Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 1
Vigtasvik þykja sjálfsögð í korn- verslun USA sjá us. ^ r Æskulýðs- og fórnarvika kirkjunnar stendur nú yfir. Að þessu sinni er hún helguð baráttu fyrir bættri að- stöðu þroskaheftra barna. Á bls. 2-3 er reynt aðdraga upp mynd af aðstöðu eða öllu heldur að- stöðuleysi þessara barna eins og það er i: dag. Helgi Hallvarðsson skipherra: Smáfiskadráp í Reykjafjarðarál — Engin skipakostur til þess að fylgjast með smáfiskadrápi segir Jón Jónsson Helgi Hallvarðsson skipherra segir i samtali við Visi i dag, að hann hafi nýlega komið að is- lenskum togurum i Reykjafjarðarál og hefðu skipstjórarnir talað um það i talstöðvunum að mikið af aflanum væri smáfiskur. Jón Jónsson forstjóri Hafrannsóknarstofn- unarinnar segir, að fiskifræðingar hafi heyrt um það talað, en hafi ekki skipakost til að ganga úr skugga um það. Þar stendur hnif- urinn i kúnni. Sjábls. 3 „Lóttu þó Statesman koma" — sagði Óli Valur stýrimaður á Tý Frá Óla Tynes fréttamanni Vísis um borö í varðskipinu Tý. — Týr lónar nú fram og aftur igrennd viö eina niu breska tog- ara 45 niilur austur af Gerpiy Ureska freigátan Júnó er hérna einnig 50 faöma i burtu. Ilún kom tii inóts viö okkur i gær eftir- tilvisun Nimrod njósna- þotu. Freigátan gætti þess mjög vei aö vcra alltaf milli togaranna og varpskipsins. Núna áöan fannst henni stefna Týs eitthvaö i- skyggiieg. Það varð uppi fótur og fit um borð. Mannskapurinn þusti að orrustustæðunum og skipherr- ann kom hlaupandi út á brúar- vænginn ásamt foringjaliði, en varðskipsmenn brostu góölát- lega. Togaramenn eru heldur dauf- ir I dálkinn eftir að Ægir hala- klippti Ross Kashmir i gær þrátt fyrir tilburði freigátunnar Galateu. Togaraskipstjórarnir kröfö- ust þess að hafin yrði skothrið á varöskipin ef þau yrðu ekki far- in fyrir klukkan 18 i gærkvöldi. Við erum samt ofansjávar enn- þá. Veður er nú að verða gott til klippingar og annarra hrelling- araðgerða. Týr vokar yfir tog- urunum sínum niu, en Baldur, Þór og Ægir leika sama leikinn við aðra hópa annars staðar. Togurunum til verndar eru 5 freigátur og tveir dráttarbátar. Þorvaldur Axelsson, skip- herra á Þór. kallaði Tý upp áö- an. Hann var þá yfir 14 togurum og meö honum freigata og tveir dráttarbátar. Hann bauð Tý annan dráttarbátinn. ,,Láttu þá Statesman koma, við skulum taka vel á móti hon- um ” sagði óli Valur 1. stýri- maður á Tý. Ríkis- sjóður skuldar 2000 millj. í formi happ- drœttis- skulda bréfa Verðtryggð happdrættis- skuldábréf rikissjóðs voru um siðustu áramót alls að nafnverði 1.1 milljarður króna. Aætlað innlausnar- verðgildi þeirra var þá 2 milljarðar króna. Happdrættisskuldabréfin hafa þvi hækkað að meðal- tali um tæplega helming, en nokkur hluti þeirra er tiltölu- lega nýútgefinn. T.d voru 115 milljónir seldar á s.l. hausti. —SJ Leyniþjónustan hnýsist í öll símskeyti Sjó bls. 7

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.