Alþýðublaðið - 31.07.1997, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 31. júlí 1997 ___________________________Stofnað 1919______________________________________________________102. tölublað - 78. árgangur
■ Allir röntgenlæknar á Landspítalanum hafa sagt upp störfum
Læknaflótti er brostinn á
segir Ólafur Kjartansson yfirlæknir. Læknum boöin ótrúleg kjör í Noregi. Landspítalinn gæti lamast að mestum hluta
Verulegur launamunur er milli
röntgenlækna á Sjúkrahúsi Reykja-
víkur og Landspítalanum. Röntgen-
deildin á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fær
að njóta sértekna af sjúklingum sem
ekki eru á sjúkrahúsinu, en það fær
deildin á Landspítalanum ekki. Þetta
hefur orðið til þess að launamunur
milli sjúkrahúsanna er verulegur.
„Ég vil ekki nefna hversu mikill
hann er, en hann er verulega mikill,"
sagði Ólafur Kjartansson yfirlæknir.
Ólafur segist ekki vongóður um að
takist að halda í þá lækna sem hafa
sagt upp. Þegar hafa tveir læknar
hætt og átta eru eftir. A þeim er mik-
ið vinnuálag. Læknunum bjóðast
betri laun á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur og ekki síður í öðrum löndum.
Ólafur segir að Norðmenn geri
ýmislegt til að fá til sín sérfræðinga
og að röntgenlæknum bjóðist tvöfalt
hærri laun þar en þeir fá hér á landi,
og á þá eftir að taka tillit til hversu
vinnutíminn er styttri í Noregi. Ólaf-
ur er áhyggjufullur og segir að flótti
sé þegar brostinn á læknaliðið. En
það er ekki allt. „Það er erfxtt að ný-
liða deildina vegna
þess launamunar sem
g Éy er hér og á Sjúkra-
xr húsi Reykjavíkur.
Ef fer sem horfir þá
%, mun spítalinn lam-
’Bp:' ast að mestu. Það
iFfe, sem Landspítal-
inn getur gert,
til að reyna að
halda þessum
sérfræðingum í vinnu, er að bjóða
þeim sömu kjör og eru á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur. Annars komum við til
með að tapa læknum," sagði Ólafur.
Það er ekki einungis samkeppm
milli sjúkrahúsanna, heldur er einka-
fyrirtæki með í samkeppnixmi. En
vandamál Landspítalans skýrir Ólaf-
ur þannig:
„Við höfum enga samkeppnis-
stöðu. Deildin sem slík nýtur á engan
hátt þeirra sértekna sem hún aflar.
Þetta hefur leitt til þess að launamun-
„Þetta er frábær frammistaða. Ríkharður átti þrjú og hálft mark af þess-
um fjórum, það var jú brotið á honum þegar vítið var
dæmt í fyrri leiknum," sagði hinn kunni knatt-
spymumaður, Ríkharður Jónsson á Akra-
nesi, en hairn er afi Ríkharðs Daðasonar
markaskorara í KR.
KR-ingar gerðu sér lítið fyrir og sigmðu
Dínamó Búkarest á útivelli í gær 2-1 og
samanlagt 4-1. Sigrar íslenskra liða á úti-
völlum hafa ekki verið margir og því er
þessi frammistaða KR eftirtektarverð. Rík-
harður Daðason skoraði bæði mörkin í gær,
en hann skoraði síðara markið í fyrri leiknum.
-En eru þeir líkir knattspyrnumenn Rík-
harður Jónsson og Ríkharður Daðason?
„Nei, það eram við ekki, það er bara
nafnið. Annars er ég viss um að Ríkharður
á mikið inni, það fer eftir þeirri þjálfun
sem hann á eftir að fá hvort hann á eftir að
sýna það sem í honum býr. Ég er undrandi
á að hann hafi ekki verið senter í allt sum-
ar, markhæsti leikmaður síðasta íslands-
móts.“
Á myndinni er Ríkharður Daðason og
félagar hans að fagna marki Ríkharðs á
Laugardalsvelli, þegar hann tryggði KR sig-
ur í fyrri leiknum gegn Dínamó.
■ Sumarlokanir sjúkrahúsanna
Hrikalegasta sumarið til þessa
starfsfólk flýr sjúkrahúsin vegna þreytu og ótrúlegs vinnuálags
Sumarlokanir sjúkrahúsanna hafa
haft verri afleiðingar í sumar en til
þessa. „Það er hryllilegt ástand, þetta
er alversta sumarið sem við höfum
upplifað. Það er ekki nóg með að
álag á starfsfólk sé yfirgengilegt,
heldur eru staðan orðin þannig að
fólk flýr þessa vinnu, fólk er uppgef-
ið og getur ekki lagt þetta á sig öllu
lengur," sagði starfsmaður á sjúkra-
húsi í Reykjavík í samtali við blaðið.
“Þessar lokanir leggjast illa í alla.
Það er ekkert gamanmál að horfa upp
á þarfir sjúklinganna og fá ekkert að
gert. Það er ekki bara á hjartadeild,
eins og rætt var um um daginn, það
er víðar sem fólk bíður langtímum
saman eftir að komast í aðgerðir. Það
fær ekki staðist að þetta skili spam-
aði. Þegar upp er staðið er þetta dýrt,
ekki bara fyrir sjúklingana, heldur
samfélagið allt,“ sagði annar starfs-
maður í heilbrigðisstétt.
Alþýðublaðinu var bent á atvinnu-
auglýsingar í fjölmiðlum. í hverri
viku er auglýst eftir fólki í umönnun
og skortur á hjúkranarfræðingum og
sjúkraliðum er mikill. „Það er ekki
nema von, fólk er yfirkeyrt," sagði
viðmælandi blaðsins.
Hjá Sjúkraliðafélagi Islands feng-
ust þær upplýsingar að óvenju mikið
sé leitað eftir sjúkraliðum og sjaldan
áður hafi verið auglýstar eins margar
lausar stöður og nú.
í viðtölum við starfsfólkið kom
fram að vonbrigði þess era mikil og
ekki síst með störf Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra, sér-
staklega þar sem hún er hjúkrunar-
fræðingur og því vora vonir bundnar
við að hún hefði skilning á þeim erf-
iðleikum sem fylgja lokunum deilda.
Ekki náðist í heilbrigðisráðherra
vegna fréttarinnar.
Ingibjörg Pálmadóttir á
eríið verk framundan.
urinn er talsverður. Sérfræðingar hér
telja að það byggist á þeim greiðslum
sem sérfræðingar á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur fá vegna utanspítala-
sjúklinga."
■ Alþýðubandalagið
Sóttað
Alþýðubandalagsmenn á Aust-
fjörðum er ekki á eitt sáttir með
frammistöðu þingmanns flokks-
ins, Hjörleifs Guttormssonar. Þeir
era að undirbúa að koma í veg
fyrir að hann verði í framboði í
næstu kosningum. Stefnt er að
því að Guðmundur Bjarnason,
bæjarstjóri á Neskaupstað taki
fyrsta sæti á lista flokksins.
Bent er á að þegar Hjörleifur
hóf þingmennsku átti flokkurinn
þrjá þingmenn í kjördæminu, þá
Lúðvík Jósefsson, Helga Seljan
og Hjörleif. Nú er Hjörleifur eini
þingmaður flokksins í Austur-
landskjördæmi.
■ Hveragerði
Löggan
rannsakar
mengun
Lögreglan í Ámessýslu er að rann-
saka mengun sem varð í Varmá í
Hveragerði, en fiskar, á stóra svæði í
ánni, drápust um síðustu helgi. Verið
er að rannsaka fiskana til að fá úr
skorið hvers vegna þeir drápust.
Granur er um að hreinsun í sund-
lauginni í Laugaskarði tengist mál-
inu, en verið var að hreinsa laugina
þessa sömu helgi.
■ Alþýðublaðið
Samningurinn
samþykktur
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, lagði í gæi
fyrir flokkstjóm drög að samningi
við Dagsprent, um samstarf á sviði
útgáfumála. Hreinskiptar umræðui
urðu um útgáfumálin. Flokkstjóm
gaf framkvæmdastjóm umboð til
að ganga frá samningi samkvæmt
þeim drögum sem fyrir lágu.
Á morgun kemur út síðasta tölu-
blað Alþýðublaðsins í núverandi
mynd. Blaðið verður stærra en
vanalega, enda stiklað á tindum í
sögu þess.