Alþýðublaðið - 18.07.1997, Side 1

Alþýðublaðið - 18.07.1997, Side 1
■ Sjómenn eru með lausa samninga og hafa verið frá áramótum. Ekkert gerist í samningaviðræðum, sem reyndar hafa legið niðri um nokkurn tíma Útgerðin hafnaröllu - segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands íslands. Sjúkraliðar hafa einnig verið með lausa samninga frá áramótum. Meðal þeirra gætir óþreyju. , ,Það er ekkert að gerast. LÍÚ hef- ur hafnað öllum okkar hugmyndum. Þeir virðast ekki vilja ræða við okkur nema verkfallsvopninu sé beitt,“ sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, en sjó- menn eru að verða lanfþreyttir á að ekki sé gengið til alvöru samninga- viðræðna, þar sem samningar hafa verið lausir frá áramótum. “Við höfum séð þetta ástand oft áður. LÍÚ hefur þá vinnureglu að semja ekki nema átök sé framundan eða hafin. Við látum það ekki yfir okkur ganga að vera samningslausir langtímum saman. Meginkrafa okkar er verðmyndunin, það er kvótabrask- ið, aðrar kröfur eru ekki miklar eða háar, en kvótabraskið er númer eitt, tvö og þijú,“ sagði Sævar Gunnars- son formaður Sjómannasambands- ins. Sjómenn hafa rætt í sínum hópum að sennilega sé best að bíða með verkfallsboðanir til haustsins. Hjá Sjúkraliðafélagi Islands feng- ust þær upplýsingar að ekkert sé að gerast í þeirra samningamálum, en sjúkraliðar hafa verið með lausa samninga frá áramótum. Innan þeirra raða gætir mikillar óánægju með hversu lengi hefur dregist að hefja samningaviðræður af alvöru, en mestum tíma hefur verið eytt í að ræða nýtt launakerfi, þrátt fyrir að sjúkraliðar hafi sagt að þeir vilji ekki taka upp nýtt launakerfi, allavega ekki að svo stöddu. ■ Jóhann Jónsson skáld 1917 „Lífið leikur við mig“ „Yfir höfuð leikur lífið mig. Ég er kostaður í skóla af ein- hverjum ríkasta mann landsins, Ludvig Kaaber konsúl. Kom Einar Jónsson myndhöggvari mér í kynni við hann. Lætur hann mig ekkert vanta.“ Þannig kemst Jóhann Jónsson skóla- piltur m.a. að orði í áður óbirtu bréfi til Magnúsar Kristjánsson- ar frænda síns 6. desember árið 1917. Bréfið er meðal ýmissa áður óbirtra gagna úr ævi Jóhanns Jónssonar skálds sem koma fram í greinaflokki Óskars Guðmundssonar um skáldið sem hefst í Alþýðublaðinu í dag. Margt kemur þar í ljós sem varpar ljósi á hið dulúðga og ástsæla skáld undan Jökli. ■ Þorsteinn Pálsson „Ég vissi ekki" Þorsteinn Pálsson hefur sagt að hann hafi ekki vitað af fjár- hagskröggum Hallvarðar Ein- varðssonar. Samt hefur komið fram aðstoðarmaður hans, Ari Edwald tjáði sig um málið í júlí 1993. - Sjá bls. 5 HP í miklum erfiðleikum - Oddinn neitaði að prenta Við höfum ákveðið að halda áfram, segir framkvæmdastjórinn inu í gærmorgun gegn stað- greiðslu. Prentsmiðjan ísafold er sem kunnugt er í eigu DV að hluta til sem er að hluta í eigu Jóns Ólafssonar. Það er því Jón Ólafsson sem prentar Helgarpóst- inn meðan þessar erjur standa yfir. „Við eigum útistandandi tekjur fyrir auglýsingar og smásölu sem dygðu fyrir skuldum og ef blaðið yrði gert upp þá stæði það á sléttu,“ segir Ámi Bjöm Ómars- son framkvæmdastjóri. „Við höf- um hinsvegar ákveðið að halda rekstrinum áfram þrátt fyrir þessa erfiðleika og munum eiga fund með Odda eftir helgi.“ Helgarpósturinn á í miklum erfiðleikum og skuldar laun og prentkostnað í Odda en hefur staðið í samningaviðræðum við Odd- ann um lækkun á prentkostnaði sem er um það bil 400 þúsund á viku. Leikar fóm þannig að Oddinn hefur ekki samþykkt að lækka prentkostnað í neinum teljandi mæli, þeir gerðu tilboð sem HP mönnum fannst ekki ásættanlegt. í gær neitaði Oddi að prenta blaðið nema skuldin yrði greidd að hluta. Samkvæmt heimildum blaðsins gerðu þeir þá kröfu að eigendur blaðsins gengust í persónulegar ábyrgðir fyrir skuld- um. Alþýðubandalagið sem er einn hluthafa neitaði hinsvegar að koma nokkuð nálægt því og féll það þar með um sjált sig. HP menn gátu ekki greitt tilsetta upphæð og leituðu til ísafoldar um prentun á blað- flliLfl DflCfl 10-18 Alnavörubúðin Eyrarvegi 25, Selfossi, s. 482 2950 Breiðumörk 2, Hveragerði, s. 483 4517 j Ö0* FfiTN/iÐUR ÁKUO) GLUGGiiTjfllDStrSl SÆNGURfnTStm

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.