Alþýðublaðið - 06.03.1997, Síða 5

Alþýðublaðið - 06.03.1997, Síða 5
FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ú t I ö n d Pólland! en ekki hirtu þeir bæði sloty og krón- ur. Síðan þá hef ég fengið slíka ást á pólskri þjóð, sögu og menningu að jaðrar við ástríðu. Þess vegna þykir mér illt að vita ef Pólland birtist í martröð, jafnvel þótt aðeins ein borg í þvísa landi hafi komið við sögu í draumförum Magnúsar. Astríða mín og löngun að kynna pólska sögu, menningu og þjóðhætti fyrir íslend- ingum hefur leitt til samstarfs við framsækna íslenska ferðaskrifstofu sem vinnur með mér að ferðum aust- ur þangað. I því kynningarstarfi sem þegar hefur átt sér stað hefur mér orð- ið ljóst að Magnús er ekki einn um að tengja Pólland eða pólskar borgir við kolareyk og niðurníðslu, svart kóf og Auschwitz. En þetta er ekki Pólland, aðeins hluti Póllands. Þegar ég sagði pólskum vinum mínum af fyrstu kynnum mínum af Póllandi, nánar tiltekið Stettin, sögðu þau að ef ég hafi aðeins komið til þeirrar borgar þá hafi ég alls ekki komið til Póllands. “Komdu til Krakár,” sögðu þau, “þá hefurðu séð Pólland. Það hef ég gert, aftur og aft- ur. Reynsla mín er með þeim hætti að ég vil bjóða Magnúsi Norðdahl í ferð til Krakár hinnar fomu höfðuborgar og sjá Pólland mun aldrei aftur birtast í martröðum hans. Hins vegar mun hann dreyma um að komast þangað aftur, aftur og aftur. Og hvað muntu sjá Magnús? Þú munt sjá töfrandi borg við ána Vislu, borg með mikinn iðnað og gfí* ’ - ' '* ' | “V’ t aldalanga sögu mennta og vísinda, þá borg sem hæst ber á lista menningar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) yfir byggingarsöguleg verðmæti. UNESCO hefur lýst hana eina af 12 perlum menningararfs mannkyns. Þú munt sjá borg þar sem hægt er að lesa stflsögu mannvirkja allt frá rómönskum 11. aldar stfl til póst-mód. Við hæfi er að hefja rölt okkar á Wawelhæð. Þar er fom höll þar sem pólskir kóngar bjuggu frá fyrrihluta 14. aldar og fram til 1595. Þá lét Sig- mundur III Vasa flytja hina konung- legu stjórnsýslumiðstöð til Varsjár. Kraká hélt samt sem áður allnokkru mikilvægi um langt skeið, var krýn- ingar- og greftrunarstaður kónga og sjálfstætt lýðveldi frá 1815 til 1846. Hún hefur verið bitbein gráðugra ná- granna en þrátt fyrir það hefur hún sloppið ótrúlega frá hörmungum tveggja stórstyrjalda á þessari öld. Gamla borgin er því ekta en ekki eft- irlíking eins og svo margir “gamlir” hlutar pólskra borga. í gamla bænum við Wawelhæð er fjöldi fagurra listasafna og markaðs- torgið (Rynek Glowny) eitt fegursta miðaldatorg og það stærsta sem enn er varðveitt í Evrópu. Skammt þar frá er Kirkja Maríu Meyjar. Á hveijum heil- um tíma er spilað stef á trompet í öðr- um tumi hennar. Þetta stef er ákaflega fallegt en endar eins og klippt væri á. Sagan segir að varðmaður sem stóð í þessum tumi þegar Mongólar réðust á borgina, sama ár og Snorri var veginn í Skálholti, hafi blásið viðvöranarstef en fengið ör í gegnum hálsinn þega hann var í því miðju. Þessa minnast Pólverjar enn og fátt lýsir eins vel dramatískri sögu þessarar þjóðar og einmitt þetta stef. Þá höldum við eftir steinilögðum götum í suð-vesturátt þangað sem einu sinni var sjálfstæður bær en er nú hverfi nálægt miðborginni. Þetta er gamla Gyðingahverfið “Kazimierz” sem ekki hefur breyst mikið frá því að hin skelfilegu örlög gengu yfir íbúa þess á áram síðari heimstyrjaldar. At- riði í myndinni Listi Sindlers voru tek- in í þessu hverfi. Þótt aðeins séu eftir- lifandi 87 gyðingar í borginni má enn merkja sterk gyðingleg áhrif í Kazimi- erz. Eftir að við höfum hvflst á litlu kaffihúsi og hlýtt á galsafengna en jafnframt tregablendna tónlist gyðinga höldum við til Nowa Huta (Nýja Hús- ið). Nowa Huta er úthverfi í vestur- jaðri Krákár og var til skamms tíma sjálfstætt sveitarfélag (Sameining sveitarfélaga hefur átt sér víðar stað en á Fróni). Það var byggt á 6. áratug ald- arinnar kringum eitt stærsta stáliðjuver Evrópu. Stfllinn í húsbyggingum sem þama ríkir er hinn dæmigerði J'unktionalismf stalínismans og algjör andstæða gamla bæjarins við Wawel- höll. Að lokinni rannsókn á stalínískri byggingarlist bregðum við okkur inn á ósvikna “öreigakrá”, og svölum þorst- anum með glasi af vodka. Þar öndum við að okkur ilmi liðinnar tíðar og horfum til morgundagsins í þeirri vissu að veruleikinn sé allt annar en martröð. í því kynningarstarfi sem þegar hefur átt sér stað hefur mér orðið Ijóst að Magnús er ekki einn um að tengja Pólland eða pólskar borgir við kolareyk og niðurníðslu, svart kóf og Auschwitz. ■ Alþjóðleg spurningakeppni Hvað veistu um Moskvu? Á þessu ári á Moskva, höfuðborg Rússlands, 850 ára afmæli sitt. f til- efni af því heldur borgarstjóm Moskvu alþjóðlega spumingakeppni undir nafninu “Moskva - borg friðar og vináttu um aldir”. Spumingamar era þessar: 1. Hver var stofnandi Moskvu? Hvað er á skjaldarmerki Moskvu? 2. Hvað heita gamalt virki og torg í miðbæ Moskvu? Hvað er að finna á þessu svæði núna? 3. I Moskvu er verið að endur- byggja Dómkirkju Krists frelsara. Hvenær var hún byggð og í tilefni af hvaða atburði? Hver urðu örlög hennar? 4. Hvemig er stjóm borgarinnar háttað? Hver er borgarstjóri Moskvu núna? 5. Hvað heitir stærsta flugfélag Rússlands og til hve margra landa flýgur það? 6. Hvað er neðanjarðarbrautin í Moskvu (metró) gömul og hve marg- ar eru brautarstöðvamar? 7. Moskva er hafnarborg. Við hve mörg höf er hún tengd og hvað heita þau? 8. Hvenær hætti Moskva að vera höfuðborg Rússlands og hvenær varð hún höfuðborg Rússlands á ný? 9. Hvað hér fyrsti geimfarinn og hvenær fór hann í ferð sína? Hvar í Moskvu er að finna minnisvarða um þennan mann? 10. Hvenær fóra Ólympíuleikar fram í Moskvu? Hverjir vora þeir í röðinni? Hve mörg gull-, silfur- og bronsverðlaun hlutu sovéskir íþrótta- menn á þessum leikum? Svörin ber að vélrita á ensku og senda fyrir 30. júní til: “Moscow - 850” K-50, Box 52 103050 Moscow Russia Þeim tíu, sem leysa best úr spum- ingunum, verður boðið til Moskvu til að vera við afmælishátíðina í sept- ember 1997. Stjóm Moskvu greiðir ferða- og dvalarkostnað þeirra. En að auki fá fimmtíu þátttakendur, sem best svara, minjagripi í verðlaun. ■ Sverrir Hólmarsson skrifar frá Suður Sjálandi Pólitískur ölvunarakstur Annar hluti Varla hafði Per Stig Möller tyllt sér í formennskustól danska fhalds- flokksins en sögur fóra að kvisast um að hann hefði ekki sem hreinast mél í pokanum hvað ölvun undir stýri snerti. Þegar leið á síðustu viku höfðu öldur orðrómsins risið svo hátt að blaðamaður á Ekstrablaðinu hringdi í Per Stig og spurði hvort það væri rétt að hann hefði verið tekinn fastur fyrir að aka drakkinn á Jagtvej upp úr 1970. Það er rangt, svaraði Per Stig að bragði og þegar blaða- maðurinn spurði hvort hann hefði áreiðanlega aldrei lent í neinu svip- uðu sleit Per Stig talinu sem skjótast. Seinna kom í ljós að Per Stig hafði árið 1968 verið tekinn fyrir ölvun við akstur á einhverri annarri götu. Hann mældist með 1,71 prómill og sló þar með út þessi 1,37 sem Hans Engell var með. Hann hafði hins vegar ekki ýtt hálfs tonns steypuklossa 85 metra eins og Hans afrekaði. Á Politiken voru menn með réttu útgáfuna á sögunni í höndunum á föstudaginn. Það var hringt í Per Stig sem gekkst þegar í stað við því að sagan væri sönn. Hún birtist svo í Politiken á laugardaginn. Það varð auðvitað uppi fótur og fit og menn spurðu sjálfa sig hvort Per Stig væri trúverðugt efni í forsætisráðherra. Ekki vegna þess að hann hafði sem 24 ára stúdent sest sauðdrakkinn undir stýri, heldur vegna þess að hann hafði þagað yfir þessu máli við aðra en örfáa nánustu stuðningsmenn sína þegar hann var valinn eftirmað- ur Engells og síðan borið söguna til baka þegar hún var lögð fyrir hann í eilítið rangfærðri mynd. Per Stig hef- ur að vísu haldið því fram mjög ákveðið að tæknilega séð hafi hann ekki logið að Ekstrablaðinu, en sú af- sökun fellur í grýttan jarðveg meðal almennings. Hægripressan hefur í leiðuram far- ið fram á að Per Stig dragi sig í hlé sem forystusauður flokksins, en Per Stig neitar harðlega að fara og hefur stuðning flestra áhrifamanna í flokknum. Einn þingmanna hans, Helge Adam Möller, gekk þó fram fyrir skjöldu og krafðist tafarlausrar afsagnar Pers, sagði að ekki væri hægt að hafa lygara í þessari stöðu. En Helge Adam, sem er dálítið ein- faldur, misreiknaði sig hrapallega; allur flokkurinn snerist gegn honum og hann er nú dauður maður í pólitfk. Per Stig lifir hins vegar enn, þó að framtíð hans sé afar óviss. Örlög hans ráðast endanlega í september þegar flokkurinn heldur landsfund og kýs sér formann. Það er engan veginn víst að Per Stig verði kosinn þá. Það er komin löng reynsla á það að það versta sem stjómmálamenn geta gert sjálfum sér er að segja ósatt, breiða yfir hlutina og reyna að draga eitthvað undan. Paul Schluter fékk að kenna á þessu þegar hann sagði sem frægt er að engu hefði verið sópað undir gólf- teppið í tamflmálinu. Þegar teppinu var lyft komu ýmis óhreinindi í ljós og stjóm Schluters féll. Svo virðist sem sífellt séu gerðar meiri siðferðis- kröfur til stjómmálamanna og ein sterkasta krafan er að þeir segi ævin- lega sannleikann - og allan sannleik- ann. í fyrsta pistli mínum hér í blaðinu var missagt að ég skrifaði frá Kaup- mannahöfn. Það rétta er að ég sit hér úti í sveit á Suður Sjálandi við að hripa þessar línur, umlukinn ökram og skógum.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.