Alþýðublaðið - 13.11.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. NOVEMBER 1996
ALÞYÐUBLAÐIÐ
7
ó r n m á I
Baráttujaxl. Eiríkur Stefánsson
verkalýðsleiðtogi frá Fáskrúðsfirði
flutti nokkrar sannkallaðar eld-
messur yfir flokksþinginu.
Á heimaslóðum. Jóhanna Sigurð-
ardóttir heiðraði flokksþingið með
nærveru sinni einsog aðrir þing-
menn Þjóðvaka.
Ungt fólk var áberandi á flokks-
þinginu. í þeim hópi var Elvar
Gunnarsson frá Selfossi sem var
kosningastjóri Alþýðuflokksins á
Suðurlandi í síðustu þingkosning-
um.
Ber er hver að baki... Gunnlaugur
Stefánsson prestur og fyrrum al-
þingismaður var í fararbroddi
stuðningsmanna Guðmundar
Árna, og hér ráða þeir ráðum sín-
um.
Tekist í hendur. Guðmundur Árni Stefánsson sagði fyrir flokksþingið að hann tæki niðurstööu úr formannskjöri með brosi á vör. Hann stóð við það og
hér óskar hann Sighvati til hamingju.
>!(H (
Kvennabylting. Rannveig Guðmundsdóttir formaður þingflokks jafnaðar
manna samgleðst kynsystrum sínum sem nú eru í meirihluta í flokksfor-
ystunni. Nýkjörinn formaður lætur lítið fyrir sér fara.
Hlustað af athygli. Kristinn T. Haraldsson, Össur Skarphéðinsson og Gyifi
Þ. Gislason fyrrum formaður Alþýðuflokksins hlýða á ræðu Jóns Baldvins.
Tilfinningaþrungin
stund. Jón Baldvin
veifar til fundar-
manna í lok síðustu
ræðu sinnar sem
formaður Alþýðu-
flokksins. Bryndís
Schram, sem stóð
með manni sínum
gegnum súrt og
sætt á tólf ára for-
mannsferli, viknaði
þegar Jón Baldvin
lauk ræðu sinni.