Vísir - 07.02.1976, Síða 2

Vísir - 07.02.1976, Síða 2
2 Hvað ætlarðu að gera um helgina? Aldis Kristinsdóttir, vinnur á kaffistufu i Hagkaup: — Ég er ekki búin að ákveða það ennþá. Mér þykir þó sennilegt að ég bregði mér á ball, ég geri það öðru hvoru. Gerður Kgilsdóltir, afgreiðslu- stúlka: —Égeraðfara á árshátið hjá Hagkaup. Það verður örugg- lega ofsagaman Hér er fólk sem kann að skemmta sér og fer bara til að skemmta sér. Hjörtur Glslason', smiður: — Yfirleitt er ég að vinna um helg- ar. Ég er trésmiður og kemst ekki oft út að skemmta mér um helg- ar. Ef ég verð ekki að vinna sit ég sennilega heima i rólegheitunum. Baldur Kristjánsson, kennari: — Sennilega nota ég helgina til að vinna i húsbyggingum. Sjálfur er ég þó ekki iðnaðarmaður fúska aðeins við þetta. Þorleif Sigurðardóttir húsmóðir: — Ég verð að öllum likindum heima. Enda var ég i leikhúsinu á fimmtudaginn. Ég geri mikið af þvi að fara i leikhús. Elsa Bcrtelsen, húsmóðir: — Ég ætla að halda upp á afmæli mannsins mins og vona að þar verði margt um manninn. Annars er ég venjulega heima hjá mér um helgar, ég er nefnilega sveita- kona. Hvað verður um vörpurnar, - halda þœr ófram að veiða? Fáfróður iesandi skrifar: Mig langar ákaflega mikið til að fá svar við einni spurn- ingu, sem ég hef velt fyrir mér um nokkurn tima, ef þess er nokkur kostur. Þetta er kannski heimsku- leg spurning, en hún er: Hvað verður um vörpurnar sem skornar eru aftan úr bresku togurunum á miðunum? Ég veit að visu að þær lenda i sjónum þegar skorið er á báða togvirana, en eru þær hættulausar þar? Eða halda þær bara áfram að veiða? Eru þær ekki yfirleitt úr ein- hverju nælon eða gerviefni sem ekki rotnar fyrr en eftir dúk og disk? Þarf þá kannski á komandi árum að koma upp neðan- sjávar landhelgisgæslu til að fylgjast með árans vörpunum bresku sem skornar voru aft- an úr? Starfsmaður Landhelgis- gæslunnar fullyrti að trollin mundu hættulaus með öllu, þau féllu til botns og tækju ekki upp á neinum sjálfstæð- um veiðum. Listaverkin upplyfting í rigningunni Listunnandi vegfarandi skrif ar: Á hverjum degi geng ég niður Bankastræti á leið til vinnu minnar. Nú fyrir nokkr- um dögum tók ég eftir mjög skemmtilegu málverki i glugganum á Bristol. Ég hélt að sjálfsögðu að myndin væri til sölu og fór inn til að spyrja um verðið. Þá var mér sagt að þetta væri ekki söluvara, heldur aðeins til augnayndis og skreytingar. Þetta finnst mér virðingar- vert framtak og fyndist mér skemmtilegt ef fleiri verslanir tækju upp þessa stefnu, að hafa listaverk i gluggum sin- um vegfarendum til ánægju- auka. Þetta þyrfti ekki að ein- skorðast við málverk, heldur margskonar listaverk, skúlp- túr og fleira. Ég hef séð svona gluggaskreytingar erlendis, en aldrei rekið augun i þetta fyrr hér heima. Listaverk i búðargluggum yrði held ég flestum kærkomin upplyfting i righingunni. Árshótíð Fimmeyringa Undirbúningsnefndin á Fimmeyri skrifar: Árshátíð Frarhsóknar- flokksins í Búsýslu 1976. Arshátið Framsóknar- flokksins i Búsýslu verður haldin að Hótel BÓN-BJÖRG á Fimmeyri, Búsýslu, laugar- daginn 14. febr. n.k. Hátiðin hefst með borðhaldi og verður eftirfarandi reitt fram: 1. Nato luns i sjálfstæðri sósu. 2. Innflutir kjúklingar i fram- hjá-hlaupi. 3. Desert de la „MAFfA”, með haftakexi. Skemmtiatriði: 1. Leiðari timans sunnudag- inn 15. febrúar n.k. lesinn upp i heyranda hljóði. 2. Kvennakór Framsóknar- flokksins „Hásar hænur” syngur lög flokksins og breytingar við lög flokks- ins, sem siðan verða bornar undir atkvæði. 3. Alfreð Þorsteinsson kemur sér i mjúkinn hjá lyftinga- mönnum. 4. Óli Jó svarar spurningum mættra i 1 klst. i þættinum „Hrein pina”. 5. Framsóknarvist. Spiluð verður „já og nei vist” 6. Pans. Skólahljómsveit flokksins leikur fyrir dansi. Þeim, sem rörig spor stiga verður visað úr flokknum fyrirvaralaust. Verð aðgöngumiða verður auglýst siðar. Innhcimt verð- ur siðan sbr. heimild i lögum flokksins nr. 1 frá 24. febr. 1236, þar sem formanni flokksins er m.a. veitt óskorað vald til þess að skipta sér af öllu og öllum hvenær sem er og að viðhafa öli þau ummæli, sem honum þóknast hvar sem er. Húsið verður opið i báða enda frá kl. 17-19. Nefndin.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.