Vísir - 31.03.1976, Síða 1

Vísir - 31.03.1976, Síða 1
Sjálfstœðismenn klofnuðu Meirihluti bœjarbúa styður okkur segir Sigurður Jónsson um bœjarstjóra „Ás tæöan fyrir tausnarbeiðni okkar úr bæjarstjórn/ var ákvörö- un meirihluta fulltrúa- ráðsfundar Sjálfstæöis- flokksins/ um að styðja ekki kjör Páls Zóphani- assonar sem bæjarstjóra. Við sættum okkur ekki við ábyrgðarlaus vinnubrögð flokksins í bæjarmál- um," sagði Sigurður Jónsson bæjarstjórnar- fulltrúi í Vestmannaeyj- um í viðtali við Visi í morgun. Sigurður og Einar H. Eiriks- son, tveir af fjórum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins i bæjar- stjórn, lýstu þvi yfir að eftir þessa ákvörðun flokksins störf- uðu þeir ekki lengur i fulltrúa- ráði og óskuðu þar af leiðandi lausnar úr bæjarstjórn. A fundi bæjarstjórnar i gærkvöldi var lausnarbeiðnin felld með fimm samhljóða atkvæðum, þar sem ekki var talið að nein haldbær rök væru fyrir þvi að veita lausnina. 1 sérstakri bókun sem þessir fimm fulltrúar létu gera köm fram að þeir teldu það ólýð- ræðislegt og óþolandi fyrir bæjarstjórn og bæjarbúa að kjörnir fulltrúar væru hraktir úr starfi af ábyrgðarlausum ein- staklingum og pólitiskum valdaklikum. ,,Við munum hlita þessum úrskurði meirihluta bæjar- stjórnar og starfa þar áfram, en óflokksbundnir. Ef við hefðum farið eftir ákvörðun fulltrúa- ráðsins, hefði ekki myndast nein samstaða um bæjarstjóra. Það er nú ljóst að Fáll Zóphaniasson nýtur stuðnings meirihiuta bæjarstjórnar, og ljóst er einnig að meirihluti bæjarbúa styður okkur og vill að friður náist og hægt sé að vinna af fullum krafti að bæjarmálum,” sagði Sigurð- ur Jónsson. - EB «#6 ffUI« Sigurður og Aðalsteinn Aðalsteinssynir og nýjasta varðskipið, Ver AK 200 Tilbúnir í Tjallann! — Það hefur ekkert verið talað um þetta við okkur, sögðu menn um borð i togaranum Ver AK-200, þegar Vis- ir ræddi við þá i morgun um hvernig þeim litist á að vera komnir i varðskipaflot- ann. Landhelgisgæslan hefur tekið Ver á leigu og yfirmenn hennar hafa sagt að áhöfnin verði áfram hin sama, nema hvað einhverjir yfirmenn frá Gæsl- unni taki við stjórninni. Áhöfnin á Ver vissi hinsvegar ekkert um málið annað en það sem þeir höfðu heyrt i fréttum, og þeir höfðu verið að búa skipið til veiða í allan gærdag. Bræðurnir Sigurður Aðal- steinsson, þriðji vélstjóri og Aðalsteinn Aðalsteinsson, há- seti, voru hinsvegar ágætlega ánægðir með að vera komnir ,,i flotann”. — Ég býst við að flestir verði áfram hjá Gæslunni og við verð- um það allavega ef okkur'býðst pláss, sagðiSigurður. — Ég held að þetta skip sé gott til gæslu- starfa. Það gengur uppundir sautján milur enda þessir pólsku togarar þeir hraðskreið- ustu i togaraflotanum. Þeir virðast einnig ágætlega liprir, þvi lóðsar hafa sagt mér að þetta séu skemmtilegustu skip- in sem þeir koma um borð i, til að „manúvera” innan hafnar. — Mér sýnist reynslan hafa sýnt að þessir togarar eru góð vinnuskip til gæslustarfa, sagði Aðalsteinn. Baldur hefur staðið sig svo vel að maður verður bara stoltur af að heyra hvað hann hefur gert. Þeir bræður höfðu ekki miklar áhyggjur af þvi að lenda i úti- stöðum við breskar freigátur. Voru alveg tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að verja land- helgina. — OT. Ætla að búa fil laxveíðíá! -«u ______ J Hvar eiga hafnf irskar konur að ala börn sin á kom- andi árum? Um það eru ekki allir á eitt sáttir. Bæjar- stjórnin vill loka fæðingardeildinni á Sólvangi og að haf nf irðingar fæðist eftirleiðis í Reykjavik. Þessu eru mæður og verðandi mæður í Firðinum ekki sammála. Sjá bls. 2 Hvar eiga hafnfirð- ingar að fœðast? MIKILVÆGUR AFANGI EVDID DCDD - segir Kristjón rilim D9IID Thorlacius ,,Ég tel þetta vera mikilvæg- an áfanga fyrir samtök opin- berra starfsmanna ” sagði Kristján Thorlacius þegar Visir innti hann álits á samkomulagi þvi sem tekist hefur milli fjár- málaráðherra og BSRB um samningsréttarmálin. ,„,Þessi árangur hefur náðst fyrir góða samstöðu innan sam- takanna. Það mikilvægasta er að bann við verkföllum, sem verið hefur i gildi allt frá árinu 1915, hefur verið fellt niður. Verkfallsréttur BSRB er ekki sami verkfallsréttur og er hjá öðrum stéttarfélögum, og er að þvi leyti ekki fullkominn. Verk- fallsrétturinn er aðeins fyrir heildarsamtökin, en ekki hvert einstakt félag um sérsamninga. En eftir atvikum tel ég þetta vera viðunandi áfanga ” sagði Kristján. — SJ Túr með loðnubát Ýmsir telja loðnuvertiðina brátt á enda. Alveg er fyrirsjáanlegt að hún verður lélegri en i fyrra, þó að vart teljist hún léleg. Frásögn með myndum úr loðnutúr með Þor- steini RE birtist á bls. 11. SÓLARORKAN ÓNOTUÐ — sjó erlendar fréttir bls. 6-7-8

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.