Vísir - 14.04.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 14.04.1976, Blaðsíða 1
16 skipbrotsmenn í stórhríð ó ísbreiðu milii Jan Mayen og Grœnlands Skipið sekkur strax og ísinn gliðnar Erfitt björgunarflug í athugun í fyrsta sinn getur aö llta saman elsta flugfreyjubúning Loft- leiöa og þann yngsta frá Flugfélaginu. Erna Hjaltaifn yfirflug- freyja er I elsta Loftleiöabúningnum og Jóhanna óskarsdóttir er i núverandi flugfreyjubúningi Fjugfélagsins. Myndina tók Loft- ur Ásgeirsson i morgun. skipinu Fortuna frá Tromsö hafast við á is- breiðunni, eftir að skip þeirra laskaðist mikið af völdum iss og göt komu á það. Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélags Islands, sagði Visi að samkvæmt upplýsingum, sem borist hefðu frá áhöfn Fortuna um Siglu- fjarðarradió i morgun, liði mönn- unum vel, þar sem þeir hefðust við á isnum. Skipið væri mikið skemmt en væri þó ekki sokkið. Gætu skipbrotsmennirnir þvi ennþá notað talstöðina um borð, en búast mætti við að Fortuna sykki strax og isinn gliðnaði. Björgunarsveit varnarliðsins ihugar nú, hvort hægt verði að senda björgunarþyrlu frá Kefla- vik til mannanna i dag, en veður- útlitið er ekki gott. Ætluðu að ganga yfir isbreiðuna Norömennirnir hugðust reyna að ganga yfir isbreiðuna að norsku skipunum tveimur, sem föst hafa verið i is á svipuðum slóðum og sagt hefur verið frá I fréttum, — en athugun varnar- liðsmanna úr björgunarflugvél sem flaug þarna yfir seint I gær- kvöldi, leiddi i ljós að um 40 kiló- metrar eru á mílli þessara staða. Auk þess reyndust miklar vakir vera á Isnum og er nú talið útilok- að að.skipbrotsmennirnir komist alla leið fótgangandi. Þyrla yrði að taka eldsneyti þrisvar á leiðinni Þyrluflug frá Keflavlkurflug- velli norður til skipbrotsmann- anna er einnig erfiðleikum háð, þar sem leiðangurinn mundi taka allt að þrettán klukkustundir, að sögn Howie Matson, blaðafulltrúa varnarliðsins. Hann sagði I sam- tali við Visi i morgun, að þyrlan yrði að taka eldsneyti þrisvar sinnum á hvorri leið. Ef ráðist yrði I þessa ferð, færi birgðaflug- vél með þyrlunni, og yrði elds- neytinu dælt milli vélanna á flugi. Þegar Visir fór i prentun um hádegisbilið var komin stórhrið á þeim slóðum, þar sem Fortuna er, ogútlit fyrir að áhöfn skipsins veri að hafast við á Isnum enn um sinn. —ÓR Laust fyrir hádegi i dag var veður farið að versna á svæðinu milli Jan Mayen og Græn- lands, þar sem 16 skip- brotsmenn af norska /fEkki andvígur aðild Spónar að NATO" — segir utanríkisróðherra í viðtali við Vísi í morgun „Ég hef veriö á móti þvi hing- að til að Spánn fengi inngöngu i NATO, en ef stjórnarhættir eru aö breytast sé ég ekki ástæöu til að vera þvi andvigur”, sagöi Einar Agústsson i samtali við Visi i morgun. Kissinger utanrikisráðherra Bandarikjanna berst. nú fyrir þvi að Spánn fái inngöngu i NATO. Mun hann hafa sent sendiherrum Bandarikjanna i Vestur-Evrópu skeyti þar sem hann gerir grein fyrir áætlun um að fá stuðning annarra NATO rikja við þá hugmynd að Spánn fái aðild að bandalaginu smátt og smátt. „Það hefur engin formleg ósk borist hingað varðandi aðild Spánar” sagði Einar Agústson. Þvi hefur þetta atriði ekki verið rætt ennþá. Ef það eru lýðræðislegir stjórnarhættir sem nú eru að taka við á Spáni hef ég ekki neitt við aðild þess að athuga.”EKG Ármannsstúlkurnar þrifu markvörð sinn Magneu Magnúsdóttur á loft og sendu hana í f lugferð í gleði sinni yfir unnum sigri yfir Fram í bikarkeppninni í handknattleik kvenna í gærkvöldi. Þær höfðu líka ástæðu til að hylla hana, því að hún varði m jög vel tvö vítaköst í vítakastskeppni liðanna og tryggði liði sínu bikarinn. Sjá nánar í opnu— auk bikarleiks karla og annarra iþróttaviðburða. Öeðlileg verslun- arafskipti opinberra starfsmanna? „Við höfum grun um að þess séu dæmi að opinberir starfsmenn stundi — eða hafi veru- lega og óeðlileg afskipti — af verslunarrekstri i eigin þágu. Ennþá eru það mjög fá tilvik sem okkur hefur verið tilkynnt um og mál þessi enn á könn- unarstigi. Það er hugsanlegt að þarna finnist eðlilegar skýring- ar,” sagði Júlíus Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags is- lenskra stórkaupmanna, i við- tali við Visi. Stjórn félagsins hefur falið skrifstofu þess að leita eftir upplýsingum frá félagsmönnum um óeðlileg verslunarafskipti opinberra starfsmanna sem þeim sé kunnugt um. ,,Með þessuerátt við að opin- berir starfsmenn flytji inn og selji vörur sem heildsalar og taki þátt i útboði hjá innkaupa- stofnunum. Opinberir starfsmenn mega ekki lögum samkvæmt stunda verslunarrekstur, ef hagsmunir fara ekki saman við þeirra starf. Sem dæmimættinefna aö starfsmenn i tolli hafa aögang að ýmsum þeim skjölum sem gerir þaö fráleitt að þeir séu i „bissness” sjálfir” sagði Július Ólafsson. —-EB Keyptu póskafötin fyrir falskan 100 Lögreglan handtók i gær- kveldi fjóra menn, sem keypt höfðu sér fatnað I einni tisku- verslana borgarinnar fyrir falsaða 100 þúsund króna ávis- un. Voru þetta tveir piltar og tvær þ. kr. tékk stúlkur, sem ætluðu sér aö fá sér góðföt fyrir páskaan. Verslunar stjórinn hringdi I bankann, sem ávisuninvarfráogfékk þar þær upplýsingar að það reiknings- númer, sem ungmennin höfðu notað, væri ekki til. Myndin var tekin á æfingu á leikritinu „Dagbók Önnu Frank” sem við heyrum annað kvöld. — Sjá páskadagskrá útvarps og sjónvarps bls. 12, 13, 14 og 15.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.