Vísir - 12.03.1976, Síða 8

Vísir - 12.03.1976, Síða 8
8 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Páisson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson Fréttastjóri erl. frétta: Guðmundur Pétursson Aurglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Afgreiðsia: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14. simi 86611. 7 linur Áskriftargjaid 800 kr. á mánuði innanlands. i lausasögu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf. Gamalt vín ó nýjum belgjum Engum vafa er undirorpið að seinvirkni dómstólakerfisins hefur verið ein helsta brotalöm réttargæslunnar i þjóðfélaginu. Umbætur á þessu sviði eru þvj mjög brýnar. Það hefur ekki veri búið nægjanlega vel að dómstólunum. Léleg launakjör og pólitiskar emb- ættisveitingar hafa þar að auki fælt velhæfa lög- fræðinga frá störfum á þessu sviði. Dómsmálaráðherra skipaði nefnd siðari hluta árs 1972 til þess að endurskoða dómstólakerfið á héraðsdómstigi og gera tillögur um fljótvirkari meðferð dómsmála. Nefnd þessi hefur nú skilað fyrstu tillögum sinum i formi þriggja lagafrum- varpa, sem dómsmálaráðherra hefur lagt óbreytt fyrir Alþingi. Meginefni þessara frumvarpa er stofnun emb- ættis rannsóknarlögreglustjóra rikisins. Hér er ótvirætt um að ræða markverða nýbreytni, sem lengi hefur verið þörf á. Þessi nýi háttur við rann- sókn opinberra mála mun án vafa auka skilvirkni i opinberu réttarfari. Ef þessi breyting kemst til framkvæmda verður rannsókn opinberra mála ekki lengur bundin fjötr- um hinnar gömlu og að mörgu leyti úreltu um- dæmaskipunar. Þetta auðveldar mjög rannsóknir, sem ná til margra lögsagnarumdæma. Einnig horf- ir það til framfara að úrskurðir vegna rannsóknar mála verða kveðnir upp af dómurum, sem standa utan við sjálfa rannsóknina. Á fundi Lögfræðingafélagsins i þessari viku settu niu lögfræðingar fram það álit sitt, að rannsóknar- lögreglustjóri rikisins ætti ekki að lúta yfirstjórn dómsmálaráðherra eins og frumvarp nefndarinnar gerir ráð fyrir. Þeir telja eðlilegt að dómsmálaráð- herra hafi einvörðungu almennt eftirlit með rann- sóknarlögreglunni og geti i þvi skyni krafið yfir- menn hennar skýrslna um einstök mál. Með þessu móti yrði rannsóknarlögreglan sjálf- stæðari og óháðari framkvæmdavaldinu. Engin hætta er á að þessi lögreglustofnun yrði of valda- mikil, þótt að þessu ráði yrði horfið, enda kemur hún til með að hafa nægjanlegt aðhald frá rikissak- sóknara og dómstólum. Umræðum um þetta atriði má að sjálfsögðu ekki blanda saman við þá erfiðleika, sem núverandi dómsmálaráðherra hefur átt við að striða undan- farnar vikur. Ákvörðun hér að lútandi á vitaskuld að taka án tillits til einstaklinga, enda koma dóms- málaráðherrar og fara. Þá hefur verið upplýst að von sé á frumvörpum frá nefndinni um stofnun millidómstigs i héraði. Hugmyndin er sú að sérstakir lögréttudómar i Reykjavik og á Akureyri taki við verulegum hluta þeirra mála, sem nú eru i höndum héraðsdómara. Þó að dómstigin yrðu þannig þrjú myndu mál eftir sem áður aðeins geta farið fyrir tvö stig i dóms- stólakerfinu. Þessir nýju dómstólar geta ugglaust létt verulegu fargi af núverandi héraðsdómum. En þar að auki horfir það til framfara, að hin gamla umdæmaskip- an er rofin. Allar eiga þessar umbætur að geta leitt til skjótvirkari meðferðar dómsmála. Þær hugmyndir, sem liggja að baki þessum tillögum eru fæstar nýjar af nálinni. Flestar hafa verið ræddar árum og jafnvel áratugum saman. Nú liggur hinsvegar mikið við að koma þeim fram. Á þvi má ekki verða óeðlilegur dráttur. Föstudagur 12. marz 1976 vism Umsjón: Guömundur Pétursson E nn hefur Golda Meir komið út úr helga steininum, sem hún var setst i, til þess að taka þátt i stefnumótun stjórnarflokks ísra- els. Forsætisráðherrann fyrrver- andi, sem nú er orðin sjötiu og sjö ára, en jafn spræk og meinhæðin og nokkum tima áður, hefur ját- ast á að taka sæti i einskonar nýrri útgáfu af „eldhússtjórn- inni” hennar gömlu. A fundi, sem leiðtogar verka- mannaflokksins i tsrael áttu á heimili hennar um si'ðustu helgi, var ákveðið, að þessi hópur kæmi saman á föstudegi hverrar viku eða tveim dögum fyrir hinn viku- lega rikisstjórnarfund. — A þess- um fundum verða einnig ráðherr- ar og fulltrúar Gyðingaráðsins og Histadrut (eins og verkalýðssam- tökin heita). A þessum vikulegu fundum skulu lögð drögin að stefnu isra- elsstjórnar, meðan verkamanna- flokkurinn fer með völd. t eldhúsinu hjá Goldu Meir, en þarna eru það systurnar Golda og Klara sem ráðgast um eldamennskuna. Það hafa orðið miklar breyt- ingar á hugarfari manna i ísrael gagnvart palestinuvandamálinu á þeim tveim árum, sem Iiðin eru siðan Golda var i embætti. Aður léði enginn þvi eyra, að slaka til undan kröfum araba eða skila aftur landsvæði, sem unnist hafði i arabastriðunum. Nú ber nokkuð á röddum, sem telja, að ósveigj- anleiki fyrri ráðamanna viðkom- andi hernumdu svæðunum hafi skaða ísrael. Friðardúfur á borð við Allon og forvera hans Eban boða það, að tsrael opni hug sinn fyrir nýjum ráðum til að öðlast frið i Austur- löndum nær. — Eban segir, að tsrael ætti að búa sig undir að slaka stórkostlega til i skiptum fyrir friðarsáttmála. Allon elur enn á hugmynd um að skila aftur öllum vesturbakka árinnar Jórdan, auðvitað gegn friðar- samningum. Yitzhak Rabin, núverandi for- sætisráðherra, hefur þarna brugðist við þeirri gagnrýni, sem hann hefur legið undir upp á sið- kastið. Hefur á undanförnum mánuðum komi fram megn óá- nægja með, hversu ákafur hann væri og sæist litið fyrir, og hversu óráðþægur hann væri og ótalhlýð- inn I samskiptum við aðra leið- toga flokksins. En með þessum vikulegu ó- formlegu fundum verður naum- ast undan þvi kvartað, að flokks- forkólfarnir náiekki eyra Rabins. Vera Goldu Meir á þessum fundum mun án nokkurs vafa auka stjórnmálalegt mikilvægi þessarar „eldhúsnefndar”. — Golda, sem hefur litið sem ekkert haft sig i frammi, siðan hún fór úr forsætisráðherrastólnum, mun nú á nýjan leik taka sæti i 40 manna framkvæmdaráði flokksins. Þessi mótleikur Rabins við gagnrýninni að undanförnu er þó ekki án þess að veikja ögn hjá honum taflstöðuna um leið. And- stæðingar hans hafa verið fljótir að túlka þetta á þann veg, að þeg- ar erfiðar ákvarðanir séu fram- undan hjá ísrael, og fyrir alvöru taki að reyna á leiðtoga þjóðar- innar, hlaupi hann til og skýli sér á bak við pilsin hennar Goldu. Það hefur nokkuð gustað um Rabin í forsætisráöherrastólnum siðasta hálfa árið. Menn hafa sett út á hans persónulega handbragð við stjórn landsins, gagnrýni hans á varnarkerfiðog fjölmiðla i tsra- el hefur verið tekið óstinnt uppi, og loks eru friðardúfurnar i stjórninni með honum ekki á- nægðar með, hversu ósveigjan- legur hann hefur verið i samn- ingatilraunum við palestinuar- aba. A fyrsta fundi „eldhússtjórnar- innar” heima hjá Goldu vantaði einn, sem tvimælalaust hlýtur að sitja þessa fundi i framtiðinni. Það var Yigal Allon, utanrikis- ráðherra, sem var á ferðalagi um Golda aftur i dægurþrasi stjórnmálanna. Hér sést hún á fundi með Allon, Eban, Galili og fleirum. Eldhúsfundirnir hjá Goldu Meir helgina i Suður-Ameriku. Allon er mestur áhrifamaður úr hópi frið- ardúfnanna. En þarna voru á eldhúsfundin- um Shimon Peres varnarmála- ráðherra, Haim Zadok dóms- málaráðherra og Yisrael Galili, sem er ráðherra án ráðuneytis. Á eldhússtjórnarfundum Goldu i gamla daga sátu ekki'aðrir en ráðherrarnir. En nú er ætlunin, að kveðja til skrafs og ráðgerða áhrifamenn utan rikssstjórnar- innar. Þeirra á meðal verður Yosef Almogi, borgarstjóri i Kaifa, sem nýlega var kjörinn formaður Gyðingaráðsins. Annar verður Yeruham Meshel, fram- kvæmdastjóri ASI þeirra i ísrael. Enn einn verður Meir Zarmi, framkvæmdastjóri verkamanna- flokksins, sem hefur hætt við að segja af sér, einmitt eftir að eld- húsnefndin var sett á laggirnar. — Zarmi hafi lagt fram afsögn sina og kvartað undan flokka- dráttum innan flokksins og skorti á samvinnu milli stjórnarinnar og laun þega sam taka nna. Einnig mun hafa komið til tals, að Moshe Dayan, fyrrum varnar- málaráðherra,hetjanúrsex daga striðinu, sem féll i ónáð, þegar israelsher undir hans stjórn lét innrás egypta 1973 koma sér að óvörum. Eins kynni Abba Eban, fyrrum utanrikisráðherra, að verða kvaddur til. Siðan Golda Meir hætti þing- störfum (fyrir tveim árum i kjöl- far Yom Kippur-striðins) hefur hún verið önnum kafin við að skrifa sjálfsævisögu sina. Það hefur verið gestkvæmt hjá þess- ari konu, sem á sinnm langa starfsaldri hefur aflað Sér miils vina- og kunningjahóps. Hún hef- ur ekki með öllu skorast undan þvi að þjóna landi sinu, heldur af og til tekist á hendur þýðingar- miklar ferðir fýrir stjórnina til viðræðna viðerlenda leiðtoga. En það hafði verið flestra hald, að húnmundi siður vilja blanda sér í dægurþras stjórnmálanna að nýju. Eftir þvi sem kvisast hefur út af eldhúsfundinum heima hjá henni um helgina, sýndi gamla konan, að hún er bráðskýr og skarpskyggn sem fyrr og lagði margt til mála. Golda Meir nýtur enn mikilla vinsælda og álits heima fyrir og erlendis. Auðvitað gerir Rabin sér ljóst að stjórn hans yrði styrk- ur að þvi, ef samningur i Israel sæi, að Golda Meir starfaði með henni. Hitt á svo eftir að koma i ljós, hversu mikil áhrif Golda mun hafa á þankagang ráðherranna nýju. Það orð fór af Goldu sjálfri, þegar hún sat i forsæti, að hún væri harþur samningamaður og afar tortrygginn gagnvart öllum tilslökunum við arabanágranna Israels.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.