Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 14

Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 14
löggœsluskip er árós á ísland Jón Arngrimsson skrifar: Svo virðist að ráðamönnum okkar komi nú fátt i hug annað en það, sem öllum er kunnugt um áöur, i sambandi við varnir okkar i fiskveiðilandhelgi okk- ar. Ég vil benda á, að sérhvert skip, sem siglir undir islenskum fána, er islenskt yfirráðasvæði. Arás á slikt skip jafngildir árás á Island. Þetta eru um leið al- þjóðalög og hefð. Enn strangar er tekið á þessu sé um að ræða löggæsluskip, samanber strið Bandarikjanna og Kúbu vegna sprengingar i bandarisku her- skipi i kúbanskri höfn. Sendum striðsskaðabótareikn- ing til breta. Allt fjas um, að NATO-rikin viðurkenni ekki 200 milna fisk- veiðilögsögu, kemur þessu máli ekkert við. Ég get fallist á rök- semdir ráðamanna fyrir þvi að blanda ekki varnarliðinu inn i gæslu landhelginnar. En árás á islenskt löggæsluskip af her- skipum breta er vopnuð árás á Island. Þá ber þegar I stað að kalla til varnarliðið, sem typtar til árásaraðilann og sér til þess, að slikt endurtaki sig ekki. Einnig ber að kalla til Norður- Atlantshafsflota NATO, sem i eru herskip breta, og láta þann flota gæta þess, að ekki verði um að ræða árásir á miðunum. Að þorskastriðinu loknu ber að senda striðsskaðabótareikning til breta og ekki semja við þá fyrr en sá reikningur er greidd- ur að fullu. Þvi hefur verið haldið fram, að NATO geti ekki blandað sér i þetta strið, vegna þess að engin ákvæði séu um það i sáttmála rikjanna, hvað gera skuli ef þau striða innbyrðis. Þetta eru vis- vitandi blekkingar. 1 enska text- anum segir: „Attack upon one state, shall be considered attack upon all”. Þetta verður i is- lenskri þýðingu: Arás á eitt riki verður skoðað sem árás á þau öll. Hvergi er getið um undan- tekningar. Aras breta á islenskt skip er árás á ísland. Ef öll rikin, að bretum með- töldum, snúast ekki Islandi til varnar við slik skilyrði, þá höf- um við ekkert i NATO að gera — t, þá er það fullreynt. Bretar eiga engan hefðbundinn rétt. Um varnarliðið gilda sér- samningar, sem eingöngu eru við Bandarikin. Ef við viljum ekki hafa eilifa hersetu I land- inu, er kominn timi til að athuga það mál nú. Það er óþolandi, að bandariskt herlið dvelji hér ein- göngu til þess að vernda sina eigin „Dew line” án þess að á móti komi neinar varnir okkur til handa, né nein greiðsla af þeirra hendi. Ef rétt er skoðað, . skulda þeir okkur landleigu, sem nægja myndi til að greiða allar okkar erlendu skuldbind- ingar, skuldir, sem eru orðnar svo hrikalegar, að við höfum engan rétt til að skella þeim á næstu kynslóðir. Sé grannt skoðað eiga bretar engan hefðbundinn rétt til fisk- veiða hér við land, þvi þangað til fyrir fáum árum skörkuðu þeir upp i landsteinum. SKIÐABREKKUR VIÐAR EN í BLÁFJÖLLUM Steini hafði samband við blaðið: Vegna fréttar i VIsi um dag- inn langar mig til að vekja at- hygli á þvi að til er viðar skiða- svæði i nágrenni Reykjavikur en á Bláfjallasvæðinu. 1 þessari frétt var sagt frá þvi, að allt heföi fyllst á Bláfjallasvæðinu strax á hádegi um síðustu helgi. Hafi lögreglan verið staðsett á leiðina upp eftir til að visa fólki frá. Skammt frá Bláfjallasvæð- inu, norðan þjóðvegarins, eiga tR og Vikingur sina aðstöðu. Þar á hvort félag sinn skála og skíðabrekkur eru þar góöar, ekki siðri en á Bláfjallasvæðinu. Það sem meira er, að þar er skjólbetra og engin vandræöi með bilastæði. Svæði þetta er opið almenningi. Unnið hefur verið að viðgerð- um á IR-skálanum, sem nú er kominn i nothæft ástand, og þar er ein lyfta, sem engin biðröð er i. Vikingar vigðu sinn skála fyr- ir rétt um mánuði siðan, stór- glæsilegan, og þeir hafa I gangi þrjár lyftur. Er mikill hugur i báðum þessum félögum að gera þessa aðstöðu þarna sem besta og hafa uppi margar hugmyndir I þeim efnum. Þá má geta þess að ókeypis skiðakennsla er á svæðinu um hverja helgi. Leiðin uppeftir er merkt með vegvisi en til glöggvunar fyrir menn þá er farið upp með Kol- viðarhóli. Föstudagur 12. marz 1976 vism Nauðungaruppboð sem auglýst var I 48„ 50 og 51. tbl. Lögbirtingablaös 1975 á hluta i Viðimel 50, þingl. eign Lofts Baldvinssonar, fer. fram eftir kröfu Útvegsbanka tslands á eigninni sjálfri, mánudag 15. mars 1976 kl. 14.30. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 64., 65 og 66. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á hluta í Nýlendugötu 19 C, þingl. eign Arnar Sigurbjörns- sonar, fer fram eftir kröfu Garðars Garðarssonar lögm. og Grétars Haraldssonar hrl. á eigninni sjálfri, mánudag 15. mars 1976 kl. 11.00. Borgarfógetaembættiö i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 82., 85. og 87. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á hluta i Eyjabakka 16, þingl. eign Jóns O. Einarssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri, mánudag 15. mars 1976 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavlk. Blaðburðarbörn óskast til að bera út á Skúlagötu vism Hverfisgötu 44 - Sími 86611

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.