Alþýðublaðið - 03.07.1997, Síða 3
FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1997
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
s k o ð a n i r
Veiðimannaþjóðfélag og framtíðin
Frændur vorir Grænlendingar hafa
að undanfömu hrætt líftóruna úr ís-
lensku þjóðinni með hugmyndum
sínum um að á Grænlandi verði kom-
ið upp geymslustöð fyrir úrelt kjarn-
orkuvopn. Ljóst er að ef af því yrði
myndi það gera Islendingum ntjög
erfitt fyrir að halda áfram að kynna
ímynd íslands sem land óspilltrar
náttúru, auk þess sem það gæti á
svipstundu gereytt mörkuðum okkar
fyrir ftsk ef illa færi, svo ekki sé tal-
að um ferðaþjónustuna - vaxtar-
broddinn í atvinnulífínu. I raun má
hugsa sér að það þyrfti ekki annað en
orðróm um mengun til að kaupendur
myndu hætta að líta við íslenskum
fisk, því hver vill borða krabba-
meinsvaldandi fisk? Og hver vill
heimsækja geislavirkt land? Þetta
vakti mig til umhugsunar um framtíð
íslands í heimi þar sem þeir sem ráða
Pqllborð |
Hreinn
Hreinsson
skrifar
hafa enn ekki náð stjóm á versnandi
ástandi umhverfisins og ekkert bend-
ir til þess að það sé að breytast ef
marka má nýafstaðna umhverfisráð-
stefnu sem endaði með skammarleg-
um hætti.
Langstærstur hluti útflutnings-
verðmæta okkar kemur úr sjávarút-
vegi og þaðan kemur því sá drifkraft-
ur sent stjórnar hagsveiflum hér. Ef
lítið veiðist og verð lækkar er kreppa
en um leið og fleiri þorskar veiðast
verður uppsveifla. Þannig hefur það
verið alla tíð og þannig mun það
verða ef hugsunarháttur okkar breyt-
ist ekki. Með þessu er ég ekki að gera
lítið úr þeirri verðmætasköpun sem
er í sjávarútvegi og ég er heldur ekki
að gera lítið úr því fólki sem starfar í
sjávarútvegi og greinum tengdum
honum. Mín skoðun er hins vegar sú
að við sem þjóð erum með flest okk-
ar egg í sömu körfu og erum því al-
gerlega háð því hvað verður um þessi
ágætu egg. Allt þjóðfélag okkar, heil-
brigðiskerfi, menntakerfi, félagsleg
aðstoð og skattkerfi, er háð því
hvemig fiskast, því ef illa fiskast þarf
að skera niður eða reka ríkissjóð með
halla. Hvað myndi til dæmis verða
um íslenskt þjóðfélag ef skip á leið
til Grænlands með kjarnorkusprengj-
ur myndi sökkva í landhelgi okkar?
Það sem myndi gerast væri algert
hmn og þá gætum við ekki menntað
bömin okkar eða rekið sæmilegt
heilbrigðiskerfi. Getum við sem sið-
menntuð nútímaþjóð sætt okkur við
það að þurfa að lifa eftir lögmálum
veiðimannasamfélags? Einhæft at-
vinnulíf er ávísun á miklar hagsveifl-
ur sem stjómmálamenn geta ekki
ráðið við og munu valda því að um
alla framtíð mun velferðarþjóðfélag-
ið, það er þjónustan við íbúana,
verða háð því hvort vertíð verði góð
eða slærn.
Stjómvöldum ber því að stefna að
því að skapa það umhverfi að jafn-
rétti og jafnvægi riki milli atvinnu-
greina þannig að framtíð okkar verði
ekki algerlega háð sveiflum fiski-
stofna. Svo ekki sé talað um þá tíma-
sprengju sem mengun hafanna er.
Við getum illa stjórnað náttúmnni en
við getum stjómað því hvemig við
bregðumst við henni. Því er það
ábyrgðarhluti og skortur á raunsæi að
efla ekki fjölbreytni atvinnulífsins,
því hvort sem mönnum líkar það bet-
ur eða verr þá er það allt of mikil
áhætta að búa við einhæft atvinnulíf.
Það mun alltaf verða til þess að við
munum dragast aftur úr öðram þjóð-
um sem ekki eru eins háðar duttlung-
um náttúmnnar og við. í framtíðar-
hugsun felst því að losa sig út úr
hugsun veiðimannasamfélagsins því
sú hugsun mun ekki skila okkur
lengra en við þegar höfum náð, og
við viljum ná lengra. Að lokum
krefst ég þess að jafnaðarmenn og fé-
lagshyggjufólk sameinist í einum
flokki fyrir næstu kosningar.
Stjórnvöldum ber því að stefna að því að skapa
það umhverfi að jafnrétti og jafnvægi ríki milli
atvinnugreina þannig að framtíð okkar verði ekki
algerlega háð sveiflum fiskistofna.
Forsetaflokkurinn, sem svo er
stundum nefndur vegna stöðu
sinnar innan hins sigursæla
framboðs Ólafs Ragnars
Grímssonar hélt nýlega upp á að
ár er liðið frá kosningasigrinum. Til
flokksins teljast þeir, sem voru í
innsta kjama framboðsins, og af
þeim voru allar helstu kanónumar
mættar í teitið, sem haldið var að
heimili Guðnýjar Aradóttur, en
fyrir utan að vera deildarstjóri
tölvudeildar Póstgíróstofunnar var
Guðný einskonar
þúsundþjalasmiður og reddaði því
sem aðrir gáfust upp á. Meðal
þeirra voru að sjálfsögðu Mörður
Árnason og lífsförunautur hans
Linda Vilhjálmsdóttir skáldkona.
Fjármálaséni baráttunnar,
Kristján Einarsson úr
Rekstravörum var á staðnum og
þingmaður Alþýðubandalagsins
Bryndís Hlöðversdóttir en
maður hennar Hákon
Gunnarsson var ómissandi
burðarás í kosningastarfi Ólafs á
fyrstu mánuðum baráttunnar.
Meðal annarra sem mættu líka
vom bræður Guðrúnar Katrínar
forsetafrúar, þeir Þorbergur
verkfræðingur og Þór
Þorbergssynir. Sjálf forsetahjónin
gátu hinsvegar ekki mætt sökum
anna við að halda upp á 50 ára
afmæli Egilstaða en í þeirra stað
voru mættar tvíburadætur þeirra,
Tinna og Dalla Ólafsdætur. ..
Meðal umræðuefna í
ársafmæli forsetaflokksins
var að sjálfsögðu hvað hann ætti
að taka sér fyrir hendur næst.
Einfaldar og ómerkilega kosningar
til þings og sveitastjóma virtust
ekki teljast verðugt viðgangsefni
innan flokksins. Mönnum varð
hinsvegar tíðrætt um nauðsyn
þess að sinna betur því sem
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
verið að reyna að skilgreina í
forsetaræðum sínum sem
<i>íslenska samfélagið. En undir
það falla hinir stóru hópar
íslendinga á Norðurlöndum, ibúar
Kanada og Bandaríkjanna sem
telja sig vera af íslensku bergi
brotnir auk annarra smærri
íslendingadreifa. Sumir vilja
raunar einnig fella undir hugtakið
alla þá hópa, sem telja sig tilheyra
menningu sem er náskyld þeirri
íslensku. Þó það væri ekki nefnt
upphátt vakti væntanlega með
ýmsum á svæðinu, að um leið og
jaðar hins íslenska samfélags yrði
með þessum hætti brotinn út yrði
forseti (slands að sjálfsögðu miklu
áhrifameiri en áður. En bestu
menn telja að það yrði ekki á móti
skapi herra Ólafs....
Ifélagsmálaráðuneytinu er allt
búið að vera á öðaim endanum
síðan stjórn Húsnæðisstofnunar
tók til formlegrar umræðu
ofangreint trúnaðarbréf úr
bankakerfinu. I kjölfar uppljóstrana
um efni bréfsins skrifaði Jónas
Kristjánssonar ritstjóri DV leiðara,
þar sem Páll Pétursson var hirtur
af aðdáunarverðri fagmennsku.
Vandarhögg Jónasar ollu
greinilega þungum sviða á
pólitískum bakhlutum ráðherrans
og aðstoðarmannsins, því miklar
rannsóknir voru settar í gang á
því hverjir hefðu skrifað bréfið og
hvemig það barst í hendur
stjómar Húsnæðisstofnunar.
Starfsmenn ráðuneytisins höfðu
hinsvegar gaman af uppistandinu
og pukruðust með leiðara Jónasar
í Ijósriti einsog mannsmorð...
“FarSlde" eftir Gary Larson
fimm q förnum veg i
Truflar birtan nætursvefninn hjá þér?
MW&;
Björn Ingi Kristjánsson: Solveig Anderson:
Nei. Við verðuni að venjast
henni.
Lisbet Heap:
Það var ekkert erfitt að
sofna í gærkvöldi.
Guðmundur Valtýsson: Jónína Eyvindsdóttir:
Nei. Já.
v i t i m e n n
Það verður ekki séð að Sophia
muni fá börnin, burtséð frá
góðum óskum þess varðandi.
Karl Steinar Guðnason, forstjóri Trygg-
ingastofnunar að ræða um mál Sophiu
Hansen, í DT.
Maður kannast við ótal per-
sónur úr þjóðlífinu. Menn sem
ætla að verða milljónamær-
ingar á mánuði á því að flytja
inn bréfaklemmur.
Ólafur Darri Ólafsson, aðalleikar myndar-
innar Perlur og svfn sem Óskar Jónasson
er að gera, í Mogganum.
Ef það vantar í kassann, þá
áttu bara að borga svipað og
þú gerðir síðast góði.
Ónefndur kaupmaður að ræða vaskinn,
ÍDT.
Það er skemmtilegt að aka
Þingvallahringinn og komast
hjá því að aka sömu leið til
baka til Reykjavíkur.
Víkverji Moggans.
Hún er óhefðbundinn en við
töldum hana forsvaranlega þar
sem aðstæður voru óvenju-
legar.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri að
réttlæta ráðningu skólastjóra sem
Skólatjórafélagið átaldi, í DT.
Afstaða mín gagnvart forseta
íslands í hlutverki skrautfjöð-
urs eða sprjátungs er alþjóð
kunn eftir þær yfirlýsingar
sem ég gaf í bókinni Virkjum
Bessastaði og í hinum ýmsu
sjónvarps og útvarpsumræð-
um.
Ástþór Magnússon, fyrrum forsetafram-
bjóðandi, í DT.
Ekki er kyn þótt keraldið leki,
segir í góðri sögu. Botninn er
suður í Borgarfirði. Ég held að
allur ættbogi Bakkabræðra sé
þar líka.
Guðrún Helgadóttir í DT.
Menn hafa bara byggt þetta
upp á bjartsýninni. Við höfum
svo sem fengið styrki en það
eru bara baunir í samanburði
við stóru húsin.
Hörður Þorsteinsson, hjá Flugfélaginu
Lotti, I DT.
Ég furða mig ekki á því að menn
séu vondir. Ég furða mig hins vegar
oft á því að þeir skuli ekki skammast
sín.
Jonathan Swift.