Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 7
7
LEYNIÞJÓNUSTAN LAS
ÖLL EINKASÍMSKEYTIN
Einn af yfirmönnum banda-
riska simafyrirtækisins ITT
sagði, að öll simskeyti til og frá
útlöndum, sem fóru i gegnum
fyrirtækið hafi veriö send
leyniþjónustunni til aflestrar.
Hefði það verið fastur liður i
daglegu starfi fyrirtækisins.
Sú deild leyniþjónustunnar
bandarisku, sem auðkennd er
með stöfunum NSA, tók að
hnýsast i simskeyti fyrirtækja
og einstaklinga, sem send voru
milli Bandarikjanna og annarra
landa, árið 1947 og mun hafa
haldið þvi áfram allar götur siö-
an. Þar til i mai i fyrra.
George Knapp, forsetl
ITT, bar það fyrir mannrétt-
indanefnd fulltrúadeildarinnar i
gær, að um 20 ára bil hefði NSA
gluggað i öll skimskeyti til og
frá nokkrum ákveðnum lönd-
um, eins og t.d. Sovétrikjunum.
önnur fjarskiptafyrirtæki,
sem reka simstöðvar, eins og
Global Communic^tions og
Western Union International
hafa játað það sama fyrir
nefndinni.
Nefndin hefur ekki enn gert
upp við sig, hvort hún birtir nöfn
þeirra landa, sem hér er um að
ræða.
Samtimis þessu var i gær
birtur vitnisburðúr Richards
Nixons, fyrrum forseta Banda-
rikjanna, þar sem hann segist
hlynntur þvi, að leyniþjónustan
gripi til lögbrota við söfnun upp-
lýsinga.
Það kom fram i þessum
vitnisburði, að Nixon áleit til-
ganginn helga meðalið og ólög-
legar aðferðir eins og innbrot i
hibýli manna eða skrifstofur —
eða simahleranir og stuldur á
pósti væru löglegar aðgerðir hjá
leyniþjónustunni, þar sem hún
stæði vörð um öryggi þjóðarinn-
ar.
Það voru lögfræðingar Nix-
ons, sem leyfðu birtingu þessa
vitnisburðar forsetans fyrrver-
andi.
Frank Church, formaður
þeirrar þingnefndar, sem fylg-
ist með leyniþjónustunni, lýsti
þvi yfir á blaðamannafundi i
gær, þegar þetta hafði verið
gert kunnugt, að þessi túlkun
Nixons byggðist á hættulegri lit-
ilsvirðingu fyrir stjórnskránni
og stjórnsýslu.
1 vitnisburöi Nixons kemur
fram, að honum hafi verið
kunnugt um, að fyrri stjórnir i
Bandarikjunum höfðu lagt
blessun sina á þessar starfsað-
ferðir leyniþjónustunnar.
Nixon viðurkenndu, að hann
hefði sjálfur lagt blessun sina
yfir að siminn hjá Donald
bróður hans yrði hleraður.
Nixon áleit innbrot og
hleranir löglegar, ef leyni-
þjónustan vœri annars vegar
Mólúkkarnir lásu Biblíuna
eftir morðin
Hryðjuverkamenn Mólukka-eyja viö sendiráð Indónesiu I Amster-
dam <10. desember), en á myndinni t.v. sést einn glsla þeirra, send-
ur út eftir matnum, meðan garparnir þorðu ekki sjálfir að hætta sér
i skotfæri.
Mólúkkarnir sem hertóku járn-
brautarlest i HoIIandi i desember
siðastliðnum og drápu þrjá gisla
með köidu blóði, hófu að lesa
Bibliuna þegar þeir sáu hvaða
ódæöisverk þeir höfðu framið.
Þessu hélt einn mólúkkanna
fram við réttarhöld i Assen i Hol-
landi i gær. Hann sagði að eftir
þriðja manndrápið hefðu hann og
félagar hans heitið þvi að myrða
ekki fleiri.
Mólúkkarnir sjö sem hertóku
lestina i, þeim tilgangi að vekja
athygli á vandamálum Mólúkka-
eyja, hafa gefið ófagrar lýsingar
á manndrápum sinum.
Einn þeirra, Elisa Hahurij,
sagði að þegar lestarstjórinn hafi
séð hvað um var að vera hafi
hann læst hurðinni að stjórnklef-
anum. Einn úr hópnum skaut þá i
gegn um hurðina. Lestarstjórinn
særðis mikið. Hahurij sagðist
hafa séð fingur hans hreyfast,
og vi skotið hann nálægt höfðinu
til að hann þyrfti ekki'að kveljast.
Hahurij sagðist einnig hafa
skotið Leo Bulter sem var gisl i
lestinni. Bulter var látinn standa
með hendur bundnar fyrir aftan
bak i dyrum lestarinnar og siðan
skotinn. Annar mólukki sagði við
réttarhöldin að sex minútum sið-
ar hefði hann gætt að Bulter, og
þá hafi hann enn verið á lifi, og
veinað af sársauka.
Hahurij hefur einnig viður-
kennt að hafa skotið gislinn Bert
Bierling og dregið hann út á
brautarteinana.
British Airways og Air France undirbúa bardagann fyrir Concorde
British Airways og Air
France búa sig nú undir bar-
áttu fyrir dómstólum til að
fá að lenda Concorde þotum
sinum á Kennedy-flugvelli i
New York.
Rikisstjórn Bandarikjanna
hefur heimilað flug Concorde
til Kennedy-flugvallar. En
löggjafarþing New York hefur
sett lög sem banna lendingar
flugvéla sem fara yfir ákveðin
hávaðamörk. Concorde er ein
af þeim.
New Jersey riki og New
York eiga Kennedy-flugvöll.
Búist er við að New Jersey
setji svipuð lög á næstunni.
Flugfélögin tvö tilkynntu i
bréfi til yfirvalda Kenn-
edy-flugvallar i gær að þau
hygðust hefja flug Concorde i
næstu viku til vallarins
Flugfélögin sögðu að vegna
heimildar rikisstjórnarinnar
væri ólöglegt af flugvallaryf-
' irvöldum að banna Concorde
notkun Kennedy-flugvallar.
Franjieh forseti
heldur embœttinu
Forseti Líbanon, Sulei-
man Franjieh heldur enn
embætti sínu þrátt fyrir
tilraun hluta hersins til að
taka völdin.
Franjieh sagði i útvarpsá-
varpi i gær, að hann mundi
hafna öllum ólöglegum tilraun-
um til að koma á nýrri stjórn.
Yfirmaður Libanonhers i
Beirút, Aziz Al-Ahdab sagði i
sjónvarpsávarpi i gær að herlög
giltu i borginni. Hann lýsti
sjálfan sig sem bráðabirgða-
landstjóra hersins, og skoraði á
rikisstjórnina að segja af sér
innan sólarhrings. Hann sagði
að Franjieh forseti ætti að segja
af sér, og þingið ætti að kjósa
nýjan forseta innan viku.
Þegar Al-Ahdab hafði lesið
yfirlýsingu sina, fögnuðu byssu-
menn i Beirút með þvi að skjóta
upp i loftið. En eftir það var allt
að mestu leyti með kyrrum
kjörum.
Al-Ahdab sagði að ekki væri
um byltingartilraun að ræða,
heldur tilraun til að „leiðrétta”
rikisstjórnina. Hann sagðist
hafa allflesta hluta hersins
með sér.
Bardaginn milli Al-Ahdab og
Franjieh forseta fór að m^stu
fram i útvarpsstöðvum lands-
ins, sem eru nokkuð margar.
Margar stöðvanna hófu að út-
varpa á sömu bylgjulengd og
rikisútvarpið i Beirút sem út-
varpar á arabisku.
Pólverjar vilja
ekki tryggja
mannakaupin
Horfur eru á þvi, að Bundesrat
(efri deild þingsins i Bonn) felli
hinn umdeilda samning Bonn-
stjórnarinnar við Pólland um
kaup og sölu á pólitiskum föng-
um.
Samningurinn felur i sér, að V-
Þjóðverjar veiti Pólverjum 1,000
milljón marka lán á hagstæðum
kjörum og greiði þeim ennfremur
1,300 milljón mörk i einskonar
lokauppgjör á striðsskaðabótum. t
1 staðinn átti pólska stjórnin að
leyfa 125,000 þýskættuðum pól-
verjum að flytj^ i friði úr landi á
næstu fjórum árum.
Stjórnarandstaða hefur krafist
tryggingar af hálfu pólverja fyrjr
þvi, að þeir standi við sinn hluta
samningsins, en það vilja pól-
verjar ekki.
Ósannað að cyclamat
vaUi krabbameini
Visindamönnum hefur ekki tekist
að ákveða hvort cyclamat (notaö
til að gera sætt i staö sykurs) geti
valdið krabbameini i mönnum —
samkvæmt því sem kemur fram i
skýrslu e.ftir sjö mánaöa rannsókn-
ir i Washington.
t skýrslu sex visindamanna
krabbameinsstofnunarinnar segir:
„Sú vitneskja, sem nú liggur fyrir,
sannar ekki að cyclamat sé
krabbameinsvaldandi.”
Cyclamat, sem mikið var notaö i
gosdrykki, var afturkallað ai
markaðnum 1969, eftir aö tilraunir
á rannsóknastofum gáfu til kynna,
að það y lli krabbameini i skepnum.
Grófu flóttagöng með
matskeiðum
Fimm fangar sluppu úr fangelsi i
Rio de Janeiro i gær með þvi aö
grafa sig út úr fangaklefanum.
Notuðu þeir matskeiðar við gröft-
inn, og voru fjórar stundir að grafa
sig undir steinvegginn.
Afhroð verkamanna-
fíokksins
Kosið var i tveim kjördæmum i
Bretlandi i gær, Carshalton (i út-
jaðri London) og Wirral (nyrst á V-
Englandi). thaldsflokkurinn hélt
þingsætum sinum þarna áfram, en
jók nú meirihluta sinn frá þvi sem
áður var.
Fékk stjórnarandstæðingurinn i
Carshalton að þessu sinni 9.732 at-
kvæöum fleira en frambjóðandi
verkamannaflokksins, meðan hann
hafði 3,698 atkvæðameirihluta i
kosningunum 1974.
I Wirral fékk frambjóöandi
lhaldsflokksins 24.112 atkvæðum
meira en frambjóðandi verka-
mannaflokksins, en munurinn i
kosningunum 1974 var aðeins 13.488
atkvæði.
Samt var kjörsókn minni að
þessu sinni. Hún var aðeins 60,6% i
Carshalton og 55,6% i Wirral.
Stúdentaóeirðir
Hermenn fóru eftirlitsferðir um
stræti Bogota i gærkvöldi eftir að
lögreglusveitir höfðu með táragasi
stöðvað 5.000 stúdenta og drepið
mótmælagöngu á dreif. — Stúdent-
arnir voru að mótmæla drápi
stúdents i Medellin, annarri
stærstu borg Kólombia. Stúdentar i
óeirðahug i Medellin höfðu ætiað
að kveikja i bifreið vegfaranda, en
ekillinn brá upp byssu og skaut
einn brennumanna til bana.
Ghúrkahermenn
Sovétríkjanna
Daniel Patrick Moynihan, sá orð-
hvati sendiherra Bandarikja-
manna hjá Sameinuðu þjóðunum
(uns hann var látinn hætta), sagði i|
viðtali við BBC i gær, aö kúbanskirR
herflokkar væru i Golan-hæðum |
Sýrlandsmegin.
Kallaði hann Kúbu-dátana|
„Gúrkaherménn” sovéska heims-H
veldisins, og rifjast upp fyriro
mönnum hin annálaða grimnuig
Gúrkafjallamannanna, sem dugðuj*
bretum svo vel i frumskógahernaði |
Asiu i siðari heimsstyrjöldinni
Moynihan segir aö Kúbu-her |
flokkar séu nú I fimm löndum \ ■ $
Afriku.
„Þeir eru reiðubúnir að far;- v
hvert sem er að myrða fólk. e: f
þeim er skipað svo,” sagði Móyni-|
han.