Alþýðublaðið - 18.07.1997, Blaðsíða 1
■ Sjómenn eru með lausa samninga og hafa verið frá áramótum. Ekkert gerist í
samningaviðræðum, sem reyndar hafa legið niðri um nokkurn tíma
Útgerðin hafnaröllu
- segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands íslands. Sjúkraliðar hafa einnig verið með lausa
samninga frá áramótum. Meðal þeirra gætir óþreyju.
, ,Það er ekkert að gerast. LÍÚ hef-
ur hafnað öllum okkar hugmyndum.
Þeir virðast ekki vilja ræða við okkur
nema verkfallsvopninu sé beitt,“
sagði Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Islands, en sjó-
menn eru að verða lanfþreyttir á að
ekki sé gengið til alvöru samninga-
viðræðna, þar sem samningar hafa
verið lausir frá áramótum.
“Við höfum séð þetta ástand oft
áður. LÍÚ hefur þá vinnureglu að
semja ekki nema átök sé framundan
eða hafin. Við látum það ekki yfir
okkur ganga að vera samningslausir
langtímum saman. Meginkrafa okkar
er verðmyndunin, það er kvótabrask-
ið, aðrar kröfur eru ekki miklar eða
háar, en kvótabraskið er númer eitt,
tvö og þijú,“ sagði Sævar Gunnars-
son formaður Sjómannasambands-
ins.
Sjómenn hafa rætt í sínum hópum
að sennilega sé best að bíða með
verkfallsboðanir til haustsins.
Hjá Sjúkraliðafélagi Islands feng-
ust þær upplýsingar að ekkert sé að
gerast í þeirra samningamálum, en
sjúkraliðar hafa verið með lausa
samninga frá áramótum.
Innan þeirra raða gætir mikillar
óánægju með hversu lengi hefur
dregist að hefja samningaviðræður af
alvöru, en mestum tíma hefur verið
eytt í að ræða nýtt launakerfi, þrátt
fyrir að sjúkraliðar hafi sagt að þeir
vilji ekki taka upp nýtt launakerfi,
allavega ekki að svo stöddu.
■ Jóhann Jónsson
skáld 1917
„Lífið
leikur
við
mig“
„Yfir höfuð leikur lífið mig.
Ég er kostaður í skóla af ein-
hverjum ríkasta mann landsins,
Ludvig Kaaber konsúl. Kom
Einar Jónsson myndhöggvari
mér í kynni við hann. Lætur
hann mig ekkert vanta.“ Þannig
kemst Jóhann Jónsson skóla-
piltur m.a. að orði í áður óbirtu
bréfi til Magnúsar Kristjánsson-
ar frænda síns 6. desember árið
1917.
Bréfið er meðal ýmissa áður
óbirtra gagna úr ævi Jóhanns
Jónssonar skálds sem koma
fram í greinaflokki Óskars
Guðmundssonar um skáldið
sem hefst í Alþýðublaðinu í
dag. Margt kemur þar í ljós
sem varpar ljósi á hið dulúðga
og ástsæla skáld undan Jökli.
■ Þorsteinn Pálsson
„Ég vissi
ekki"
Þorsteinn Pálsson hefur sagt að
hann hafi ekki vitað af fjár-
hagskröggum Hallvarðar Ein-
varðssonar. Samt hefur komið
fram aðstoðarmaður hans, Ari
Edwald tjáði sig um málið í júlí
1993. - Sjá bls. 5
HP í miklum erfiðleikum -
Oddinn neitaði að prenta
Við höfum ákveðið að halda áfram, segir framkvæmdastjórinn
inu í gærmorgun gegn stað-
greiðslu. Prentsmiðjan ísafold er
sem kunnugt er í eigu DV að
hluta til sem er að hluta í eigu
Jóns Ólafssonar. Það er því Jón
Ólafsson sem prentar Helgarpóst-
inn meðan þessar erjur standa
yfir.
„Við eigum útistandandi tekjur
fyrir auglýsingar og smásölu sem
dygðu fyrir skuldum og ef blaðið
yrði gert upp þá stæði það á
sléttu,“ segir Ámi Bjöm Ómars-
son framkvæmdastjóri. „Við höf-
um hinsvegar ákveðið að halda
rekstrinum áfram þrátt fyrir þessa
erfiðleika og munum eiga fund
með Odda eftir helgi.“
Helgarpósturinn á í miklum erfiðleikum
og skuldar laun og prentkostnað í Odda en
hefur staðið í samningaviðræðum við Odd-
ann um lækkun á prentkostnaði sem er um
það bil 400 þúsund á viku. Leikar fóm
þannig að Oddinn hefur ekki samþykkt að
lækka prentkostnað í neinum teljandi mæli,
þeir gerðu tilboð sem HP mönnum fannst
ekki ásættanlegt. í gær neitaði Oddi að
prenta blaðið nema skuldin yrði greidd að
hluta. Samkvæmt heimildum blaðsins
gerðu þeir þá kröfu að eigendur blaðsins
gengust í persónulegar ábyrgðir fyrir skuld-
um. Alþýðubandalagið sem er einn hluthafa
neitaði hinsvegar að koma nokkuð nálægt
því og féll það þar með um sjált sig.
HP menn gátu ekki greitt tilsetta upphæð
og leituðu til ísafoldar um prentun á blað-
flliLfl DflCfl
10-18
Alnavörubúðin
Eyrarvegi 25, Selfossi, s. 482 2950
Breiðumörk 2, Hveragerði, s. 483 4517
j Ö0*
FfiTN/iÐUR ÁKUO) GLUGGiiTjfllDStrSl SÆNGURfnTStm