Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 11

Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 11
VISIR Föstudagur 12. marz 1976 ( y Hótel Saga. Föstudagur. Lokað í báðum danssölum en Grillið og Mimisbar opinn. Laugardagur. Hljómsv. Ragnars Bjarnasonar og Þuriður skemmta. sunnudagur. Útsýnarkvöld. Italiukynning. Hótel Borg. Hljómsveit Árna Is- leifs og Linda Walker skemmta. Klúbburinn. Föstudagur. Kaktus og hljómsveit Guðmundar Sigur- jónssonar. Laugardagur. Laufið og Dögg skemmta. Sunnudagur. Galdramenn og Kabarett leika. Tjarnabúð. Mexico leikur á laugardag. Lindarbær. Gömlu dansarnir á laugardagskvöld. Hijómsv. Rúts Kr. Hannessonar og Jakob Jóns- son. Tónabær. Paradis leikur á föstu- dagskvöld. Lokað laugardag. Sigtún. Pónik og Einar skemmta föstudags- og laugardagskvöld. Drekar leika fyrir gömlu dönsun- um sunnudagskvöld. Glæsibær.Ásar leika um helgina. Leikhúskjallarinn. Skuggar skemmta um helgina. Skiphóll. Hljómsv. Birgis Gunn- laugssonar skemmtir um helgina. Rööull. Stuðlatrió leikur föstu- dag. Alfa Beta leikur á sunnudag. óðal. Diskótek. Sesar. Diskótek. Stapi. Laufið leikur föstudags- kvöld. Ungó, keflavik. Dinamit skemmtir á föstudag. Hvoll Paradis leikur laugardags- kvöld. Festi, Grindavik Kabarett og lce- l'ield leika laugardagskvöld. „Pétur og Rúna"sýnt í Stykkis- hólmi Leikfélagið Grímnir frum- sýnir á laugardaginn verð- launaleikritið Pétur og Rúna eftir Birgi Sigurðsson i sam- komuhúsinu í Stykkishólmi. Leikstjóri er Arnhildur Jónsdóttir en leikarar eru alls 8. Mikil gróska er I leiklistar- lifinu og var haldið leiklistar- námskeið i haust, þar sem færri komust að en vildu. Hjá Grimni er barnaleikritið Hási drekinn eftir Benny Anderson einnig i æfingu og eru sýning- ar fyrirhugaðar á næstunni. Frumsýning er á laugardag kl. 9og tvær sýningar á sunnu- agkl. 5 og 9. Siðar er fyrirhug- að að fara i leikferðir um nágrannabyggðarlögin. Leik- félag Hafnar- fjarðar hefur aftur tekið barna- leikritið Ilalló krakkar til sýn- ingar eftir nokkurt hlé. Verður leikritið sýnt i Bæjarbiói og skólum borgarinnar, auk þess sem farið verður i leikferðir út á land eftir þvi sem fjárhagur leyfir. Næsta sýning verður á laugardag i Arbæjarskóla kl. 3. ....Og konurnar tóku völdin dulbúnar sem karlmenn. ,Rauð$okkur' fyrrí alda i kvöld gefst tækifæri til að bregða sér aftur i aldir, allt til blómaskeiðs Aþenu og fylgjast með þjóðmálum þeirra tima. Leikiistarfélag Mennta- skóians við Hamrahlið sýnir leikritið Þingkonurn- ar eftir þekktasta gamanleikjahöfund grikkja, Aristofanes, sem hóf höfundarferil sinn árið 427 f. Kr. Alls eru 28 hlutverk i leiknum, þar af 22 kvenna- hlutverk. Leikstjóri er Stefán Baldursson en leikritið er i islenskri gerð Kristjáns Árnasonar. Annað leikrit Aristofanesar var sýnt hér ekki alls fyrir löngu og þá einnig i þýðingu Kristjáns. Sýningin i kvöld hefst kl. 8.30 i sal Menntaskól- ans við Hamrahlið og verður önnur sýning um helgina á sunnudagskvöld. Það er ekki á hverjum degi sem frumsýnt er leikrit eftir is- lenska höfunda. Ungmennafélagið Skalla- grimur í Borgarnesi frumsýndi siðastliðinn iaugardag nýtt is- ienskt leikrit sem nefnist Svein- björg Hallsdóttir eftir ungan borgnesing Trausta Jónsson og er það frumraun hans á sviði leikritunar. Leikstjóri er Theodór Þórðarson sem I fyrsta sinn stjórnar leikriti. Leikendur eru 12. Leikritið er fært upp i tilefni þess að liðin eru 60 ár siðan að Ungmennafélagið Skallagrimur var stofnað. Búið er að sýna leikritið fjór- um sinnum i Borgarnesi við húsfylli og góðar undirtektir áhorfenda. Fyrirhugað er að fara leikför með verkið. Til Búðardals á föstudag, i Röst á Hellissandi laugardagskvöld, Lýsuhól Staðarsveit á sunnu- dagskvöld og siðan er ætlunin að sýna leikritið að nýju i Borgar- nesi. — EKG. Borgnesingar sýna íslenskt leikrit Ballhúsiii Umsjón: Þrúöur G. Haraldsdóttir. r SNILLDARLEIKUR I SÉRSTÆÐU VERKI Steinþór Gunnars- son sýnir í Keflavík LEIK- HÚSIN Þjóðleikhúsið. Föstudagur. Barnaleikritið Karlinn á þakinu sýnt kl. 3. Náttbólið kl. 8. Laugardagur. Karlinn á þak- inu sýnt kl. 3 og Carmen kl. 8. Sunnudagur. Karlinn á þakinu sýnt kl. 3. Góðborgarar ' og gálgafuglar, gestaleikur Ebbe Rode kl. 8. Litla sviðið.lnúk sýning kl. 3 á sunnudag. Iðnó Föstudagur. Frumsýning á Villiöndinni eftir Henrik Ibsen, kl. 8.30. Laugardagur. Skjaldhamrar eftir Jónas Árnason kl. 8.30. Sunnudagur. Villiöndin, önnur sýning kl. 8.30. Leikfélag Hafnarfjarðar Barnaleikritið Halló krakkar. Sýningar eru nú hafnar að nýju og verður næsta sýning á laugardag i Árbæjarskóla kl. 3. Leikfélag Akureyrar Barnaleikritið Rauðhetta verður sýnt á laugardag og sunnudag kl. 2. f rumsýnt ó Akranesi Á morgun frumsýnir Skaga- Þorsteinn Ragnarsson. Tvær ieikflokkurinn leikritiö Gisl eftir sýningar verða um helgina i Brenden Beham. Leikstjóri er Bióhöllinni. Frumsýning kl. 9 Herdis Þorvaldsdóttir en með annað kvöld og 2. sýning á aðalhlutverkin fara þau Halldór sunnudagskvöld á sama tima. Karlsson, Þórey Jónsdóttir og Ebbe Rode sýnir í Þjóðleikhúsinu Danski leikarinn Ebbe Rode hefur hlotið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda fyrir leikrit- ið Góöborgarar og gáigafuglar sem hann sýnir i boði Þjóðieik- hússins á sunnudagskvöidið. i Ekstrabiaðinu segir m.a.: „Ebbe Rode aleinn á sviðinu i rúmlega tvær klukkustundir, það var annað og meira en iþróttaafrde, annað og meira en one-man-show — þetta var ósvikin list, gulls igildi, hressi- leg og hrifandi.” Bent Mohn segir i Politiken: „Snilldarleikur i sérstæðu veiki. Hann var sérkennilegur. Og snilldarlegur. Þessi dagur, sem við fengum að upplifa með John Aubrey....” Að lokum segir Erik Hvidt m.a. i Kristiligt Dagblad: „Hlutverkið var eins og sniðið fyrir hæfileika hans. Túlkunin var snilldarleg.” Góðborgarar og gálgafuglar eftir Patrick Garland er byggt á endurminningabók enska fræði- mannsins og furðufuglsins Johns Aubrey, Brief Lives, en hann var uppi i Lundúnum á 17. öld. Leikritið lýsir siðasta degi i lífi Aubreys, daglegu amstri hans og upprifjunum, þar sem margar sögufrægar persónur blandast i leikinn. Þar má nefna Henrik 8., Elisabetu 1., Crom- well, Shakespeare, Ben Johnson og Sir Thomas More. Sýningar Ebbe Rode verða tvær. Sú fyrri á sunnudagskvöld og hin seinni á mánudagskvöld.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.