Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 3
VTSIR Föstudagur 12. marz 1976 3 N DÆMDUR ÚR LEiK Hér er púslað af miklum móði. Púsluspilin eru af ýmsum gerðum —og allir geta fundið það sem þeir ráða mátulega vel við. Ljósm.Loftur hátt og þar kemst engin vor- kunnsemi að. Auk þess er heil- brigðu börnunum ávinningur að þessari blöndun. Til dæmis kynnast þau þvi og venjast að sumir þurfiaðgangameð hækj- ur og spelkur. Á deildinni starfar sérmennt- að fólk að þjálfun barnanna. Þar er sjúkraþjálfi, þroska- þjálfi, fóstra og aðstoðarstúlka, sem undirbýr sig undir iðju- þjálfunarnám. Halla Hrólfs- dóttir, forstöðukona deildarinn- ar sagði, að æskilegast væri að hafa iðjuþjálfa, en þeir eru bara ekki á lausu. Hún sagði að norskur iðjuþjálfi hefði starfað með börnunum á annað ár og hefði það borið góðan árangur. Þegar við litum við i Kjarvalshúsi voru krakkarnir að Ijúka æfingu með tónlist, Þau reyndu hvert með sinu hljóðfæri að slá taktinn við lag sem leikið var á segulbandinu. Vilja gera foreldrum auðveldara að hafa börn sin heima Kenningin um normaliseringu ger-irráð fyrir að þroskaheftum séu búin llfsskilyrði, sem séu eins lik lifsskilyrðum annarra þjóðfélagsþegna og mögulegt sé. Til þess að svo megi verða, verði að útiloka hin fjölmennu hæli, sem.nú eru mest notuð. Einstaklingnum verður annað- hvort gert kleift að búa heima eða á mjög litlum stofnunum. Stofnanir þær sem ætlaðar eru vangefnum hér á landi hafa allar marga vistmenn, frá 26 upp i 200. Stærsta hælið og eina rikisrekna stofnunin fyrir van- gefið fólk á landinu er Kópa- vogshæli. Þar er mikill skortur á sérþjálfuðu starfsfólki, þjálf- Krakkarnir i Múlaborg nota mikið allskonar hjálpartæki til að æfa sig. Eitt þeirra er þessi göngugrind og virðist ekki vera neitt mjög leiðiniegt að æfa sig i henni. unaraðstöðu og húsrými. Til dæmis er varla hægt að búast við göðum árangri þegar einn sjúkraþjálfi i hálfu starfi á að komast yfir að sinna tæplega 200 manns. Foreldrar þroskaheftra barna hafa bent á það, að ef félagsleg- ar aðstæður væru fullnægjandi myndu mun fleiri foreldrar treysta sér til að hafa börn sin mun lengur heima. Það sem á félagslega aðstöðu skortir fyrst og fremst eru fleiri dagheimili fyrir þroskaheft börn, þar sem hverjum ein- staklingi er sinnt i samræmi við persónulegar þarfir, litil vist- heimili, sem geta tekið við börn- unum um tima, þegar sérstak- lega stendur á og siðast en ekki sist greiningar- og ráðgjafar- stöð. —SJ Smáfiskadráp á Reykjafjarðarál? „Vantar skipakost til að ganga úr skugga um það" — segir forstjóri Hafrannsóknarstofnunarinnar „Við höfum heyrt um að tog- ararnir fái oft smáfisk þarna, en ég veit ekki nánar um það. Það sýnir vandræðin að viö höfum ekki skip til að ganga úr skugga um hvort þarna sé veiddur smá- fiskur,” sagði Jón Jónsson, for- stjóri Hafrannsóknastofnunar- innar, þegar Visir ,bar undir hann þá spurningu hvort mikið væri um smáfiskadráp á Reykjafjarðarál. Helgi Hallvarðsson, skip- herra, tjáði Visi að er hann hafi verið á siglingu aðfararnótt siðastliðins laugardags og hafði hann komið að 20 togurum að veiðum á Reykjafjarðarál. Hann sagði, að skipstjórar togaranna hefðu verið að tala saman og sagst hafa þurft að henda jafnvel helming aflans vegna þess hve hann hefði verið smár. Ennfremur hefðu þeir sagt að eftir þvi sem þeir færu dýpra þvi smærri yrði fiskurinn en hann batnaði hins vegar þar sem grynnra væri. Ekki hægt að athuga strax Jón Jónsson sagði, að ekki væri hægt að ganga úr skugga um þetta mál strax. Hafþór væri nú suður i Miðnessjó við athuganir , Arni Friðriksson væri i loðnuleit og Bjarni Sæmundsson nýkominn til hafnar og þyrfti ýmislegt að vinna i honum. Jón kvað miðin út af Norður- landi vera uppeldissvæði fyrir þorskinn. Reykjafj'arðarállinn væri hins vegar ekki friðað svæði. ,,Það eru vandræöi að þurfa að loka svæðinu allt árið eða hluta úr þvi,” sagði Jón. „Ætlunin er að hægt sé að loka fyrirvaralaust. Við höfum ekki fengið þann skipakost sem til þess þarf og þar stendur hnif- urinn i kúnni. Þess má geta, að frá Fiskveiðilaganefnd hefur komiðtillaga um þessa skipan.” Mann um borð í hvert skip Jón minnti á að umtal um að smáfiskadráp á þessum slóðum hefði komið upp ekki alls fyrir löngu.Þá hefðu skipstjórar sem átt hefðu i hlut sagt að einungis væri um miðlungsfisk að ræða. Þá benti hann á,að það segði aðeins hluta sögunnar að mæla stærð fisksins eftir að búið væri að landa honuiji þar sem hægt væri að henda þvi smæsta fyrir borð á miðunum. Þvi næst sagði hann: „Hugmyndin er sú að auka eftirlitá miðunum. Annað hvort að fjölga eftirlitsskipum eða setja eftirlitsmenn um borð i skipin sem gætu þá gert aðvart. Fiskveiðilaganefnd hefur lagt til að hafa eftirlitsskip i hverjum landsfjórðungi.” — EKH Sýning Gunnars vakti othygli Ljósmyndasýning Gunnars Hanncssonar i Nikon House i New York vakti óskipta athygli og aðdáun. Sýningunni lauk 27. febrúar siðastliðinn og hafði þá staðið yfir i þrjá niánuði. Nikon House er mjög frægur sýningarsalur og þangað er ein- ungis boðið frægustu ljósmynd- urum. Samkvæmt upplýsingum frá Nikon House var sýning Gunnars með þeim fjölsóttari og mikill fjöldi fyrirspurna barst — bæði varðandi myndir Gunnars og Jsland. Meðal gesta á sýningunni voru Ingi Ingvarsson, sendi- herra tslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og frú, starfslið ferðamála, ásamt ljós- myndurum og fréttamönnum ljósmyndablaða. —EKG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.