Alþýðublaðið - 17.09.1996, Síða 4

Alþýðublaðið - 17.09.1996, Síða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 ■ Bill Clinton stendur með pálmann í höndunum í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum og ekkert virðist geta komið í veg fyrir að hann sitji annað kjör- tímabil í Hvíta húsinu. Á sama tíma gengur allt á afturfótunum hjá Bob Dole, frambjóðanda repúblíkana, og upplausn er í herbúðum hans á heljarþröm s Isíðustu viku ætlaði Bob Dole for- setaframbjóðandi að heimsækja New Jersey fylki til að reyna að rétta úr kútnum. Dole varð að hætta við þá heimsókn vegna fellibylsins Fran sem gekk yfir austurhluta Banda- ríkjanna fyrir skömmu. I þeirri ferð var áætlað að heimsækja verksmiðju sem framleiðir björgunarvesti, báta og fallhlífar. Þegar einn af leiðtogum kosningabaráttu Doles heyrði af því að þeir væru að heimsækja fyrirfæki sem framleiðir útbúnað fyrir fólk í sjávar- og lífsháska varð honum að orði: „Ég þakka guði fyrir fellibyl- inn.“ Eins og stendur veitir Dole ekki af smá hjálp frá guði því hann er kominn á heljarþröm í kosningabaráttunni. I skoðanakönnun sem Repúblikana- flokkurinn gerði í síðustu viku kom í ljós að í nítján stærstu fylkjunum á Dolc færri stuðningsmenn en and- stæðingar Bill Clintons bandaríkjafor- seta eru margir. Þetta þýðir að þeir sem eru á móti Clinton geta ekki einu sinni hugsað sér að styðja Dole gegn núverandi forseta. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum hefur minnkað og trú fólks á efnahag þjóðarinnar hefur batnað. Kjósendur þakka Clinton þessar breytingar. Flugárásirmir á írak hafa rutt Dole út úr fjöimiðlum og kjósendur hafa með því verið minntir á að Dole hitti Saddam Hussein fyrir Persaflóastríðið og hafði þau orð um hann að „kannski væri von um að tala manninn til“. Ef framboð Doles á að vera eitthvað annað og meira en formsatriði þarf hann að taka á honum stóra sínum og það fljótt. Aðalráðgjafinn rekinn Loksins gerði hann eitthvað í mál- unum. I sumar var hann sannfærður um að gengi hans mundi batna þegar líður á haustið en á meðan sýndu skoðanakannanir að Clinton væri kominn langt fram úr honum. Dole sagði hveijum sem heyra vildi að þeg- ar stefnuskrá hans væri tilbúin í sept- ember og með vinsælan varaforseta- frambjóðanda sér við hlið myndi fylgi hans stórlega aukast. Bestu fréttimar em þó þær að fjárhagsvandræði kosn- ingasjóðs hans hafa lagast með aðstoð Bandaríkjastjórnar sem lagði til 62 milljónir dollara. Með þessum pening- um ætlaði hann að borga fyrir sjón- varpsauglýsingar þar sem Dole kemur fram og útlistar hvers vegna hann ætti að verða forseti næstu fjögur árin en ekki Clinton. Aðalráðgjafi hans í aug- lýsingamálum, Don Sipple, sagði í ág- úst að „Gamli hundurinn væri ekki til- búinrík Dole var loks tilbúinn og það fyrsta sem hann gerði var að reka Don Sipple eða öllu heldur var það kosn- ingastjórinn hann Scott Reed. Sá hafði fyrir löngu ætlað að finna annan mann í stað Sipple og endurheimta þar með yfirráð yfir kosningaáróðrinum. Sam- an unnu Sipple og Mike Murphy nótt og dag við að reyna nýjar auglýsinga- aðferðir. Eini umbjóðandi hans var forsetaefnið Bob Dole. Þeirri spurn- ingu héfur verið varpað fram: Hveijir sjá um kosningaáróðurinn, kosninga- stjórinn eða auglýsingastofan? Sambandsleysi. Það er talandi dæmi um lánleysi Doles að ekki einu sinni allir þeir kjósendur sem þola ekki Clinton geta hugsað sér Dole í hans stað. Jack Kemp varaforsetaefni og kona hans Joanne láta vel hvort að öðru á kosningafundi í l\lew York. Kemp hefur kvartað mjög yfir tilhögun kosningabaráttunnar. og áheyrendur hafa verið hinir vina- legustu enda valdir sérstaklega af for- ystumönnum Repúblikanaflokksins. Þessa áróðursherferð hafa aðstandend- ur framboðsins kallað, án nokkurrar kaldhæðni, „Listening to America" eða Hlustað á Ameríku. Spumingam- ar sem lagðar vom tyrir hann á fund- unum vom svo einfaldar að Dole var sjálfur farinn að brosa að þessu hlut- leysi áhorfenda. Dole hefur ekki hald- ið almennilegan blaðamannfund í langan tíma. Skýringin er einföld: þau fáu skipti sem hann lætur móðan mása kemur hann sér í vandræði. Hann virðist ekki geta gert upp við sig hver forgangsröð áróðursins er. Jack Kemp varaforsetaefni Doles hefur gramist það hvert stefnir í þessari baráttu. Hann hefur í tvígang kvartað yfir því að vera sendur í þau hverfi þar sem einungis hvítir og vel stæðir Amerík- anar búa en ekki til verkafólksins í út- hverfunum. Hann hefur einnig lagt til að hann og Dole ferðist meira saman. Kemp hefur trú á því að saman geti þeir áorkað meiru, það lítur betur út og svo gæti hann haldið Dole við efn- ið, það er að segja skattamálin. Dole veit hversu óvægar skoðana- kannanir geta verið. f september 1976 vom hann og Gerald Ford 15 prósent- ustigum á eftir Jimmy Carter og Walt- er Mondale. f síðustu viku birtist skoðanakönnun á vegum CNN frétta- stofunnar og Time tímaritsins og sýndi hún að Dole hefur fallið um 14 prósentustig í viðureign sinni við Bill Clinton Bandaríkjaforseta og Ross Perot. f kosningunum 1976 náðu Ford og Dole að minnka muninn niðrf eitt pró- sentustig og var það kraftaverki líkast. I þetta sinn verður að gera enn betur.B Togstreita í kosningastjórn Þótt enginn væri skipulagsstjórinn áleit Reed sig vera við stjómvölinn en það gerðu þeir félagar Sipple og Murphy líka. Þeir urðu leiðir á því að þurfa að bera allt undir Reed og höfðu einnig áhyggjur af því að Reed stæði sig ekki sem skyldi. Því fór svo að þessar tvær fylkingar, ef svo má kalla, hófu að vinna sitt í hvom lagi. Um- ræðan um hveijir stjómuðu kosninga- áróðrinum kom af stað annarri og al- varlegri umræðu, - um hvað á áróður- inn ætti að snúast. Sipple og félagar vildu einbeita sér að lækkun skatta. Reed vildi hins vegar víkka sjóndeild- arhringinn og ræða um aukningu út- gjalda, skattalækkun og niðurskurð fjárlagahallans. Skattar urðu í þriðja sæti í þessari keppni og Sipple fékk ávítur fyrir að senda út óljós skilaboð. Það kom honum hins vegar á óvart þegar Reed sagði honum í síðustu viku að búið væri að ráða nýjan skipu- lagsstjóra og tæki hann við stjórnar- taumunum. Sá er Paul Manfort. Sipple og Murphy ákváðu þá að segja upp í stað þess að missa stjómina. Reed hef- ur fengið nýja auglýsingastjóra til að búa til auglýsingar fyrir 45 milljónir dollara fram í nóvember. „Hlustað á Ameríku" Hafi ráðgjafar Doles staðið í ströngu bak við tjöldin þá hefur Dole ekki gengið betur í ræðustólnum. Hann hefur ferðast um og haldið fundi Dole þiggur ráð Kemps varaforsetaefnis og Don Sundquists ríkisstjóra áð- ur en hann heldur ræðu fyrir þeldökka blaðamenn í Nashville.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.