjög að varla er hægt að krefjast þess að þar séu eingöngu stórvirki á ferðinni. Síðastliðið föstudagskvöld frum- sýndi Leikfélag Reykjavíkur nýjan farsa eftir Áma Ibsen Ef væri ég gull- fiskur. Aðstandendur sýningarinnar höfðu gefið það út að viðfangsefnið væri fégræðgi, frami og framhjáhald í íslenskum samtíma. Svo sem ekki ný- stárleg eða frumleg viðfangsefni, en hvað um það, oft hafa sammannlegir breyskleikar dugað vel í góðan farsa. En að þessu sinni er eitthvað sem fer úrskeiðis; hvað það er liggur svo sem ekki í augum uppi. Ef við lítum á verkið þá er það svo sem snoturlega skrifað og af þeirri íþrótt sent búast mátti við af Áma, en það vantar þó herslumuninn til að fanga og halda athygli áhorfenda. Per- sónumar em gmnnar og klisjukennd- ar, basl þeirra lítt áhugavekjandi og þó að verkið sé rekið áfram af gífurlegum krafti, samtölin séu liðleg og fljúg- andi, óvæntar uppákomur skelli á í Leikhús____| stríðum straumum, þá skortir það þann sársauka sem leggur gmnninn að velheppnuðum gamanleik. Útkoman er yfirdrifinn ærslaleikur sem gusast yfir áhorfendur án þess að þeir fái tíma til að meðtaka eða skynja hvað á þeim dynur. Ámi hefur áður sýnt að honum er betur lagið en flestum íslenskum leik- skáldum að skrifa gamanleiki en að þessu sinni er sem honum hafi ekki legið nógu mikið á hjarta. Eða gleymt sannindum höfundarins sem sagði að efinn væri vindhani skáldsins. Leikstjórn Péturs Einarssonar er auðvitað stór hluti af því sem hér er að framan sagt og kannski er farsaformið það form leiklistarinnar sem gerir hvað mestar kröfur til - og á hvað mest undir vinnu leikstjórans. Og Pét- ur velur þá leið að láta aksjónina yfir- taka allt annað í sýningunni. Þannig fær í raun ekkert augnablik að lifna, hvað þá lifa, því næstu uppákomu er hellt yfir með hraða lióssins og þegar verst lætur er búin til aksjón án þess að fyrri henni s' einhver grunnur í texta verksins. hvo sem þegar Dóra er látin hlaupa upp og nif ar stiga, eins og vönkuð rolla, að því er virðist til þess eins að skapa hreyfingu og glun- droðatilfmningu á sviðinu, og dregur með því athygli frá því sem raunvem- lega á sér stað í verkinu. Það er eins og leikstjórinn hafi engan veginn treyst því efni sem hann var með í höndunum. Og ekki veit ég hvort um er að kenna leikstjóm eða höfundi, að meginþema verksins er alls ekki frami og fégræðgi heldur framhjáhald. Raunar em allir að riðlast á öllum og ganga ekki mjög pent til þess verks, heldur snýst þetta um frekar hráar ríð- ingar, sem í minni orðabók flokkast undir klám. Persóna Öldu er með þeim ósköpum lögð að Bóhem og Vegas verða eins og nunnuklaustur í samanburði. Þá erum við komin að stærsta veikleika sýningarinnar, per- sónuleikstjóminni. Um Óldu er sagt í handriti að hún sé pelsklædd kynvera, gott og vel, en í mínum huga er útilok- að að einstaklingur sem riðlast á öllu sem nærri honum kemur eins og of- virkur titrari, sé kynvera. Hann er frík, sem á sér enga stoð í raunveruleikan- um. Halldóra Geirharðsdóttir er hörkugóð leikkona og gerir sitt besta til að koma þessu viðrini til skila og ekki verður við hana sakast þó erfið- lega gangi að gefa persónunni líf. Helga Braga Jónsdóttir er líka góð gamanleikkona með sterka tilfinningu fyrir tímasetningu og hraðabreyting- um, en hættir stundum til, ef leik- stjómin er ekki því markvissari, að of- leika til vansa. En sjaldan sem nú, það er raunar erfitt að segja til um hvort Dóra hennar á að vera heilbrigð eða vemlega andlega fatlaður einstakling- ur. Svona löguðu á leikstjórinn ekki að sleppa í gegn. Eggert Þorleifsson hefur margsýnt að hann er verulega hæfileikaríkur gamanleikari og hér fer hann með burðarhlutverkið og bjargar raunar því sem bjargað verður. Vandamálið er hins vegar að persóna hans er svo kli- sjukennd að hann fær ekki svigrúm til að vekja samúð áhorfandans sem litli maðurinn, sem þó stendur uppi sem sigurvegari í lokin. Sigurður Karlsson fer ekki með viðamikið hlutverk, en Pétur „Gull- fiskur" ættfaðirinn f verkinu verður í höndum hans trúverðugur fulltrúi hvítflibba nútímans. Kjartan Guðjónsson leikur Eyva, kúgaðan eiginmann Dóru. Ég sá Kjartan í Maríusögum í Nemendaleik- húsinu og fannst hann þar skapa ansi hreint skemmtilega persónu. En því miður er eins og hann hafi fest sig þar og endurtaki sig í sífellu. Vonandi fær hann tækifæri til að brjótast úr þeim viðjum sem fyrst. Þær Ásta Amardóttir, Guðlaug El- ísabet Ólafsdóttir, Sóley, Elíasdóttir og Rósa Guðný Þórsdóttir fara með misstór hlutverk og lenda eins og aðrir leikendur í ógöngum með ofleik og skrípalæti sem fyrst og fremst skrifast á reikning leikstjórans. Leikmynd Sigurjóns Jóhannssonar er massív og glæsileg og skapar verk- inu skemmtilega og trúverðuga um- gjörð. Lýsing Elfars Bjamasonar er einnig hið besta verk, fylgir sýningunni vel eftir og styrkir hana. Búningar Helgu I. Stefánsdóttur eru góðir, ef frá er tal- inn kjóll Öldu sem undirstrikar enn frekar viðrinislega tilvern persónunn- ar. Niðurstaða: Sýning sem þrátt fyr- ir glæsilega umgjörð og mikið kapp, missir gjörsamlega marks og drukknar í eigin ærsium og hávaða.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.